Alþýðublaðið - 12.08.1920, Qupperneq 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
i
Piltur.
Ábyggilegur piltur, sem hefir áhuga fyrir verzlunarstörfum, getuf
fengið góða atvinnu við afgreiðslu og sendiferðir hjá einni af
stærstu verzlunum borgarinnar. — Umsóknir merktar »Ábyggi'
legur«, sendist afgreiðslu þessa blaðs sem fyrst.
■■■. .......... ........... —
Nýkomið í skóverzlun
5tefári5 Guaaarssoriar
■
Austurstræti 3.
Margskonar skófatnaður, þar á meðal Ungbarnaskófatnaður,
sem lengi hefir vantað, á börn á fyrsta ári og þar yfir.
Xoli konangur.
Eftir Upton Sinclair.
Fjórða bók:
Erfðaskrá Kola konungs.
(Frh.).
„Eg heimta að fá vitneskju um
þetta máll“ hélt Hallur áfram.
„Já, já, Hallur, þú skalt fá að
vita alt sem þú vilt, en í Guðs
bænum ekki hér. Ef þú vilt telj-
ast fullorðinn, þá sýndu að þú
hafir gáfur fullþroska mannsl Pét-
ur gamli Harrigan kemur heim
aftur til Western City í kvöld.
Veistu ekki, að hann mun ráðast
á mig eins og mannýgt naut?
Veistu ekki, að ef eg segi honum,
að eg hafi farið hingað og engu
fengið um þokað; að hann mun
ráðast á pabba?“
Edward var aftur kominn að
því einasta atriði, sem einhverja
þýðingu hafði.
„Þú verður að verja pabba fyr-
ir honuml* hrópaði Hallur.
„Þetta getur þú sagtl“ hrópaði
hinn. „Og þó þekkir þú Pétur
gamlal Þú veist, að hann fer inn
til hans, þó hann þurfi að brjóta
hurðina! Hann mun láta.alla reiði
sína bitna á veslings öldungnum!
Þú hefir verið aðvaraður nægilega,
þú veist að um lífið er að tefia,
að pabbi verði ekki fyrir geðs-
hræringu. Eg veit ekki hvað hann
mundi gera — ef til vill mundi
hann verja þig, vegna aldur síns
og veikleika. Hann hefir mist til-
finninguna fyrir slíku — ef til vill
héldi hann, að þú hefðir unnið
dáðríkt verk. Hann mundi að
minsta kosti ekki hlusta á Pétur
skamma þig — og líklega ditti
hann dauður niður þegar sennan
stæði sem hæðstl Ætlarðu kann-
ske að hafa það á samvisku þinni
auk ógæfu verkamannanna, vina
þinna?“
Hallur sat kyr og horfði í
gaupnir sér. Var í raun og veru
eitthvað það í lífi manna, sem
lamaði arm þeirra og gerði þá
vanmegna, þegar þeir ætluðu að
berjast fyrir réttlæti í þjóðfélaginu.
Þegar hann tók aftur til máls,
talaði hann fremur við sjálfansig,
eins og hann væri að sannfæra
sig um eitthvað. „Edward, eg
hugsa til ungs írlendings, sem
vinnur hér í námunni. Hann á
iíka föður, og þessi faðir hans
var niðri í námunni, þegar spreng-
ingin varð — fjóra sólarhringa
var hann lokaður inni í námunni,
og læknarnir segja nú, að hann
verði aumingi alla æfi. Og félagið
hefir gint hann til þess, að afsala
sér tuttugu og fimm dala skaða-
bótum. Eg held líka, að krafa
hans hefði orðið lítis virði, þegar
eg hugsa um, hvernig G. F. C.
ræður hér algerlega yfir dómstól-
unum. Svona er nú komið fyrir
þessum öldung með konu og sjö
börnum auk Tim, unglingsins sem
eg mintist á. Hann er ágætis
piltur og Rafferty er bezti karl —
og sjáðu nú til, hvernig Pétur
Harrigan hefir farið með þál“
„Jæja þá“, sagði Edward, „þú
getur hjálpað þeim. Þeir þurfa
ekki að svelta“.
„Veit eg vel“, mælti Hallur,
„en þeir eru margir fleiri, og eg
get ekki hjálpað þeim öllum. Og
auk þess — sérðu það ekki Ed-
ward? það, sem eg vil, er ekki
góðgerðasemi, ,það er réttlæti.
Það, sem eg er að grafast eftir,
er að reyna að botna í þvf, hvað
er skylda mín gagnvart þessu
fgrirkomulagi. Eg ábirgist það,
að Tim þykir eins vænt um föður
sinn og mér um pabba minn, og
hér eru fleiri gamlir menn, sem
eiga syni, sem líka þykir vænt
um þá —“
Ford-bifreið
næstum ný til sölu. Góð-
ir borgunarskilmálar. —-
: : Afgreiðsla vísar á. : :
cTSoíaéur faínaéur,
svo sem: yfirfrakkar, diplomat-
föt, jaquetföt, jakkaföt, erfiðis-
fatnaður, barnabuxur og margt
: : fleira til sölu. : :
O. Rydelsborgf*
Sparié peningaf
Kaupið í búðinni á Berg-
staðaslræti 1 kvenn- og
barnafatnað, sem skemcb
ist í brunanum 26. f.
fyrir óheyrilega lágt verð.
Búðin verður opnuð a
morgun kl. ] eftir hádegi*
IVýr frákki á 4 ára gaml'
an dreng til sölu og sýnis á af-
greiðslu blaðsins.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafar Friðríksson.
Prentsmiöjan Gutenberg.