Morgunblaðið - 16.08.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGUST 1974
Einar Th. Guðmunds-
son lœknir — Minning
Sfðbúin kveðja til vinar míns
og svila.
Einar Th. Guðmundsson fæddist í
Króki á Rauðasandi 15. nóvember
1913, sonur hjónanna Guðmundar
hreppstjóra Sigfreðssonar og
Guðrúnar ljósmóður Einarsdóttur
bónda á Látrum og síðar í Vatns-
dal í Patreksfirði, Jónssonar
Thoroddsen.
Einar var næst yngstur sjö
bræðra. Einar lést á Lands-
spítalanum 3. april s.l. eftir
stutta, en erfiða legu. Hann
stundaði nám við Menntaskólann
á Akureyri og lauk þaðan
stúdentsprófi 1935, en hóf þá nám
í læknisfræði við Háskóla Islands
og lauk þaðan embættisprófi i
læknisfræði í mai 1945. Fjórða
júlí 1945 var hann settur héraðs-
læknir í Breiðabólstaðarlæknis-
héraði á Síðu. Námskandidat var
+
BJÖRN ÁSMUNDSSON.
Bræðraborgarstíg 32,
andaðist á Landspitalanum 14.
þ.m. Fyrir hönd systkina,
Maríno Þórðarson.
hann á Landspitalanum á
árunum 1947—48. Almennt
læknaleyfi fékk hann svo 5. júní
1948 og var þá skipaður 23. sept.
héraðslæknir f Bíldudalslæknis-
héraði. Því héraði fórnaði hann
mest af sinni starfsæfi, eða 19
árum.
Til Arnarfjarðar leitaði oft
hugurinn, þar undi Einar sér vel,
þar eignaðist hann marga góða
vini. Þar eignaðist hann trúnað
manna, sem sést á þeim mörgu
trúnaðarstörfum, sem hlóðust á
hann þar. Samhliða læknisstarf-
inu, sem var ærið starf, sérstak-
lega á vetrum, þegar snjóa og
svellalög lágu yfir öllu og fara
þurfti í vitjanir langar leiðir, —
þá gengdi hann starfi skóla-
nefndarformanns um árabil, átti
sæti í skattanefnd og í stjórn
kaupfélags Arnfirðinga á Bíldu-
dal.
Oft myntist Einar heitinn veru
sinnar á Bíldudal, þá var gleði í
rómnum. Lognið á sumrin —
spegilsléttur sjórinn i fjörðum og
vogum, þar sem sjóbirtingurinn
vakti, — þar var hressandi að
ganga um fjörur með veiðistöng
og njóta einveru í þessari miklu
kyrrð eftir erilsaman dag. Hann
kvaddi Arnarfjörð með söknuði
sumarið 1967, en þá var hann
skipaður héraðslæknir í Eyrar-
bakka og Stokkseyrarlæknis-
héraði, þar sem hann starfaði til
dauðadags.
t
GUÐRÚN SOFFÍA HELGADÓTTIR,
Mávahllð 19,
andaðist í Landakotsspítala, 14. ágúst.
Agða Vilhelmsdóttir,
Anna Jóhannesdóttir,
Tómas Á Jónasson.
+
Eiginmaður minn
FRIÐRIK SIGUROSSON,
Vallargötu 14, Sandgerði
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju, laugardaginn 17. ágúst kl 14.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna
Jóhanna Guðmundsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR BENÓNÝSSON,
Þórkötlustöðum,
Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 1 7. ágúst kl 2.
Blóm afbeðin.
Sigriður Ólafsdóttir. Ólafur Guðmundsson,
Kristin Guðmundsdóttir, Kristján Sigmundsson,
Hulda Guðmundsdóttir, Ágúst Guðjónsson,
og barnabörn.
ÖNNU SIGURPÁLSDÓTTUR,
kennara.
Fellsmúla 2, Rvk.,
er lézt að heimili sinu 7. þessa mánaðar, fer fram frá Fossvogskirkju,
mánudaginn 19. ágúst kl. 10.30.
Gunnar Þór Magnússon, Brynja Sigurðardóttir,
Páll R. Magnússon, Kristín Hafsteinsdóttir,
Sigurpáll Þorsteinsson. Rósa Jónsdóttir,
systkini og barnabörn.
+
Bróðir minn og móðurbróðir
VETURLIÐI SIGURÐSSON,
trésm iðameistari,
Oddeyrargötu 30,
sem lézt 10 ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, þriðjudag-
inn 20 ágúst kl 1 3.30.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Stefán Karlsson.
Með Einari er genginn góður
drengur, maður, sem helgaði líf
sitt göfugu starfi, — já víst er það
göfugt starf að líkna öðrum.
Okkur, sem áttum því láni að
fagna að kynnast Einari heitnum
undraði það ekki, að hann skildi
velja sér þetta æfistarf.
Hann var viðkvæmur maður,
nákvæmur og þó umfram allt
vandvirkur. Hann hafði þá
eiginleika, sem leikmanni finnst,
að góður læknir þurfi að hafa. Ég
held, að ekki sé ofmælt, að hann
hafi verið heppinn í starfi, enda
átti það hug hans allan og skifti
þá ekki máli, hvort nótt var eða
dagur.
Einar heitinn kvæntist 19.
oktober 1935 eftirlifandi konu
sinni, Ölmu Tynes, dóttur Carls
skósmíða- og tréskurðarmeistara
frá Noregi og Elínar Steinsdóttur,
sem sfðar varð eiginkona Páls
Guðmundssonar hótelhaldara á
Siglufirði. Alma bjó manni sinum
og börnum gott heimili, sem gott
var að heimsækja, því þar sat
hjartahlýjan í öndvegi. Þeim
Einari og Ölmu varð sex barna
auðið en þau eru: Guðmundur
Rúnar, útgerðarmaður á Bíldudal,
kvæntur Erlu Sigmundsdóttur,
Ragnar Páll listmálari í Reykja-
vík, Sverrir, sem stundar lækna-
nám i Svíþjóð, Elín Guðrún,
hjúkrunarkona Reykjavík, Anna
Sigríður, stundar leiklistarnám í
Reykjavik, og Norma nemandi í
Verzlunarskóla íslands í Reykja-
vík. Barnabörnin eru orðin sex.
Okkur, sem heimsóttum þau
hjón í nóvember s.l., þegar Einar
heitinn hélt uppá 60 ára afmæli
sitt, grunaði ekki, hve stutt væri
til skilnaðarstundarinnar. Þar
virtist afmælisbarnið alheilbrigt
og var þar hrókur alls fagnaðar.
Enginn má sköpun renna. Kallið
kom, um tveggja mánaða erfiða
lega á sjúkrahúsi, þar sem
dóttirin Elín dvaldi hjá föður
sínum öllum þeim stundum, sem
skyldustörf sjúkrahússins gerðu
ekki tiikall til hennar, og getur
nærri, hvort þetta hafi ekki verið
erfiður reynslutími, því sjálfsagt
hefir honum, lækninum, og
henni, hjúkrunarkonunni, verið
ljóst á undan öðrum, að hverju
stefndi, en aldrei æðraðist hann
og sló á glens við þá, sem hann
heimsóttu, fram undir það sið-
asta, og lagði á ráðin með veiði-
ferðir á komandi sumri.
En ferð hans varð önnur. Um
þær mundir er laxinn nálgaðist
ósa íslenzku ánna og bjó sig undir
að ganga í þeirra tæra vatn —
hélt Einar heitinn upp í sína
síðustu ferð til bjartari og betri
heima.—
Við hjónin færum beztu þakkir
fyrir allt, sem Einar hefir gert
fyrir okkur — börn okkar og
barnabörn.
Góður Guð blessi hinn látna vin
og veri með þeim, sem eftir
standa, Iíknsamur.
Haraldur Þórðarson
Ólafsfirði.
Kveðjuorð:
Ingvar Ingvars-
son, Desjamgri
BORGARFJÖRÐUR eystri er
ein af varðstöðvum íslenzkra
byggða. Margvisleg fegurð er þar
í landi, vinalegur fjallahringur,
grasgefin jörð og oft gjöfull sjór á
fisk. En nokkuó eru vetrarsam-
göngur á landi við Fljótadals-
hérað ótryggar. Því valda Njarð-
víkurskriðurnar og Vatnsskarð
milli Njarðvíkur og Héraðs. Höfn
hefur einnig ótrygg verið til
þessa, ef stormar af hafi, þótt nú
sé vonandi að rofa til.
Fólki hefur fækkað á Borgar-
firði eins og mörgum byggðum
+
Eiginkona mín,
LÍTA SIGURÐSSON,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju laugardaginn 1 7. ágúst kl.
1030
Haraldur Sigurðsson.
öðrum. Ekki vegna lítils bjarg-
ræðis, en fremur vegna ótryggra
vetrarsamgangna. Viðnám slikra
byggða veltur jafnan mjög á for-
ustu. Slíka forustu hafði ekki sízt
í þessari byggð oddviti þeirra,
Ingvar Ingvarsson á Desjarmýri.
Með fráfalli hans er því mikið
skarð höggvið í varnarstöðina og
sóknarliðið fyrir traustari byggð í
Borgarfirði.
Þegar ég heyrði hina hörmu-
legu frétt um að Ingvar hefði
látizt í bílslysi á Vatnsskarði varð
mér þungt í sinni. Hví svo harka-
+
Móðir okkar
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
frá Aldarminni,
Stokkseyri,
sem lézt 7. ágúst verður jarð-
sungin frá Stokkseyrarkirkju,
laugardaginn 1 7. ágúst kl. 2.
lega höggvið í garð þessa heimilis,
í garð Borgfirðinga, f sveit traust-
ustu forustumannanna í varnar-
og sóknarliói strjálbýlisins á
Austurlandi? En mannlegur
máttur ræður ekki örlögum.
Ingvar á Desjarmýri var
fæddur þar og átti þar heima
allan sinn aldur. Fyrst í föður-
garði hjá prestshjónunum, síðar
bóndi.
Báðir vorum við Ingvar löngu
fulltíða menn er við kynntumst.
Hann var einn þeirra úrvals-
manna, er ég kynntist allnáið þau
ár, sem ég var þingmaður. Ég kom
ekki til Borgarfjarðar, að ég
heimsækti ekki Desjarmýri. Að
sjálfsögðu m.a. vegna forystu
Ingvars í sveitarmálum. En þó
ekki síður vegna mannkosta hans,
ljúfmennsku, festu og vitsmuna.
Minningar koma fram i hugann.
Mig bar þar að garði á Desjarmýri
11. júní 1970. Hafði ekki gætt
að þvf, að sá dagur væri nokkuð
sérstakur á þeim bæ. En þann dag
var Ingvar fimmtugur. Mér var
það mikii ánægja að svo skyldi
hittast, að ég gat fagnað á heimili
hans þessari stund í lffi hans og
fjölskyldunnar. Þá var bjart yfir
Borgarfirði. Og þá var auðfundið
að Helgu konu hans var ljúft að
gera dagamun og vitnaði um hlýja
sambúð og hlýtt heimili, sem ekki
duldist, hverjum úr fjölskyldunni
sem kynnzt var. Slíks er ekki að
vænta, ef heimilisfaðirinn er ekki
mannkostum búinn.
Vera má, að sumum hafi þótt
Ingvar helzt til íhaldssamur á
ýmsum sviðum. Vera má einnig,
að einmitt það hafi laðað mig að
Ingvari. Traustir menn vinna
alltaf traust, og burðarásarnar f
bændastétt fámennra byggða
verða að vera þeim kostum búnir,
fremur en áhlaupum og sprettum,
sem of oft vill þá vanta úthald til
að fylgja eftir. Ég veit að Borg-
firðingum voru ljósir kostirnir í
festu Ingvars og gætni.
Það var dapurleiki yfir Borgar-
firði, þegar Ingvar var jarðsettur.
Þoka lálágtáloftiogskyggni náði
skammt. Mannfjöldi var við útför-
ina.
Og nú drúpir Desjarmýri.
Borgfirzka moldin skýlir nú
syninum, sem var trúr sinni
heimabyggð allt sitt líf.
Framhald á bls. 18
Lilja Bjarnadóttir,
Óskar Bjarnason,
Jóhannes Bjarnason.
+
Útför móður okkar og tengdamóður
SIGURLAUGAR Þ. GUÐBRANDSDÓTTUR
verður gerð frá Fossvogskirkju I dag, föstudaginn, 1 6. ágúst kl 1 3,30.
Guðfinna Hulda Jónsdóttir. Jóhannes Kristinsson,
Hörður Guðmundsson, Sesselja Laxdal,
Steingrímur Guðmundsson, Guðbrandur Guðmundsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför.
PÁLS SIGURÐSSONAR,
frá Auðshaugi.
Fyrir hönd vandamanna,
Annetta Sigurðsson.
+
Þökkum einstæðan hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
ÓLAFS SÓLIMANNS LÁRUSSONAR,
Vallargötu 6, Keflavik.
Guðrún Hannesdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.