Morgunblaðið - 18.03.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975
17
Brian
Kidd
ÞAÐ LEIKUR ekki á tveim
tungum, að árangur Brians
Kidd í Arsenal er einna
glæsilegastur einstaklinga á
Englandi nú í vetur. Kidd
hefir verið afar ötull við að
skora mörk, og er nú meðal
markahæstu ieikmanna i
enskri knattspyrnu. Það sem
gerir árangur Kidds enn
glæsilegri er sú staðreynd,
að í upphafi leiktímabilsins
komst hann ekki í aðallið
Manchester Utd. Því fór
hann fram á sölu og tók til-
boði Arsenal, og hefir efa-
laust greitt Arsenal sölu-
verðið margfalt til baka með
mörkum sínum.
Þeir voru ekki margir sem
bjuggust við að Kidd mundi
una sér í hinu nýja um-
hverfi hjá Arsenal, þar sem
hann er að miklu leyti alinn
upp hjá Man. Utd. og hafði
„fest þar rætur“. En ótti
manna var ástæðulaus. Það
hefir löngum verið til þess
tekið hve Arsenal býr vel að
sínum leikmönnum, og legg-
ur mikið upp úr tengslum og
vinskap þeirra í milli. T.d.
verður hver sá, sem er á
samningi hjá Arsenal, sjálf-
krafa meðlimur i golfklúbbi
sem er f grennd við High-
bury, aðalstöðvar Arsenal.
Þá er Arsenal leikmönnum
sínum mjög innan handar í
ráðgjöf varðandi ýmiss
konar málefni.
Brian Kidd tókst auðveld-
lega að aðlagast sínum nýju
samherjum, og árangur
hans og félagsins hefir orðið
all góður, einkum síöari
hluta keppninnar. Ástæður
þess að margir óttuðust að
Kidd mundi ekki falla inn í
félagsskapinn á Highbury
var fyrri reynsla margra
knattspyrnumanna, sem
höfðu átt svipaðan feril og
Kidd. Tökum til dæmis Bert
Sproston, sem lék með
Leeds á árunum milli 1939
og 40. Hann lék einnig 11
landsleiki fyrir England.
Sproston þótti frábær bak-
vörður, og greiddi Totten-
ham háa fjárhæð til að fá
hann til sín. En með Totten-
ham varð árangur hans lítill
sem enginn og hann sendur
til baka til Leeds með bes'tu
kveðjum. Þannig hafa
heimahagarnir greinilega
oft áhrif á gengi knatt-
spyrnumanna. En um Brian
Kidd gegndi öðru máli.
Kidd unir sér vel hjá
Lundúnaliðinu, og á vart orð
til að hrósa skipulaginu og
framkvæmdastjóranum,
Bert Mee. Um Mee hefir
Kidd þetta að segja: —
Framhald á bls. 21
Islandsmót drengja
og unglinga í júdó
Gullúrin 10 aíhent
S.L. FIMMTUDAG afhenti Sveinn Björnsson, stórkaupmaður þeim golfleikurunum sem fóru holu i höggi
á s.l. keppnistfmabili gullúr og verðlaunagrip, svo sem hann hefur gert á undanförnum árum. Alls voru
það tiu golfleikarar sem unnu til þessa verðlauna, en vegna hins vaxandi fjölda sem náð hefur þessum
árangri hefur reglum um verðlaun þessi verið breytt á þann hátt að framvegis verður að ná árangrinum i
meistaramótum klúbbanna eða á Islandsmóti, til þess að hann gefi verðlaunin.
Myndin var tekin er verðlaunin höfðu verið athent. 1 fremri röð eru Lóa Sigurbjörnsdóttir, sem tók við
verðlaununum fyrir eiginmann sinn, Sigurð Héðinsson, Sveinn Björnsson stórkaupmaður og Jóhanna
Ingólfsdóttir. 1 aftari röð eru Hermann Magnússon, Björn Þórhallsson, Bert Hansson, Ingólfur ísebarn,
Ágúst Eiríksson, Svan Friðgeirsson og Guðmundur S. Guðmundsson.
ISLANDSMÓT drengja og ungl-
inga i júdó var haldið í sal Júdó-
félags Reykjavíkur að Brautar-
holti 18 fyrra sunnudag. Þátt-
takendur voru 55 frá 5 félögum.
I yngsta flokki, sem í voru
drengir fæddir 1963 og 1964, sem
voru undir 35 kg að þyngd, sigraði
Arnar Daníelsson, UMFG. Örn
Engilbertsson Á, varð í öðru sæti,
Stefán Kristjánsson, UMFG, varð
þriðji og Pálmi Magnússon,
UMFG, varð fjórði.
í sama aldursflokki, en þyngd
yfir 35 kg sigraði Gunnar
Jóhannesson, UMFG, Arnór Bielt-
vedt, Á, varð annar, Gestur Ólafs-
son, UMFG, varð þriðji og fjórði
varð Jón Haraldsson, Á.
I eldri flokki drengja, fæddir
1961 og 1962, undir 47 kg að
þyngd, sigraði Oli Anton Bielt-
vedt, Á, Róbert Frímannsson, Á,
varð annar, Kári Haraldsson, Á,
þriðji og fjórði varð Einar Stein-
þórsson, UMFK.
í sama aldursflokki, en þyngri
en 47 kg, sigraði Gunnar
Rúnarsson, UMFG. Ari G.
Góður
árangur
FLENSBORGARAR héldu fþrótta-
hátið sunnudaginn 8. marz s.l. I
fþróttahúsinu við Strandgötu i
Hafnarfirði. Sýndar voru allar
greinar íþrótta, m.a. fimleikar og
frjálsar iþróttir. f karlaflokki var
keppt i hástökki og 800 metra
hlaupi og i kvennaflokki var keppt i
600 metra hlaupi.
Sigurvegari i hástökki varð Lárus
H. Bjarnason sem stökk 1,75 metra,
sigurvegari i 800 metra hlaupi varð
Gunnar Þ. Sigurðsson á 2:16,2 min.
og sigurvegari i 600 metra hlaupi
kvenna varð Anna Haraldsdóttir sem
hljóp á 1:50,8 min. og var því ekki
langt frá íslandsmetinu, 1:47,5
mín., sem Lára Sveinsdóttir setti i
Laugardalshöllinni 1972.
r
Víðavangsnlaup Islands
VÍÐAVANGSHLAUP islands
1975 fer fram Iaugardaginn 5.
april í Vatnsmýrinni í Reykjavik
og hefst kl. 14.00.
Keppt verður í þremur flokkum
karla og í kvennaflokki. Karla-
flokkarnir eru: 14 ára og yngri, 15
til og með 18 ára og 19 ára og
eldri. Keppt er i þriggja, fimm og
tiu manna sveitum í hverjum
flokki. Þátttaka tilkynnist stjórn
FRÍ í síðasta lagi 31. marz i póst-
hólf 1099, eða i skrifstofu sam-
bandsins í iþróttamiðstöðinni í
Laugardal, sem er opin mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 17—19.
Þátttökugjald er kr. 100.00 fyrir
hvern þátttakanda i flokki karla
og kvenna og kr. 50.00 fyrir hvern
þátttakanda í yngri flokkunum.
Þátttaka er ekki gild, nema þátt-
tökugjald fylgi.
(Frétt fráFRl)
Haraldsson, Á, varð annar,
Ingólfur Vilhelmsson, Gerplu,
þriðji og Sigurjón B. Sigurðsson,
Á, varð fjórði.
i unglingaflokki 15—17 ára var
keppt i þremur þyngdarflokkum.
i léttvigtarflokknum (58 kg og
léttari) sigraði Jökull Jörgen-
sen, JFR, Heimir Guðbjörnsson,
JFR, varð annar og Hlynur
Hinriksson, Á, þriðji. Í milli-
vigtarflokki (58—65 kg) sigraði
Styrmir Sigurðsson, Á, Sigurður
Ingason, Á, varð annar og
Marteinn Ingi, Gerplu, varð
þriðji. i þyngsta flokki, (yfir 65
kg) sigraði Viðar Guðjohnsen, Á,
Sigurður Á. Gunnarsson, JFR,
varð annar og Magnús Þórðarson,
UMFG, varð þriðji.
Mótið fór vel fram, einkum
hvað snerti skipulagningu, enda
starfslið væntanlegs Norður-
landameistaramóts tekið til
starfa.
Vissulega er um framför að
ræða hjá drengjunum, en þarna
voru ýmsir sem hafa verið með i
keppni s.l. ár. Athyglisvert er
hvað Grindavíkurdrengirnir
standa sig vel. Þaðan komu 14
keppendur og hlutu samtals 7
verðlaun, þar af þrenn fyrstu
verðlaun. Aðeins Ármann var
ofar, en þar fer fram athyglisvert
unglingastarf. Júdófélag Reykja-
víkur, sem er langsterkast hvað
varðar júdólið fulloröinna, virðist
ekki fram að þessu hafa lagt nógu
mikla áherzlu á þjálfun unglinga.
Þaðan komu aðeins 9 keppendur.
Unglingastarfið er fyrir framtíð-
ina, og nauðsynlegt fyrir félögin
að leggja áherzlu á það, þótt þeir
fullorðnu megi vissulega ekki slá
slöku við, því að þeir eru m.a.
fyrirmynd hinna ungu.
Þorleifur
Ananíasson
SÁ LEIKMAÐUR sem hefir
átt einna mestan þátt í vel-
gengni KA frá Akureyri í 2.
deild íslandsmótsins i hand-
knattleik er tvímælalaust
Þorleifur Ananíasson. Þor-
leifur er 26 ára að aldri og
hóf að leika með meistara-
flokki 15 ára að aldri. Að
sjálfsögðu samrýmdist það
ekki lögum að svo ungur
leikmaður léku með meist-
araflokki, en í þann tið var
alvaran í handknattleiknum
á Akureyri ekki eins mikil
og nú er, enda aöstaöa til
iðkunar innanhússíþrótta
ákaflega léleg fyrir þá.
En nú er öldin önnur. Á
skömmum tíma hefir hand-
knattleikurinn náð fótfestu
á Akureyri. í fyrra lék Þór,
annað Akureyrarliðanna, í
1. deild.og nú á KA mögu
leika á að vinna sér sæti í 1
deild. Að vísu er sá mögu
leiki Iftill, en þó fyrir hendi
Alla vega hlýtur félagið 2
sætið í deildinni, og má telja
það ágætan árangur.
Eins og fyrr getur hefir
Þorleifur Ananfasson átt
einna stærstan hlut í vel-
gengni KA. Hann er marka-
hæsti maður liðsins, og er
það mikið afrek þegar til
þess er tekið að Þorleifur er
Ifnumaður. Margir telja að
Þorleifur sé annar tveggja
bestu lfnumanna landsins
og telja að hann ætti að fá
tækifæri til þátttöku í úr-
valsleikjum.
Þorleifur sagðist telja að
höfuðstyrkleiki KA lægi f
hversu jafnt liðið í heild er.
Þá sagði hann og að leik-
mennirnir hefðu flestir leik-
ið saman um nokkurra ára
skeið og hefðu nú öðlazt þá
reynslu sem til þarf.
Þá sagði Þorleifur að ef
KA hlyti ekki sæti f 1. deild
nú í vor, kæmi liðið bara
tvíeflt til átaka næsta vetur.
Hann sagði að efnisviður í
góða handknattleiksmenn á
Akureyri væri nægur og þvf
óþarft að óttast um viðgang
handknattleiksíþróttarinnar
á Akureyri næstu árin.
Þegar Þorleifur Ananías-
son var að því spurður hvort
hann hefði lært meira af
einum manni en öðrum kvað
hann svo vera. Fyrir nokkr-
um árum þjálfaði Matthías
Ásgeirsson, sem hér fyrr á
áruni lék með Haukum, lið
ÍBA, en Akureyrarfélögin
sendu sameiginlegt lið til
handknattleikskeppni í eina
tíð. Af Matthíasi sagðist Þor
leifur hafa lært flest það
sem hann kunni fyrir sér í
íþróttinni, og telur Matthías
jafnframt meðal bestu
handknattleiksmanna seni
hann hefir séð leika.
Þegar talið barst að þeim
liðum sem leika í 2. deild-
inni nú sagðist Þorleifur að
vfsu ekki hafa séð mjög
Framhald ð bls. 21.