Alþýðublaðið - 11.09.1958, Page 4
AlþýðnblaSLS
Fimmtudagur 11. sept. 1958
¥erlcsf|órar
Kaupfélag'ð Dagsbrún, Ólafsvík, óskar að ráða tvo
verkstjóra að hraðfrystihúsi sínu fyrir áramót.
Æskilegt að annar hvor, eða báðir. hefðu, auk freð-
fiskmatsréttinda, réttindi til að annast síldarsöltun.
Nánari upplýsingar gefa: Alexander Stefánsson
kaupfélagsstjóri Ólafsvík og Pétur E.narsson fulltrúi í
Útflutningsdeild S.Í.S. Rvík. Sími 17080. Heimasími
19034.
Góðar raf-
magnsvörur.
Hringbakarofnar
verð kr. 367.00
Rafmagnskönnur,
4 gerðir,
verð frá kr. 190,00
Sjálflagandi kaffikönnur
6 gerðir,
verð frá kr. 319,00
Hraðsuðukatlar,
3 gerðir,
verð frá 190,00
Brauðristar,
4 gerðir.
Straujárn,
6 gerðir,
verð frá kr. 150,00
Gufustraujárn,
verð kr. 298,00
Infra grill,
4 gerðir
verð frá kr. 388,00
Rafmagnsofnar,
með og án viftu,
verð frá 448,00
Suðuplötur,
ein og tvíhólfa
Eldavélar,
verð frá kr. 3615,00
Borðeldavélar,
kr. 2318,00
Hrærivélar
ECræki berin
eru komin
Blóma og grænmefismarkaðurinn
Laugaveg 63
Yitið þér
Hvað er í Málaraglugganum
Laugavegur 105, þar sem Brunabótafélagið á 2. hæð.
Brunabótafélag Sslands er nf
fEufl í eigið húsnæði
Hefur keypt 645 m2 hæðað Laugav. 105
litlar, kr. 688,00 :
Teppahreinsarar ■
kr. 747,00
Útidyraluktir, ■
margar gerðir :
Strauborð, [
sem má hækka og lækka, "
kr. 545,00 ;
Grænmetiskvarnir, -
verð frá 174,00 :
Hitapúðar, -
kr. 244,00 *
Vatnshitarar, S
verð frá kr. 133,00 E
Hárþurrkur, :
verð frá kr. 285,00 il
o. fi. o. fi. ■
Yéla- og Raf- i
fækjaverzlunin hf. |
Bankastræti 10 ■
Sími 12-852 :
BRUNABÓTAFÉLAG íslands
er nýflutt í eigið húsnæði að
Laugavegi 105. Þar hefur félag-
ið fest kaup á 645 fermetra hæð
og mun sjálft nota 300 ferm.
þess fyrst um sinn. Ailt frá ár-
inu 1917 hafði Brunabótafélag-
ið verið í leiguhúsnæði víðs
vegar í bænum, síðast í Alþýðu
húsinu um rúmlega 22 ára
skeið.
Forráðamenn Brunnbótafé-
lags íslands hafa um margra
ára skeið svipazt um eftir bygg
ingavlóð eða kaupum á hent-
ugu húsnæði. 30. des. 1955 voru
fest kaup á fyrrnefndu húsnæði
og flutt í Það 1. þ. m. Var frétta
mönnum þá boðið að skoða hið
iiýja húsnæði, sem er rúrngctt
og vistlegt á að líta- Er þa’5 von
forráðamanna félagsir.s, að
hinn bætti húsakostur veiti
starfsfólkinu aukin . og bætt
vinnuskilyrði og um leið að-
stöðu. til þess að veita viðskipta
yínum félagsns sem allra bezta
þjónustu og fyrirgreíðsiu.
VÍÐTÆK ÞJÓNUSTA.
Brunabótafélag Tslands,
sem allt til ársins 1955 fékkst
eingöngu við brunatrygging-
ar, hefur nú tekið upp ýmsar
aðrar tryggingagreinar, og
mun í æ ríkara mæli leitazt
við að veita viðskipía- og fé-
lagsmönnum'sínum sem allra
víðtækasta þjónustu og fyrir-
greiðslu. Brunabótafélagi'ð er
gagnkvæm tryggingarstofnun
og er því eign allra þeirra
mörgu, sem við það skipta.
SÁU UM FRAM,
KVÆMDIR.
Áður en flutt var í nýja hús-
næðið þurfti ýmsu að breyta
og þó öllu meira að endurnýja,
svo sem málningu, gólfdúka o.
Þ. h. Tómas Vigfússon, bygg-
ingameistari tók að sér að sjá
um framkvæmd verksins og
með honum unnu að því eftir-
taldir menn Jónas Sólmunds-
son húsgagnasmíðameistari; —
Sighvatur Bjarnason, málara-
meistari; Siguroddur Magnús-
son, rafvirkjameistari; Sighvat
ur Einarsson, pípulagningam.,
og Ólafur Ólafsson, veggfóðr-
ari.
• ' "" "■*»" f rzy'T
FRAMKVÆMDA-
STJÓRNIN.
Framkvæmdastjórn Bruna-
bótafélags íslands, sem kosin
er af fulltrúaráði félagsms, en
í því eiga sæti. fulltrúar frá öll-
um kaupstöðum landsins, nema
Reykjavík og öllum sýsluíélög-
um, skipa nú þessir memr Jón
G. Sólnes, bankafulltrúí. Akur-
eyri, formaður; Emii Jónsson,
bankastjóri, Hafnarfirðí, vara.
formaður; Jón Steingrimsson,
sýslumaður, Borgarnesi, ritari.
Varastjórn skipa: Ólafur Ragn-
ars, kaupmaðu, Siglufirði; —
Björgvin Bjarnason, Hólmavík;
Sigurður ÓIi Ólafsson. kaupm.,
Selfossi. — Forstjóri Bruna-
bótafélags íslands er Ásgeir Ól-
; afsson.
Nr. 21. 1958.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarks verð á fiski í smásölu.
Nýr þorskur, slægður:
Með haus
Hausaður
Ný ýsa, slægð:
Með haus
Hausuð
Kr. 3,15 pr. kg.
Kr. 3,80 pr. kg.
Kr. 3,60 pr. kg.
Kr. 4,30 pr. kg.
Á tímabilinu fram til 15. október n.k. má ný báta-
ýsa seljast sem hér segir hærra verði en að framan grein
ir, þar sem sérstakir erfiðleikar eru á öflun hennar:
Með haus
Hausuð
Kr. 0,50 pr. kg.
Kr. 0,60 pr. kg.
Ekki má selia fiskinn dýrari, þótt hann sé þverskor
inn í stykki.
Nýr fiskur (þorskur og ýsa):
Flakaður án þunnilda Kr. 8,50 pr. kg.
Ný lúða:
Stórlúða Kr. 14,00 pr. kg.
Stórlúða, beinlaus Kr. 16,00 pr, kg.
Smálúða, heil Kr. 9,00 pr. kg.
Smálúða, sundurskorin Kr. 11,00 pr. kg.
Saltfiskur miðað við 1. flokks fullþurrkaðan. fisk,
að frádreginni niðurgreiðslu ríkissjóðs:
Smásöluverð Kr. 9,00 pr. kg.
Verðið hielzt óbreytt þótt saltfiskurinn sé afvatn-
aður og sundurskorinn.
Fiskfarz Kr. 12,00
Reykjavík, 9. sept. 1958.
Verðlagsstjórinn.