Morgunblaðið - 11.02.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1975
35
Forsetar Súdan og
Egyptalands hvetja
til friðar í Eþíópíu
Khartoum, 10. febrúar.
Reuter — NTB.
JAAFAR EI Numeiry, forseti
Súdans, hvatti til þess I kvöld, að
þegar yrðu hafnar viðræður milli
herstjórnarinnar f Eþfópfu og
frelsishreyfingar Eritreu, án
nokkurra skilmála af hendi
annars hvors deiluaðila. Hvatti
hann til þess að vopnahlé yrði
gert þegar í stað og að stjórn
Eþfópfu gæfi upp sakir nú þegar
þeim, sem tekið hefðu þátt f bar-
dögunum með frelsishreyfing-
unni og bæru vopn á hennar veg-
um.
Numeiry kvaðst hafa sent þess-
ar tillögur sfnar til stjórnar
Eþfópfu en ekki fengið svar
ennþá, en nokkrir forystumanna
Eritrea væru þegar komnir til
Khartoum og fleiri væru á leið-
inni.
Fyrr f kvöld höfðu borizt fregn-
ir um harða bardaga í Asmara,
höfuðborg Eritreu og var þá haft
eftir áreiðanlegum heimildum, að
sveitir skæruliða hefðu umkringt
200 manna hersveit Eþíópiu-
stjórnar norður af borginni.
Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ
kom upp eldur f húsinu Lækj-
arbrekku í Blesugróf. Varð
húsið alelda á svipstundu. Hús
þetta var orðið gamalt og
ófbúðarhæft, og stóð til að rffa
það á næstu dögum. Lfklegast
er talið að um fkveikju hafi
verið að ræða.
— Sigurður
Grímsson
Framhald af bls. 2
lögfræði árið 1925. Hann varð
blaðamaður við Þjóðstefnu
Einars Benediktssonar 1916—17,
starfsmaður hjá Sjóvátryggingar-
félagi Islands, er það tók til
starfa, blaðamaður við Alþýðu-
blaðið að loknu lögfræðiprófi og
málaflutningsmaður í Reykjavík
1926—35. Síðan varð hann full-
trúi borgarfógetans um langt ára-
bil.
Sigurður var leiklistargagnrýn-
andi Morgunblaðsins um langt
árabil en hann var einnig afkasta-
mikill rithöfundur, greinahöfund-
ur og þýðandi. Fyrsta bók Sig-
urðar, ljóðabókin Við langelda
kom út í Reykjavík 1922 og meðal
þýðinga hans má nefna Kaup-
manninn í Feneyjum eftir
Shakespeare og Eftirlitsmaður-
inn eftir Gogol.
Sigurður kvæntist árið 1932
Láru Jónsdóttur.
Átökin i Asmara hófust um kl.
18.30 að staðartima (17.30 GMT)
og mátti heyra vélbyssuskothrið
og sprengingar víða um borgina,
m.a. í miðborginni. Hálfri annarri
klukkustund siðar virtist skot-
hriðin vera að deyja út.
I gær, sunnudag, kom til Addis
Abeba friðarnefnd frá Súdan,
undir forystu utanrikisráðherra
landsins, Gamals Mohammeds
Ahmeds. Hún hafði ekki enn
fengið áheyrn hjá herstjórninni
síðdegis I dag. Talsmaður stjórn-
arinnar upplýsti, að utanríkisráð-
herrann hefði átt stefnumót við
stjórnina á ákveðnum tima en gat
ekki skýrt hvað komið hefði í veg
fyrir það.
Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, hefur einnig hvatt til friðar
í Eþíópíu, og skorað á herstjórn-
ina að gera ráðstafanir til að
stöðva blóðbaðið þar og ofbeldis-
aðgerðir. Um 100.000 flóttamenn
frá Eritreu eru nú i Súdan, sem á
landamæri við Eritreu og ríkir
þar mikil samúð með málstað
Eritrea.
Ný bók eftir
Solzhenitsyn
Parfs, 10 febr. AP.
í DAG kemur út f Parfs, á
rússnesku, ný 630 blaðsfðna bók
eftir Alexander Solzhenitsyn.
Fjallar hún um viðureign hans
við sovézk yfirvöld á árabilinu
1961—74 og segir þar meðal
aiínars frá tfmabili þvf, er hann
var f náðinni.
Solzhenitsyn hafði að mestu
lokið þessari bók áður en hann
var neyddur til að flytjast frá
Sovétríkjunum — mestan hluta
hennar skrifaði hann 1967 en síð-
an hefur hann bætt lítilsháttar
við hana. 1 bók þessari, sem kem-
ur út hjá YMCA press, er fjallað
um Nikita Krúsjeff og tilraunir
hans til að draga úr stalínisma í
Sovétríkjunum, einnig um ýmsa
núlifandi rithöfunda Sovétríkj-
anna. Bókin kemur út á frönsku
hjá Seuil bókaútgáfunni í Paris
eftir um það bil mánuð.
Samningar standa yfir um ensku
útgáfuna.
Norðfjarðar-
söfnunin
Nú hafa safnazt 28.202.230 kr. í
Norðfjarðarsöfnunina. Stærstu
gefendur frá þvi að síðasta yfirlit
var birt eru: Félag Framsóknar-
kvenna í Reykjavík 100 þúsund,
almenn söfnun í ölfushreppi 240.
400 kr., ölfushreppur 100
þúsund, Meitillinn, Þorlákshöfn
100 þúsund, SlBS 100 þúsund,
viðbót Rauðakrossdeildarinnar
Akureyri 129.200, Hvítabandið
Reykjavík 300 þúsund, en gjöfin
er I tilefni þess að 80 ár eru liðin
frá því að félagið tók til starfa.
Fasteignaskatt-
ar elli- og ör-
orkulífeyrisþega
Á FUNDI borgarstjórnar sl. fimmtu-
dag var visað til borgarráðs með 1 5
samhljóða atkvæðum tillögu Björg-
vins Guðmundssonar um afnám á
fasteignaskatti á Ibúðum elli- og
örorkulífeyrisþega.
Borgarstjóri upplýsti við afgreiðslu
málsins, að Reykjavíkurborg hefði
f ram til þessa notað heimildir til þess
að fella niður fasteignaskatt hjá
efnalitlum elli- og örorkulifeyrisþeg-
um eins og gildandi lög heimiluðu.
1 síðustu viku kom sendinefnd
til Súdan til fundar við Numeiry
forseta og sagði hann i kvöld, að
hún hefði ekki tekið fjarri hug-
myndum hans um framtíðarlausn
Eritreudeilunnar. Hann hugsar
sér að Eritrea fái takmarkaða
sjálfsstjórn innan Eþíópiuríkis,
— svipaða lausn og kom friði á í
Súdan.
— 450 norrænir
Framhald af bls. 2
Norðurlandaráðs eru: Efnahags-
nefnd: Jón Skaftason, Jóhann
Hafstein, menntamálanefnd Gylfi
Þ. Gíslason, sem er formaður
nefndarinnar, laganefnd, Ásgeir
Bjarnason, félagsmálanefnd
Ragnhildur Helgadóttir, sam-
göngumálanefnd Magnús Kjart-
ansson, upplýsinganefnd Jón
Skaftason og Gylfi Þ. Gislason.
Framkvæmdastjóri Islands-
deildar Norðurlandaráðs er Frið-
jón Sigurðsson, skrifstofustjóri
Alþingis.
BRAÐABIRGÐADAGSKRA
Bráðabirgðadagskrá 23. þings
Norðurlandaráðs er svohljóðandi:
Föstudagur 14. febrúar
Kl. 17.00 Fundur forsætisnefnd-
ar.
Kl. 18.30. Sameiginlegur fundur
vinnunefnda.
Laugardagur 15. febrúar
Kl. 9.00 Fundir þjóðþingsdeilda.
Kl. 9.30 Nefndafundir.
Kl. 11.00 Þingfundur. Setningar-
athöfn.
Kl. 12.15 Hádegisverðarhlé.
Kl. 14.00 Þingfundur. Almennar
umræður.
Kvöldið. Móttaka sendiráðanna.
Sunnudagur 16. febrúar.
Kl. 10.00 Nefndafundir.
Kl. 14.00 Þingfundur. Framhald
almennra umræðna.
Kvöldið. Afhendíng Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs i Há-
skólabíói. Fluttir verða þættir úr
Þrymskviðu. Móttaka Islands-
deildar Norðurlandaráðs.
Mánudagur 17, febrúar.
Kl. 9.00 Fundir þjóðþingsdeilda.
Kl. 9.30 Nefndafundir.
Kl. 9.30 Sameiginlegur fundur
forsætisnefndar og samstarfsráð-
herra.
Kl. 10.30 Sameiginlegur fundur
forsætisnefndar, fjárlaganefndar
og samstarfsráðherra.
Kl. 11.30 Blaðamannafundur að
nefndafundum loknum.
Kl. 12.00 Hádegisverðarhlé
Kl. 15.00 Þingfundur. Fyrir-
spurnatimi. Dagskrármál.
Kl. 20.00 Móttaka Reykjavíkur-
borgar að Kjarvalsstöðum.
Þriðjudagur 18. febrúar.
Kl. 9.00 Fundir þjóðþingsdeilda.
Kl. 9.30 Nefndafundir, sameigin-
legir fundir nefnda og ráðherra.
Kl. 11.30 Blaðamannafundur að
néfndafundum loknum.
Kl. 14.30 Þingfundur. Dagskrár-
mál.
Kvöldið Frjálst.
Miðvikudagur 19. febrúar
Kl. 9.30 Fundir þjóðþingsdeilda.
Kl. 10.00 Þingfundur. Dagskrár-
mál.
Kl. 12.30 Hádegisverðarhlé.
Kl. 14.30 Þingfundur. Dagskrár-
mál.
Kl. 20.00 Kvöldverðarboð rikis-
stjórnarinnar.
Fimmtudagur 20. febrúar
Kl. 9.00 Fundir þjóðþingsdeilda.
Kl. 10.00 Þingfundur. Dagskrár-
mál. Akvörðun um fundarstað.
Kl. 12.00 Þingfundi slitið.
— Hartling
Framhald af bls. 1
tveir frá kristilegum og einn frá
miðdemókrötum. Gizkað er á, að
þeir Poul Schlutter, formaður
Ihaldsflokksins, og Ove Guldberg
frá Vinstri skipti með sér utan-
ríkis- og markaðsmálaráðherra-
embættunum. Um önnur ráð-
herraefni vilja menn sem
minnstu spá.
— Friðrik
Framhald af bls. 36
leikagráðunni 12 og þannig
töluvert sterkara en t.d.
Hastingsmótið, þvi að í þessu
móti þyrfti alþjóðlegur
meistari að fá 7'A vinning til að
vinna sér stórmeistaratitil, þar
sem tíu vinninga þurfti í
Hastifigs.
„Þetta er ekki sérlega árenni-
legt lið," sagði Friðrik, en bætti
því við að þarna mætti vafa-
laust fá góða æfingu, „því að ég
er fyrst og fremst að stefna að
því að vera vel undir búinn
þegar svæðamótin hefjast. Ég
var búinn að vita töluvert lengi
af þessu móti en það er tiltölu-
lega skammt síðan ég ákvað
þátttöku í því.“
Að loknu þessu móti kvaðst
Friðrik mundu taka þátt í skák-
móti á Las Palmas á Kanarieyj-
um i apríl. Þetta er sams konar
mót og hann keppti á i fyrra
með góðum árangri og er styrk-
leikagráða þess aðeins lakari en
í Eistlandsmótinu eða 11. Að
öðru leyti kvað Friðrik allt
óráðið með tfmasetningu
svæðamótanna, og taldi hann
allt vafstrið í kringum væntan-
legt heimsmeistaraeinvígi eiga
stærstan þátt í þeim seina-
gangi.
— Thatcher
Framhald af bls. 1
sem flest atkvæði fær þeirra
Þriggja.
Heimildir innan þingflokks
Ihaldsmanna herma, að ýmsir
hafi haft við orð að styðja
Thatcher, sem áður hafi verið
henni andsnúnir, en bent er á, að
þeir geti sem bezt snúizt gegn
henni aftur, þegar til úrslita dreg-
ur. Hjá veðmöngurum, þar sem
menn hafa í dag veðjað upphæð-
um milli 2000 og 5000 sterlings-
punda voru likur Thatchers og
Whitelaws taldar fimm á móti
fjórum.
Um helgina varð ljóst, að
Thatcher nýtur verulegs
stuðnings meðal ungra Ihalds-
manna. Var henni fagnað geysi-
lega, er hún flutti ræðu á þingi
þeirra í Eastbourne á sunnudag,
ekki sizt er hún sagði, að íhalds-
flokkurinn ætti að styðja við bak-
ið á þeim sem nenntu að vinna, en
ekki þeim, sem reyndu að koma
sér hjá þvi að vinna. Voru sýnu
meiri fagnaðarlæti yfir ræðu
hennar en Whitelaws, sem einnig
talaði, en hann tók viðbrögðunum
með því að kyssa Thatcher á kinn-
ina — sem viðstöddum þótti eiga
að sýna af hans hálfu hve mjög
hann legði og mundi leggja upp
úr einingu innan flokksins,
hvernig sem færi um leiðtoga-
kjörið. Á þingi þessu komu hins
vegar fram sterkar raddir gagn-
rýni á leiðtogakjörsreglurnar —
talað var um kosninguna sem
sirkus, sem gerði flokknum illt
eitt og hvatt til endurskoðunar á
þessum reglum.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
portúgalska þjóðin myndi forðast
hvers konar einræðistilhneiging-
ar, sem gætu beint henni af þeirri
braut byltingar, sem út á hefði
verið lagt. Unnið yrði að þvi að
koma á í Portúgal frjálsu samfé-
lagi, þar sem óréttlæti og órétt-
mætar þjáningar yrðu sem
minnstar. Forsetinn rakti gang
mála í landinu frá byltingunni í
april sl. Hann hélt uppi vörnum
fyrir eitt og annað, sem gerzt
hefði á þessum tíma, hvatti þá til
að safna kjarki sem tortryggnir
væru og uggandi um framvindu
mála, og varaði öfgaöfl við að
stuðla að ofbeldi.
— Úrslita-
tilraun
Framhald af bls. 1
landamæra sem Sameinuðu þjóð-
irnar ákváðu tsraelsrfki árið 1947.
Til þessa hafa Egyptar bundið
friðarsamninga þeim skilyrðum,
að Israelar hyrfu til landamær-
anna eins og þau voru fyrir júní-
striðið 1967. Stjórnmálafréttarit-
arar telja þessa síðustu kröfu
Egypta hámarkskröfu til þess ætl-
aða að ná betri samningum. Að
sögn blaðsins hefur Sadat, forseti
Egyptalands, sent nýjustu tillög-
ur sinar til stjórnanna i Washing-
ton og Moskvu og einnig til fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna.
I Jerúsalem er haft eftir góðum
heimildum, að Israelar muni þvi
aðeins fást til að hverfa frá stöðv
um sínum á Sinaiskaga, að þeir
fái skriflegt fyrirheit egypzku
stjórnarinnar um að ráðast ekki á
Israel. Meðal stjórnar og forystu-
manna hersins er uppi allsterkur
ágreiningur um það, hvort ísrael
eigi að ganga svo langt tii sam-
komulags við Egypta.
Þá er haft eftir góðum heimild-
um i Washington, að Kissinger
telji sjálfur líkurnar 50 gegn 50
fyrir þvi, að honum takist að
koma á nýju samkomulagi milli
Egyptalands og ísraels. Ekki þyk-
ir það auka friðarlíkurnar, að
fregnir hafa borizt af vopnasend-
ingum Sovétmanna til Egypta-
lands. Að visu er talið, að hér sé
um að ræða vopn, sem Egyptar
hafi átt að fá þegar I apríl sl„ en
þá hafi verið tekið fyrir sending-
arnar. Washington Post skrifar í
dag, að þegar i desember hafi
Rússar sent Egyptum mikilvæg
vopn og fyrir sex vikum hafi þeir
aftur byrjað vopnasendingar
þangað.