Morgunblaðið - 01.03.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
21
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
AF
DíNLENDUM
VETTVANGI
Þegar þetta er ritað er lokiðl
þrem umferðum í báðum riðl- ‘
um Skákkeppni stofnana. I A-
riðli er staða efstu sveitanna
sem hér segir: 1. Búnaðarbank-
inn 10,5 v., 2. Orkustofnun og
Rafmagnsveitur ríkisins 10 v.,
3. —5. Utvegsbankinn A sveit,
Borgarverkfr. og Stjórnarráðið
A 8,5 v. 6.—8. Menntaskólinn
við Hamrahlíð, Borgarskrifstof-
ur og Breiðholt h/f 8 v. Siðan
fylgir urmull sveita sem hafa
7,5 v. og 7 v., en þátttökusveitir
i A riðli eru alls 25. Mér er ekki
kunnugt um stöðuna i B riðli,
en þar eru þátttökusveitirnar
um 30. Mun því láta nærri að
fjöldi þeirra, sem taka þátt í
þessari keppni, sé um 350. Enn
er of snemmt að spá nokkru um
sigurvegara í keppninni, en þó
verður að teljast líklegt, að ein-
hver áðurnefndra sveita fari
með sigur af hólmi.
I þætti hér i blaðinu fyrir
skömmu var frá því skýrt, að
senn hæfist fyrsta keppnin um
titilinn „Bréfaskákmeistari Is-
lands". Nú hafa verið teknar
frekari ákvarðanir um þetta
mál og mun keppnin hefjast
þann 1. mai næstkomandi.
Keppendum verður skipt í riðla
og munu 14 menn verða í hverj-
um riðii. I efsta flokki verður
teflt um titilinn „Bréfaskák-
meistari Islands 1976“. I riðla
verður mönnum raðað með
hliðsjón af fyrri árangri og
skákstigum. Að keppni lokinni
munu menn svo færast á milli
flokka þannig að fimm efstu
menn í riðli færast upp í þann
næsta, en fimm neðstu niður.
Þeir sem hug hafa á þátttöku
skulu tilkynna hana til ein-
hvers eftirtalins aðila, fyrir 1.
apríl n.k. Þórhalls B. Ölafsson-
ar, Laukskógum 37 Hveragerði,
Bjarna Magnússonar, Þórufelli
4, Reykjavík, Jóns Þ. Þór.
Vífilsgötu 5 Reykjavík. Þátt-
tökutilkynningar verða að ber-
ast skriflega, og einnig er hægt
að skrifa til sömu manna eftir
upplýsingum um keppnina. Er
búist við mikilli þátttöku.
Nú fer Skákþing Islands senn
að hefjast og verður þar
ýmisleg nýbreytni. Nú veróa í
fyrstu skipti 14 þátttakendur í
landsliðsflokki, keppt verður í
kvennaflokki og öldungaflokki.
Keppni í öldunga-, eða „old
boys“ flokki er fastur iiður í
landsmótum flestra nágranna-
landa okkar, þótt ekki hafi slik
keppni farið fram hér fyrr en
nú. Ekki mun ljóst, hverjir
skipa þennan flokk, en þó
munu þeir Baldur Möller
og Asmundur Ásgeirsson
hafa ákveðið þátttöku. Þeir
eru báðir meðal okkar þekkt-
ustu skákmanna, þótt yngri
kynslóðin hafi ekki haft mikið
af þeim að segja á skákmótum.
Við skulum ljúka þessum þætti
með þvi aó skoða eina af skák-
um Ásmundar Ásgeirssonar,
hún var tefld í Yanovsky-
mótinu í Reykjavík árið 1947,
en þar varð Ásmundur í 2. sæti.
Hvitt: Ásmundur Ásgeirsson
Svart: R. Wade (Nýjasjá-
land)
Slavnesk vörn
1. d4 — d5, 2. c4 — c6, 3. Rf3 —
Rf6, 4. cxd5 — cxd5, 5. Rc3 —
Rc6, 6.e3 —a6, 7. Re5 —
Bf5, 8. Da4 — Bd7„
9. Db3 — e6, 10. f4 —
Ra5, 11. Ddl — b5, 12. Bd3
— Bb5, 15. Rg3 — h5, 16. f5!?
— Rxe5, 17. Bxb5-t- — axb5, 18.
dxe5 — Rg4, 19. fxe6 — fxe6,
20. h3 — Rxe5, 21. De2 — Db6,
22. Rxh5 — b3, 23. Bd2 — Rc4!,
24. Rf4 — Rxd2. 25. Dxd2 —
Bc5, 26. Dd3 — Bxe3+, 27. Khl
— 0—0—0?, 28. Rg6 —1 Hh6, 29.
axb3 — Kb8, 30. b4! — d4. 31.
De4 — Db7. 32. De5+ — Kc8,
33. Dc5+ — Kb8, 34. De5+ —
Kc8. 35. Dxe6+ — Kb8, 36.
De5+ — Kc8, 37. Hfcl+ —
Kd7, 38. De7 mát.
M0B6VRBLA91B
fyrir 50 árum
VÍÐVARPIÐ — Fátt hefur vakið meiri athygli í veröldinni á
síðari árum en „víðvarpið", eins og nú er farið að kalla það á
íslensku, og er öllu betra en „víðboðið" . . . Auðsætt er að
víðvarpið hlýtur að hafa stórfelda breytingu í för með sjer. Er
fróðlegt að sjá ummæli Gisla J. Ólafssonar stöðvarstjóra í
„Símablaðinu"... Segir hann m.a. þetta: „Allir merkustu
viðburðir, bæði innlendir og útlendir, bærust þá, að heita má,
jafnóðum um allar sveitir landsins. Listamenn vorir og
mentamenn myndu keppast um að skemta fólkinu með söng
og hljóðfæraslætti og fræðandi og skemtilegum fyrirlestrum.
Stjórnmálamennirnir mundu ávarpa „háttvirta kjósendur" i
einu. Allir krakkar færu að hátta kl. 8, og einginn þyrfti að
sitja hjá þeim, því að víðvarps-amma mundi brátt svæfa þá
með skemtilegum sögum. Allir unglingaskólar yrðu lagðir
niður, því að öll slík kensla færi fram viðvarpsleiðina i
fyrirlestum af færustu og bestu kennurum landsins. — í grein
sinni getur G.Ó. þess að um 40 menn víðsvegar á landi sjeu
búnir að setja upp hjá sér viðtökutæki með leyfi landsímans.
MATSEÐILL
VIKI7NNAR
Umsjón:
Hanna Guttormsdóttir
manudagur
Mánudagssteik (sjá uppskrift),
súkkulaðibúðingur.
ÞRIÐJUDAGUR
Steiktar fiskibollur,
brædd feiti,
rabarbarasúpa.
MIÐVIKUDAGUR
Hvftkálsbögglar (sjá uppskrift),
hafrasúpa.
FIMMTUDAGUR
Steiktur fiskur með remúlaðisósu,
fiskisúpa.
FÖSTUDAGUR
Laukbakstur (sjá uppskrift),
perur.
LAUGARDAGUR
Saltfiskur,
hrátt salat,
brædd feiti,
hrísgr j ón agr autur.
SUNNUDAGUR
Ristaffel (Buff Stronganoff) (sjá
uppskrift),
eplaumslög (sjá uppskrift).
mAnudagssteik
1 stór diskur kjötafgangar
(nýtt, soðið eða steikt kjöt)
40 g smjörlíki
40 g hveiti
7 dl soð eða sósuafgangar
pipar, salt
750 g kartöflur
30 g brætt smjörlíki
3A dl mjólk
salt
Skerið kjötið í litla bita. Búið til brúna
sósu eða notið sósuafgang. Blandið kjöti
saman við og keimið. Kremjið soðnar,
heitar kartöflur, og hrærið smjörlíki og
mjóik út í. Hrærið hálfþeyttu eggi saman
við og saltið. Setjið kjötið í mót, og leggið
kartöflustöppuna ofan á. Bakið í ofni nál.
'á klst.
hvítkAlsbögglar
Um 18 kálblöð
kjötdeig úr 500 g af kjöti
Losið blöðin af meðalstóru kálhöfði. Sjóð-
ið þau í saltvatni nál. 2 mín. Færið þau
upp, látið renna vel af þeim og kælið.
Leggið 1 skeió af kjötdeigi á hvert blað og
vefjið því utan um. Bindið utan um með
seglgarni. Sjóðið bögglana í saltvatni nál.
10 mín. Berið fram með soðnu grænmeti
og hvitri sósu eða bræddu smjöri.
9
LAUKBAKSTUR
3 laukar
60 g smjörlíki
400 g kinda- eða nautakjöt
100 g flesk
3 msk. brauðmylsna
3A dl mjólk
l'A dl vatn
salt, pipar
4Ví misk sjóðandi vatn
Skerið laukinn þunnt. Bræóið smjörlíkið
og látið laukinn sjóða í því í 2—3 mln.
Bleytið brauðið í mjólkinni og vatninu.
Hrærió kjötdeigið vel og blandió brauó-
inu, vatninu og mjólkinni saman við.
Smyrjið mót og leggið helminginn af
lauknum á botninn. Leggið kjötdeigið yfir
og afganginn af lauknum ofan á það.
Hellið sjóðandi vatninu i mótið. Bakið i
ofni nál. 20 mín. Leggið á mótið eftir
nokkrar mín„ svo að laukurinn verði ekki
brúnn.
RISTAFFEL
3A kg nautakjöt
100 g smjörliki
1 tsk. salt
'A tsk. pipar
1 laukur
200 g sveppir
6 msk. tómatsósa
1—2 msk. vatn
5 dl rjómi
1 tsk paprika
Hreinsið kjötið, skerið það í þunnar ræm-
ur, stráið salti og pipar á það og brúnið í
smjörlíkinu. Saxið laukinn og brúnið
ásamt sveppunum. Látið allt í pott eða
notið lokpönnu. Sjóóið upp af pönnunni,
bætið rjóma, tómatsósu og papriku i og
látið sjóða við vægan hita þar til kjötið er
meyrt.
Berið soðin hrísgrjón með og í litlum
skálum krydd, grænmeti, ávexti, til
dæmis: epli í bitum, appelsínubita, gúrk-
ur, banana i sneióum, sýrðar rauðrófur,
rúsinur, salt,pipar, papriku.
EPLAUMSLÖG
200 g smjörlíki
200 g hveiti
1 dl kalt vatn
1 tesk. edik
10 epli
nál. 50 g sykur
eggjablanda
10 möndlur
Búið til hnoðað deig úr smjörlíki, hveiti,
vatni og ediki. Breiðið það út í 2 cm þykka
köku. Flysjið eplin og takið fræhúsin
burt. Skiptið kökunni i ferhyrninga um
15—16 cm á kant. Leggið eitt epli á hvern
ferhyrning með stilkendann upp. Stráið
sykri í fræholurnar. Brjótið öll hornin
upp yfir holurnar og límið þau saman með
óþeyttri eggjahvítu. Setjið eplaumslögin á
vel smuróa plötu með samskeytin niður.
Berið eggjablöndu ofan á deigið, og stráið
sykri og söxuðum möndklum yfir. Bakið
umslögin i heitum ofni, þar til þau eru
ljósbrún og eplin virðast mjúk. Berið epl-
in frá á fati, volg eða köld.
. <U v;
&
25 AURA kosta stór og góð egg á Bókhlöðustig 6.