Morgunblaðið - 16.08.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGUST 1974
19
„fslenzkt ráðríki”
EFTIRFARANDI ritstjórnargrein birtist í
velmetnu norsku blaði, „Drammens
Tidende og Buskerud Blad'' 30. júlí. Er
rétt, að íslenzkir lesendur kynni sér
hana til skemmtunar og fróðleiks, því
að hún stingur mjög í stúf við það, sem
birzt hefur í norskum blöðum núna í
sumar. Tónninn er ekki ósvipaður því,
sem hann var í blöðum Vestur-Noregs
fyrir nær 50 árum, þegar íslendingar
leyfðu sér að stugga við norskum sild-
veiðimönnum, sem sýndu ofríki og
yfirgang á miðunum við Norðurland.
— En greinin hljóðar svo og heiti
hennar er „Islandsk egenrádighet
„Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur
stutt málstað Stóra-Bretlands og Vest-
ur-Þýzkalands í deilunni við ísland um
fiskveiðilandhelgina í áliti meirihluta
dómendanna segir, að Island hafi ekki
haft rétt til að útiloka með einhliða
ákvörðun brezka og vestur-þýzka tog-
ara af miðunum utan gömlu 1 2-mílna
landhelginnar. Svo sem kunnugt er
víkkuðu íslendingar einhliða landhelg-
ina úr 1 2 í 50 sjómílur.
Utanríkismálaráðherra íslands, Einar
Ágústsson hefur látið í Ijós undrun sína
yfir dómnum. Hann ber því vitni —
segir hann — að alþjóðadómstóllinn
fylgist ekki með tímanum Mun þetta
vera sagt með ráðstefnuna í Caracas í
huga, en þar hefur hugmyndin um
200 mílna landhelgina náð víðtæku
fyigi
Með allri hugsanlegri samúð með
íslendingum almennt talað og fisk-
veiðimálum þeirra sér í lagi, má samt
leyfa sér að slá því föstu, að í þessu
máli hafa íslendingar sýnt framkomu,
sem vonandi mun ekki sér hliðstæð
dæmi um langa framtíð í alþjóðavið-
skiptum. Þetta, sem íslendingar gerðu,
var að útiloka með ráðríki fiskimenn
annarra landa frá sviðum þar sem þeir
höfðu hefðbundinn rétt.
Því var haldið fram, að íslendingum
væri lífsnauðsyn að tryggja mál sín.
Enginn mun neita því. En nú á dögum
getur maður ekki tryggt lífsnauðsynleg
hagsmunamál með svona ofríkishætti.
I sögu aldanna hafa ýmsar þjóðir
vitnað til lífsnauðsynlegra hagsmuna
sinna og síðan gert ráðstafanir upp á
eigin spýtur án þess að meta hagsmuni
annarra. Það er einmitt út af slíku
hátterni, sem miklir og gereyðandi
árekstrar hafa spunnizt.
Að því er ísland snerti var tæplega
hætta á meiri háttar árekstri Þessu
munu íslendingar líka hafa reiknað
með þegar þeir réðust í hina einhliða
landhelgistækkun Og eiginlega hafa
þeir líka sloppið vel út úr málinu.
En aðferðin, sem Islendingar hafa
beitt um sinn til þess að ráða fram úr
landhelgisvandamálum sínum, er ekki
til eftirbreytni. Það er nefnilega með
þessum hætti, sem menn kippa fótun-
um undan alþjóðlegri réttarskipum,
sem þegar til lengdar lætur fyrst og
fremst mun koma einmitt smáþjóðun-
um að gagni."
Svo mörg eru þau orð leiðarahöf-
undarins Ekki væri neinn skaði skeður
þó hann hefði kynnt sér ögn betur
hvað feljst í orðinuv „livsvigtig'' þegar
um fiskveiðilögsögu íslands er að
ræða. En þetta hefði höf. getað kynnt
sér, t.d. að fletta upp í síðustu árgöng-
um af „Hvem — hvad — hvor' Þar
gæti hann lesið, að mörg undanfarin ár
hafa sjávarafurðir numið yfir 4/5 af
útflutningi þjóðarbúsins íslenzka
Leiðarahöfundur minnist ekkert á, að
samkvæmt niðurstöðum viðurkenndra
vísindamanna eru afleiðingar rányrkj-
unnar við íslandsstrendur orðnar svo
alvarlegar, að íslendingum var brýn
nauðsyn á að vernda fiskimið sín betur
en áður með því að víkka landhelgina
úr 1 2 í 50 mílur í Perú höfðu þeir að
vísu stigið stærra skref áður, án þess
að „Drammens Tid og B.B." sæi
ástæðu til að mótmæla þessu „ráðríki",
mér vitanlega.
En ég tel það þess vert, að framan-
greindur „leiðari" birtist í islenzku
blaði, til þess að sýna, að enn eiga
sumir Norðmenn nokkuð ólært, þrátt
fyrir ýmiskonar fræðslu og hið ágæta
rit Hans G Andersens um ágengnina í
landhelgi íslands Sk.Sk.
Járniðnaðarmenn
Vil ráða nokkra járniðnaðarmenn. Mikil
vinna, gott kaup. Upplýsingar eftir kl. 1 9
í síma 42970.
Vélaverkstæði G.H.G.,
Hafnarfirði.
SAMVINNUSKÓLINN — BIFRÖST
Staða
tómstundakennara
Staða tómstundakennara við Samvinnu-
skólann að Bifröst er laus til umsóknar.
Tómstundakennari skal hafa forgöngu
um félagsstörf nemenda og krefst starfið
því frumkvæðis og félagslegs áhuga.
Gott húsnæði fyrir hendi.
Umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist skólastjóranum
Hauk Ingibergssyni, Suðurlandsbraut 32,
Reykjavík, sími 81255, en hann gefur
jafnframt nánari upplýsingar.
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða yfirumsjónarmann
rafmagnseftirlitsmála.
Tæknifræði eða hliðstæð menntun æski-
leg.
Umsóknir, er greini menntun og fyrri
störf, sendist til Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 1 16, Reykjavík.
Vélritunarstúlka
Viljum ráða nú þegar stúlku til vélritunar
á reikningum á bílaverkstæði.
Uppl. gefur skrifstofustjóri, ekki í síma.
Hek/a h. f.
Laugavegi 170 — 1 72.
Fóstra
St. Jósefsspítali, Reykjavík óskar eftir að
ráða fóstru við barnaheimili spítalans.
Upplýsingar hjá starfsmannahaldi.
Kjötiðnaðarmaður
Varnarliðið óskar að ráða kjötiðnaðar-
mann eða mann vanan kjötiðnaði. Ensku-
kunnátta skilyrði. Upplýsingar veitir
Ráðningarskrifstofa Varnarmáladeildar
sími 92-1 973.
Atvinna
Landsbanki Islands óskar eftir að ráða, nú
þegar eða á næstunni, fólk til:
1 . Gjaldkerastarfa
2. Almennra skrifstofustarfa.
Nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri.
Landsbanki íslands.
Saumaskapur
Saumastúlkur óskast. Einnig stúlkur í
frágang.
L.H.Miiller, fatagerð,
Ármúla 5.
Verksmiðjustarf
— Saumaskapur
Stúlkur óskast til verksmiðjustarfa við
saumaskap. Uppl. veittar í verksmiðjunni,
Skúlagötu 51, sími 19470.
Sportver h.f.
Verzlunarstjóri
Viljum ráða duglegan verzlunarstjóra í
raftækjaverzlun okkar að Sætúni 8.
Heimilistæki s. f.,
sími 24000.
Starfsstúlkur
óskast að Dagheimilinu Hörðuvöllum,
Hafnarfirði. Ein til aflleysinga og önnur
hálfan eða allan daginn.
Upplýsingar hjá forstöðukonu.
Fóstra
Óskast sem fyrst að Dagheimilinu Hörðu-
völlum, Hafnarfirði. Til greina kemur að
vinna hluta úr degi.
Upplýsingar gefur forstöðukonan í síma
50721. '
Stúlkur
Nokkrar duglegar og reglusamar stúlkur
óskast til verksmiðjustarfa.
Kexverksmið/an Frón h.f.,
Skú/agötu 28.
Afgreiðslustörf
Óskum að ráða stúlku og ungan mann til
afgreiðslustarfa á lager.
Upplýsingar gefur Jón Pálsson, birgða-
stjóri.
JOHAN RÖNN/NG HF
5 1 Sundaborg sími 84000
Lyfjaheildverzlun
skrifstofustörf.
Lyfjaheildverzlun óskar að ráða skrifstofu-
stúlku eða mann ti1 alhliða skrifstofu- og
lagerstarfa sem fyrst. Vélritunarkunnátta
og reynsla í recepturvinnu æskileg. Til
greina kemur vinna hálfan daginn (eftir
hádegi). Umsókn sendist afgr. blaðsins
fyrir hádegi 23. ágúst 1 974 merkt 1 365.
Skrifstofumaður
óskast
sem fyrst. Góð laun. Tilboð sendist Mbl.
merkt 1364.
Kópavogsbúar!
Viljum ráða nú þegar röskt fólk til starfa í
verksmiðju vorri. Góð vinnuskilyrði.
Vinnutimi frá kl. 8 — 1 6.30.
Dósagerðin h. f.
Vesturröst 16—20
Kópavogi, sími 43583.
Saumakonur —
frágangskonur
óskast nú þegar.
Upplýsingar á skrifstofunni í dag
Verksmiðjan Max h. f.
S/óklæðagerðin h. f.
Skipasmíðastöð N/arðvíkur H. f.,
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða stúlkur til skrifstofu
starfa. Upplýsingar i síma 1 725.
Skipasmíðastöð N/arðvíkur H F.