Morgunblaðið - 04.04.1975, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1975
Allar þrær fullar á SV-landi
— Skipin til Siglufjarðar?
ENN cr sæmileg loðnuveiði og nú
eru allar þrær fullar á Sv-horni
landsins. Því stóð til f gærkvöldi
að einhver skip héldu jafnvel til
Siglufjarðar en greiða átti 1 kr. f
flutningsstyrk þangað. Eftir þeim
upplýsingum, sem við fengum
hjá loðnuncfnd f gærkvöldi, voru
18 skip enn á loðnuveiðum, en 2
hæltu í ga>r, Börkur og Reykja-
horg.
Frá því um miðnætti í fyrrinótt
fram til kl. 21 í gærkvöldi til-
kynntu 8 skip um aíla, samlals
um 3000 lestir. Skipin voru þessi:
Klosi IS 240 lestir, Oskar
— Víetnam
Eramhald af bls. 1
tvær héraðshöfuðborgir til viöbót-
ar í dag. þ.á m. Phan Thiet, aóeins
100 kílómetra frá Saigon. bá
kváðust Vielcong skærulíðar hafa
náð á sitt vald Ghon Thanh, um 90
kílömetra norður af Saigon eftir
margra vikna umsátur.
Upplýst var í Washington að
bandaríska stjórnin væri að
undirbúa gífurlega flutninga
flóttafólks, allt að milljón manns,
áður en landið fellur algjörlega í
hendur kommúnista.
Kröfur um afsögn Thíeus for-
seta komu fram af auknum krafti
í dag, og æðsti leiðtogi kaþólskra i
landinu, Nguyen Van Binh erki-
biskup, krafðist afsagnar hans i
þágu þjöðarinnar. I>á sagði
kaþólski stjórnarandstiiðuleiðtog-
inn séra Tran Iluu Thanh að
Thieu bæri fulla ábyrgð á afhroði
stjórnarherja að undanfiirnu og
ætti að segja af sér.
Ford íorseti sagði í einkavið-
ræðum við fréttamenn fyrir
blaðamannafundinn í dag að
Thieu hefði fyrirskipað illa undir-
búið og óþarft undanhald
sljórnarherja og um væri að ræða
ótrúlega umfangsmiklar hörm-
ungar.
A blaðamannafundinum lýsti
Ford öánægju sinni með að Thieu
hefði ekki skýrt sér frá undan-
haldinu fyrirfram. En hann tök
fram að hann væri ekki að gefa í
skyn að Thieu ætli að segja af sér,
þó að slikl kynni að leiða til
vopnahlés.
Ford sagði að hann byggist ekki
á þessu augnabliki við falli Suður-
Vietnams í bráð. Hann harmaði
enn að þingið skyldi koma í veg
fyrir að Bandarikin stæðu við
skuldbindingar sínar um her-
aðstoð við Suður-Vietnam.
Thieu forseti ræddi í dag við
Weyand hershöfðingja, yfirmann
bandaríska hersins í Víelnam, um
ástandið, og mun hershöfðinginn
skýra Ford frá þeim viðræðum.
Mikill fjöldi útlendinga flýr
Saigon, og t.d. fyrirskipaði vestur-
þýzka sendiráðið brottflutning
fjölskyldna starfsmanna sinna, og
fregnir hermdu að fjölskylda
Thieus forseta sjálfs væri að
mestu flúin frá Suður-Víetnam.
Fjölskyldum 75 starísmanna
Sameinuðu þjöðanna i Saigon
hefur verið leyft að yfirgefa borg-
ina og fara til Bangkok ef þær
vilja, en alls eru það 108 manns.
Hins vegar verða starfsmennirnir
sjálfir ekki fluttir burt.
Víðsvegar að berast framlög til
hjálparstarfsins í landinu. Þannig
var t.d. skýrt frá því í Stokkhólmi
í dag að Sviar myndu verja 23
milljónum sænskra króna þegar í
stað til mannúðarstarfs í Suður-
Víetnam. og u.þ.b. helmingur
þeirrar upphæðar mun fara beint
tíl bráðabirgðastjórnar Víetcong.
Þá sendi vestur-þýzka ríkisstjórn-
in flugvél með 18 tonn af hjálpar-
vörum til flóttamanna áleiðts til
Saigon í dag, einkum lyf, og mun
vélin koma með flóttamenn til
baka. Rauði krossinn mæltist í
kvöld til þess að fá 30 milljónir
dollara til viðbótar til að standa
straum af hjálparstarfinu í Indó-
kina næstu þrjá mánuðina, og var
beiðninni beint til ríkisstjórna og
Rauða kross félaga um heim
allan. Og Alþjóða verkalýðssam-
bandið skoraði í dag á ríkisstjórn-
ir að veita rausnarlega til hjálpar-
starfs í Suður-Víetnam.
Magnússon AK 450 lestir, Ásberg
RE 330 lestir, Faxi GK 220 lestir,
Asgeir RE 300 lestir, Börkur NK
600 lestir, Rauðsey AK 430 lestir
og Faxaborg GK 300 lestir.
Vestmannaeyingar:
Kjaramálin
í DAG verður viðræðufundur
forystumanna Vinnuveitendafé-
lagsins í Vestmannaeyjum og
forystumanna Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja, sem felldu sam-
komulagið, sem gert var milli
ASÍ og VSÍ. Eundurinn í dag
verður að sögn Haralds Gísla-
sonar, formanns vinnuvcitenda f
Eyjum, ekki samningafundur
hcldur aðeins viðræðufundur.
í gærkveldi hafði Verkakvenna-
félagið Snót hoðað til fundar í
Eyjum, þar sem ræða átti samn-
ingana. Ekki hafði frétzt af fund-
inum í gærkveldi, enda var
honum ekki lokið er Mhl. fór í
prcntun.
3 samninga-
fundir í dag
SAMNlNtJ AFUNDUR með sjó-
mönnum á bátaflotanum og minni
skuttogurum var haldinn hjá
sáttasemjara í gær og stóó til
klukkan 19. Annar fundur með
þessum aðilum hefur verið
boðaður í dag klukkan 13.30 og
klukkan 14 hefur verið boðaður
fundur með togarasjómönnum á
stærri togurunum. Er það fyrsti
fundur um alllangt skeið með
þeim aðilum Þá er þriðji samn-
ingaíundurinn, sem haldinn
verður í dag, fundur með verzl-
unarmönnum og hefst hann
klukkan 17.
— Samþykktu
Eramhald af bls. 36
næstu dögum og af þeim sökum
þorðu bræðslurnar þar meðal
annars ekki að taka á méiti loðnu.
A lundi stjórnar- og trúnaðar-
mannaráðs félagsins í gær var
hins vegar ákveðið, að fresta
verkfallsboðuninni um óákveðinn
tima.
— Alþingi
Eramhald af bls. 2
um tekjuskatt og eignaskatt, en í
neðri deild var rætt um írumvarp
til laga um breytingu á vegalög-
um. Að tilhlutan Jóhanns Haf-
stein varö allmikil umræða um 11.
grein lagafrumvarpsins og töldu
allir, sem til máls tóku, að skoða
bæri þá grein nokkuð vel áður en
samþykkt yrði. Nánar verður
skýrt frá umræðunum um vega-
lagafrumvarpið á laugardag.
— Styrkir
Framhald af bls. 3
kvikmynd um hvalveiði við Island
frá öndverðu; Ölafur Torfason, til
að gera mynd um Papana;
Magnús Magnússon, til að gera
heimildarmynd um teistuna;
Reynir Oddsson til að gera stór-
mynd tveggja stunda í samvinnu
við franska aðila og Þorsteinn
Úlfur Björnsson sótti einnig um
styrk til heimildarkvikmyndar.
Dvalarstyrkir, 125 þús. kr., eru
ætlaðir listamönnum, sem hyggj-
ast dvelja erlendis um a.m.k.
tveggja mánaða skeið og vinna
þar að listgrein sinni. Alls bárust
35 umsóknir.
Menntamálaráð veitti eftirtöld-
um 10 listamönnum styrk að
þessu sinni:
Guðrúnu Tómasdóttur söngkonu,
Helgu Ingólfsdóttur sembal-
leikara,
Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu,
Jóni úr Vör skáldi,
Kristjáni Davíðssyni listmálara,
Ragnari Kjartanssyni mynd-
höggvara,
Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara,
Steindóri Hjörleifssyni leikara,
Úlfari Þormóðssyni rithöfundi,
Veturliða Gunnarssyni list-
málara.
Guðrún Tómasdóttir söngkona
kvaðst ætla að nota sinn styrk til
söngnáms í Bandarikjunum, „til
þess að hressa upp á sönginn,
einkum túlkun ljóðasöngs“, eins
og hún orðaði það, en í þeim er-
indagjörðum mun hún halda til
New York síðla sumars.
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari
kvaðst ætla á námskeið í sumar
hjá fyrrverandi kennara sínum í
Lubeck þar sem hún kvaðst einn-
ig ætla að æfa þau verk sem hún
myndi leika á tónleikum næsta
vetur.
Helga Ingólfsdóttir sembal-
leikari kvaðst ætla á námskeið í
semballeik í Bremen og skoða
hljóðfærasöfn og sembalsmiðjur.
Veturliði Gunnarsson listmál-
ari ætlar að nota sinn styrk til þess
að fara á Veggskreytingaskólann i
Kaupmannahöfn, Úlfar Þormóðs-
son rithöfundur kvaðst ætla að
fara til Spánar og Póllands í sum-
ar til þess að komast að því hvern-
ig tslendingar færu að þvl að
kaupa togara.
Kristján Davíðsson listmálari
ætlar til Bandarikjanna, Jón úr
Vör til Svíþjóðar, Herdis Þor-
valdsdóttir til London, Steindór.
Hjörleifsson kynnir sér nýjungar
í leikhúsmálum og Ragnar Kjart-
ansson myndhöggvari ætlar að
vinna í Svíþjóð í sumar.
— Kambódía
Eramhald af bls. 1
vitni að því er 15 óbreyttir borgar-
ar, þ.á m. allmörg börn og korna-
barn i fangi móður sinnar, særð-
ust.
Talið er að hersveitir skæruliða
muni nú herða sérstaklega sókn
sína við suðursvarnarlínu Phnom
Penh eftir að hafa náð á sitt vald
hinni mikilvægu ferjuborg Neak
Luong, um 50 kílómetra suðaust-
ur af Phnom Penh, í gær, en þar
með náðu þeir tökum á öllum
ferðum um Mekongfljót. Hins
vegar sagði talsmaður stjórnar-
innar að fall Neak Luong væri
ekki algjört og enn væru um
20.000 hermenn og borgarar að
verjast skæruliðasveitunum í
suðurhluta ferjuborgarinnar.
Ekki vildu þó áreiðanlegar
heimildir innan hersins staðfesta
þessar fullyróingar talsmannsins,
og kváðu allt samband við varnar-
liðíð í Neak Luong slitið. Flótta-
fólk frá borginni sem kom til
Phnom Penh árla miðvikudags
sagði að öllum bardögum þar
hefði verið hætt þegar á þriðju-
dagskvöld.
— Munaðarlaus
börn
Framhald af bls. 17
til að taka að sér nokkur börn
frá Víetnam, sem misst hefðu
foreldra sína. Taldi hún að for-
setinn myndi álíta slíkt eðlilegt
og æskilegt þar sem þessi börn
ættu rétt á að fá tækifæri til að
alast upp við mannsæmandi
skilyrði eins og önnur börn.
— Ford spáir
Eramhald af bls. 1
verið 12—13% árið 1974. Aukin
eftirspurn væri eftir vörum í
fyrsta skipti i hálft ár, vextir færu
lækkandi og lánsfé væri vaxandi.
Þetta taldi Ford benda til þess að
efnahagsástandið myndi verulega
batna síðar á árinu.
— Finnska eitrið
Framhald af bls. 17
efnum, skipað upp úr finnska
skipinu „Enskeri" í Lissabon eftir
mótmæli frá Suður-Afriku og
ýmsum löndum í Suður-Ameriku.
Er allt á huldu til hvaða ráða
verður nú gripið til að losna vió
eiturefnin, að sögn Reuters.
— Fischer
Framhald af bls. 1
Karpov: „Sérhver heims-
meistari verður að sýna yfir-
burði sina á þriggja ára fresti.
Mér virðist svo sem Fischer
hafi verið að leita að tækifæri
til að komast hjá því að tefla
einvígið."
Hins vegar segir Karpov ekki
berum orðum að Fiseher hafi
ekki þorað að tefla við sig, og
bætti við: „En auðvitað hefur
Fischer stórkostlega hæfileika
og skákvit.“ Hann lagði áherzlu
á að hann hefði sjálfur kosið að
tefla við Fischer um titilinn, en
hann væri engu að síður mjög
ánægður með það að FIDE lét
ekki knýja sig til að breyta
grundvallarreglum skák-
íþróttarinnar. „Því miður kaus
Fischer að svara ekki. Hann
þagði bara.“
„Ég er mjög hamingjusamur
yfir þvi að heimsmeistaratitill-
inn skuli aftur vera kominn til
Sovétrikjanna," sagði Karpov,
en Sovétmenn höfðu haldið
titlinum samfleytt frá árinu
1937 er Fischer náði honum frá
Boris Spassky í Reykjavík árið
1972.
„Sannast sagna vonuðum við
i lengstu lög, að Fischer myndi
láta heyra frá sér,“ sagði dr.
Euwe í samtalinu við Mbl. „En
ég lít svo á að þetta sé dapur-
legt í alla staði, og ég tel víst að
Karpov sjálfum sé það ekkert
gleðiefni, að hafa ekki fengið
tækifæri til að tefla. Ég vona að
þetta hafi ekki varanleg áhrif á
skákiþróttina, við verðum að
gera allt til að reyna að draga
úr neikvæðum áhrifum þessa.
Ég þori engu að spá um neitt i
sambandi við framtíð Fischers,
hvort hann teflir framar, hvort
hann verður næsti áskorandi —
sem vissulega væri afskaplega
mikill viðburður. Yfirleitt hef
ég gersamlega gefið það upp á
bátinn að vera með spádóma,
þegar jafn sérstæður maður og
Robert Fischer er annars
vegar,“ sagði dr. Euwe.
Dr. Euve sagðist ekki hafa
heyrt frá Karpov hinum ný-
skipaða heimsmeistara, en hins
vegar hefði sovézka skák-
sambandið lýst því yfir fyrir
hans hönd, að hann myndi taka
við útnefningu FIDE.
Úm úrskurð FIDE hefur
ekkert heyrzt frá Fisch-
er en I fréttum TASS í
Moskvu sagði að útnefningu
Karpovs sem heimsmeistara
væri eðlileg niðurstaða vegna
frábærrar frammistöðu hans.
Tass sagði einnig að „sú stað-
reynd að Fischer hefði ekki
tekið þátt í neinum skákmót-
um, síðan hann tefldi einvígið
við Spassky 1972, gæfi mönnum
ástæðu til að draga þá ályktun
að hann væri hreinlega ekki
undir það búinn að taka þátt í
einvígi um heimsmeistaratitil-
inn og því miðuðust gerðir hans
við það að gera að engu vonir
manna um einvigi, sem skák-
áhugamenn um allan heim
hefðu beðið áfjáðir eftir.
— Minning
Ólafur
Framhald af bls. 27
is óhræddur vió mikla andstöðu.
A hinn bóginn hafói hann næmar
tilfinningar og trúmaður mikill
var hann. Þeir eru áreiðanlega
ófáir sem minnast mildi hans, þó
að ekki færi hann hátt með góð-
verk sín. Hann var hagmæltur vel
og hrókur alls fagnaóar í vina-
hópi.
Vil ég i þessum fátæklegu oró-
um mínurn leggja fyrst og fremst
áherzlu á hið nána persónulega
samband fjölskyldúnnar við Olaf.
Við kveðjum hann öll með
söknuði og biðjum ættingjum
hans Guðs blessunar. Minning
hans lifir, og er ávöxtur erfiðis
hans og tengdaföður míns við
uppbyggingu fyrirtækis þeirra
þeírn veglegur minnisvaróí.
Eálmar Olason.
Tengdafaðir minn, sem í dag er
borinn til hinztu hvílu, var sterk-
ur persónuleiki, gæfuríkur faðir,
dáður tengdapabbi og elskaður
afi.
Vorið 1970 urðu þáttaskil i lífi
okkar fjölskyldu, því að þá flutt-
umst við inn á heimili tengdaföð-
ur míns og einkadóttir hans tók
að sér heimilisstörfin.
Ólafur var dulur maður og ekki
óspar að láta tilfinningar sínar í
ljós. Þess vegna urðu ýmsir
þröskuldar á vegi okkar til að
byrja með, en þar kom að lokum,
að við kynntumst nánar og opnuð-
um hug okkar hvor fyrir öðrum.
Ég kynntist þvi, að þegar á
bjátaði, þá var hvergi jafn gott að
leita huggunar og ráða, heldur en
hjá honum. Hann var sannur vin-
ur, vina sinna og það vita þeir
bezt, sem hann þekktu.
Þegar við fluttumst til tengda-
pabba áttum við eina telpu, Láru
Nönnu, sem var ætið augnayndi
afa síns. Hún var fædd á brúð-
kaupsdegi sonar hans, Ólafs og
Hildar, og ég held að ég hafi
sjaldan séð ánægðari mann en
Ólaf Jónsson, þegar þær fréttir
bárust, að við hefðum eignast
dóttur, sem þá þegar var búið að
nefna í höfuð ömmu sinnar.
Barnabörnin hans í Úthliðinni
áttu eftir að verða þrjú, meðan
hans naut við. Það eru ekki öll
börn þeirrar hamingju aðnjót-
andi, að fá að alast upp með og
umgangast annan eins afa og „Óli
afi“ var.
Oft var það eins og samkeppni,
hver ætti að fá að fara upp og
segja „Óla afa“ að koma að borða.
Það var þá á milli eldri systkin-
anna, en sú yngsta fylgdi á eftir í
seinni tíð, og þá var alltaf sagt
„afi nammi“, „afi nammi“ og það
var ósjaldan að Óli afi átti mola að
stinga í munninn.
Ég og börnin mín, sem misst
hafa mikið, biðjum honum guðs-
blessunar og eilífs lífs.
Tengdasonur.
Ólafur Jónsson frá Sandgerði
er skyndilega látinn. Andlát hans
mun hafa komið mörgum á óvart,
svo brátt sem það bar að.
Ég þykist vita að góðvinir hans
og nánir samstarfsmenn geri ævi-
ferli hans glögg og góð skil, og
sleppi ég því að rekja þau.
Þess vill ég þó geta, að ég átti
samleið með honum í nokkrum
félögum og minnist frá þeim tím-
um glöggskyggni hans og ráðholl-
ustu. Lengst og best minnist ég
samstarfs okkar, sem var i Vél-
bátatryggingu Reykjaness og
Fiskiðjunni s.f. í Keflavík.
Löng samvinna okkar í Vélabáta-
tryggingunni styrkti betur vissu
mína um skýrleika hans og
skyldurækni og hversu auðvelt
honum var að greina milli aðal-
atriða og aukaatriða. Þar var
alvörumaðurinn að verki.
Ég kynntist einnig annarri hlið
á Ólafi. í húsi okkar hjóna var
lengi skrifstofa Vélabátatrygging-
ar Reykjaness. Oft að fundum
loknum kom hann og sat með okk-
ur yfir kaffibolla, og rætt var um
dægurmálin. Þá var hann gaman-
samur og oft léttur i máli. Góð
frásagnargáfa, góðlátleg kímni og
jafnvel litið ljóð gera þessar sam-
verustundir ógleymanlegar.
Þegar ég og kona mín minnumst
ánægju okkar með að hafa kynnst
Ólafi, látum við ekki hjá líða, að
votta börnum hans og öðrum að-
standendum samúð, um leió og
við blessum minningu hans.
Þorgr. St. Eyjólfsson.
— Portúgal
Framhald af bls. 17
Þeir þrír stjórnmálaflokkar
sem ekki hafa byltingu á stefnu-
skrá sinni hafa jafnan snúist gegn
tilraunum til að veita hernum
varanleg pólitisk völd, en þessir
flokkar eru sósíalistar, miðdemó-
kratar og Þjóðlegi demókrata-
flokkurinn. Er því talið að ákvarð-
anir þeirra varðandi áætlun hers-
ins á morgun kunni að hafa mikil
áhrif á gildi kosninganna.
Herinn hefur komið á fót bylt-
ingarráði, sem í raun er æðsta
valdastofnun landsins, og sagði
Jesuino ráðherra að ráðið mundi
gegna mun mikilvægara hlut-
verki í stjórn landsins en hin
borgaralega kjörna ríkisstjórn. Er
hann var spurður um það, hvers
vegna herinn væri betur til þess
fallinn að stjórna Portúgal en
ríkisstjórn kjörin af Portúgölum
sjálfum sagði Jesuino: „Við erum
framverðir byltingarinnar. Það
vorum við, herinn, sem gerðum
byltinguna en ekki menntamenn-
irnir i stjórnmálaflokkunum“.