Morgunblaðið - 20.03.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.03.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975 3 Næsti fundur á föstudag SAMNINGAFUNDUR, sem hófst í gær klukkan 14, stóö til klukkan 17.30 og var þá ákveðió að næsti fundur yrði á föstudag. Ekkert markvert mun hafa gerzt á fund- inum. Að loknum fundinum var síðan baknefnd ASÍ kvödd saman til fundar. Að sögn Björns Jóns- sonar, forseta ASl, urðu engin straumhvörf í samningamálunum á þessum fundum. Samninganefndir aðila munu ætla að nota daginn í dag til þess að kynna sér frumvarp ríkis- stjórnarinnar um ráðstafanir í efnahagsmáium. Eiffel- turninn úr eldspýtum Á myndinni hér til hægri er Jón Kristinn Guðjónsson með lfkan af Eiffelturninum í Parfs. Líkanið hefur Jón gert úr eldspýtum og tók „smíðin“ nærri tvö ár, að því er Jón tjáði okkur. Hann segist ekki hafa haft aðra fyrirmynd en mynd af turninum á plötuum- slagi. Jón er 16 ára nemandi f fjórða bekk Vörðuskóla og hyggur hann á nám í útvarps- tækni að loknu gagnfræða- prófi. 100 konur mótmæla breyttu fóstureyðingarfrumvarpi EITT hundrað konur hafa ritað alþingi bréf þar sem mótmælt er breytingum á fósturlagafrum- varpi því, sem lagt var fyrir AI- þingi árið 1973. Forseta samein- aðs alþingis hefur verið sent bréf- ið, svo og öllum alþingismönnum. Þær, sem gengust fyrir undir- skriftasöfnuninni, voru Bergljót Halldórsdóttir, Erna Ragnarsdótt- ir, Guðrún Kristinsdóttir, Hlédis Guðmundsdóttir, Sigrún Július- dóttir og Valborg Bentsdóttir, og héldu þær fund með fréttamönn- um í gær. Þar kom fram að enda þótt hér sé mótmælt öllum þeim breytingum, sem frumvarpið hef- ur tekið frá því að það var lagt fram á Alþingi, þá er sérstök áherzla lögð á andstöðu gegn því vantrausti, sem konurnar telja að konum sé sýnt með því að fella niður ákvæði um að fóstureyðing skuli heimiluð að ósk konu. Þær vildu leggja áherzlu á það, að hér væri ekki um það að ræóa hvort fóstureyðingar skyldu leyfðar eða ekki, heldur hvaða aðili það væri, sem ætti aó taka ákvörðunina í hverju tilviki, og bentu á það, að HALLDÖK Guðbjartsson, við- skiptafræðingur og starfsmaður bankaeftirlits Seðlabankans, hef- ur nú verið ráðinn útibústjóri Ut- vegsbanka lslands ! Vestmanna- eyjum. Nokkur tími er liðinn síð- an þessi staða var fyrst auglýst. Jónas Rafnar, bankastjóri Ut- vegsbankans, sagði þegar Morgunblaðið hafði samband við hann, að upphaflega hefði þessi staða verið auglýst í öllum bönkunum samtimis, samkvæmt reglugerð, sem bankarnir eru aðilar að. Þetta hafði ekki áhrif og enginn sótti um starfið. Nokkrir menn höfðu þó áhuga á þessu starfi, en gátu ekki farið til föstureyðingar hefðu verið leyfð- ar með lögum hér á landi s.l. 40 ár. Á fundinum kom fram að undir skriftasöfnunin tók þrjá daga, og var leitazt við að fá konur úr sem flestum starfsstéttum til að ljá rnálinu stuðning. Hér fer á eftir bréfió, sem Al- þingi var sent í fyrradag: „Við undirritaðar mótmælum breytingum, sem fram hafa komið við endurskoðun frumvarps til laga frá 1973 um ráógjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barn- eignir, og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Sérstaklega lýsum við yfir andstöðu okkar gegn því vantrausti, sem konum er sýnt með því að fella niður 9. grein frumvarpsins, þar sem kveðið er á um, að fóstureyðing skuli heimiluð, ef kona æskir þess, sé aðgerðin framkvæmd fyr- ir lok 12. viku meðgöngu og engar læknisfræóilegar ástæður mæla gegn því. Við krefjumst þess, að sjálfsákvörðunarréttur kvenna verði virtur og skorum á hæstvirt Eyja af fjölskylduástæðum. Eftir það var starfið auglýst i blöðun- um og nfl hefur Halldór Guð- bjarnason verið ráðinn í það eins og fyrr segir. Jónas sagði að hér væri um að ræða erfitt starf, ekki sizt eftir atburðina i Vestmannaeyjum. — Þá höfðum við samband við Hannes Pálsson formann Sam- bands íslenzka bankamanna og spurðum hann hvort eiginkonur þeirra manna sem fyrst höfðu áhuga á þessu starfi hefðu neitað að fara með mönnum sínum til Vestmannaeyja. Hannes vildi ekki svara þessari spurningu beint, en bar ekki á móti þvi að eitthvað væri til í henni. Alþingi að taka upp og samþykkja óbreytt efni 9. greinarinnar. Anna Kristjánsdóttir, mennta- skólakennari. — Ásdís Skúla- dóttir, leikari. — Ása Þ. Ottesen, félagsmálafulltrúi. — Ása Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarkona. — Ásta Hallgrfmsdóttir, lækna- ritari. — Agla Marta Marteins- dóttir, húsmóðir. — Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur. — Anna Sigurðardóttir, c/o Kvenna- sögusafn tslands. — Anna Skúla- dóttir, fóstra. — Álfheiður Ólafs- dóttir, hjúkrunarkona. — Astríður Karlsdóttir Tynes, heilsuverndarhjúkrunarkona. — Ásta Björt Thoroddsen, tann- læknir. — Auður Þorbergsdóttir, borgardómari. — Asdfs Þórhalls- dóttir, húsmóðir. — Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, verkakona. — Björg Sveinbjörnsdóttir, aflesari. — Bergþóra Gisladöttir, sér- kennari. — Björg Einarsdóttir, skrifstofumaður. — Bergljót Halldórsdóttir, meinatæknir. — Ellen Júlíusdóttir, félagsráðgjafi. — Eva J. Júlíusdóttir, sálfræð- ingur. — Edda Svavarsdóttir, bankamaður. — Erna Þorleifsdóttir, læknaritari. — Edda Völva Eirfksdóttir, hár- greiðslumaður. — Elísabet Þorsteinsdóttir, meinatæknir. — Eygló Halla Ingvarsdóttir, húsmóðir. — Erna Ragnarsdóttir, innanhússarkitekt. — Guðbjörg Þórðardóttir, félagsmálafulltrúi. — Guðrún Svava Svavarsdóttir, myndlistarmaður. — Guðrfður Þ. Schröder, yfirhjúkrunarkona. — Guðlaug Konráðsdóttir, meina- tæknir. — Guðrún Helgadóttir, deildarstjóri. — Guðmunda Helgadóttir, formaður Sóknar. — Guðrún Gísladóttir, bókasafns- fræðingur. — Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi. — Guðrún Kristinsdóttir, félagsráðgjafi. — Guðrún Hallgrímsdóttir, verk- fræðingur. — Guðrún Erlends- dóttir, hrl. — Guðný Daníels- dóttir, læknir. — Helga Jóns- dóttir, leikari. — Heba Júlfus- dóttir, þýðandi. —Helga Eysteins- Framhald á bls. 18 Nýr útibússtjóri Útvegs- bankans í Vestmannaeyjum ERLENDAR FRETTIR CIA komst yfir sovézkan kaf- bát á hafsbotni Washington, 19. marz — AP. MIKE Mansfield, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, staðfesti í dag blaðafregnir f gær og dag um að bandaríska leyniþjónust- an CIA í samvinnu við fyrir- tæki auðmannsins Howard Hughes hefði f fyrrasumar bjargað af hafsbotni hluta af sovézkum kjarnorkukafbáti, sem sprakk og sökk á Kyrra- hafi, norðvestur af Hawaii árið 1968. Sagði Mansfield að kaf- báturinn væri gamall og hernaðarlegt gildi hans lftið, en hins vegar „kynnu innan- stokksmunir hans að vera mikilvægir". Onefndir banda- rfskir embættismenn sögðu f dag að tilgangurinn með þessari björgu.i hefði verið að komast að sovézkum dulmáls- tyklum, en hvorki þeir né eld- flaugar hefðu fundizt. Við björgunina fundust lík 70 sovézkra yfirmanna og sjó- manna, en hún fór fram á um 17.000 feta dýpi. Mansfield öld- ungadeildarþingmaður kvaðst fullviss um að mál þetta yrði rannsakað af þingnefnd, en engin viðbrögð höfðu borizt frá Hvíta húsinu, CIA eða sovézkum stjórnvöldum. Þotusamningur - hlutleysisbrot ? Stokkhólmi, 19. marz — Reuter. SKYRT var frá því í sænska sjónvarpinu í gærkvöldi, að Eric Holmqvist, varnarmálaráð- herra Svíþjóðar, hafi ábyrgzt að fjögur aðildarlönd Atlants- hafsbandalagsins sem ihuga kaup á sænsku Viggenherflug- vélinni muni fá alla nauðsyn- lega varahluti i vélarnar á stríðstímum. Hafi þessi trygg- ing komið fram í leynibréfi ráð- herrans til landanna fjögurra, Noregs, Danmerkur, Hollands og Belgíu. I viðtali sem fylgdi í kjölfar þessarar fréttar neitaði Holmqvist að ríkisstjórnin hafi veitt tryggingu sem bryti i bága við hlutleysisstefnu Svíþjóðar, en kvað núgildandi reglur veita ríkisstjórninni heimild til að gera slíkar skuldbindingar. Hann skýrði það ekki nánar. Líklegra er talið að löndin fjög- ur festi kaup á annað hvort bandarísku YP'-16-vélunum eða frönskum Mirage-þotum, er bú- izt er við að um 350 vélar verði keyptar að upphæð um 2000 milljón dollara. Glistrup sleppur Kaupmannahöfn, 19. marz — NTB. MOGENS Glistrup, leiðtogi Framfaraflokksins, komst hjá þvi að verða handtekinn fyrir að vera fjarverandi við réttar- höldin í skattsvikamáli hans í Kaupmannahöfn í dag. Verj- andi hans sagði að ástæðan fyrir fjarvist Glistrups væri sú að mikilvæg mál væru til um- fjöllunar fyrir þingnefnd sem hann á sæti í. Rétturinn tók þessa skýringu gilda, en undir- strikaði að i framtíðinni yrðu aðeins óvenjulegar kringum- stæður teknar gildar sem fjar- vistarástæða. Glistrup sagði síð- ar í dag, að hann tæki næstu dagsetningu réttarhaldsins til greina, þ.e. 7. apríl, en mæting hans væri komin undir dagskrá þjóðþingsins. 820 breyt- ingartillögur! Kaupmannahöfn 19. marz. Frá fréttaritara Mbl. Jörgen Harboe: DANSKA þjóðþingið á í vænd- um mikla erfiðisvinnu er um- ræður um fjárlögin fyrir 1975—1976 hefjast á morgun, fimmtudag. Samtals 820 breyt- ingartillögur hafa verið gerðar við fjárlagafrumvarpið, sem upphaflega var lagt fram af fyrrverandi ríkisstjórn Hartl- ings. Flestar breytingartillög- urnar eru gerðar af Framfara- flokki Glistrups, en núverandi jafnaðarmannastjórn á einnig nokkur hundruð. Talið er að eingöngu atkvæðagreiðslurnar um tillögurnar 820 muni taka átta klst. 1 kvöld var talið ólík- tegt að rikisstjórnin fengi meirihluta fyrir niðurskuröi áætlaðra sparnaðartillagna, sem einkum bitna á félagsmál- um, þótt nægilegt fylgi fáist hins vegar fyrir aðgerðir hennar gegn atvinnuleysi. Grænlendingar mót- mæla nýlendukúgun Kaupmannahöfn 19. marz Frá fréttaritara Morgun- blaðsins Jörgen Harboe: RUMLEGA 150 Grænlend- ingar, nokkrir Danir og einn Færeyingur mótmæltu í dag við danska þinghúsið og lögðu und- ir sig Grænlandsmálaráðuneyt- ið til að lýsa vanþóknun sinni á ákvörðun þingnefndar um að leyfa 21 alþjóðlegu olíufélagi olíuborun undan Grænlands- ströndum. Kölluðu Grænlend- ingarnir ráðuneytið „nýlendu- málaráóuneytið" og kröfðust þess að Grænlendingar fengju sjálfir að ákveða um þetta mál. Endanleg ákvörðun verður ekki tekin um þetta fyrr en eftir umræður á þjóðþinginu í apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.