Morgunblaðið - 11.02.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 11.02.1975, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1975 Gunnar Thoroddsen á Alþingi: Járnblendiverksmiðjan ný stoð íslenzku efnahags- og atvinnulífi Frumvarpið um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði var til 1. umræðu f efri deild Alþingis í gær. Gunnar Thoroddsen orkuráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði í ítarlegri ræðu. Eggert Þorsteinsson (A) lýsti stuðningi síns þingflokks við aðild tslendinga að eign og rekstri slíkrar verksmiðju, með fyrirvara um einstök atriði. Stefán Jónsson (K) mælti hins vegar gegn frumvarpinu í nafni Alþýðubandalagsins. Ræða orkuráðherra fjallaði m.a. um aðdraganda málsins, sér- fræðilegar athuganir og kannanir þess, eignaraðild og rekstrarfyrir komulag fyrirtækisins, þýðingu þess fyrir þjóðarbúið og einstök byggðarlög sem og nauðsynlegar mengunarvarnir. 1 annan stað fjall- aði ræða hans um nýtingu innlendra orkugjafa almennt, tengsl stór- virkjana og orkufreks iðnaðar, og raforkumál og iðnvæðingu einstakra landshluta, m.a. Norður- og Austurlands. Vegna takmarkaðs rýmis í blaðinu verða hér og nú aðeins birtir þeir kaflar úr ræðu ráðherrans, er snerta væntanlega járnblendiverk- smiðju einvörðungu. Islendingar eigi 55% hlutafjár. Varðandi fyrirkomulag þessa samstarfs er gert ráð fyrir, að hér verði um hlutafélag að ræða, og að hlutaféð verði 24 millj. dala. I þessu frv. er gert ráð fyrir því, að Union Carbide eigi 45% í fyrir- tækinu, en íslendingar 55%. 55% af þessu hlutafé eru því 13.2 millj. Bandaríkjadollara eða um það bil 1575 millj. ísl. kr., eins og getið er i 3. gr. frv. Þetta framlag af Isiands hálfu, hlutafjárfram- lag, hefur verið gert ráð fyrir að taka að láni. Liggur það nokkurn veginn Ijóst fyrir, að slíkt lán mun fáanlegt með viðunanlegum kjörum. Það hefur einnig verið kannað eftir því sem unnt er, hvort slík lántaka kynni að draga úr eðlilegum lántökumöguleikum Islands að öðru leyti á erlendum mörkuðum, og er talíð af þeim, sem fróðastir eru i þeim efnum, að svo muni ekki véra. Þetta fyrir- tæki þykir bæði það sérstaks eðlis og það áiitlegt um arðsemi, að lántaka í því skyni yrði ekki talin mundu draga úr almennum láns- fjármöguleikum islands á erlend- um markaði. Varðandi eignaraðild í þessu fyrirtæki kom ýmsar leiðir til greina. I fyrsta lagi gæti komið til greina sú leið, sem valin var, þeg- ar álverksmiðjan var reist, þannig að íslendingar séu ekki eignar- aðilar, heldur eigi hið erlenda fyrirtæki verksmiðjuna. Kostur- inn við þetta fyrirkomulag er fyrst og fremst sá, að með þessu tekur Island ekki á sínar herðar neina áhættu af þessum rekstri. Önnur hugsanleg leið væri sú, að Islendingar ættu einir slíka verk- smiðju. A því eru ýmsir annmark- ar, með þeim hætti þyrfti Island að leggja fram miklu stærri hlut en nú er gert ráð fyrir. 1 annan stað taki landið á sig mikla áhættu þar sem það bæri eitt ábyrgð og áhættu af þessum rekstri. En það, sem skiptir ekki minnstu máli í þessu sambandi er það, að framleiðsla eins og sú, sem hér ræðir um, krefst svo mikillar tækniþekkingar og reynslu, að það er ákaflega hæpið, að Islendingar gætu nema þá á löngum tíma og fyrir offjár sjálfir öðlast þá reynslu og þekkingu, ef þeir verði einir um hituna. Þess vegna hefur verið talið eðlilegra að velja þriðju leiðina, sem er sú, að íslendingar verði eignaraðilar að þessu fyrirtæki, en hið erlenda fyrirtæki, sem hefur áratuga- reynslu í þessu efni, yrði með- eigandi, þátttaka þess fyrst og fremst æskileg frá sjónarmiði Is- lands, vegna þess að það leggur fram tækniþekkingu, sérleyfi og sérfræðinga, sem til þarf, og ekki síst það, sem ég drap á áður, að fyrirtækið hefur yfir að ráða mjög vel skipulögðu sölukerfi, sem er ómetanlegt í þessu sam- bandi. Þegar viðræður voru hafnar við Union Carbide, var það skilyrði sett af hálfu íslensku ríkisstj., að tsland ætti meiri hl., þ.e.a.s. minnst 51%, í verksmiðjunni. I fyrstu taldi Union Carbide hæpið að ganga að þeim skilyrðum vegna þess að í flestum ef ekki öllum tiivikum, þar sem það fyrirtæki hafði reist verksmiðjur i öðrum löndum, hafði það sjálft átt meiri hl. Hins vegar gekk það síðar inn á þetta skilyrði, en tjáði þá full- trúum rikisstj., að ef Union Car- bide ætti ekki meiri hl., þá kærðu þeir sig ekki um að eiga meira en um þriðjung. Þannig er það til komið, sem gert var ráð fyrir á s.i. vetri og vori í þeim till., sem þá Iágu fyrir, að Isiand væri með 65% aðild og Union Carbide með 35%. Eftir stjórnarskiptin, þegar þetta mál var allt tekið til með- ferðar að nýju, þótti ríkisstj. ástæðulaust, að Island ætti meira en ríflega helming. Varð það niðurstaðan eftir allítarlegar við- ræður við hið bandaríska fyrir- tæki, að hlutföllin yrðu 55% eign- araðild Islands og 45% af hálfu Union Carbide, eins og þetta frv. og samningar, sem þvi fylgja, byggjast á. Sú framleiðsla, sem hér um ræðir, byggist auk þeirra hráefna, sem ég nefndi á orku. Samningar hafa nú tekist við þetta fyrirtæki um orkuverð, sem verður að telj- ast vel viðunandi. Fyrir liggur álitsgerð Landsvirkjunar, sem birt er sem fskj. með frv., þar sem þetta kemur fram. Verðið er í stórum dráttum þetta, sem nú skal greina. Það er skilið milli forgangsorku og afgangsorku, og að því er snertir forgangsorkuna, þá verður orkuverðið fyrstu tvö árin 9,5 bandarískt mill, en mill er þúsundasti hluti úr dollara, þ.e.a.s. fyrstu tvö árin 1.12 kr. á hverja kw-stund. Eftir tvö ár hækkar svo þetta verð á forgangs- orkunni upp í 10 mill eða kr. 1.18. Að því er snertir afgangsorkuna, þá verður hún fyrstu árin 'A miil eða 6 aurar, en hækkar síðan í Járnblendiverksmiðjan: Alþýðuflokkur með — Alþýðubandalag móti Ræða Gunnars Thoroddsen orkuráðherra, er hann mælti fyrir frumvarpi til laga um járnblendiverksmiðju, er að hluta til birt á öðrum stað hér á þingsfðu Morgunblaðsins. Aðrir, sem til máls tóku I umræðunni, voru Eggert Þor- steinsson (A), sem mælti með meginefni frumvarpsins, og Stefán Jónsson (K), er mælti gegn því. Eggert Þorsteinsson sagði að mál þetta hefði átt langan að- draganda og hlotið vandlegan undirbúning þriggja orkuráð- herra: Jóhanns Hafsteins, Magnúsar Kjartanssonar og Gunnars Thoroddsen. Ahugi hefði frá upphafi verið fyrir hendi, eins og bezt kæmi fram í athugun þriggja ríkisstjórna, sem allir þingflokkar, utan SFV, hefðu átt aðild að. Þing- flokkur Alþýðuflokksins væri í meginatriðum samþykkur efni frumvarpsins, með fyrirvara Eggert Þorsteins- Stefán Jönsson al- son alþingismaóur. þingismaður. um einstök atriði, m.a. fjár- mögnun væntanlegrar hafnar. Stefán Jónsson (K) mælti gegn frumvarpinu í nafni Al- þýðubandalagsins. Hann taldi að samningur sá, er nú lægi fyrir, myndi valda tjóni: efna- hagslega, menningarlega og pólitískt. Hið erlenda fyrirtæki væri síður en svo traustvekj- andi. Vinnubrögð við könnun þessa máls væru vítaverð, raun- ar móðgun við alþingismenn. Sérfræðingar ríkisstjórnarinn- ar, bæði hagfræðingar og verk- fræðingar, hefðu verið blekkt- ir, raunar væru þeir „menntað- ir undir það að vera blekktir". Þeir aðhæfðu ekki menntun sína íslenzkum staðháttum og þjóðlffi. Þeirra hugsun væri bundin iðnaðarþjóðfélaginu, en þjóðfélag okkar væri „hjarð- manna- og veiðimannaþjóðfé- lag“. Hann taldi mengunar- hættu verulega og vitnaði til fyrri fullyrðinga hinna sér- menntuðu varðandi kisilgúr- og álverksmiðju, sem stönguðust á við fengna reynslu. Kísilgúr- verksmiðjan væri vel á veg komin með að eyðileggja Mý- vatnssveit og umhverfi álvers- ins væri ofmettað mengun. Hann vitnaði til álits sérfræð- inga um minkarækt, síðan hefði komið kísilminkaverksmiðja og álminkaverksmiðja. Nú væri röðin komin að stálminkaverk- smiðju. Hann sagði Alþýðubandalag- ið á móti þessu frumvarpi. Að vísu væri einstakir flokksmenn ekki andvígir því á sömu for- sendu. Menn hefðu ólíkar skoð- anir í þeim flokki og byggðu andstöðu sína á mismunandi forsendum. Er fundartíma lauk í deild- inni hafði þingmaðurinn ekki lokið máli sínu. Hann sagðist myndu tala a.m.k. tvo tíma til viðbótar, er málið kæmi á ný til umræðu í deildinni. byrjun 3. árs upp i 1.4 mill eða 16.5 aura, á 5. ári í 1.8 miil eða 21 eyri og í byrjun 7. árs hækkar það í 2.4 mill eða 28 aura. Þegar tekið er meðalverð, þá er það fyrstu árin 5 mili eða 59 aurar og hækk- ar eftir 6 ár upp í 6.2 mill eða 73 aura. Þá er ákvæði um það i samningsdrögunum, að orkuverð- ið skuli endurskoða á fjögurra ára fresti. Það skal hækkað hlutfalls- lega jafnt og orkuverð norsku ríkisrafveitnanna til norsks iðnaðar. Þegar orkuverðið er skoðað í samanburði við orku ann- ars staðar, kemur það í ljós, að forgangsorkuverðið er mun hærra heldur en orkufrekur iðnaður greiðir nú almennt, bæði í Noregi og i Bandaríkjunum. Gunnar Thoroddsen orku- ráðherra. Að því er snertir skiptingu miili forgangsorku og afgangsorku, þá er sú skipting orðin verulega hag- stæðari nú heldur en hún var áður og verður að teljast mjög viðunandi. Að því er orkusamn- ingana í heild varðar verður að teljast, að þeir séu okkur hag- stæðir. En þá kemur upp sú spurning, er þá nægileg orka til handa þessari verksmiðju? Er hætta á því, að orkuskortur verði til annarra nauðsynja? Niður- staðan af könnun á því er sú, að orkan sé næg og það muni ekki skapa örðugleika, þó að samið sé um raforkusölu til þessarar verk- smiðju. En orkusalan til hennar mun nema frá 60 til 68 megawött- um á ári. Mengunarvarnir I sambandi við mengunarvarnir hefur verið lögð á það megin- áhersla, bæði af fyrrv. og núv. ríkisstj., að þeirra verði gætt til hins ítrasta. I þeim drögum að aðalsamningi, sem birtur er með frv. má sjá í 7. gr„ þ.e. á bls. 28 í frv., að þessu hefur verið gaumur gefinn. I þeirri gr. segir svo um umhverfis- og öryggismál: Hönnun vérksmiðjunnar, bygging og rekstur skuli í öllu vera í samræmi við núgildandi og síðari lög og reglugerðir á Islandi varðandi mengunarvarnir og öryggi, heilbrigði og hreinlæti á vinnustað og þá staðla, sem settir eru samkv. þessum 1. og reglu- gerð. Járnblendifélaginu ber að gera allar varúðarráðstafanir til að varna tjóni á umhverfi verk- smiðjunnar af hennar völdum og að hanna mannvirki verksmiðj- unnar þannig, að þau fari sem best í umhverfinu. Meginefni þessa samningsákvæðis er svo einnig tekið upp i 11 gr. frv. í sambandi við þessa verk- smiðju kemur auðvitað margt til athugunar. Það kemur til athug- unar í fyrsta lagi, hvort loftefni eða ryk eða reykur kemur frá verksmiðjunni, sem skaðlegt gæti orðið. Enn fremur hvort frá- rennsli frá verksmiðjunni gæti skapað hættu, enn fremur föst úrgangsefni og loks og ekki síst allt vinnuöryggi og vinnuvernd í verksmiðjunni. I þessu sambandi má geta þess, að áður fyrr hafa ýmsar málmblendiverksmiðjur verið þannig úr garði gerðar, að mikill reykur og margskonar óhollusta hefur frá þeim stafað. En hin síðari ár er það hvort tveggja, að ýmis fyrirtæki og þar er þetta fyrirtæki, Union Carbide, í fararbroddi, hafa lagt í það mikla vinnu og mikið fé að finna ráð til þess að útiloka sem mest mætti verða mengun og önnur óholl áhrif. I öðru lagi hefur þess gætt víða um heim og ekki síst í Bandaríkjunum, að mjög strangar reglur hafa verið upp teknar af heilbrigðiseftirliti í þessum lönd- um. Hjá okkur er reglugerð um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna frá 1972 og þar er svo áskilið, að leyfi til verksmiðjureksturs eins og þessa, sem hér ræðir um, veitir heilbrmrh. og áður en slíkt leyfi er veitt, skuli hafa verið leitað umsagnar heilbrigðiseftirlits ríkisins, náttúruverndarráðs, öryggiseftirlits ríkisins, siglinga- málastofnunar og eiturefna- nefndar, eftir þvJ sem ástæða þykir til. Til þess að kanna svo þessi mál sem best, hefur stór- iðjunefndin aflað upplýsinga og fulltrúar frá henni farið til Bandaríkjanna til þess að kynna sér sem best meðferð þessara mála þar. Enn fremur hafa bæði forstöðumaður heilbrigðiseftirlits ríkisins, Baldur Johnsen yfir- læknir og starfsmaður hans, Eyjólfur Sæmundsson verkfræð- ingur, báðir farið vestur um haf til að kynna sér sem best þessi mál, ekki aðeins hjá þessu fyrir- tæki, sem er viðsemjandi okkar, heldur hjá heilbrigðisyfirvöldum, náttúruverndarráði og öðrum slíkum aðilum þar vestra. Það eru gerðar ráðstafanir til þess, að hv. iðnaðarnefnd þessar deildar, sem fær málið til með- ferðar og sem væntanlega mun vinna að þessu máli ásamt með iðnn. Nd., fái nú strax, þegar mál- inu hefur verið vísað til þeirra, ítarlega grg. frá heilbrigðiseftir- liti ríkisins um þetta mál allt. Og í þeirri ítarlegu grg., sem heil- brigðiseftirlitið hefur samið, eru öll þessi atriði rakin rækilega, hvaða hættur eru í sambandi við mengun og hvaða ráð séu þar til varnar. Það er of langt mál að rekja þettá hér í þessari fram- sögu, en málið verður væntanlega rætt rækilega á fundum nefndar- innar. Ég skal þó aðeins taka það fram, að varðandi loftmengun eða reyk frá verksmiðjunni, hafa nú verið fundnar upp og notaðar með ágætum árangri sérstakar aðferð- ir til þess að safna reyk og ryki saman með svokölluðum pokasí- um, og árangurinn, sem þegar hefur náðst í þvi efni, er að 99% af þessum ryk- eða loftefnum nást þar og verður unnið úr þeim að nýju. Úr þeim úrgangi, sem þann- ig fæst, eru gerðir kögglar, er notaðir eru að einhverju leyti til framleiðslunnar að nýju. Einnig hefur komið til orða, að Sements- verksmiðja rikisins gæti nýtt þessa köggla til sinnar fram- leiðslu. Það mál er til athugunar. Varðandi frárennsli frá verk- smiðjunni, er þar ekki talið, að það þar sé um neinn skaðvald að ræða, því að kælivatnið, sem not- að er, er í lokuðu kerfi og fer ekki út. Að því er snertir föst efni, þá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.