Alþýðublaðið - 03.09.1958, Blaðsíða 1
Brezk freigáta hefur níu íslenzka
varðskÍDsmenn í haldi
Utanríkisráðherra mótmæiir.
c c ^ c ó;o>c
„Ætli þeir viti ekki, að við höfum aldrei tapað stríði ?“
ALÞÝÐUBLAÐEÐ SEGIRi
ÞAU TÍÐINDI hafa gerzt, að brezka
ríkisstjórnin hefur orðið við ofbeldishót-
unum togfaraeigenda í garð okkar íslend-
inga vegna stækkunar landhelginnar. —
Brezk herskip hafa hindrað íslenzk varð-
skip að störfum og þar með verndað með
valdi ólöglegar veiðar brezkra togara inn-
an hinnar nýju fiskveiðilandhelgi. Jafn
framt hefur íslenzkum varðskipsmönnum
verið rænt. Þar með hefur brezka ríkis-
stjórnin gert oíríkismálstað togaraeigenda
að 'sínum.
íslendingar hafa framkvæmt stækkun
landhelginnar af alvöru, en stillingu. —
Frumkvæðið er af hálfu Breta. Þeir hafa
sýnt friðsömu smáríki og vopnlausri sam-
starfsþjóð ofríki í lífsbaráttu hennar. —
Þeirri staðreynd verður ekki gleymt að
sinni. Nýr skuggi hefur fallið á skjöld
Bretlands í augsýn alls heimsins.
Löngum hefur þótt fara vel á því, að’
menn kynnu að þafcka fyrir sig. Og með
framkomu sinni í landhelgismálinu eru
Bretar að þakka fyrir veiðar sínar á ís-
landsmiðum, fiskflutninga okkar til Bret-
lands á styrjaldarárunum, þegar fslend-
ingar urðu fyrir hlutfallslega meira mann-
falli en stríðsaðilarnir, björgun brezkra
sjómanna úr sjávarháska við íslands-
strendur og önnur samskipti þjóðanna um
ár og aldir. Nú stendur brezka stórveldið
eitt í andstöðunni við íslendinga vegna
stækkunar landhelginnar, sem er og verö-
ur okkar lífsnauðsyn. Sannarlega leggsí
lítið fyrir ljónið, og framkoma þess mætti
verða heiminum umhugsunarefni.
íslendingar þakka þeim ríkjum, sem
virða nýju landhelgina í framkvæmd og
Iáta ekki ófbeldi fylgja mótmælum sínum.
Og þeir fordæma allir sem einn athæfi
Breta, sem nú hafa gert alvöru úr fljót-
færnislegum og ótímabærum hótunum
togaraeigenda, er láta sjónarmið ímynd-
aðra eiginhagsmuna og hlægilegs stórlætis
ráða afstöðu sinni. Valdsmennirnir í Lund-
únum hafa gert þeim til hæfis. En þeir
kúga fslendinga aldred. Við ætlum að
halda áfram að lifa og starfa í Iandi okkar,
og til þess þörfnumst við fiskistofnsins
og fiskimiðanna. Þá skoðun finnst Alþýðu-
blaðinu hæfa að setja á forsíðu sína í dag.
Stækkun landhelginnar er komin til sög-
unnar, og við hana verður staðið hvort
sem úrslitasigurinn tekur lengri eða
skemmri tíma.
íslendingum dettur ekki í hug að missa
stjórn á skapsmunum sínum í tilefni af
ofríki Breta — veiðiþjófnaði þeirra og
mannráni. Framkoma þeirra vekur hins
vegar vorkunnsama undrun, því að mál-
staður íslendinga hlýtur að sigra. Bretar
standa uppi sem ofríkismenn gegn okkur.
Og við þekkjum þá aðeins betur eftir en
áður.
ÍSLENZK VARÐSKIP tóku í gærmorgun brezkan tog-
ara. er var að veiðum innan 12 mílna landhelginnar. Settu varð-
skipin menn uiri borð í togarann. B-ezka eftirlitsskipið East-
bourne kom bá á vettvang og setti mikið lið um borð í togar-
ann. Báru Bretarnir íslendingana ofurliði og fluttu þá nreð
valdi um borð í brezka eftirlitsskipið. Utanríkisráðherra ís-
lands, Guðmundur í. Guðmundsson, kallaði sendiherra Breta
í Reykjavík á sinn fund í gær og bar fram við hann harðorð
mótmæli út af bessum ofbeldisverkum Breta hér við land.
Frásögn landhelgisgæzlunn-
ar um atburði þessa fer hér á
eftir:
Snemma í gærmorgun stöðv-
aðí íslenzkt varðskip brezkan
togara, sem var að veið'um 5
sjómílur fyrir innan landhelg-
islínu og setti sex óvopnaða
varðskipsmenn um borð í tog-
arann .Togaramenn gerðu SJg
líklega til að varna varðskips-
mönnum uppgöngu á skipið og
höfðu bareflí og annan útbúnað
í því skyni, en er varðskips-
menn létu það ekki á si.g fá,
sýndu togararnenn ekki fre.kari
mótþróa. Nokkru síðar kom
brezka herskipið ,,Eastbourne‘‘
á vettvang og eftir allmikiS þóf
setti það sjóliða um borð í togar
ann og tóku þeir íslenzku vr.rð-
skipsmennina burt með vaidi
og fóru með þá yfir í herskipið,
en skipherrann á íslenzka varð-
skipinu hafði mótmælt aðgerð-
unum og neitað að taka v:5
varðskipsmönnum aftur um
borð. —- Á nieðan á þessu stóð
hafði brezka togarann reklð að-
eins inn fyrir gömlu fjögurra
mílna landhelgisiinujia.
BEITTU JÁRNKÖLLUM
OG ÖXU!VI.
Samtímis þessu reyndj ann-
að íslenzkt ’varðskip að sétja
tnenn um borð i annan brezkan
togara, en varðskipsmönnum
var þar mætt með járnstöngum,
bareflum, öxum og vatnsslöng-
um, og hurfu þeir frá.
Atburðir bassir gerðust út af
Norðfjarðarflóa fyrir Austur-
iandi.
Islenzku varðskipsmennirnir,
sem Eastbourne hefur í haldi
eru þessir: Af Þór: Hrafnkeli
Guðjónsson, stýrimaður, Hörð-
ur Karlsson, Ólafur Gunnars-
son, Ólafur V. Sigurðsson, Karl
Einarsson, Guðmundur Sölva-
son og Jóihannes Elíasson. Af
Maríu Júlíu: Guömundr Karls
son ,stýrimaðr og’ Björn Bald-
vinsson.
Fréttaritari Álþýðublaðsin-s
á Neskaupstað, Oddur Sigur-
jónsson, símaði eftirfarandi frá-
sögn af atburðum þessum í
gær: Hér í Neskaupstað heyrð-
ist í morgun, er togarinn North
ern Foam kallaði í brezka eftir
litsskipið Eastbourne og óskaði
Framliald á 2. síðu.
Gilchrist, sendiherra Bretai
brosti, er ljósmyndari blaðs-
ins tók þessa mynd af honum
í gær.