Morgunblaðið - 18.03.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975
25
Dauða lýst í
smáatriðum
VlSINDALEG rannsókn læknis I
Chicago, Elizabeth Kuebler-Ross,
hefur leitt I ljós, að „fóiki finnist
gott að deyja“ að sögn blaðsins
Daily American sem er gefið út f
Róm.
Hún gerði rannsóknir sfnar á
nokkur hundruð sjúklingum sem
höfðu verið úrskurðaðir látnir en
henni tókst að endurlifga með ný-
tilkominni tækni.
Hún sagði aðsjúklingarnirgætu
lýst reynslu sinni i smáatriðum,
hvernig þeir „svifu út úr líkaman-
um“, hvernig þeim fyndist „ró og
friður færast yfir þá“, hvernig
þeir „streittust á móti öllum til-
raunum til að endurlífga þá“.
Að sögn frú Ross finnst sjúkl-
ingunum að þeim „líði vel“. Hún
segir að þegar sjúklingarnir komi
til lífsins „reiðist margir þeirra að
hafa verið endurlífgaðir".
„Enginn þeirra óttast að deyja
aftur,“ segir frú Ross.
Frú Ross er höf undur bóka sem
hún kallar „On Death and Dying“
og „Questions and Answers on
Death“.
— Hví slærð
Framhald af bls. 12
samjöfnuð milli höfuðborgar og
landsbyggðar. Ég tel örlög þeirra
of samofin til þess, að þau verði
rakin sundur svo vit sé í. En við
getum leitt hugann að því, að
fjórði hver fiskkassi, sem S.H.
flytur út, kemur frá þessum
liðlega 9 þúsund sáíum á
Vestfjörðum og í undirstöðum
efnahagslífsins hrikti, þegar
framleiðslan stöðvaðist hjá þess-
um liðlega 5 þúsund manns í
Vestmannaeyjum.
Þjóðin hefir byggt upp sína
höfuðborg og þjóðin greiðir
mikinn pening henni til viðhalds.
Það er lágmarkskrafa til þeirra,
sem stjórna þessari höfuðborg, að
þeir af hugsunarleysi eða
hreinum barnaskap espi ekki upp
þau öfl, sem alltaf eru til, og líta
með öfund til þeirra, sem betur
mega sin og grípa ef til vill til
örþrifaráða, ef þeim er ögrað.
Þeir, sem Iangskólamenntun hafa
fengið og síðan ferðast að meira
eða minna leyti á al-
menningskostnað um landið þvert
og endilagt og út um allan heim,
þeir eiga að geta sýnt
umburðarlyndi þeim, sem á sömu
þúfunni hafa setið allt sitt líf,
vinnandi myrkranna á milli og
lítinn lífsárangur hafa séð
sjálfum sér og heimkynnum
sínum til handa, jafnvel
þótt þeir hagi orðum sínum
stundum öðruvísi en æskilegt eða
viturlegt væri.
Þess vegna er umrædd gáru-
grein Elinar ósamboðin henni og
Mbl. Jafnvel þótt Mbl. sé frjáls-
lynt og skal það síst lastað, þá má
það ekki birta svona greinar, sem
litið er á af almenningi að túlki
skoðanir blaðsins, þar sem í hlut á
reyndar starfsmaður, auk þess að
vera borgarfulltrúi.
Eg kem sjaldan til Reykjavíkur,
að ég sé alltaf í hvert sinn ein-
hverja breytingu til batnaðar og
framfara og ég gleðst yfir því. Ég
árna Reykvíkingum heilla í nútið
og framtið. Þar býr fólk upp og
ofan eins og annarsstaðar á land-
inu. Flest gott en labbakútar og
hann settir háleistar innanum
eins og alltaf er. Lífsmeiður
Reykjavikur breiðir sina fögru
krónu út yfir landsbyggðina, þess
vegna verða íbúar hennar að
muna, að lífsnæringu sina fær
hún frá þessum ef til vill ljótu og
lítilfjörlegu en þó nausynlegu
rótum. Sé skorið á samvinnu
borgar og landsbyggðar er borg-
inni jafnt sem landsbyggðinni
dauði búin.
Jón Isberg.
jWflrðunblnbib
nucLVsincnR
4^*-»224B0
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 20. marz
kl. 20.30. Stjórnandi Robert Satanowsky frá
Póllandi. Einleikari Guðný Guðmundsdóttir,
fiðluleikari.
Flutt verða verk eftir Beethoven, Mozart, Saint
-Saénes og Dvorak.
Aðgöngumiðar seldir i bókabúð Lárusar Blöndal,
Skólavörðustig 2 og bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Austurstræti 18.
Sjálfstæðiskonur
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna
hefur ákveðið að hafa kökubazar að Hallveigarstöðum laugar-
daginn 22. marz kl. 2 e.h. Þær konur sem vilja gefa kökur á
bazarinn eru vinsamlegast beðnar að koma með kökur upp á
Hallveigarstaði milli kl. 10—12 sama dag. (Gengið inn
Túngöumegin, kjallara)
Stjórnin.
Hjólbaröaþjónustan, Laugaveg. 172 simi21245
^K£4ff HEKLA Hf
1 bi■ 11 ■ Laugavegi 1 70 —172 Simi21240
SMMS8ÚRN -
TVÖ ÚR VALSTÆKIFÆRI
IFYRSTA LAGI:
V
11 daga Urvalsferö
|| til Mallorca.
Il^
24. marz-4. apríl
Fyrirkomulag viö allra hæfi.
Vandaöir gististaöir.
Fyrsta flokks þjónusta.
Öll herbergi meö baöi og svölum.
Mallorca
i
sumarsól
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
I OÐRULAGI:
28 daga sólarferö
til Mallorca.
4. apríl-2. maí
Ein vinsælasta ferðin
með nægum tíma til
afþreyingar.
íbúðir í Magaluf og
Palma Nova.
Hótel hjá llletas, Arenal
og Magaluf.
Henti þessi tími ekki,
þá er e.t.v. tækifæri
að komast 2. maí í
22 daga úrvalsferð
eða 15 daga þann
23. maí.
Úrval býður yður
góða ferð!