Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 10

Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 10
10 t MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974 Leikran tjáning er þa8 kallað á islenzku — dramik á eriendum mál- um. Og þar sem skólamenn vilja fá þetta inn I kennsluna F skólunum og það er raunar þegar byrjað, lagði fréttamaður Mbl. leið sina inn i Laugarnesskóla til að kynna lesend- um námskeið i leikrœnni tjáningu fyrir kennara. Tilgangurinn með leik- rænni tjáningu er að fá fólk til að opna sig. losa um þessar hömlur, sem við erum öll i. eins og Asgeir Guðmundsson skólastjóri sagði. En hann hefur á vegum Fræðsluskrif- stofu Reykjavikur skipulagt þessi námskeið fyrir kennara, þar sem norskur sérkennari i þeirri grein Grethe Nissen leiðbeinir. Hún kom fyrst f fyrra hingað til lands og hafði eitt byrjunarnámskeið. Nú kenndi hún á tveimur námskeiðum, á Leirá i Borgarfirði. og tveimur f Reykjavik, og er nú með 20 kennara á fram- haldsnámskeiði i Laugarnesskóla f Reykjavik. Kennararnir höfðu skipt sér i 3 hópa og voru að æfa sig á þremur stöðum, er okkur bar að garði. Við- fangsefnið var „eitthvað sem stfgur, nær hápunkti, stöðvast og fellur". Og kennararnir lögðu sig sýnilega fram af lífi og sál við að túlka þetta með hreyfingum og hljóði, hver með sfnum hópi. — Það, sem verið er að reyna að ná fram með þessu, er tvennt, út- skýrir Grethe Nissen. f fyrsta lagi, að einstaklingurinn skynji sina eigin getu. Að hann finni sjálfur, að hann á meiri möguleika en hann veit um. Til þess þarf hann að finna sig örugg- an og frjálsan. Svo kemur að þvi, að einstaklingurinn kemur saman við aðra einstaklinga. Þá kemur að sam- vinnu I hópi, sem fyrirfinnst raunar alls staðar i Iffinu. Einstaklingurinn finnur þá. að hann hefur upp á eitt- hvað að bjóða. Hann getur miðlað öðrum. Þá förum við að gera hlutina saman. Þetta má kalla hvað sem er. Ég kalla það demókratf — lýðræði. — I byrjun liggur þjálfunin F þvf að ná spennu og slökun, hrynjandi. túlkun í söng og leik sem fellur svo saman i nokkurs konar lítið leikrit. Alft gengur út frá vissri grunnæf- ingu. SFðan túlkar hver viðfangsefn- ið á sinn hátt. Valið er eitthvað. sem ir alls staðar og i öllu. Ef nemandinn lær taki á þvi, þá getur hann skilið >að og skynjað. Hópurinn byrjar á þvf að líta yfir lista, sem ég hefi útbúið til hjálpar. En f stað þess að fara að ræða fram og aftur hvemig eigi að byrja, þá gripur bara einn niður, þar sem hann sér eitthvað við sitt hæfi og byrjar. Hinir bætast svo allir við. Kannski ar einhver, sem ekki finnur sig eins vel heima og hinir. Hann er feiminn og dregur sig I hlé, og er létinn ( friði. Enginn er þvingaður. En alls staðar ( lífinu er þetta þannig, sumir eru miklu dug- legri við að taka þátt og hafa sig ( frammi. Þeim dettur margt i hug og yfirtaka. Þessu hefi ég varað hópana við, þegar þeir eru að vinna verkefn- ið. Viðfangsefnið, sem kennarahóp- arnir voru að glfma við, var: stigandi — hápunktur, — hlé og svo stöðn- un. Einn hópurinn kaus að fara út að veiða lax. Stór lax kemur á hjá þeim, sem veifar stönginni. Allir hinir fylgj- ast með, spenningurinn eykst og all- ir taka þátt f honum. Svo sleppur fiskurinn og viðbrögðin eru F sam- ræmi við það. í annan stað var þetta túlkað með skjaldbökum á Galapagoseyjum, sem skriða um letilega og rólega. Svo kemur stór fugl og svifur yfir, færist nær og nær, og viðbrögð þátt- takenda æsast og stfga. Svo stingur fuglinn sér og ræðst á þær. Þannig byggist tjáningin á fastari undirstöðu, sem fyrirfinnast alls staðar f lifinu. Kennararnir sem þarna voru höfðu reynt leikræna tjáningu, með nem- endum i skólum sinum f fyrravetur og voru á einu máli um. að hún hefði gefizt mjög vel á öllum aldursskeið- um. Margrét Bjömsson, kennari i Hlfð- arskóla, kvaðst hafa reynt þetta f unglingaskólanum og það orðið ákaflega vinsælt. Unglingarnir létu ekki á sér standa að koma og vera með, og voru alltaf að spyrja hana hvenær þau fengju að „fetta sig og bretta" aftur. Krakkarnir dansa og losa um hömlurnar. Og þau fá þarna það verkefni að setja sig I hlutverk þess, sem þau vildu helzt likjast. en gera ekki. Inn F það geta þau lifað sig og losna viðfeimni. Þau skriða þann- ig út úr eigin skel og verða frjálsari i framkomu. Það er mikilvægt á ungl- ingsárunum, segir Margrét. i upphafi hafði blaðamaðurinn haft orð á þvi við Ásgeir Guðmunds- son, að Ifklega þyrftum við islend- ingar ekki hvað sizt á þvi að halda að læra að tjá okkur. Sýnilega skorti mikið á, að fólk lærði i skólunum að koma hugsunum sfnum skilmerki- lega á framfæri og tjá sig. Ásgeir tók undir það, sagði, að orsökin væri sennilega þessi mikli hraði á öllu I kennslunni. Alltaf væri verið að keppast við að komast yfir efnið á afmörkuðum tima og það hefði þvingandi áhrif á alla kennsluna. Kennarar hefðu heldur ekki mikið svigrúm i tvf- og þrfsettum skólum. En þegar sú spuming var lögð fyrir Grethe Nissen f lokin, hvort fslend- ingar ættu erfiðara með að tjá sig on t.d. Norðmenn, hikaði hún svplítið og neitaði þvf svo. — Fremur hið gagnstæða, sagði hún. Mér sýnist, að Íslendingar séu heldur opnari. — E.Pá. Kennararnir ganga i leikinn af lifi og sál. , w •' ' " W í.5-4 Konnarinn Grethe Nissen slær táktinn og hinar fylgja honum I túlkun sinni. Ljósm. Br.H.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.