Morgunblaðið - 16.08.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGUST 1974
— Tyrkir sækja
fram
Framhald af bls. 1
tyrkneskar flugvélar gerðu
kröftugar árásir á strandveginn
milli Lefka og Paphos, heima-
bæjar Makariosar erkibískups A
suðvesturströndinni.
Tyrkir segja, að hermenn
þeirra sæki í vestur frá Nikósíu
til Lefka
£ f logum
Hafnarmannvirki í Famagusta
stóðu i logum í dag, aðalher
Tyrkja kom sér fyrir rétt hjá
borginni og götubardagar geisuðu
í borginni. Bílalest hermanna
Kýpur-Grikkja reyndi að leita
hælis í Dhekelia, en Bretar vísuðu
þeim burtu, þar sem þeir báru
vopn.
Bardagar geisuðu einnig i fjöll-
unum við Kyrenía á norður-
ströndinni, og tyrkneskar flug-
vélar réðust á stöðvar Kýpur-
Grikkja á þessu svæði til að auð-
velda sóknina til Lefka.
Loftárásir voru einnig gerðar á
Nikósíu. Bardagarnir í Nikósíu
héldu áfram, en dvínuðu, þegar á
daginn leið. Eldar loguðu á
mörgum stöðum í iðnaðarhverfi
borgarinnar.
I London var sagt, að nánast
enginn möguleiki væri á því, að
rofað gæti til í Kýpurdeilunni,
fyrr en Tyrkir hættu sókninni.
Bretar hyggjast ekki bera fram
nýjar friðartillögur, fyrr en
bardagarnir hætta.
Samkvæmt óstaðfestum
fréttum tóku Tyrkir bæinn
Myrtou um 30 km norðvestur af
Nikósíu og sóttu til borgarinnar
Morphou.
— Nazarethmálið
Framhald af bls. 32
lögfræðinga í London og beðið
þá að taka málið að sér. Síðan
hafi hann ekkert frétt fyrr en f
gærmorgun, er Mountain Mana-
gements umboðsaðili Nazareth
(Nems er þar milliliður) hafði
samband við Jón vegna breyt-
inga á flugfari hljómsveitarinn-
ar héðan. Höfðu þeir þá ekki
hugmynd um, hvernig málin
stóðu og töldu það ákveðið, að
Jón fengi hljómsveitina. Er
þeir heyrðu málavöxtu, lofuðu
þeir Jóni, að honum yrði
sendur samningurinn flugleiðis
samdægurs, og varð sú raunin.
Samningurinn er undirritaður
af Steve Weltman, sem er sér-
stakur samningsmaður fyrir
Nazareth, en við hann hafði Jón
talað fyrst. Bréfhaus samnings-
ins er hins vegar merktur
Nems, sem virðist þvf vera
einhvers konar allsherjar
dreifingarmiðstöð fyrir
skemmtikrafta í Englandi. Þess
má geta, að Steve Weltman er
með Nazareth á ferð þeirra um
Skandinavíu um þessar
mundir, en Jón talaði einnig
við hann i síma í gærmorgun.
Sagði Jón, að næsta skref hjá
sér væri að koma samningnum í
hendur réttra aðila, og mundi
hann hefja sölu aðgöngumiða á
föstudag, þ.e. f dag.
Er Mbl. hafði samband við
Ámunda Amundason í gær og
bar málið undir hann, sagði
hann, að málið væri engan
veginn útkljáð, þótt svo virtist
sem Jón hefði töglin og
hagldirnar f dag. Sagði
Ámundi, að það mundi ekki
koma sér á óvart, þótt John
Fenton sendi skeyti á morgun,
þar sem hann mundi ógilda
samning Jóns. Sagði Ámundi,
að hann hefði misst samn-
inginn í bili, vegna þess að inn-
borgun til Nems hefðí ekki
borizt í tæka tíð, þ.e. á hádegi í
gær, og væri því um að kenna,
að allar vélar til London voru
fullbókaðar. „Ég á enn ýmis
tromp á hendi, og ef svo illa fer,
að Jón fær endanlega samn-
inginn, á ég skaðabótakröfu á
hendur Eric Thompson,
umboðsmanns f Kaupmanna-
höfn og John Fenton", sagði
Ámundi að lokum.
— Björgvin
Framhald af bls. 31
Magnús Halldórsson 169
Henning Bjarnason 169
2. flokkur karla
Guðmundur Ingólfsson 174
Karl Jóhannsson 178
Ólafur Tómasson 180
3. flokkur karla
Guðni Guðnason 185
Aðalsteinn Guðlaugsson 191
Helgi Gunnarsson 192
Unglingaflokkur
Óli Laxdal 166
Hannes Eyvindsson 175
Ómar Ó. Ragnarsson 177
Meistaraflokkur kvenna
Jakobína Guðlaugsdóttir 176
Jóhanna Ingólfsdóttir 180
Elfsabet Möller 185
1. flokkur kvenna
Sigrún Ragnarsdóttir 202
Kristín Pálsdóttir 206
Karólína Guðmundsdóttir 216
Telpur eldri
Kristín Þorvaldsdóttir 126
Telpur yngri
Katrín Frimannsdóttir 105.
— Minning
Ingvar
Framhald af bls. 22
Ég þakka Ingvari fyrir þau
kynni er við áttum, fyrir vinátt-
una og hlýjuna, sem eru mér
veganesti æ síðan, ekki sízt bréfin
þín, Ingvar.
Guð blessi þig.
Og nú vil ég senda heim að
Desjarmýri innilegar samúðar-
kveðjur, — til þín Helga Björns-
dóttir, til dætra ykkar og sona,
þessa mannvænlega og prúða
hóps, sem ber foreldrunum svo
fagurt vitni. Til bróðurins Sig-
mars, bónda á Desjarmýri, og
aldraðrar móður. Til allra nákom-
inna og vina hans, — til Borgfirð-
inga allra.
Guð blessi ykkur öll og
byggðina, og bæti sonarmissinn
svo sem verða má.
' 4. ág. 1974
Jónas Pétursson.
— Vankantar
Framhald af bls. 2
í enn meiri erfiðleikum, en þvf
væri ekki að neita, að íslendingar
virtust eiga marga ótrúlega góða
og vel útbúna skóla.
Þingmaðurinn Jakob Aano
sagði, að sér virtist auðveldara að
halda uppi foreldratengslum á ís-
landi en Noregi, þar sem skólarn-
ir hér væru minni. Þá væri það
athyglisvert, hve Islendingar
hefðu náð langt í að byggja skóla,
sem síðan væru nofaðir sem gisti-
hús yfir sumartímann.
Þá viku nefndarmenn að hinu
langa fríi íslenzkra skóla-
nemenda, sem er um 4 mánuðir.
Töldu þeir, að þar sem flestir
unglingar á islandi ættu kost á
vinnu yfir sumartímann, þyrfti
ekki að vera nauðsynlegt að
lengja skólaárið, því að vinnan
væri öllum nauðsynleg, en f
Noregi er svo komið, að unglingar
eiga ekki kost á mikilli vinnu yfir
sumartímann. Þá var minnzt á
umgengni í fslenzkum skólum,
sem þeim virðist vera betri en í
Noregi.
Liv Aasen sagðist vera hrifinn
af, hve vel íslendingar reyndu að
varðveita tungu sína og hve mikið
væri lagt upp úr móðurmáls-
kennslunni í skólunum. Hér væri
mál, sem nefndin gæti ihugað,
þegar heim væri komið.
Það kom fram á fundinum, að
ótrúlega góð samstaða náðist á
norska þinginu, þegar lögin um 9
ára skólaskyldu voru samþykkt.
Allir flokkar þingsins náðu
samstöðu f málinu, þrátt fyrir
andstöðu 24 þúsund kennara í
landinu. Hinsvegar væri því ekki
að neita, að ýmislegt mætti betur
fara, t.d. væru skólaeiningarnar
oft á tíðum of stórar og þær vega-
lengdir, sem nemendur þyrftu að
fara í skólana, of langar. Þessar
stóru skólaeiningar voru ákveðn-
ar með það fyrir augum, að þá
væri hægt að nýta betur kennslu-
kraftinn. Nú væri nægur kennslu-
kraftur fyrir hendi, og því væri
það vandamál úr sögunni. Aðal-
vandamálið um þessar mundir
væri, hvernig ætti að gera 9 ára
skólann að skóla, sem hentaði
öllum nemendum í skyldunámi.
— Kona Parks
Framhald af bls. 1
binda blöðin, skerða mannrétt-
indi og afnema þingræði. Sam-
kvæmt þeim hefur 171 verið
leiddur fyrir Ieynilega her-
dómstóla, þar af margir kristnir
menn og 14 hafa verið dæmdir til
dauða.
Forsetinn leitaði skjóls bak við
ræðustólinn, þegar skothrfðin
hófst og slapp heil á húfi, þótt ein
kúlan hæfði stólinn. Kona hans
sat á bak við hann á sviðinu og
hneig af stól sínum. Unga stúlkan
sat f fremstu röð í leikhúsinu
ásamt um 200 öðrum félögum í
kór, sem átti að syngja. Tilræðis-
maðurinn stóð rétt fyrir aftan.
Þegar kyrrð komst á, sagði for-
setinn rólega: „Ég mun halda
áfram máli mínu“ og hann talaði í
fimm mínútur, og þegar Park fór
út, klöppuðu allir viðstaddir,
1000 að tölu. Park var við sjúkra-
beð konu sinnar, þegar hún lézt
ásamt tveimur börnum þeirra
þremur.
Seinna var Park forseti við-
staddur opnun nýrrar neðanjarð-
arjárnbrautar í Seoul.
Dómsmálaráðuneytið f Seoul
ákvað síðar, að engir japanskir
ríkisborgarar í Suður-Kóreu
fengju að fara til Japans fyrst um
sinn. Bannið nær einnig til Suður-
Kóreumanna, sem eru búsettir i
Japan, en eru í heimsókn í Suður-
Kóreu.
— Bátaflotinn
Framhald af bls. 32
við þær forsendur, sem útgerð-
inni eru ætlaðar og hún hefur
búið við í sumar.
Fólk hefur undrazt það, að út-
gerðin skuli vera að tala um erfið-
leika á sama tíma og það fær þá
peninga í banka, sem það vill til
ferðalaga og annars. En þótt þetta
hafi gengið svo um sinn, þá kem-
ur að skuldadögunum, þvf að það
verður líka að hugsa um það hvað
an peningarnir koma. Ef þeir,
sem eiga að afla peninganna, eru
gerðir óvirkir mun lítið koma inn
þegar til lengdar lætur. Auðvitað
ættu allir að geta fengið þann
ferðagjaldeyri, sem þeir þarfnast,
þótt svo sé reyndar ekki f dag, en
fólk fær þennan ferðagjaldeyri í
bönkum, að mínu mati, fyrir mun
lægra verð en það kostar að afla
hans, og þess vegna m.a. er nú svo
komið fyrir útgerðinni eins og
horfir í dag, vonlaus rekstur að
óbreyttu."
— Fallhlífar-
maður
Framhald af bls. 32
úr flugvélinni, ryðja steinum af
væntanlegri braut og merkja
hana fyrir lendingu, ef honum
litist þannig á aðstæður.
Ef aðstæður reynast í lagi, mun
vélin lenda og taka flugvirkjann,
en ef aðstæður reynast ekki nógu
góðar, mun vélin snúa heim án
hans, en þyrla frá Angmagsalik
síekja flugvirkjann. Ef þessi til-
raun íslenzks flugfélags til flug-
vallargerðar á Grænlandi heppn-
ast, liggja fyrir margar ferðir
þangað með þýzka fjallgöngu-
•menn í fyrrgreindum hugleiðing-
um, og þá mun Sverrir Þórodds-
son leiguflug láta setja upp vind-
poka við þennan nýja völl og ann-
að, sem frumskilyrði er, að sé á
flugvöllum. Hópur vestur-þýzku
fjallgöngumannanna var tilbúinn
að leggja út í allan kostnað til
þess að gera þessa tilraun. Flug-
vélin er væntanleg aftur í dag.
— Teitur sendi
Framhald af bls. 30
finna leiðina að markinu. Fleiri
mörk voru ekki skoruð og lauk
leiknum því með sigri ÍA 1:0.
Jóhannes Atlason lék að þessu
sinni með og sömuleiðis Erlendur
Magnússon og sluppu þeir sæmi-
lega frá leiknum. Aðrir leikmenn
sýndu ágætan leik, en vandamál
Framara er, að þeim gengur illa
að finna leiðina að markinu, en
sýna aftur á móti ágætan leik úti
á vellinum.
Akurnesingar léku með sama
lið og undanfarna leiki og átti
framlínan, Karl, Teitur, Hörður
og Matthías, góðan ieik. Einnig
var Jón Alfreðsson góður og
sömuleiðis Davíð í markinu.
Þá er rétt að minnast á Björn
Lárusson, sem átti mjög góðan
leik og er án efa bezti bakvörður-
inn í dag og furðulegt má heita ef
landsliðsnefnd kemur ekki auga á
það fyrr en síðar.
JÚHANNES ATLASON
SLEGINN NIÐUR:
Að leik loknum gerðist það
leiðindaatvik, að Jóhannes Atla-
son var sleginn í andlitið. Forsaga
þess var sú, að þegar leiknum var
lokið voru þeir Benedikt Valtýs-
son og Guðgeir Leifsson að kljást
um knöttinn og greip Benedikt í
Guðgeir, sem gerði sér lítið fyrir
og sparkaði 1 Benedikt, sem lá
óvígur á vellinum.
Þegar Guðgeir var á leið til
búningsherbergja áttu einhverjir
æstir áhorfendur eitthvað van-
talað við hann og rétt við dyrnar
veittist að honum maður, en
Jóhannes Atlason, sem þarna var
nærstaddur, ýtti manninum frá f
þeim tilgangi að koma Guðgeiri
inn. Skipti það engum togum, að
einhver áhorfandi sló Jóhannes f
andlitið, þannig að hann féll við
og mun hafa vankazt við höggið.
Sem betur fer reyndust meiðsli
hans ekki alvarleg, en atburðir
sem slfkir eru alveg óverjandi og
verður að tryggja leikmönnum
það, að þeir komist til búnings-
herbergja án þess að eiga von á
lfkamsmeiðingum. Slíkt verður að
teljast lágmarks krafa og vonandi
eiga atburðir sem slfkir ekki eftir
að endurtaka sig.
H. Dan.
—— ♦-------
— Mallorkaferð
Framhald af bls. 2
gamall, sagðist hafa átt eitt
bingóspjald.
„Ég ætla sko til Mallorku
eftir Þjóðhátíðina", sagði
hann“, og pabbi og mamma
ætla með. Mamma gaf mér pen-
inga fyrir bingómiðanum, en ef
ég hefði selt vinninginn á
kostnaðarverði, þá ætti ég nú
46 þús. kr„ þvf að ég á 10 þús.
kr. í banka“.
„Hefur þú farið til útlanda
fyrr“?
„Já, ég fór til Noregs í fyrra,
en ég hlakka ofsalega til núna,
verst að ég er ekki kúa-
bólusettur, en það verður
vonandi allt í lagi. Annars var
ég ofsaheppinn, þvf að stelpa
fékk bingó um leið og ég, en ég
vann hlutkesti, vindkviða
feykti tíkallinum á mína hlið.
Annars hefði nú verið gaman
að bjóða henni, ef miðinn hefði
verið fyrir tvo“.
— á.j.
— Tvö mörk
Framhald af bls. 30
lega fótbrot sem hann hlaut 1
fyrsta leik Vals í Islandsmótinu.
LIÐIN
Valsmenn voru vel að sigrinum
komnir. Þeir léku á köflum skín-
andi góða knattspyrnu, en duttu
niður þess á milli. Vörnin og
tengiliður voru virkir, en fram-
línumennirnir klaufskir uppi við
markið. Dýri, Bergsveinn, Hörður
og Alexander voru einna beztir,
ásamt þeim bræðrum Jóhannesi
og Atla. Hjá IBK var Þorsteinn
beztur, en auk þess áttu þeir Gfsli
Torfason og Ólafur Júlíusson
beztan leik. 1 heild voru leikmenn
beggja liða baráttuglaðir.
Dómari • var Eysteinn Guð-
mundsson, og hafði hann góð tök
á leiknum, en sumir dómar hans
féllu ekki f kramið hjá áhorfend-
um eins og gengur. Eysteinn bók
aði" tvo leikmenn, þá Vilhjálm
Ketilsson, IBK, og Inga Björn Al-
bertsson, Val.
— SS.
-----------------
Maður fyrir bíl
Maður varð fyrir bíl á móts við
Laugaveg 10 í gærkvöidi, og var
hann fluttur á Slysadeild Borgar-
spftalans. Ekki var vitað, þegar
Morgunblaðið hafði samband við
Slysadeildina í gærkvöldi, hve
meiðslin voru alvarleg, þvf að
maðurinn var f athugun, en um
einhver höfuðmeiðsl var að ræða.
TIARNARBÚD
Pelican
leikur í kvöld frá kl. 9 — 1.