Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. AGUST 1975 Jónas Kristjáns- son lætui' af rít- stjórastarfi Framkvæmdastjóri Vísis boðar uppsögn sína VtSIR skýrir frá þvf f gær, að Jónas Kristjánsson láti nú af starfi sem ritstjóri blaðsins, en sem kunnugt er hefur Þorsteinn Jónas Kristjánsson. Pálsson tekið við ritstjórn þess. Jónas Kristjánsson hefur verið ritstjóri Vísis frá 1966 og eru honum f tilkynningu í Vísi f gær frá Reykjaprenti h.f., útgáfufyr- irtæki blaðsins, þökkuð störf við blaðið. 1 samtali Morgunbiaðsins við framkvæmdastjóra Vfsis, Svein R. Eyjólfsson, kom f ljós að hann telur að með tilkynningu stjórnar Reykjaprents h.f. f gær hafi Jónas Kristjánsson verið rekinn frá blaðinu og segist sjálfur munu hætta þar störfum með eðlilegum uppsagnarfresti, eins og hann komst að orði. Morgunblaðið sneri sér einnig til stjórnarformanns Reykja- prents h.f., Ingimundar Sigfús- sonar, og spurði hann um málið, en hann sagði, að stjórn útgáfu- fyrirtækisins hefði staðið við alla samninga við Jónas Kristjánsson og Sveinn R. Eyjólfsson hafi sjálfur gengið frá ráðningu hins nýja ritstjóra, Þorsteins Páls- sonar, þar eð Jónas hefði gefið til kynna að hann hygðist hætta störfum við biaðið. Ingimundur sagði ennfremur að f samningi sem fyrir hafi legið, hafi verið gert ráð fyrir að Jónasi og f jórum öðrum hluthöfum yrðu greiddar 21 millj. kr. fyrir öll hlutabréf þeirra, þó með þeim fyrirvara að þeír stofnuðu ekki til samkeppni við Vfsí f blaðaútgáfu næstu 5 árin. Hinn nýi ritstjórb Þorsteinn Pálsson, vildi sem minnst um málið segja þegar Morgunblaðið sneri sér til hans f gærkvöldi en ummæli hans eru birt aftast f þessari frétt. I viðtali Mbl. við Svein R. Eyjólfsson f gærkvöldi sagði hann að stjórn Reykjaprents h.f. hefði fengið sfmskeyti frá Jónasi Kristjánssyni s.l. þriðjudagskvöld þar sem Jónas segist m.a. hafa ákveðið að verða við lögmætri áskorun aðalfundar Reykjaprents og hætta ekki sem ritstjóri Vfsis. „Ég tel“, sagði Sveinn, „að Jónas hafi verið rekinn frá Vfsi. Ég taldi að brottför Jónasar væri samningsatriði og hef lýst því yfir að ef Jónas yrði rekinn sem rit- stjóri Vísis, myndi ég ekki starfa þar lengur og við það verður staðið. Það hefur komið upp hug- mynd hjá þeim sem stóðu að því að skora á Jónas að vera áfram ritstjóri, að stofna nýtt dagblað en þar er um að ræða eigendur um 40% hlutafjár Vísis. Menn hug- leiða hvernig eigi að bregðast við þessu þegar dyrunum er lokað á Jónas þvert ofan í samþykkt aðai- fundarins." Stjórnarformaður Reykja- prents, Ingimundur Sigfússon, hafði eftirfarandi að segja um þetta mál: „Við höfum staðið við alla samninga við Jónas Kristjánsson og í þeim samningum fólst að störfum hans hjá dagblaðinu Vísi væri lokið. Til staðfestingar þessu vil ég minna á að á aðalfundi Rey.kjaprents sagði orðrétt f Framhald á bls. 27 ;. < . ....imm , Ljósmynd Mbl. Hrynjólfur I aðeins 50 metra fjarlægð frá piltinum á reiðhjólinu er 6 hæða íbúðarblokk, en þokan hylur hana vendilega eins og sjá má. Myndin var tekin f þokunni miklu f Reykjavfk f gærmorgun. ATVR: Velta fyrir sér ávís- anaviðskiptunum „ÞAÐ er unnið að þvf að leysa þetta mál varðandi ávísanirnar", sagði Einar Ölafsson útsölustjóri Reykjavíkurborg: Byggir 74 íbúð- ir fyrir aldraða VERIÐ er að ganga frá samning- um við Guðmund Þengilsson byggingameistara um byggingu 74 íbúða fyrir aldraða f 7 hæða húsi við Furugerði I, en Reykja- víkurborg stendur að bygging- unni. Guðmundur Þengilsson átti lægsta tilboð í húsið, tæplega 300 millj. kr. Að sögn Jóns G. Tómas- sonar er hér um að ræða byggingu 74 íbúða 30—50 fm, en þær eru ýmist ætlaðar fyrir einstaklinga eða hjón. Aætlað er að hefja verkið í haust og ljúka þvf á tveimur árum. Afengisverzlunarinnar i Lindar- götu, en eins og sagt hefur verið frá í fréttum vildu útsölustjórar ÁTVR hætta að taka við ávfsun- um sem greiðslu fyrir vín og höfðu sett upp auglýsingu þar að lútandi, en málinu var slegið á frest. „Við höfum rætt þetta mál við ráðuneytið“, sagði Einar,“ og þeir lofuðu að tala við viðskiptaráð- herra um málið, Við útsölu- stjórarnir erum ábyrgir fyrir þessum ávfsunum sem reynast innistæðulausar, en nú er unnið að lausn þessa máls“. „Þetta er f athugun hjá okkur og ráðuneytinu“, sagði Ragnar Jónsson skrifstofustjóri ÁTVR í samtali við Mbl., „það er óvfst hvað verður gert en þetta er vandamál í dag.“ Tveir sækja um Nesprestakall TVEIR prestar sækja um Nes- prestakall, en annað prestsem- bættið þar hefur verið laust til umsóknar. Umsækjendur eru séra örn Friðriksson, Skútu- stöðum, Skútustaðasókn og séra Guðmundur Óskar Ölafsson, Frfkirkju Hafnarfjarðar. Nafn manns- ins sem lézt MAÐURINN sem lézt í vinnuslys- inu við Kleppsveg í fyrradag hét Þorbjörn Jónsson, Skipasundi 42, Þorbjörn var 65 ára gamall, fæddur 29. desember 1909. Hann lætur eftir sig uppkomin börn. Orðrómur kveðinn niður VEGNA þráláts orðróms um að maður nokkur hafi verið tekinn á Keflavfkurflugvelli fyrir nokkru með mikið af gjaldeyri, sem hann ætlaði að koma ólöglega inn i landið, hafði Þorgeir Þorgeirsson lögreglustjóri á Keflavíkurflug- velli samband við Morgunblaðið og bað um að eftirfarandi athuga- semd yrði komin á framfæri: „Af gefnu tilefni vegna ítrekaðra fyr- irspurna um þann orðróm að lög- gæzla eða tollgæzla á Keflavíkur- flugvelli hafi haft afskipti af fslenzkum ferðamanni við komu til Iandsins um Keflavíkurflug- völl vegna ólöglegs innflutnings á erlendum gjaldeyri til landsins, þykir rétt að taka fram, að atvik það, er fyrrgreindur orðrómur fjallar um, hefur ekki átt sér stað á Keflavíkurflugvelli." Ágreinkigur milli viimuveitenda og ASÍ um túlkun samninga Flugleiðir neita að borga — Svik, segja flugfreyjur RISIN er deila milli Flugleiða og Flugfreyjufélagsins vegna túlk- Flókadalsá Um 300 laxar eru nú komnir á land úr Flóku. Að sögn Ingvars Ingvarssonar á Múlastöðum hefur veiðin verið sæmileg að undanförnu, en laxinn frekar smár eða 4—8 pund. Mikil laxa- gengd er í ánni, en þar má veiða á 3 stengur. Breiðdalsá Birgir Einarsson á Staðarborg sagði að frekar tregur afli væri þar eystra. Ekki væru komnir nema 50 laxar úr ánni, en veiða mætti á 5 stengur. Hins vegar hafa veiðimenn séð talsvert af laxi og gera þeir sér vonir um að veiðin eigi eftir að glæðast. Silungsveiði hefur verið annað veifið allgóð neðarlega í ánni. Vestdalsá Að sögn Guðmundar Ásgeirs- sonar hjá stangveiðifélaginu Vopna, sem hefur Vestdalsá á leigu eru 250 laxar komnir þar á land, en veiði í ánni hófst ekki fyrr en 10. júlí og er veitt á 2VS stöng. Þeir sem hafa verið við veiði I ánni hafa allir fengið eins og þeir mega veiða eða 10 laxa á 3 dögum. Vestdalsá virðist vera vaxandi sem lax- veiðiá, en þegar Vopni tók ána á leigu 1968 fengust aðeins 46 laxar úr henni.Meðalþyngd lax- ins, sem fæst úr ánni, var 8,8 pund í fyrra og er jafnvel heldur meiri nú. unar á atriði þvf í launasamningi sem fjallar um verðbætur. Flug- freyjur telja að þær eigi að fá þá 5300 kr. kauphækkun sem ASl samdi um að kæmi til 13. júnf s.l. og einnig þær 2100 kr„ sem koma til hækkunar 1. okt. n.k. Alþýðusamband Islands hefur sömu skoðun á málinu og flug- freyjur ' en Vinnuveitenda- samband Islands og Flugleiðir telja að félaginu beri ekki að greiða flugfreyjum þessa hækkun. Morgunblaðið hafði í gær samband við formann Flug- freyjufélags Islands, skrifstofu Flugleiða og skrifstofu ASl til þess að leita frétta af þessu máli, en flugfreyjur héldu f fyrrakvöld fund til þess að ræða þessi mál. Erla Hatlemark formaður Flug- freyjufélagsins sagði: „Málið er það, að í samningaviðræðum okkar við vinnuveitendur alveg frá því I nóv. s.l. og til vors var alltaf gengið út frá því og rætt um að það sem ASl kynni að semja um aukalega komi okkur til tekna jafnhliða öðrum aðildarfélögum ASl. Okkar samningar voru alltaf sjálfstæðir, því að þeir voru lausir á allt öðrum forsendum en aðrir samningar og því var sett eftir- farandi ákvæði inn f okkar samn- ing: „Verði aðildárfélögum ASl greiddar verðlagsbætur sam- kvæmt lögum eða heildarsamn- ingum eftir 1. júní 1975, skal flug- freyjum greitt eftir sömu regl- um.“ Nú höfum við hins vegar fengið þau boð frá Flugleiðum að við fáum ekki greiddar þessar 5300 kr. og 2100 kr., sem um er að ræða og við teljum að falli undir þetta ákvæði. Flugleiðamenn hafa nefnt Félagsdóm til að fjalla um þetta mál og það er f sjálfu sér ekkert að þvf, en samningamenn Flugleiða tóku skýrt fram þegar við vorum að semja við þá að þessar væntanlegu bætur myndu fylgja samkvæmt samningum ASl. Við höfum kynnt flugfreyj- um þetta mál á fundi en frekari ákvarðana er að vænta í þessu Framhald á bls. 27 6000 laxar í Kolla- fjarðarstöðina UM HÁDEGISBILIÐ f gær voru rösklega 6000 laxar komnir f laxa- eldisstöðina f Kollafirði og er hér um nýtt met að ræða, og vafalaust á fjöldi laxa enn eftir að ganga inn f stöðina. Áður hafa mest komið 4200 laxar f stöðina, árið 1970. Þór Guðjónsson veiðimálastjóri sagði f samtali við Morgunblaðið f gær, að þeir hjá Veiðimálastofn- uninni væru einstaklega ánægðir með þessa miklu gengd og til samanburðar mætti geta þess, að á sfðasta ári gengu aðeins tæplega 3000 laxar inn f stöðina. Ennfremur sagði Þór, að I fyrra hefði miklu af sjógönguseiðum verið sleppt, meðal annars vegna þess að verið er að reyna ný fisk- merki og til þess hefur fengizt styrkur frá Sameinuðu þjóðun- um. Laxinn hefði gengið mjög jafnt í suraar, þetta 100—400 lax- ar á dag. Þeir hefðu þegar endur- heimt 12% af einum hópi sjó- gönguseiða, sem þeir slepptu, og ef laxinn héldi áfram að ganga gætu þeir hæglega komist f 15%, en það er bezti árangur fram til þessa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.