Morgunblaðið - 07.11.1974, Qupperneq 1
36 SIÐUR
219. tbl. 61. árg.
FIMMTUDAGUR, 7. NÓVEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Staða Fords afar veik
eftir sigur demókrata
— Forsetinn þó vongóður
um samvinnu við þingið
Washington 6. nóvember AP—Reuter.
9 YFIRBURÐASIGUR Demókrataflokksins f kosningunum tii full-
trúadeildarinnar, öldungadeildarinnar og f rfkisstjóraembætti f
Bandarfkjunum var f kvöld almennt talinn mikið persónulegt áfall
fyrir Gerald Ford forseta og stefnu hans, m.a. f efnahagsmálum, ekki
sfzt vegna þess að alit erfiði hans við atkvæðasmölun um landið þvert
og endilangt virðist algerlega unnið fyrir gýg. En einnig voru úrslitin
mikið áfali fyrir flokk forsetans, repúblfkana, sem enn sligast undír
Watergate-hneyksli fyrirrennara Fords.
• Við fyrstu sýn virtust yfirburðir demókrata á þingi benda til þess
að vænta mætti harðra átaka þings og forseta, þar eð demókratar geta
framvegis með samstöðu hnekkt neitunarvaldi forsetans f hvaða máli
sem er. En flokksleiðtogar lögðu f kvöld áherzlu á samstarf við Ford og
málamiðlun sem einu lausnina á vanda þjóðarinnar. Og Ford var ekki
seinn að grfpa þetta á Iofti: „Við munum mæta þinginu á meir en
miðri leið“ sagði hann. Ford var hins vegar sagður dapur yfir
ósigrinum, en neitaði samt fullyrðingum um að hann hefði áhrif á
ákvörðun hans um framboð f forsetakosningunum 1976.
• Þegar næstum öll úrslit voru kunn f kvöld var staðan þessi:
FuIItrúadeildin: Demókratar höfðu bætt við sig 44 sætum, höfðu 292
gegn 143 sætum repúblfkana, sem þýðir öruggan 2/3 meirihluta f
deildinni. Aður var staðan 248—187. Öldungadeildin: Demókratar
höfðu bætt við sig 5 sætum, höfðu 63 sæti gegn 36 sætum repúblíkana f
deildinni. Aður var staðan 58—42. Rfkisstjóraembættin: Demókratar
höfðu unnið 9 rfkisstjóraembætti frá repúblfkönum, tapað 3 til repú-
blfkana og 1 til óháðs frambjóðanda. Meðal þeirra rfkisstjóra sem
demókratareiga nú eru embættin f stærstu rfkjunum, New York og
Kalifornfu. Sjá fréttir um athyglisverðustu úrslitin f einstökum kosn-
ingum á bls. 17.
Blaðafulltrúi Fords, Ron Ness-
en, sagði i kvöld, að forsetinn
ætlaði ekki að bíða eftir því að hið
nýkjörna þing kæmi saman í
janúar, heldur knýja áfram efna-
hagsráðstaf anir sinar það sem eft-
ir er af árinu, útnefningu Nelsons
Rockefeller sem varaforseta og
Fylgishrun.
Ford tottar pipuna, þungur á
brún, og fylgist með atkvæða-
tölum á sjónvarpsskerminum,
sem sýndu fylgishrun
repúblfkana. Við hlið Fords f
Roosevelt-herberginu í Hvfta
húsinu situr Roy Ash, for-
stöðumaður stjórnunar- og
f járlagastofnunar Bandarfkj-
anna. (AP-sfmamynd)
orkumálaáætlun sína. En meðal
þeirra erfiðleika sem stjórnmála-
skýrendur töldu i kvöld blasa við
forsetanum var, að ósigur repú-
blikana i þingkosningunum muni
ekki aðeins leiða til missis þess
eina forystuhlutverks, sem þeir
Framhald á bls. 20
Vinstri menn halda áfram óeirðum í Portúgal:
Kveikt í bæki-
stöðvum CDS
Lissabon 6. nóvember
— Reuter
UM 60 vinstri sinnar gerðu I
kvöld árás á skrifstofur Miðlýð-
ræðisflokksins (CDS) f borginni
Oporto og kveiktu f þeim með
bensfnsprengju. Þetta gerðist að-
eins tveimur dögum eftir að aðal-
stöðvar sama flokks f Lissabon
voru eyðilagðar af mótmælendum
úr hópi vinstri manna. Fljótlega
tókst að slökkva eldinn f skrif-
stofubyggingunni, og mótmæl-
endurnir reknir til baka, hróp-
andi: „Bindum endi á fasism-
ann“. A mánudag særðust
a.m.k. 36 menn f Lissabon er lög-
reglan hóf skothrfð til að hrekja á
brott vinstri menn sem reyndu að
koma f veg fyrir mótmælagöngu á
vegum CDS.
Ríkisstjórnin fordæmdi i dag
þetta athæfi harðlega, og her-
menn voru gerðir út af örkinni til
að handtaka fólk sem grunað er
um þátttöku 1 óeirðunum. 1 yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar segir,
að árásin á aðalstöðvar CDS geti
aðeins komið sér vel fyrir aftur-
haldsöflin, sem áhuga hafi á að
skaða Portúgal og hindra það að
stefnunni um endurreisn lýð-
ræðis og sjálfstæðis nýlendna
verði haldið áfram.
Samkvæmt upplýsingum frá
hernum hefur sérstök öryggislög-
regla hersins Copcon, handtekið
ótilgreindan fjölda manna í sam-
bandi við óeirðirnar i Lissabon. 1
kvöld héldu hermenn Copcon enn
vörð um CDS-stöðvarnar, sem ráð-
izt var á.
Orkuvandamálin til umræðu
á aukaþingi Norðurlandaráðs
Álaborg 6. nóv.
frá Birni Jóhannssyni, frétta-
stjóra.
□ AUKAÞING Norðurlandaráðs
hefst hér f Alaborg á morgun,
fimmtudag. 1 dag kom forsætis-
nefnd ráðsins til fundar til að
undirbúa þinghaldið. Fjölmörg
mál liggja fyrir ráðinu að venju,
en segja má, að mest beri samt á
orkuvandamálunum.
□ Tveir fslenzkir ráðherrar sitja
þingið, þeir Geir Hallgrfmsson
forsætisráðherra og Einar
Agústsson utanrfkisráðherra.
Fulltrúar Alþingis f Norður-
landaráði eru Ragnhildur Helga-
dóttir, Jóhann Hafstein, Jón
Skaftason, Ásgeir Bjarnason,
Gylfi Þ. Gfslason og Magnús
Kjartansson. Varamenn Jóhanns
Hafstein og Jóns Skaftasonar
sitja þingið f þeirra stað, þeir
Sverrir Hermannsson og Þórar-
inn Þórarinsson.
I sambandi við aukaþing Norð-
urlandaráðs eru haldnir fundir
norrænna ráðherra og embættis-
manna. Ýmsir fslenzkir embættis-
menn eru komnir til Álaborgar
vegna þessa.
Framkvæmdastjóri Islands-
deildar Norðurlandaráðs er Frið-
jón Sigurðsson skrifstofustjóri
Alþingis.
I forsætisnefndinni eiga sæti
Ragnhildur Helgadóttir, sem er
Framhald á bls. 20
Umsátursástand
er 1 Argentínu
Buenos Aires 6. nóv. — AP.
ARGENTlNSKA rfkisstjórnin
lýsti f kvöld yfir umsátursástandi
f landinu, aðeins 17 mánuðum
eftir að fyrsta borgaralega kosna
stjórnin f sjö ár tók við völdum
af herforingjastjórn. Umsáturs-
ástandið, sem er eins konar væg-
ari útgáfa af herlögum, gekk þeg-
ar f gildi. Þar með er argentfnska
þjóðin svipt stjórnarskrárlegum
réttindum sfnum. Almennir
fundir eru bannaðir. Lögreglan
eða herinn geta handtekið menn
án dómsúrskurðar og haldið þeim
án dóms og laga. Þá hefur stjórn-
in einnig f orði rétt til að flytja
fólk nauðugt sem viljugt úr ein-
um landshlua f annan.
Alberto Rocamora innanríkisráð-
herra sagði í kvöld að grípa hefði
Framhald á bls. 20
Demókratar geta nú hrund-
ið neitunarvaldi Fords
Washington 6. nóv.
frá blm. Mbl.
Geir H. Haarde.
0 Eins og búizt hafði verið
við létu bandarfskir kjósendur
f gær f ljós óánægju sfna vegna
Watergate-hneykslisins og
efnahagsástandsins með þvf að
tryggja Demókrataflokknum
stóran sigur f kosningunum.
Bætti flokkurinn við sig a.m.k.
fjórum sætum f öldungadeild-
inni og um 45 sætum f fulltrúa-
deildinni, auk rfkisstjóraemb-
ætta f mörgum rfkjum, þ.á.m. f
New York og Kalifornfu, fjöl-
mennustu rfkjum Bandarfkj-
anna, sem repúblikanar réðu
áður. Fara demókratar nú með
stjórn 36 rfkja af 50, hafa rúm-
lega 2/3 þingsæta f fulltrúa-
deildinni og yfir 60 af 100 þing-
sætum f öldungadeildinni.
Afhroð repúblikana var nær
algjört og sums staðar, þar sem
þeir fóru áður með tögl og
hagldir, misstu þeir nú nær öll
völd. Heldur Repúblfkana-
flokkurinn völdum f Hvfta hús-
inu nær einu eftir, en eftir
þessi úrslit er almennt talið, að
demókratar muni einnig þar
taka völdin eftir næstu forseta-
kosningar 1976.
Kosningaræður Fords forseta
fyrir frambjóðendur repúblík-
ana undanfarnar vikur hafa
ekki borið árangur, og þótt
hann njóti sjálfur virðingar og
vinsælda, hefur honum ekki
tekizt að sannfæra kjósendur
um að repúblikönum sé treyst-
andi, eftir þá reynslu sem
landsmenn fengu af Nixon sl.
tvö ár. Ford tók úrslitunum
sjálfur með heimspekilegri ró i
gærkvöldi og sagðist viss um, að
flokkur hans mundi ná sér upp
úr þessari lægð eins og jafnan
áður.
Eins og nærri má geta eru
Framhald á bls. 20