Morgunblaðið - 16.08.1974, Síða 32
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1974
if ‘j *•_
'*'ifl
- -^^ríuiililnbiö ^sa i
bnciEcn
nucivsmcnR
(g.^.22480
Stjórnarmyndun:
Viðræður
um helgina
Viðræðunefndir Fram-
sóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins héldu
þriðja fund sinn árdegis í
gær. Þar var haldið áfram
umræðum í því skyni að
kanna möguleika á sam-
stöðu þessara flokka um
stjórnarmyndun. Tals-
menn flokkanna hafa ekki
skýrt frá gangi viðræðn-
anna.
Síðdegis í gær var fund-
ur í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins, og kl. 17 hófust
fundir í þingflokkum sjálf-
stæðismanna og framsókn-
armanna. Viðræðunefnd-
irnar halda sameiginlegan
fund árdegis í dag, föstu-
dag. Viðræðum verður síð-
an haldið áfram um helg-
ina.
Senn fer nú að Ifða að lok-
um lundaveiðitfmans, en
þessa mynd tðk Sigurgeir f
Eyjum fyrir skömmu af
Eyjapeyja að veiða lunda
undir Steininum f hlíðurn
Heimakletts. Lundaveiði
hefur verið góð í sumar í
Eyjum, bæði f úteyjum og
á Heimaey. Feiknmikill
lundi er nú í björgunum og
ber mikið á ungfugli.
Ferðagjaldeyrir fyrir 1200
millj. króna frá áramótum
62% aukning frá því í fyrra
J6n Olafsson með Nazareth-
samninginn undirritaðan.
(Ljósm. Mbl. RAX)
Nazarethmálið:
GJALDEYRISDEILD bankanna
hefur frá áramótum til 15. ágúst
Salómon dæmdi Jóni
í hag — Málið ekki
útkljáð segirÁmundi
afgreitt ferðagjaldeyri fyrir 1200
millj. kr., og er það um 62%
aukning miðað við sama tfma f
fyrra. Ingólfur Þorsteinsson, yfir-
maður gjaldeyrisdeildar
bankanna, sagði f viðtali við
Morgunblaðið f gær, að þessi
aukning byggðist fyrst og fremst
á auknum fjölda farþega, þvf að
sömu reglur gilda um fyrir-
greiðslu ferðamannagjaldeyris og
sl. 3 ár, en upphæð ferðamanna-
gjaldeyris til einstaklinga og
ferðaskrifstofa hefur ekki
hækkað á þessu tfmabili. Þessar
1200 millj. kr. eru eingöngu
farareyrir.
ferðamenn heim. Aukningin
þarna er því um 17%, en þess ber
að geta, að mestur ferðamanna-
straumur er í ágúst og september.
Allt árið 1973 komu um 47.500
Islendingar heim frá útlöndum.
Sé júlí 1973 og 1974 tekinn til
samanburðar, komu 6400 ferða-
menn heim i fyrra, og í sama
mánuði afgreiddi gjaldeyris-
deildin gjaldeyri fyrir 184 millj.
kr., en i júlí á þessu ári komu
heim alls 7370 farþegar, og í júli
sl. var afgreiddur gjaldeyrir fyrir
284 millj. kr., eða 50% meira en í
fyrra.
Það er viðskiptaráðherra,
Seðlabanki Islands og gjaldeyris
nefnd bankanna, sem ákveða
upphæð ferðagjaldeyrisins.
Borgarstjórn vill Ríkarðshús:
„Gaman ef úr yrði
segir listamaðurinn
— „ÞA ER það komið á
hrcint“, sagði Jón Ölafsson,
þegar hann kom á ritstjórnar-
skrifstofur Mbl. seinni partinn
f gær með Nazareth-samn-
inginn undirritaðan í vasanum.
Jón fékk samninginn sendan
fluglciðis f gær frá Nems
Entcrprises f London, og virðist
þvf dómur Salómons konungs,
sem Jón minntist á f Mbl. f gær,
hafa fallið honum f vil.
Amundi Amundason hefur þó
ekki gefið upp alla von, og
sagði hann, að þó Jón hefði
samninginn í dag, væri málið
engan veginn útkljáð.
I hádeginu í gær barst Mbl.
telexskeyti frá John Fenton hjá
Nems Enterprises, þar sem
hann dró fyrri staðfestingar
um, að Ámundi fengi hljóm-
sveitina, til baka. 1 skeytinu
sagði ennfremur, að Jón Ólafs-
son fengi réttinn til hljómleika-
haldsins. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir tókst Mbl. ekki að ná
sambandi við Fenton í gær, en
einkaritari hans sagði hann
vera á mjög árfðandi fundi. Var
þá Ijóst, að til tfðinda mundi
draga, áður en dagurinn væri
liðinn, enda fór svo, að Jón
fékk samninginn sendan flug-
leiðis seinni partinn f gær.
Jón sagði, að á þriðjudags-
kvöld, þegar hann sá, hverja
stefnu málið var að taka, hafi
hann haft samband við ákveðna
Framhald á bls. 18
Við spurðum Ingólf að því,
hvort ekki væri sótt um meira en
afgreitt væri. „Það er sótt um
miklu meira, en við getum veitt“,
svaraði hann, „þetta er lág
upphæð, en við búum við þessar
reglur. Það hefur verið rætt um
breytingar á þessum reglum
síðastliðin ár, en þeim hefur ekki
verið breytt".
Samkvæmt skýrslum út-
lendingaeftirlitsins virðist far-
þega aukningin þó ekki vera
nema um 17%, en útlendinga-
eftirlitið hefur þó aðeins tölu yfir
þá íslendinga, sem koma heim á
hverjum tíma. Fyrstu 7 mánuði
ársins, eða til 1. ágúst, komu
25117 Islendingar heim, en á
sama tíma í fyrra komu 20822'
Borgarráð samþykkti fyrir
skömmu að fela borgarstjóra að
lcita eftir kaupum á húsi Rfkarðs
Jónssonar myndhöggvara að
Grundarstfg 15 f þeim tilgangi, að
það verði f framtfðinni varðveitt
sem safnhús fyrir verk Rfkarðs.
Tillögu þess efnis fluttu Birgir
Isleifur Gunnarsson borgarstjóri,
Albert Guðmundsson og Kristján
Benediktsson. Viðræður hafa ver-
ið hafnar við listamanninn um
möguleika á því, að listaverk f
eigu hans sjálfs, svo og áhöld og
tæki, er hann notar við störf sín,
megi til frambúðar varðveitast í
húsinu sem safn, er Reykjavíkur-
borg annist og beri ábyrgð á.
Reiknað er með, að afkomendur
Ríkarðs búi eftir sem áður í
húsinu og annist húshald þar.
Við höfðum tal af Ríkarði og
inntum hann eftir áliti hans á
þessari hugmynd. „Mér lfzt vel á
þessa hugmynd og er mjög ánægð-
ur með hana,“ sagði hann, „það
væri gaman, ef úr þessu yrðí.“
Við höfðum einnigtal af ólöfu,
dóttur Ríkarðs, og sagði hún, að
enn væri allt óráðið, hvernig
þetta yrði, enda málið á frumstigi,
en samkvæmt hugmyndinni ætti
vinnustofa Ríkarðs að standa
óbreytt, en húsið að verða safn, og
þangað yrði þá safnað verkum
hans.
Fallhlífarmaður í flug-
vallargerð á Grænlandi
FLUGVÉL frá Sverri Þórodds-
syni leiguflug flaug til Grænlands
í gærkvöldi til þess að reyna að
lenda á stað, þar sem aldrei hefur
verið lent fyrr. Flugið er farið
fyrir tilstiili hóps þýzkra fjall-
göngumanna, sem vilja komast á
þennan stað á austurströndinni til
þess að gera þaðan út leiðangur á
hæsta fjall Grænlands. I flugvél-
inni í gær voru tveir flugmenn,
flugvirki og þýzkur fjallgöngu-
maður. Áður höfðu flugmennirn-
ir flogið þarna um svæðið og valið
mela undir skriðjökli við Nan-
sensfjörð til þess að lenda á, en
þaðan eru um 500 km til næstu
byggðar. Tóku þeir myndir þar og
stækkuðu síðan hér heima til þess
að kanna möguleikana á flugvall-
argerð. Flugvirkinn í vélinni,
Hannes Thorarensen, ætlaði að
stökkva niður á svæðið í fallhiíf
Framhald á bls. 18
„ Vonlaus rekstrargrundvöllur út-
* *
gerðarinnar,,f segir formaður LIU
t BLAÐINU f gær var sagt frá
því, að 600 millj. kr. halli væri á
bátaútgerðinni og 22—24 millj.
kr. tap á hverjum skuttogara mið-
að við ársgrundvöll núverandi
verðlags. Við höfðum samband í
gær við Kristján Ragnarsson, for-
mann LÍU, og spurðum hann, hve
margir bátar lægju nú bundnir.
„Það hefur ekki verið gerð taln-
ing á því“, svaraði hann, „en stór
hluti bátaflotans er nú bundinn
og aðgerðarlaus óg hefur svo aldr
ei verið í fjölda ára. Og enn er
útlit fyrir, að fjölgi í hópi þeirra
aðgerðarlausu, því að allt útlit er
fyrir, að þeir 100 bátar, sem luku
humarveiðiúthaldinu í fyrradag,
muni ekki aðhafast neitt í haust
vegna rekstrarörðugleika. Þá er
einnig svo þrengt að togurunum,
að þar verður óhjákvæmilega
einnig stöðvun á næstunni miðað
Framhald á bls. 18
„Aldrei eins marg-
ir bátar bundnir í
höfn í f jölda ára”