Morgunblaðið - 04.04.1975, Síða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. APRlL 1975
Sæluvikan aðeins fyr
ir Sauðkræklinga?
Bæ, Höfðaströnd, 3. apríl.
SÚ VAR tfðin, að Karlakórinn
Heimir æfði söng mikinn hluta
vetrar til þess að geta komið
fram á sæluviku Skagfirðinga
sem fram fer á Sauðárkróki
seinni hluta vetrar ár hvert.
Þá voru eins og nú bændur í
framanverðum Skagafirði í
meiri hluta í kórnum, þótt nú
sé hann meira blandaður. Söng-
menn eru núna 40 talsins. Að
sögn formanns kórsins mun
hann ekki taka þátt i sæluvik-
unni að þessu sinni, því kór-
félögum finnst að þeim sé
löngu orðið ofaukið á sæluvik-
unni því þeir hafa ekki um
langa hrið fengið að halda söng-
skemmtanir á þeim tima sem
boðlegur getur talist. Hefur
kórinn aðeins fengið að syngja
klukkan 18 á þriðjudögum sem
er auðvitað óhæfur tími. Bæði
er fólk þá enn i vinnu og bænd-
ur eiga erfitt með að komast frá
búum sínum á þessum tima.
Telja kórmenn eins og flestir
Skagfirðingar, að sæluvikan í'
þeirri mynd sem hún er nú
komin i sé nokkuð langt fyrir
utan þann ramma sem átti að
verða. Sé sæluvikan fremur
fyrir Sauðkræklinga en Skag-
firðinga.
Hér er indælis veður og tekur
snjó ört. Veturinn hefur verið
harður og geysilega óstilltur og
ég man ekki eftir eins mörgum
snjóflóðum. Til dæmis féll 4 km
breið snjóskriða í Óshlið í
vetur, en slikt mun síðast hafa
gerst á þessum stað 1648.
— Björn.
Skaut 8 tófur og
náði metinu aftur
Staðarbakka, Miðfirði 3.
april.
HÉR VAR veturinn harður
eins og annars staðar. En nú
hefur verið blfðuveður um hrfð
og er að mestu orðið snjólaust á
láglendi en mikill snjór er enn
f hlfðum og upp til f jalla.
Harðfenni hefur verið mikið
og hafa menn getað ekið upp
um fjöll og firnindi á harðfenn-
inu. Þetta hefur verið notað
óspart, t.d. við að flytja girð-
ingarefni og efni til viðhalds
gangnamannakofum. Hafa
menn farið þetta á jeppum með
kerru aftan i. Vegna þessJive
snjóþungur veturinn var hefur
þurft að gefa fé að mestu inni
og einnig hrossum að miklu
leyti og er það óvanalegt.
Hermann Stefánsson refa-
skytta á Haugi í Miðfirði skaut
fyrir nokkru 8 tófur á einni
nóttu frá skýli sínu skammt frá
Aðalbóli. Hafði hann lagt æti
fyrir tófuna um nokkurn tíma
Þetta er mesti fjöldi sem skot-
inn hefur verið í einu. Fyrir
nokkrum árum átti Hermann
metið, 6 dýr í einu. Síðan náði
hann metinu, skaut 7 dýr er nú
hefur Hermann náð þvi aftur.
—Benedikt.
Útigangsfé finnst
Breiðuvíkurhreppi, 30. marz.
I GÆR, laugardaginn 29. marz,
heimti ég undirritaður tvær ær
sem ekki hafa sést sfðan um
réttir s.l. haust. Ferðamaður sá
ærnar skammt frá veginum á
Svalþúfu sem er austan við
Lóndranga.
Ég fór í gær að leita að ánum
og fann þær á svokölluðum
Engjum sem eru á sjávar-
bökkunum milli Svalþúfu og
Dagverðarár. Ég tók ærnar
heim og setti þær í hús. Ærnar
eru nú að verða tveggja vetra
gamlar. Þær eru mjög hold-
litlar og kviðmagrar og er ljóst
að þær hafa lifað við sult lengi.
Það má teljast furðulegt að
þær skuli hafa lifað af veturinn
þvi veðráttan hefur verið mjög
hörð í vetur. Líklegast er að
ærnar hafi haldið sig í hrauni í
vetur og líklegt að þær hafi
verið nokkuð lengi í fönn. Þetta
er einsdæmi í mínum búskap.
— Finnbogi G. Lárusson.
Afli Þorlákshafn-
arbáta að glæðast
Þorlákshöfn, 3. april.
HIN langþráða páskahrota kom
hér ekki við sögu að þessu
sinni. — En afli fór að glæðast
upp úr páskum og er nú góður.
Menn vona, að sem oft áður
verði aprílmánuður sá mánuð-
ur vetrarvertíðarinnar sem geri
gæfumuninn í aflabrögðum
vertfðarinnar hér í Þorláks-
höfn.
Hinn 31. marz voru komin á
land hér 6530 tonn af bolfiski i
782 róðrum, sem er 8,3 tonna
meðalafli í róðri. Á sama tfma í
fyrra var bolfiskaflinn orðinn
5470 tonn í 621 róðri og var
meðalafli i róðri aðeins meiri,
8,8 tonn. Loðnuaflinn hér er nú
14.000 tonn á móti 19.750 tonn-
um á sama tima í fyrra. —
Aflahæstu Þorlákshafnarbátar
voru um mánaðamótin
Brynjólfur 543 tonn, Friðrik
Sigurðsson 414 tonn og Jón á
Hofi með 400 tonn.
I gær, miðvikudag, var mesti
afladagur vertiðarinnar og yar
mestur afli á bát 48 tonn.
Sjómenn hér i Þorlákshöfn
hafa ekki boðað til verkfalls.
— Ragnheiður.
Afli Grindavíkurbáta
13001 meiri en í fyrra
UM mánaðamótin var heildar-
afli Grindavfkurbáta orðinn
röskum 1300 lestum meiri en á
sama tfma f fyrra. Þann 31.
marz s.l. var aflinn orðinn 8100
lestir f 1270 löndunum, en var f
fyrra 6781 lest f 1224
löndunum.
Aflahæsti báturinn er nú
Geirfugl með 679 lestir, síðan
kemur Þórir með 325 lestir og
Hópsnes með 318 lestir.
Að sögn Daniels Halldórs-
sonar viktarmanns i Grindavik
gefa þessar tölur ekki til kynna
að meðalaflinn sé miklu meiri
en i fyrra, bæði eru landanir
fleiri á þessari vertið og svo
hafa minni bátar litið getað
róið i vetur vegna ótíðar, en
stærri bátarnir verið fleiri og
sótt af þeim mun meiri krafti.
Ljósmynd Mbi. ÖIJUL
# Flestir styrkþegar eða fulltrúar þeirra voru mættir I hófi Menntamálaráðs f Þingholti. Frá vinstri á
myndinni: Unnur Bafdursdóttir, sem mætti fyrir hönd Veturliða, Kristján Davfðsson, Heiga Ingólfsdótt-
ir, Hrafn Gunnlaugsson, Fjölnir Stefánsson f.h. Tónverkamiðstöðvarinnar, Rut Ingólfsdóttir, Ulfar
Þormóðsson og Guðrún Tómasdóttir.
3 milij. kr. styrkir frá menntamálaráði
til tónlistar, kvikmynda og listamanna
Menntamálaráð tilkynnti i gær
um afhendingu 500 þús. kr. tón-
listarstyrks, 1 millj. kr. kvik-
myndastyrks og 125 þús. kr.
dvalarstyrkja til 10 listamanna og
hafði Kristján Benediktsson for-
maður menntamálaráðs, orð fyrir
nefndinni á blm.fundi.
Tónlistarstyrkur er ætlaður til
útgáfu á fslenzkum verkum á
hljómplötur og hlaut hann að
þessu sinni Islenzka tónverkamið-
stöðin til útgáfu á hljómplötu
með Sögusinfónfu Jóns Leifs.
Ráðgert er að finnski hljóm-
sveitarstjórinn Jussi Jalas stjórni
verkinu, sem verður tekið upp í
haust. Um þennan styrk bárust 6
umsóknir alls, en þær voru auk
þeirrar sem um er getið: Tón-
verkamiðstöðin til útgáfu á litlum
hljómplötum með íslenzkum
verkum.SG-hljómplötur, Félag ís-
EINS OG flestum mun vera kunn-
ugt, brást loðnufrysting svo til
algjörlega hér á landi f vetur og
sömu sögu er að segja frá Noregi,
en þar er frystingin aðeins brot af
þvf sem hún var f fyrra. Af
þessum sökum er talið að mikið
rýmkist á japanska markaðnum á
þessu ári, þannig að sæmilegar
horfur á sölu frystrar loðnu
þangað gætu orðið á næsta ári.
Guðmundur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri dótturfyrirtækis
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í Japan, sagði i samtali við
Morgunbiaðið i gær, að örugglega
gengi mikið á birgðirnar á þessu
ári. Um áramótin hefðu verið til
um 40 þús. tonn á japanska mark-
aðnum, en meðalneyzlan væri i
kringum 3000 tonn á mánuði.
Þannig ætti mikið að ganga á
birgðirnar á þessu ári.
Þá sagði Guðmundur, að um
Baldur hefur
áburðarflutninga
frá Flatey í dag
BÚIÐ VAR að ná helm-
ingi áburðarfarmsins úr
Hvassafellinu á land I gær-
kvöldi eða rösklega 500
lestum, en talið er að í skip-
ínu séu um 1000 lestir.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Heiðar Kristinsson báts-
maður að unnið væri við upp-
skipunina frá þvi snemma á
morgnana fram til kl. 23 á kvöldin
og taldi hann að búið yrði að skipa
öllum áburðinum upp úr skipinu
á þriðjudag eða miðvikudag í
næstu viku. Þá er ákveðið að flóa-
báturinn Baldur hefji flutninga á
áburði frá Flatey i dag.
lenzkra dægurlagahöfunda til út-
gáfu á nótum, Kristinn Reyr til
útgáfu á nótum og Steingrímur
Sigfússon á Húsavik til útgáfu á
nótnasafni.
Kvikmyndastyrkur hefur verið
veittur þrívegis áður af mennta-
málaráði. Styrkinn að þessu sinni
hlaut Hrafn Gunnlaugsson til að
gera kvikmynd er hann hyggst
kalla „Blóðrautt sólarlag“. Hrafn
hefur sjálfur samið handritið,
leikendur eru 5 og ráðgerður sýn-
ingartími er 30 mín. Alls bárust 2
umsóknir um styrkinn. Hrafn
kvað þessa mynd verða gerða á 16
mm svarthvíta filmu. Handritið
samdi hann upphaflega á sænsku
þegar hann nam við Dramatiske
Institut i Stokkhólmi. „Svíar
höfðu mikinn áhuga á handrit-
inu,“ sagði hann, „og kváðust
myndu standa að tæknilegri hlið
útlit á næsta ári væri ekki hægt
að segja með neinni vissu fyrr en
i ljós kæmi hvernig Nýfundna-
landsveiðar Rússa gengju i
sumar, en þeir væru stórir sölu-
aðilar á Japansmarkaði.
SALA á miðum f happdrætti
Slysavarnafélags Islands stendur
nú sem hæst og f dag, föstudag, og
tvo næstu daga, verður söluher-
ferð um allt land. Þá verður
gengið f hús, farið á vinnustaði og
miðar boðnir til sölu á götum úti.
Slysavarnadeildir og björgunar-
sveitir S.V.F.I. um allt land sjá
um að selja miðana.
Það er áskorun til allra lands-
myndarinnar ef ég fengí styrk á
Islandi, en það er ljóst að þessa
mynd get ég ekki gert nema I
samvinnu við innlenda eða er-
lenda aðila.“ Ráðgert er taka
myndina í sumar, en Hrafn kvaðst
hafa í huga að það yrði gert i
Flatey á Breiðafirði, Djúpavik,
Hesteyri eða Aðalvík, því efnið
fjallaði um stað sem væri í eyði
eða þar sem byggðin hefði átt í
vök að verjast. „Ég hafði ákveðna
leikara í huga við gerð handríts-
ins,“ sagði Hrafn, „og þeim hef ég
sýnt handritið við ágætar undir-
tektir, en í stytztu máli er efni
myndarinnar um það að verða
innlyksa, ekki aðeins í umhverfi
sínu og þjóðfélaginu, heldur einn-
ig í sjálfum sér og sinni eigin
menningu.“
Um kvikmyndastyrkinn sóttu
auk Hrafns: Þrándur Thorodd-
sen, til að gera kvikmyndir um
Hundadaginn mikla og um sögu
eftir Gunnar Gunnarsson blaða-
mann; Édda Hákonardóttir, til að
gera heimildarmynd um land og
þjóð; Guðmundur P. Ölafsson og
Öli Örn Andrésson, til að gera
heimildarkvikmynd um töku
fuglamyndar á Breiðafirði og
fleiri þætti náttúrulífs þar; Þor-
geir Þorgeirsson til að gera
heimildarkvikmynd um vinnu
kvenna i fiskvinnslu á Islandi;
KVIK s.f., til að gera heimildar-
Framhald á bls. 20.
manna frá Slysavarnafélaginu, að
þeir taki sölufólkinu vel og styrki
félagið i starfi með þvi að kaupa
miða. Vinningar eru 20 talsins og
eru þeir skattfrjálsir. Meðal
vinninga má nefna Citroen Ami
fólksbifreið, Zodiac Mark 3
slöngubát með utanborðsvél og
Johnson vélsleða.
Dregið verður i happdrættinu 1.
mai n.k. og verður drætti ekki
frestað.
Mun betra útlit
á Japansmarkaði
Söluherferð í happdrætti
Slysavarnafélagsins