Morgunblaðið - 14.10.1975, Page 5

Morgunblaðið - 14.10.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÖBER 1975 5 Kjarvalsstaðir: Uppselt hjá Ragnari Páli 1500 gestir um helgina RAGNAR Páll listmálari opnaði málverkasýningu að Kjarvalsstöð- um s.l. laugardag þar sem hann sýnir bæði myndir sem eru í einkaeign og myndir sem eru til sölu. 38 myndir voru til sölu en á fyrstu klukkutimum sýning- arinnar seldi hann allar myndirnar. 1500 manns sáu sýningu Ragnars Páls um helgina, en henni lýkur um næstu helgi. Ragnar Páll var fyrsti listamaður- inn sem sýningarráð Kjarvals- staða neitaði um afnot af sölum hússins á sinum tima. Eftir þá neitun hélt hann sýningu í Boga- salnum og seldust öll málverkin þar fyrsta daginn. I fréttatilkynn- ingu frá Ragnari Páli um sýningu hans í Kjarvalsstöðum segir: „A þessari sýningu, sem er sjötta einkasýning Ragnars Páls, eru 75 verk og er rúmur helmingur þeirra til sölu, en hitt eru verk í einkaeign og hafa fæst þeirra verið sýnd áður. Þar á meðal eru 10 portrait, meðal annars af dr. Kristni Guðmunds- syni fyrrverandi ambassador og Sigurliða Kristjánssyni kaup- manni. Til sölu eru 20 olíumál- verk, 13 vatnslitamyndir og 5 pastelmyndir og er verð sölu- myndanna frá 35 til 175 þús. kr. Auk mannamyndanna eru á sýn- ingunni landslagsmálverk einkum frá Vestfjörðum, Snæ- fellsnesi, Þingvöllum, Land- mannalaugum og Siglufirði. Einnig eru á sýningunni nokkrar blómamyndir, húsamyndir og bátamyndir. Sýning Ragnars Páls er opin daglega kl. 16—22 til sunnudags- kvölds 19. október og þar fær almenningur að kveða upp sinn dóm um réttmæti ákvörðunar sýningarráðs Kjarvalsstaða, sem að meiri hluta var skipað lista- mönnum, en það var núverandi hússtjórn, sem leyfði Ragnari Páli að sýna að Kjarvalsstöðum. Fyrsta skóflustungan tekin að Menntaskól- anum á Egilsstöðum Egilsstöðum, 13. október 1 DAG kom menntamálaráðherra til Egilsstaða og tók fyrstu skóflu- stungu að tilvonandi mennta- skóla. Þær framkvæmdir, sem eru að hefjast eru upphaf byggingar Menntaskólans á Egilsstöðum. t fyrsta áfanga er annars vegar mötuneyti fyrir allan skólann og ýmis sameiginleg aðstaða. Hins vegar er heimavist fyrir 70 nem- endur. Áætlað er að ljúka í ár botn- plötu fyrir mötuneytisálmuna, sem er 758 fermetrar að grunn- fleti, en heildarflatarmál hússins, sem er á tveimur hæðum, er 1.548 fermetrar og 6.764 rúmmetrar. I seinni áföngum eru áætlaðar heimavistir fyrir fleiri nemendur, kennsluhúsnæði, þar á meðal íþróttahús og starfsmannaíbúðir og hefur verið gerð heildaráætlun um uppbyggingu skólans. Reiknað er með í framtiðinni, að skólinn starfi með fjölbrauta- sniði, þótt byrjað verði á hefð- Vilhjálmur HJálmarsson mennta- málaráðherra tekur fyrstu skóflu- stunguna að menntaskólanum á Egilsstöðum. bundnu menntaskólanámi. Um sjón með undirbúningi og hönnur hefur annazt byggingardeilt menntamálaráðuneytisins o{ byggingarnefnd skólans, sem eru: Þórður Benediktsson, Þor steinn Sveinsson og Hjörleifu Guttormsson, sem er formaðu nefndarinnar. Framkvæm verksins er í höndum Fran kvæmdadeildar Innkaupastofi unar ríkisins. Hönnun verksir annast Arkitektastofan s.l Ormar Þór Guðmundsson og öri ólfur Hall. Sveinn Þórarinssc verkfræðingur, Verkfræðistol Gúðmundar G. Þórarinssona Verkfræðistofa Sigurðar Tho oddsen s.f. og Verkfræðistofa Rafteikning s.f. Arið 1965 voru sett lög, sei heimiluðu stofnun menntaskóla Austurlandi. 1971 ákvað Gylfi 1 Gíslason að menntaskólinn skylt verða á Egilsstöðum. 1972 tók t starfa undirbúningsnefnd, sem voru: Lúðvík Ingvarsson, Vi hjálmur Sigurbjörnsson o Sigurður Blöndal. 1973 tók núve apdi byggingarnefnd til starfa. Vilhjálmur Hjálmarsso menntamálaráðherra sagði vi athöfnina í dag er hann tó skóflustunguna: „Austfirðinga binda miklar vonir við væntai legan menntaskóla sinn. Með ti komu hans víkkar svið skólamál í fjórðungnum og honum er ætla að treysta tengslin með verknáir og bóknámi. Ákvæði um mennti skóla á Austurlandi voru fyr; sett í lög 1965. Skólanum vi ákveðinn staður á Egilsstöðui 1971. Undirbúningsnefnd skipu sama ár og byggingarnefnd 197 Gerð hefur verið heildaráætlu um uppbyggingu skólans i stóru dráttum og allt er tilbúið að hef. fyrsta verkþáttinn við fyrs húsið. Heill fylgi byggingu ( siðar starfi Menntaskólans Egilsstöðum." — Steinþór. Ragnar Páll. I fjarska á stóru myndinni er portrett af dr. Kristni Guðmundssyni fyrrverandi utanrfkisráðherra. með hið GLÆSILEGA úrval Amor teen 1111 Amor teen 1112 Amor teen 1115 Amor teen V Butterfly FT Butterfly V Fabienne Fabienne Slip Amourette click Jolly cotton Teeny flip Teeny f lip Slip Doreen Poesie decor V Poesie extra soft Jane Set Pony H Sloggi mini Tríumph AGUST ARMANIM hf. UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN - sundaborg - reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.