Morgunblaðið - 10.09.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
21
— Fylla inn
1 myndina
Framhald af bls. 13
svæði hafa því eðlilega for-
gang um mælingar. Mæling-
arnar hér eru gerðar í sam-
vinnu við Raunvísindastofnun
háskólans og hefur próf. Þorbjörn
Sigurgeirsson verið með f ráðum
um skipulag þeirra og staðarval.
En Þorbjörn hefur sjálfur segul-
mælt jarðlögin á landi úr lítilli
flugvél.
En að hvaða gagni koma þá
segulmælingar á jarðlögin? Þegar
bergið hefur kólnað á sínum tíma,
hefur það segulmagnast og
geymist í berginu miðað við þá
stefnu, sem segulsviðið var á
hverjum tima. En þar sem segul-
stefnan breytist í jöröinni, má
lesa mikið af sögu jarðlaganna
með segulmælingum á bergi.
Þannig eru þessar mælingar mjög
mikilvægar til almennrar þekk-
ingar á landafræði og jarðlögum,
sem hjálpar vísindamönnum, sem
eru að reyna að gera sér grein
fyrir ýmsum fyrirbrigðum og
staðreyndum, til að fá mynd af
því, sem þar hefur gerzt. Það
kemur svo aftur að hagnýtum
notum, t.d. við könnun á eldvirkni
og hvar helzt sé að leita olíu eða
heits vatns með árangri. Sagði
leiðangurstjóri flugvélarinnar,
Charles Gunn, að þeir hefðu að
sjálfsögðu mælt setlög á hafs-
botni, sem eru fyrsta skilyrði til
að olíu sé að vænta, en fleira þarf
til.
Flugvélin Roadrunner er stór
flutningaflugvél, sem tekin hefur
verið til þessara nota og komið
fyrir segulmælingatækjum í staut
Þessi flugvél er sérstaklega útbúin til segulmælinga. Aftur úr henni er teinn með mælitækjum.
Segulmælingaflugvélin er full af merkilegum mælingatækjum og
tölvum. Vfsindamenn við vinnu sína, Charles Gunn er annar frá vinstri
(með húfu).
aftur úr stélinu, og öðru tæki inn-
an f vélinni. Mælir annað stærð-
ina á segulsviðinu og hitt dýpi og
stefnu. Mælingar fara í tölvu í vél
inni sjálfri og á band, sem sfðan
er komið fyrir f safni til afnota
fyrir hvern sem vill. En Raunvís-
indastofnun Háskóla tslands fær
allar mælingar á þessum slóðum.
Flugvélin var hér í fyrra og
mældi stórt svæði norður af land-
inu, og nú tekur hún fyrir svæði
við suðvesturlandið. Flugu frétta-
menn og islenzkir vísindamenn í
ferð með henni á fögrum haust-
degi fram og aftur í 1000 feta hæð
út yfir Vestmannaeyjar og inn á
land eftir þéttum línum, og eru
staðsetningartæki i vélinni mjög
nákvæm.
1 flugvélinni voru 7 flugmenn
og vfsindamenn, en í rannsóknar-
skipinu 15 manna vísindahópur
og 30 manna áhöfn. Sumir af flug-
mönnunum höfðu áður veriðíleið
angri hér um slóðir, svo sem til
athugana á ísröndinni milli Is-
lands og Grænlands. En hafrann-
sóknadeild bandarfska flotans
hefur einnig svokallað Birdseye-
viðfangsefni, þar sem flugvélar
Hreinn appelsínusafi
í Tropicana er ekki blandað sykri, rotvarnar- eða bragðefnum.
Tropicana er hreinn safi úr Flórída appelsínum.
Verðið á Tropicana þolir allan samanburð.
sólargeislinn frá Florida
JROPICANA
kr.92,-
til kr. 107
2V4kg.appelsínur
kr. 220,-
til kr.279-
hreinri
appelsínu
! safl
JROPICANA
w, ‘4 vw
v* i* y
Q.
-O
E
cr,
safna upplýsingum um hafísinn
og ástand sjávar í Norður-Ishaf-
inu, í þeim tilgangi að fá meiri
upplýsingar um veðurfar og ísa-
lög þar, jafnframt því sem upplýs-
ingar fást um ísinn á hverjum
tfma, áhrif hans á veðurfar, sigl-
ingar og fiskiveiðar. Einnig eru
flugvélar í öðru viðfangsefni, er
varðar almennar sjávarrannsókn-
ir á yfirborðinu, en þær upplýs-
ingar eru vegna nákvæmari
kortagerðar, könnunar á ná-
kvæmni gerviknattamælinga
vegna veðurkorta og til aðstoðar
fiskiðnaði. En aðrar flugvélar
eru Iíka að kanna nákvæmni berg-
málsmælinga á heimshöfunum.
Þar sem rannsóknir úr flugvélum
henta vel í sumum verkefnum,
eru önnur betur komin með mæl-
ingum af skipum og því fara slfk-
ar heildarrannsóknir fram bæði
úr vel útbúnum skipum sem Wy-
man og úr flugvél eins og segul-
mælingavélinni.
LE5IÐ
DRCIECIl
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtumanns rikissjóðs og Byggðasjóðs verður fasteign-
in Vallargata 21, Sandgerði, Miðneshreppi, seld á nauðungaruppboði,
sem haldið verður á eigninni sjálfri fimmtudaginn 1 2. september 1 974
kl. 16.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Reykjavík — Grindavík
Hverju
geturðu tapað?
Gerum ráð fyrir þvi, að þú sért að hugsa um að taka þátt i DALE
CARNEGIE NÁMSKEIÐINU. —
Hverju geturðu tapað?
Nokkrum sjónvarpskvöldum, spilakvöldum
eða saumaklúbbum.
Kvíða við það, að standa upp og segja nokkur orð.
Efa um hæfileika þína til að taka virkan þátt i lifsgæðakapphlaupi
nútimans.
Þú gætir einnig tapað
Vantrú þinni, að ná þvi markmiði, sem þú hefur sett þér.
Vana þinum, að biða með ákvarðanir,
Ahyggjum og kvíða
Þú vilt áreiðanlega tapa
Möguleikanum að vera „múraður" inni i
núverandi iaunaflokki.
Tækifærinu að vera viss um að hreyfast ekki i starfi
um aldur og ævi.
OKKAR ráðlegging er þvi: Taktu þátt i DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐ-
INU.
Fjárfesting í menntun gefur þér
arð ævilangt
Innritun og upplýsingar í síma
82411
í Njarðvík — Arndís TómasdóttÍF í sima 1 745
I Grindavík — Tómas Tómasson i sima 8389
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson