Morgunblaðið - 07.11.1974, Qupperneq 36
nucivsmcRR
^-»22480
RUGIVSinCRR
^*-»22480
FIMMTUDAGUR, 7. NÓVEMBER 1974
Æfingar oft erfiðari
en raimvenileikinii
— segja bandarísku sjúkraliðarnir,
sem stukku um borð í Stolt Vista
Mynd þessi er tekin, er skipverjar á varðskipinu Þór voru að koma með
sjúkraliðana tvo um borð í varðskipið, en þá höfðu þeir hjúkrað og annast fjölda
manna um borð í Stolt Vista.
/ . -s.. ...
-■—*'
VARÐSKIPIÐ Þór kom f gær til
Keflavfkur með sjúkraliðana tvo,
sem vörpuðu sér út úr Hercufes-
flugvélinni yfir Stolt Vista á
mánudag, en eins og kunnugt er
af fréttum, varð mikil ketil-
sprenging I norska skipinu, sem
siglir undir Lfberfufána og skað-
brenndist einn maður við spreng-
inguna og tveir aðrir eitthvað
minna. Fréttamaður Mbl. I Kefla-
vfk, Heimir Stfgsson, ræddi f gær
David Mifsten
yfirliðþjálfi.
Steven Tyre
liðþjálfi
við sjúkraliðana f bækistöð björg-
unarsveitarinnar á Keflavfkur-
flugvelli.
Sjúkraliðarnir, sem báðir eru
liðþjálfar, heita David Milsten og
Steven Tyre, sögðu að Hercules-
Óvænt úrslit
í fyrsta leik
lSLANDSMÓTIÐ f handknattleik
hófst í Laugardalshöll f gær-
kvöldi. t fyrsta leik mótsins urðu
þau óvæntu úrslit, að Vfkingur
sigraði Val 19:17, eftir 14:8 f hálf-
leik. Þá vann Fram Armann
16—12. Nánar á íþróttasfðum á
morgun.
vélin, sem flutti þá til skipsins
hafi verið komin yfir skipið
klukkan 10.10 á mánudagsmorg-
uninn og þá hafi þeir stokkið.
Tyre lenti alllangt frá skipinu, en
Milsten lenti svo til á skipshlið
Stolt Vista. Sagði hann að hefði
áhöfnin á skipinu verið nógu
snögg til að ná í fallhlífina, hefði
hann ekki þurft að vökna, en svo
var þó ekki.
Skipsbáturinn sem settur hafði
verið á flot til þess á ná í þá félaga
var hinum megin við skipið. Því
tók það um 15 til 20 mínútur að ná
þeim úr sjónum, svo og lyfjabún-
aði og tækjum. Létu þeir síðar
kasta niður til sín þremur viðbót-
arkössum með lyfjum. Þeir félag-
ar sögðu að sá sjúklingurinn, sem
mest var brenndur, hefði verið
illa kominn, er þeir komu, en líð-
an hans batnaði þó mjög eftir að
þeir gáfu honum vökva. Hækkaði
þá blóðþrýstingur sjúklingsins úr
105 og upp í 124. Sögðu þeir hann
einan hafa verið stórslasaðan,
brenndan í andliti, á baki og
höndum, en hinir tveir hefðu ver-
ið minna slasaðir. Annar þeirra
hafði fengið i læri stóra stálflís
sem lá niðri undir hnéskel. Fjöl-
margir af áhöfn skipsins voru
særðir og skrámaðir eftir viður-
eignina við eldinn og gerðu þeir
að meiðslum þeirra. Bandarikja-
mönnunum fannst skipið mjög
skemmt.
Þegar þeir félagar voru spurðir
að því, hvort sjórinn hafi ekki
verið kaldur, þegar þeir komu í
hann, svöruðu þeir þvi til að
skipin hefðu gefið upp, að sjórinn
væri 12 gráður á Celcíus. Frosk-
mannsbúningar þeirra eru þó
gerðir til þess að þola miklu meiri
kulda, þannig að þeim varð ekk-
ert við að koma í sjóinn. Ölduhæð
á þessum slóðum var tæplega 3
metrar. Þeir sögðu að þetta hefði
verið fyrsta sinni sem þeir stukku
á þennan hátt úr flugvél yfir sjó
og alvara væri á feróum. Áður
kváðust þeir oft hafa gert þetta á
æfingum. Það var því að þeirra
sögn mjög ánægjuleg tilfinning
að finna það, að þetta gekk allt
mjög vel, og var síður en svo
Framhald á bls. 20
; ■-' _
i
Austurlandsvirk j un:
Svisslendingar aðil-
ar að rannsóknunum?
„SVISSLENDINGAR hafa
boðizt til að stofna með
okkur nefnd, sem ljúki
rannsóknum á Austur-
landsvirkjun með stóriðju
fyrir augum. Er tilboð
þetta gert án þess að farið
sé fram á neinar skuldbind-
ingar af okkar hálfu.“
Þannig ritar Sverrir Her-
mannsson alþm. í Mbl. sl.
þriðjudag.
Höfundar Grindavíkurmyndarinnar:
Gera 6—7 kvikmynd-
ir fyrir siónvarpið
MBL. hafði f gær samband við
Pétur Guðfinnsson framkvæmda-
stjóra sjónvarpsins og fékkk hjá
honum upplýsingar um það hve
margar myndir sjónvarpið tæki
til sýningar eftir þá Þorstein
Jónsson og Ólaf Hauk Símonar-
son, höfunda myndarinnar „Fisk-
ur undir steini,“ sem sýnd var f
sjónvarpi s.l. sunnudagskvöld.
Fékk blaðið þær upplýsingar, að
útvarpsráð hefði falið sjónvarp-
inu að semja um gerð 6 hálftfma
mynda. Auk þess hefðu þeir fé-
lagar boðizt til að gera sjöundu
myndina, en útvarpsráð ætti eftir
að taka ákvörðun f þvf máli.
Ein mynd er þegar tilbúin til
sýningar. Heitir hún „Gagn og
gaman,“ og fjallar um mynd-
xieyzlu í Reykjavíkurborg að sögn
Péturs og mun að mestu fjalla um
málverkasýningar. Þá mun þriðja
myndin brátt verða tilbúin. Heitir
hún „Lífsmark," og fjallar um
láglaunafjölskyldu í nágrenni
Reykjavikur. Fjórða myndin mun
fjaila um verkamannafjölskyldu í
Reykjavík. Þá liggur að sögn Pét-
urs fyrír samþykki útvarpsráðs
fyrir því, að sjónvarpið semji við
þá Þorstein og Ólaf Hauk um gerð
tveggja mynda til viðbótar, og er
verið að semja við þá þessa dag-
ana um gerð myndanna. Mun
a.m.k. önnur þeirra fjalla um lág-
launafólk.
Þeir Þorsteinn og Ólafur Hauk-
ur sneru sér upphaflega til út-
varpsráðs og buðust til að gera
myndir fyrir sjónvarpið. sam-
þykktí útvarpsráð þessa tilhögun.
Má segja, að þeir séu lausráðnir
stafsmenn sjónvarpsins á meðan
þeir vinna að gerð myndanna.
Þeir leggja sjálfir til hluta af
tækjakosti, en sjónvarpið útvegar
þeim önnur þau tæki sem þeir
þarfnast, svo og filmur. Þeir fá
greidd laun samkvæmt taxta
dagskrárgerðarmanna og auk þess
fá þeir greidda tækjaleigu. Er
reiknað meó, að hver hálftíma
mynd taki tvo mánuði í fram-
leiðslu. Sjónvarpið á allan rétt á
myndunum alveg eins og hennar
eigin starfsmenn hefðu unnið
þær. Sagði Pétur Guðfinnsson að
lokum, að gerð þessara mynda
flokkaðist að sínu mati ekki undir
dýra framleiðslu.
Mbl. hefur fregnað, að hér eigi
Sverrir við svissneska stórfyrir-
tækið Alusuisse, sem m.a. rekur
Álverið í Straumsvík. Af því til-
efni hafði blaðið i gær samband
við þá dr. Gunnar Thoroddsen
iðnaóarráðherra, Jóhannes
Nordal, bankastjóra, formann við-
ræðunefndar um orkufrekan iðn-
að, og Ragnar Halldórsson for-
stjóra Alfélagsins í Straumsvík.
Ragnar Halldórsson tjáði Mbl.
að rétt væri, að fulltrúar
Alusuisse undir forsæti Emanuel
R. Meyer stjórnarformanns fyrir-
tækisins og dr. Paul H. MUller
aðalframkvæmdastjóra hefðu
verið hér á ferð fyrir rúmri viku,
og þá átt viðræður við orkunefnd-
ina um þau mál, sem Sverrir
fninnist á í grein sinni. Hins vegar
væri málið algerlega á byrjunar-
Stigi. Það væri að sínu mati mjög
éðlilegt að seljendur orku og
kaupendur orku ættu með sér
fundi til að finna út hvort hags-
munir þeirra ættu saman. Að
öðru leyti vildi Ragnar ekki tjá
sig um málið. Jóhannes Nordal
staðfesti að nefnd sú sem hann
veitir formennsku hefði átt við-
ræður við fulltrúa Alusuisse, en
vildi ekkert frekar um málið
segja. Dr. Gunnar Thoroddsen
iðnaðarráðherra sagði, að hann
r
A batavegi
PILTURINN ungi sem varð fyrir
hnffsstungu á Akranesi um síð-
ustu helgi er heldur á batavegi, að
því er Guðjón Guðmundsson yfir-
læknir tjáði Mbl. í gærkvöldi
Hann er þó enn ekki úr lífshættu.
liti á þessar viðræður sem
trúnaðarmál og vildi hann ekkert
láta hafa eftir sér um þær.
Skýrsla um
landhelgis-
viðræður
SKYRSLA um viðræður
fslenzkra embættismanna við
stjórnvöld í V-Þýzkalandi um
landhelgisdeiluna verður
væntanlega afhent alþingis-
mönnum í þessari viku. Kom
þetta fram í ræðum bæði for-
sætisráðherra og utanrikisráð-
herra í útvarpsumræðunum í
fyrrakvöld.
Fyrsti nýsköp-
unartogarinn
í brotajárn
UTGERÐARRAÐ Reykjavfkur-
borgar ákvað á sfðasta fundi sfn-
um aðselja síðutogarann Hjörleif
til niðurrifs. Var samið við fyrir-
tæki á Spáni, og er söluverðið um
9,5 milljónir. Borgarráð hefur
samþykkt söiuna.
Hjörleifur hét áður Ingólfur
Arnarson og var fyrsti nýsköp-
unartogan íslendinga. Kom hann
til landsins 1947. Hefur skipið
alla tíð verið einstök happafleyta,
líklega farsælasta skip íslenzka
togaraflotans. Skipið verður
væntanlega afhent á næstunni.