Morgunblaðið - 04.04.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1975
5
| | Dömublússur
Boli — Boli —
Boli
| | Létta °
dömublússu-
jakka úr kaki
I | Herraskyrtur
n Dömuföt
Herraflauelisföt
Fermingarföt
(~1 Kápur —
Poppelin og
rifflað flauel
| | UFO gallabuxur
□ Rúllukraga-
peysur
I 1 Stakar buxur úr
denim — flauel
og tereline °
i 1 Geysistór
hljómplötu-
sending o.m.fl.
tizkuverzlun unga fólksins
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
'•S&ítw*'* SIMM8660 SIMI 13630 SlMi min
í hennar augum að vera neyðarúr-
ræði.
Hvað er hugsanlegt?
Stjórn L.I. telur hina endur-
skoðuðu gerð frumvarpsins —
þar sem búið er að fella niður
ákvæðið um fóstureyðingu „að
ósk konu“ — ganga eins langt og
hugsanlegt er í þessum efnum;
takmarkalaus sjálfsákvörðunar-
réttur sé ekki mögulegur.
Samkvæmt upphaflega ákvæð-
inu átti að vísu að takmarka
ákvörðunarrétt konunnar, bæði
við fyrstu 12 vikur meðgöngu og
við það skilyrði „að konan hafi
verið frædd um áhættu samfara
aðgerð og hafi hlotið fræðslu um
hvaða félagsleg aðstoð stendur til
boða i þjóðfélaginu fyrir þungaða
konu og við barnsburð". Nú er
ákvörðunarrétti konu til fóstur-
eyðingar sniðinn jafnrúmur
I tilefni greinargerðar stjórnar
Læknafélags Islands um frum-
varp til laga um ráðgjöf og
fræðslu varðandi kynlff og barn-
eignir og um fóstureyðingar og
ófrjósemisaðgerðir, sem greint
hefur verið frá i fjölmiðium og
birt í Morgunblaðinu miðvikudag-
inn fyrir páska, vill framkvæmda-
nefnd Baráttusamtaka fyrir
sjálfsákvörðunarrétti kvenna til
löglegrar fóstureyðingar koma á
framfæri nokkrum athugasemd-
um við málflutning stjórnar L.I.
Skiptar skoðanir lækna
I upphafi greinargerðarinnar
gefur stjórn L.í. í skyn að hún tali
i þessu máii fyrir munn ails þorra
lækna. Þetta er þó alls óvíst. Aðal-
fundir L.I. eru fámennir fulltrúa-
fundir, og hinn fjölmenni fundur
Læknafélags Reykjavíkur sem til
er vitnað, stóð fram á nótt og
fundarmönnum farið að fækka
þegar ályktunin var samþykkt
með 26 atkvæðum gegn 10. Sam-
þykktir þessara funda eru því
ekki órækur vitnisburður um
skoðanir læknastéttarinnar á
þessu máli.
Geðlæknafélag íslands sendi
frá sér álitsgerð sem studdi
meginstefnu upphaflega frum-
varpsins um fóstureyðingar og
fleira (eins og það var lagt fyrir
Alþingi 1973), og kemur þar fram
mjög ákveðinn stuðningur við
grein 9, 1. um heimild til fóstur-
eyðingar „að ósk konu, ef aðgerð-
in er framkvæmd fyrir Iok 12.
viku meðgöngu og ef engar lækn-
isfræðilegar ástæður mæla á móti
aðgerð". Þó fullyrðir stjórn L.I.:
Læknasamtökin eru andvíg því að
aftur verði tekin upp gr. 9, 1. úr
fyrra frumvarpi.
Þá ber að muna, að af 4 nefnd-
armönnum, sem upphaflega
sömdu frumvarpið, voru tveir
læknar, báðir yfirlæknar og
prófessorar. Annar er geðlæknir,
en geðsjúkdómar eru algengustu
heilsufarsástæður sem leyfi til
fóstureyðingar hafa verið byggð á
að undanförnu. Hinn, formaður
nefndarinnar, var yfirlæknir
sjúkradeildar þeirrar þar sem
langflestar fóstureyðingar hafa
verið framkvæmdar hér á landi,
og sá maður sem mesta reynslu
hafði af framkvæmd núgildandi
laga.
Þjónustuhlutverk
læknisins
Það er því ljóst að íslenzkir
læknar og læknasamtök eru ekki
einhuga i þessu máli. Við slíkri
einingu er ekki heldur að búast,
þar sem ágreiningsmálið snýst
minnst um læknisfræðileg atriði,
heldur er það fyrst og fremst
mannréttindamál þar sem deilt er
um sjálfsákvörðunarrétt konu um
fóstureyðingu og um skyldu og
vald lækna í því sambandi.
Stjórn L.I. kemst að kjarna
málsins þegar hún segir: Það er
staðreynd sem ekki verður á móti
mælt, að konan ber erfiðið og
áhættuna f sambandi við með-
gönguna og fæðinguna. 1 flestum
tilfellum hvflir mest á hennar
herðum umsjá og uppeldi barns-
ins. Ætla má einnig, að konan sé
betur fær en nokkur annar til að
meta þörfina fyrir fóstureyðingu
og taka ákvörðun.
Þetta sjónarmið fær þó ekki að
ráða niðurstöðu stjórnar L.I.
Henni verður starsýnna á það að
nota verði þekkingu og reynslu
læknisins við ákvörðun um fóst-
ureyðingu, og því vill hún leggja
úrslitavaldið í hendur hans. Þá
gleymist það, að þessi sérþekking
og reynsla nær aðeins til einnar
hliðar málsins, áhættunnar af að-
gerð, en ekki til hins sem mestu
máli skiptir: að meta þörfina fyr-
ir fóstureyðingu. Því að varla
hafa læknar almennt sérþekk-
ingu og reynslu í því að sitja uppí
með ótimabæra þungun.
Allir eru sammála um að taka
beri mið af áhættunni sem að-
gerðinni fylgir og meta hana með
hliðsjón af nauðsyninni. En þa.'
þýðir ekki að læknirinn eigi að
ráða — enda er hlutverk hans
eins og stjórn L.I. segir: þjónustu-
verk við sjúklinginn — heldur á
hann að miðla konunni af þekk-
ingu sinni og skýra fyrir hénni
áhættuna. Varla yrði það honum
torveldara en að setja sig svo í
hennar spor að hann geti á sann-
gjarnan hátt metið þörf hennar
fyrir fóstureyðingu. Áhættan
snýr að konunni — það er hún
sem getur orðið ófrjó eða dáið —
og því hlýtur fóstureyðing einmitt
stakkur og jafnvel rýmri í ýmsum
Evrópulöndum og í Bandaríkjun-
um, og verður þá ekki séð hvi
stjórn L.I. telur slíkar regiur ein-
f aldlega óhugsandi.
Af fordæmum annarra þjóða
gerir stjórn L.I. mest úr reynslu
þriggja ríkja Austur-Evrópu sem
nýlega hafa skert rétt kvenna til
fóstureyðingar. En hvers vegna
gerðu þau það? Vegna þess að
stjórnvöldum hentaði að örva
fólksfjölgun í löndunum. Það var
ekki verið að hugsa um hagsmuni
þeirra einstaklinga sem i hlut
eiga, heldur um hentugleika hins
alvalda rikis. Slíkt væri væntan-
lega ekki hugsanlegt hér á landi.
Framhald á bls. 14
Athugasemd frá framkvæmda-
nefnd Baráttusamtaka fyrir
sjálfsákvörðunarrétti kvenna til
löglegrar fóstureyðingar
LOKAÐ
Á HÁDEGI í DAG
Skrifstofur okkar að Laugaveg 54 verða
lokaðar frá hádegi í dag vegna flutninga.
Opnum í nýjum húsakynnum að Skóla
vörðustíg 16 í fyrramálið, laugardag.
Opið 9—12.
LANDSYN -ALÞYÐUORLOF
FERÐASKRIFSTOFA, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16, SÍMI 28899 (5
LfNUR)
FfllÐ
FRÁBÆRT
ÚRVAL AF
NÝJUM
GLÆSILEGUT
VÖRUM í
VERZLUNUM
OKKflR.
TöKum upp
f dag:
Unglingabuxur
frá 7 —12 ára
j Herrapeysur
I | Dömupeysur
Skynsamlegur meðalvegur??