Morgunblaðið - 07.11.1974, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1974
Eftirfarandi spil er frá leik
milli Bretlands og Grikklands í
Evrópumóti fyrir nokkrum árum.
Norður.
S. D-6
H. Á-D-10-6-3-2
T. D-G-3
L. Á-3
Austur.
S. G-8-7-3
H. 9-8-5
T. K-10-9-7-4
L. 10
Sudur.
S. 10-9-5
H. K-7-4
T. 8
L. K-G-7-6-4-2
Við annað borðið sátu grísku
spilararnir N-S og hjá þeim varð
lokasögnin 4 hjörtu. Austur lét út
laufa 10, sagnhafi drap heima
með ási og tók hjarta ás. Austur
lét hjarta 8, sem gefur til kynna
að hann eigi 3 hjörtu. Næst lét
sagnhafi út laufa 3, austur tromp-
aði ekki, en lét í þess stað spaða,
drepið var í borði með kóngi, lauf
látið aftur og trompað hátt heima.
Nú var hjarta 2 látinn út og þegar
austur lét hjarta 5 þá spurði sagn-
hafi hvort þeir A-V gæfu á þenn-
an hátt til kynna, að um 3 tromp
væri að ræða. Þegar svarið var
jákvætt, þá'drap sagnhafi í borði
með hjarta 7, lét enn lauf, tromp-
aói heima og síðan átti hann inn-
komu á hjarta kóng til að táka
frí-laufin.
Við hitt borðið varð lokasögnin
4 spaðar hjá grísku spilurunum,
sem sátu A-V og var sú sögn dobl-
uð. Spilið varð 2 niður, eða 300
fyrir N-S, en gríska sveitin
græddi samtals 4 stig á spilinu.
Vestur.
S. Á-K-4-2
H. G
T. Á-6-5-2
L. D-9-8-5
ást er . . .
. . . mikil
hamingja
DJtCBÖK
I dag er fimmtudagurinn 7. nóvember, 311. dagur ársins 1974.
Árdegisflóð 1 Reykjavík er kl. 11.55, sfðdegisflóð kl. 00.41.
Sólarupprás f Reykjavík er kl. 09.29, sólarlag kl. 16.53.
Á Ákureyri er sólarupprás kl. 09.25, sólarlag kl. 16.26.
(Heimild: Islandsalmanakið).
Gætið þess, að enginn gjaldi neinum illt með illu, en keppið ávallt eftir
hinu góða, bæði hver við annan og við alla. Verið ætfð glaðir. Biðjið án afláts.
Gjörið þakkir í öllum hlutum, þvf að það hefir Guð kunngjört yður sem
vilja sinn fyrir Krist Jesúm. (I. Þessalónfkubr. 15-19).
I KHOSSGÁTA
lb
Lárétt: 1. labba 6. ekki marga 8.
ullarvinna 10. keyri 11. hjálpa 12.
athuga 13. tímabil 14. þjóta 16.
dróst andann
Lóðrétt: 2. frá 3. lægðina 4. álasa
5. stoppa í 7. fjöldi 9. vitskerta 10.
ellegar 14. ósamstæðir 15. hvílt
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1. skass 6. LUK 8. kram-
inn 11. aur 12. NAN 13. RM 15. rá
16. lán 18. armingi
Lóðrétt: 2. klár 3. aum 4. skin 5.
skarpa 7. annaði 9. rúm 10. nár 14.
gái 16. LM 17. NN
iBlöð og tímarit
NATTURUVERKUR
FRÉT'IIR
Basar íþrótta-
félags kvenna
íþróttafélag kvenna heldur bas-
ar sunnudaginn 10. nóvember á
Hallveigarstöóum. Basarinn hefst
kl. 2, og verður þar á boóstólum
margt góðra muna, sem hentugir
eru til jólagjafa.
Lárus Salómonsson:
INGÓLFSBÆR
I Reykjavík Ingólfur byggði sér bæ,
og bærinn hét Vfk, eins og greinir f sögum,
var reistur f hallinu, hafinn frá sæ
og horfði mót skfnandi tjarnar spegli.
Þar réðist hið góða á gegnum dögum
og gullaldar-sporin á landnemans dregli.
Enn miðalda skammdegis skuggarnir sjást.
Þó skfna frá mannshöndum ljós inn á veginn.
Frá landnámi andans skal aldrei þó mást,
hvar Ingólfur bjó og Hallveig réðgarði.
Og hér f innur þegninn anda sfns eiginn,
því alþingis rfkið er feðranna varði.
Nú spreglast f tjörninni lampanna Ijós
og litverpir skuggar frá húsanna röðum.
Og f uglarnir lóna við lokaðan ós
þar lækurinn rann á frumbyggjans dögum,
óheftum rómi þá gjallanda glöðum
hann glumdi á vökum með feðranna sögum.
Við tjörnina gerast hér ævintýr enn.
Sem áður fyrr rætast þar mannanna draumar.
Þar fortfð og ættvfsi fagna f senn,
í fögnuði verða stundirnar góðar,
vaxandi frjóvar sem vorglaðir straumar.
Og vaggan stóð þar hinnar fámennu þjóðar.
Enngeymum vér nafnheitin Grófin og Naust,
og gatan frá þeim lá að búandans ranni,
svo aldrei má þagna sú arfgengna raust,
hvar aldanna tröð var merkt þeirra sporum.
Vér krjúpum f lotningu konu og manni,
sem kjöru sinn búgarð að höfuðstað vorum.
Það verður að rfkja í vitund hvers manns,
hvar vöggunnar armur lét barnið til sólar:
Að hér f æddist þingbundið lýðfrelsi lands
með laganna boðskap og frjálsan anda.
Vættir og þekkingin valdhafann skólar.
1 vöggurnnar lundi skal fáni vor standa.
PEIMIMAVIIMIR
Austur-Þýzkaland
Hér eru nöfn og heimilisföng
fimm austur-þýzkra stúlkna, sem
óska að komast í bréfasamband
við Islendinga:
Petra Lubig
759 Spremberg
Drebkauerstr. 14
DDR
(17 ára)
Marita Wirkus
7544 Vetschau
Lindenstr. 20
DDR
(16 ára)
Uta Petschkk
7701 Spohla
Nr. 43
DDR
(16 ára)
Martina Graupner
8601 Doberschut 3
bei Neschwitz
DDR
(16 ára)
Claudia Reimann
754 Calau
Otto-Nauschke-str. 61.
DDR
(16 ára)
Þær skrifa á þýsku og ensku.
Náttúruverkur, blað Félags
verkfræðinema og Félags
náttúrufræðinema við Háskóla ts-
lands, hefur hafið göngu sína.
Ábyrgðarmenn og ritstjórar eru
Eva Benediktsdóttir, Garðar Mýr-
dal, Gylfi Páll Hersir, Tryggvi
Jakobsson og Ulfar Antonsson.
í ritinu er margvíslegt efni um
umhverfismál, stjórnmál, þjóð-
félagsmál, en tilgangur útgáfunn-
ar er skýrður í ritstjórnargrein,
og þar segir m.a.:
„Von aðstandenda blaðsins er
að það verði fagblað, þó á þann
hátt, að það ýfi mann til umhugs-
unar og meðvitundar um pólitísk-
an tilgang náms þeirra og fram-
tíðarstarfs. Tal um ópólitískt blað
verður að teljast pólitísk afstaða
með núv. fyrirkomulagi, þ.e.
hvernig fólk er menntað á sviði
verk- og náttúrufræðivísinda, sel-
ur þekkingu sína og starfskrafta,
sinnulaust um annað en lífsgæða-
kapphlaup neyzluþjóðfélagsins.
Þannig er ákveðin þjóðfélagsþró-
un valdaaðiljum samfélagsins
fær.“
Blaðið er prentað í Alþýðu-
prentsmiðjunni. Það er 56 síður
að stærð, þar af eru auglýsingar á
aðeins 6 siðum. Blaðið er hið
glæsilegasta að öllum frágangi
með litprentaðri kápu.
Basar í
Keflavík
Kvenfélag Keflavíkur heldur
basar sunnudaginn 10. nóvember
í Tjarnarlundi, og verður hann
opnaður kl. 3. Þar verður á boð-
stólum margt góðra muna.
Kvenfélagið Bylgjan heldur
fund að Bárugötu 11 kl. 8.30 i
kvöld.
1 SÁ IMÆSTBESTI 1
Klaufaskapur á réttum
tíma er skárri en vizka á
röngum tíma.
(Carolyn Wells, bandarísk-
ur rithöfundir og háðfugl).
Fótaaðgerðir
Fótaaðgerðir aldraðra í Laugar-
nessókn er hvern föstudag kl.
9—12 í kjallara kirkjunnar. Upp-
lýsingar I sima 34544 og i sima
34516 áföstudögum kl. 9—12.
Minningarsjóður
einstæðra
foreldra
Minningarspjöld fást hjá Bóka-
búð Blöndals, Vesturveri, í skrif-
stofu FEF' i, Traðarkotssundi 6,
Bókabúð Olivers í Hafnarfirði, Jó-
hönnu s. 14017, Þóru s. 17052,
Margréti s. 4272£,. Ingibjörgu s.
27441, Hafsteini st 42721, Páli s.
81510 og i Bókabúð Keflavíkur.
HVAÐ ER ÞAÐ
SEIVI ER SVART,
GENGUR Á
TVEIIVI FÓTUIVI
□G SÉST EKKI !
svar:
SNI»BUnaN3 Ny ItlXtlAVSJ I
IQNVtntlÐB/V H3NVQNVQ
Nýlega tók nýr aðili við
rekstri Kaffitofu
Guðmundar í Sigtúni 3
hér í borg.
Þaö er Karl Einarsson,
sem nú ræður þar ríkj-
um, og munu grillréttir,
kaffi o.fl. verða þar á boð-
stólum allan daginn eins
og verið hefur, en einnig
verður nú tekin upp sú
nýbreytni að hafa rétt
dagsins í hádeginu.
Karl Einarsson hefur
verið þekktastur fyrir
skemmtiatriði sín á und-
anförnum árum, og nú er
bara eftir að vita hvort
gestir hans í Sigtúninu fá
lystaukandi skemmtiatr-
iði og eftirhermur í kaup-
bæti.
| BRIPGE