Morgunblaðið - 20.03.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.03.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975 Nemendur Menntaskólans I Reykjavík ganga til kosninga á morgun og kjósa ( hin ýmsu embætti I félagsmálum. Kosn- ingabaráttan hefur nálgast hámark undanfarna daga og henni lýkur f kvöld með sam- eiginlegum framboðsfundi allra frambjóðendanna. Eitt þeirra embætta, sem kos- ið verður i, er embætti hringj- arans, en á latínu, sem er hið óopinbera mál í félagsstarfi nemenda, heitir embættið „Inspector Platearum". Hringj- arinn sér um að hringja inn og út allar kennslustundir og er því mikilvægt, að i embættið veljist hinn hæfasti maður. Þá er það einnig verkefni hringj- arans að stjórna gangaslag, en það gerist 1—2 sinnum á vetri, að yngri nemendur skólans reyna að hindra hringjarann í því starfi að hringja inn kennslustund og hlýzt þá af hinn harðasti slagur, ganga- slagur. Embætti hringjarans er eftir sótt og beita menn öllum vopn- um til að komast i það, ekki sízt kímninni, eins og viðtalið sýnir: Slagsiðan gerist, aldrei þessu vant, hlutdræg, er hún birtir nú viðtal við annan tveggja fram- bjóðenda í hringjaraembættið i M.R. Spurningin er þó, hvor frambjóðandinn muni græða meira á þessu viðtali, sá, sem rætt er við, eða hinn, sem ekki er afhjúpaður hér! Helgi Arnason, nemandi í fimmta bekk R i náttúrufræði- deild, ákvað fyrir ári síðan að gefa kost á sér í hringjara- Helgi Arnason heldur til atkvæðasmölunar. Mannrán um miðjan dag í menntaskóla embættið og allt síðastliðið ár hefur undirbúningurinn verið í fullum gangi. Helgi kom í heím- sókn til Slagsíðunnar á dögun- um við fimmta mann og sagði undan og ofan af sér og sínum högum og málefnum. — Hvert er helzta baráttumál þitt í þessum kosningum? „Ómur klukkunnar er mikil- vægasta atriðið — það er ekki sama hvernig hringt er. Einnig legg ég áherzlu á greinargott bókhald um hringingar, svo sem hversu oft sé hringt, hvenær, hve lengi í einu, hver sé tíðni hljómsins o.s.frv. Reiknað verði út meðaltal hvers dags, hverrar viku, hvers mánaðar — og eftir árið ættu að liggja fyrir sæmilegustu upplýsingar um starfið. Þetta krefst þó að sjálfsögðu skrif- finnsku og þar með skrifstofu, skrifstofustúlku og annarra fylgihluta. Rektorsritari hefði að sjálfsögðu verið kjörinn í starfió, en rektor er helzt til of fastheldinn á stúlkuna!" Og nú taka félagar Helga orðið af honum: „Til þess að lengja frímin- úturnar — hafa ber í huga að Helgi er lágur í loftinu og lítur því ekki niður á alþýðu manna heldur upp til hennar — ætlum við að ieggja Helga tij stiga í hvert sinn, sem hann hringir út, en taka stigann burt, áður en Helgi hringir inn. Þetta verður til hagsbóta fyrir nem- endur — og raunar kennara líka, því að þá gera þeir setió lengur á kennarastofunni, drukkið kaffi og reykt!“ Helgi lætur sig ekki og tekur orðið af félögum sínum: „Ég leggmiklaáherzlu ágóða skipulagningu gangaslags. Ég vil í því sambandi benda á starf Baader-Trudhoff-samtakanna (kennd við Þrúðvang, eitt kennsluhúsa M.R.). A dögun- um var ætlunin að efna til gangaslags og átti fráfarandi hringjari að sjálfsögðu að stjórna slagnum. En í síðasta tíma á undan slagnum sendum við stúlku að stofunni, þar sem hann var í tíma, og létum hana bera honum þau skilaboð, að hann ætti að koma og tala við húsvörðinn. Hringjarinn átti sér einskis ills von, en við sát- um fyrir honum á gangi, hand- tókum hann og færðum út í bifreið og ókum með hann út i Skerjafjörð. Þar var honum sleppt, fjarri öllum strætis- vagnabiðstöðvum, enda kom hann ekki í skólann fyrr en Iöngu eftir að slagnum lauk. Við höfðum raunar verió að hugleiða að krefjast Jausnar- gjalds fyrir hann, en sáum fram á að við fengjum ekki einu sinni fyrir bensínkostnaði með horn í sp.a«nwh Strax hafa Slagsfðunni borizt nokkur viðbrögð frá lesendum sfnum við ádeilu Finns Páls s.l. fimmtudag á efni sfðunnar f vetur. Hér er eitt ágætt frá Paur Paufa: 0 ..Kæra Slagsfða, Finnur Páls og aðrir! Cg vil samþykkja orð popp- áhugamannsins um lftið skemmtunargildi „unglinga- vandamálsskrifanna", og þá sérstakiega hversu margar greinarnar voru. Nóg um það. Ég get hins vegar ekki komið auga á gildi þess, að fá í blaðið flennistórar myndir af skæl- brosandi söngfuglum ein- hverra hljómsveita. Ég alla- vega læt mér nægja að horfa á þá á hinum ýmsu samkomum. Ekki tel ég hcldur prentverðar upplýsingar um hvað þessir hljómsveitarkappar heita, hver syngur, hver leikur á eitt hljóð- færi og hver á annað, og þó allra sízt hvað sá frómi náungi heitir sem rótar f öllu raf- magnsdraslinu. Svo ég hoppi úr einu f annað, þá vildi ég segja þetta: Ef þið ætlið að byrja á að skrifa eitt og annað um plötur þá verið ekki að sletta fram neinum sleggju- dómum, eins og t.d. um hvort plata sé frábær, góð, sæmileg, bærileg eða léleg, því að hvaða gagni kæmi t.d. dómur- inn „frábær" um rtýja plötu hljómsveitarinnar Weather Re- port fyrir aðdáendur HúIIum- hæ-hljómlistar. Hafið dómana stutta, segið hvaða stefnu hljómsveitin fylgir, hvort hún standist samanburð við aðrar hljómsveitir, hvaða hljóðfæri séu brúkuð, hvort þau séu raf- mögnuð, og fleira eftir þessari línu. Lofsverð eru skrifin um menntaskólablöðin, nú á blómatíma sérhagsmunamanna og stórskemmtilegt væri ef meira væri um skáldskaparmál hér á sfðunni, því margt ungt fólk reynir að vera bókmennta- lega sinnað í dag. (t.d. Finnur Páls og ég). Ég tek mér bessaleyfi og skrifa Fyrir hönd stóra minnihlutans: Paur Paufi. P.S. Hér hafa aldrei verið neinir plötudómar. Getur verið að þið hafið ekki hið minnsta vit á tónlist?“ 0 Takk fyrir herra Paufi. Um vit eða vitleysu Slagsfðunnar á tónlist og plötugagnrýni má lesa að einhverju leyti f grein s.l. sunnudag. Annars eru hug- myndir Paufa um eins konar „vörulýsingar" í stað beinna dóma allrar athygli verðar, þótt ekki verði Slagsíðan vettvangur slíks. Að öðru leyti er þetta uppbyggilegt bréf, og Slagsfðan óskar eindregið eftir því að fleiri lesendur láti f sér heyra varðandi efnisval Slagsfðunnar undanfarið. því móti og hættu þvi við þær kröfur.“ Félagar Helga hafa setið spenntir og beðið eftir hiki í frásögn hans og um leið og hann dregur andann, ryðjast þeir fram með nokkrum látum: „Við viljum benda á þá helgi, sem hvílir yfir Helga-nafninu i þessu starfi, þvi að fráfarandi hringjari heitir einnig Helgi. Við teldum það því helgispjöll, ef Helgi yrði ekki kjörinn. Kjörorð okkar er raunar: Frið- helgi — Mannhelgi — Helgi. Hins vegar höfum við ekki svo miklar áhyggjur af úrslitum kosninganna, stærsta vanda- málið var skortur á mótfram- bjóðendum. Þeir þrir, sem helzt voru orðaðir við framboð, hafa á undarlegan hátt dottið úr leik: Beinbrotnað, horfið úr skóla eða lamazt. Við vissum þó um einn, sem var líklegur í framboð, en hann óttaðist mjög, að örlög hans yrðu svipuð og hinna." Þetta mál hefur þó leystst, því að frambjóðandi fékkst gegn Helga. Hins vegar eru sigurlíkur Helga sterkari en áður vegna þess stuðnings, sem „Smá’ndavinafélagið" hefur veitt honum. — „Smá’ndavina- félagið" er stytting úr Smá- hundavinafélagið. Helgi fjöl- mennti nefnilega á barnaleik- völl á dögunum, söng fyrir börnin, sagði þeim þýzk ævin- týri, gaf þeim sleikibrjóstsykur og hollráð til framtíðarinnar og hlaut að launum stuðning Hulunni svipt af Helga Ámasgni og félögum félagsins í kosningabaráttunni! Loksins, þegar Slagsíðan komst að, spurði hún, hvort Helga og félögum þætti ekki ósanngjarnt, að einungis 800 Is- lendingar, þ.e. nemendur M.R., nytu góðs af snilld Helga í hringjarastarfi. Helgi var hugsi um sinn, en opinberaði svo sín- ar innstu og helgustu hugrenn- ingar: „Eg hef lengi átt mér þann draum, að komið yrði á fót embætti rikishringjara, sem hefði það að starfi að reka alþingismenn inn i þingsali á réttum tíma. Einnig dreymir mig um þann dag, er Islands- klukkan verður hengd upp á ný fyrir rikishringjarann. Þá fær þjóðin að kynnast því hvað stundvísi er!“ Þetta viðtal skrifast á reikning — sh. (Ljósm. Bowler Productions). Gæðingurinn „Lýsingur“ (til hægri) og Helgi Menntskœlingar skemmta hjá Klúbb 32 Klúbb 32 gengst fyrir skemmtun f Austurbæjarbíói á laugardaginn kemur, þar sem kynnt verður skemmtiefni af árshátíðum og skólaskemmtun- um menntaskólanna þriggja í Reykjavfk, M.R., M.T. og M.H. Meðal þess efnis, sem þarna verður flutt, verður söngur kvatetts, leikur hljómsveitar- innar Melchior, leikþáttur úr tslendingasögunum, einieikur á pfanó í „ragtime“-stfl og margt fleira. Hver skóli mun annast um 40 mínútur dag- skrárinnar og einnig mun klúbburinn sjálfur koma með efni, sem á að koma öllum á óvart. Skemmtunin mun standa f tvo og hálfan tíma og hefst því strax upp úr hádegi á laugar- dag, þ.e. kl. 13.30. KHAttSWAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.