Morgunblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKT0BER 1975 11 Framleiðslumáti Einingahús >"•*. Endurbættur r* • i JL-jBu byggingarmáti Hefðbundinn byggingarmáti 1967 nr. 5 1971 Ar Ármann Pétursson for- maður Landssambands slökkviliðsmanna DAGANA 4. og 5. okt. var haldið að hótel Loftleiðum 3. þing Landssambands slökkviliðs- manna. Þingið var sett af for- manni þess Guðmundi Haralds- syni. Hann minntist í upphafi andláts Þórhalls Dan Kristjáns- sonar eins af forustumönnum sambandsins frá upphafi. Hann greindi frá þeirri samræmingu er gerð var á kaupi lausráðinna slökkviliðsmanna, en ósamræmi i launum þeirra var mjög mikið áður. Þá gat hann þess að á þessu þingi lægi fyrir umsóknir frá fimm félögum slökkviliðsmanna um inngöngu í sambandið. Gestir þingsins voru Birgir Isl. Gunnars- son borgarstj., Magnús E. Guð- jónsson framkvæmdastj., Bárður Daníelsson brunamálastj., Rúnar Bjarnason slökkviliðstj., Guð- mundur Guðmundsson slökkvi- liðstj. og fl. Fluttu þeir ávörp og erindi á þinginu. Á þinginu var fjallað um launa- mál. Mikill tími fór i umræður um heilbrigðis- og öryggismál og ósk- að eftir því að yfirvöld brunamála Framhald á bls. 27 ~e4CZZZZZíZ!ZZZZZZZZ!ZZZZZZZ^ /rvMBJMISI^ SEBRA KÚLUPENNAR NR.44 Agætir — Nýtískulegir — Á hagstæöu verði Heildverzlun Agnar K. Hreinsson hf. PÓSTHÓLF 654 — SÍMI: 16382 MEÐALBREYTING A TfMAÞÖRF VIÐ BYGGINGU FJÖL- BÝLISHÖSA í SVÍÞJðÐ áRIN 1950 - 1971 Heildartími klst/m3 r Haraldur Asgeirsson: Karp um byggingannál hæða blokkbyggingu) reiknast tímaþörfin í ár milli 7'A og 8 klst/ rúmmetra. (Myndin er nr. 7 i Rapporti 15, 1975 frá Byggforskningen Stokkhólmi). Mér finnst líka ástæða til að benda á mynd nr. 5 i tilvitnaðri skýrslu. Hún sýnir að árið 1967 voru ný einingahús aðeins 10% af öllum nýbyggðum fjölbýlishús- um í Svíþjóð, en þessi tala jókst upp á 15% 1971. Á sama tíma jókst hlutur endurbættra bygg- ingarmáta úr 55% i 75%, og hefir það að líkum haft meiri áhrif til timasparnaðar en sjálf aukning einingaframleiðslunnar. Hefð- bundinn byggingarmáti hefir á sama tíma minnkað úr 35% niður í 10%. Þótt mér sé það ljóst, að fleira en rannsóknir hafi stuðlað að árangri sænska byggingar- iðnaðarins, þá fer ekki milli mála, að Svíar hafa viðurkennt mikil- vægi rannsóknastarfseminnar í byggingariðnaði, enda verja þeir 0,6% af allri mannvirkjagerð tií rannsókna í þeirri grein. Ég hef líka þá trú, að íslenskur byggingariðnaður sé nú að vakna til vitundar um það, að það er eitt mesta hagsmunamál atvinnu- greinarinnar, að rannsóknastarf- semin verði sem öflugust. Öflug rannsóknastarfsemi verður svo jafnframt samfélginu til hagsbóta með því að hún magnar gildi at- vinnugreinarinnar, sem vissulega er ein hin mikilvægasta í efna- hagsuppbyggingu þess. Reykjavfk, 1975-10-09, Haraldur Asgeirsson. SKIPTING BYGGINGARMATA FJÖLBÝLISHÚSA í SVÍÞJÖÐ ÁRIN 1967 og 1971 ÞAÐ sætir undrun að fram- kvæmdastjóri í verktakastétt skuli vera sleginn þeirri blindu, að geta ekki lesið óbrenglað töflu- færðar tölur úr opinberum skýrsl- um, bara vegna þess að niðurstöð- urnar passa ekki við frumstæðar eigin hugmyndir hans. Enn verra er það þó, þegar hann sjálfur gefur upp opinberar tölur og hag- ræðir þeim þá til þess að styrkja eigið hugarfóstur. Arni Brynjólfsson deilir á mig og byggingarrannsóknir í grein f Morgunblaðinu 7. þ.m. og bendir þar á að ærið fé renni til bygg- ingarrannsókna og tíundar: „Rekstrarkostnaður Rann- sóknastofnunar byggingariðn- aðarins 42,7 millj. kr., tekjur 8,5 millj. kr. Til viðbótar 26,8 millj. kr. úr byggingarsjóði." Arni lætur ókunnugum lesanda aðeins eftir að leggja saman töl- urnar. Tölurnar eru úr fjárlögum fyrir árið 1975, en augljós stað- reynd er að Árni gat ekki gripið til þeirra nema hann fengi sam- tímis vitneskju um það, að tekju- liðurinn 8,5 millj. kr. er frádrátt- ar- en ekki viðbótarliður, og að byggingarsjóðsframlagið 26,8 millj. kr. rennur til nýbyggingar við Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins — álmu sem hætta varð við að byggja vegna fjár- þrenginga árið 1968 —, en húsnæðisvandræði hafa hamlað vexti stofnunarinnar síðan. Rekstursfé til Rannsóknastofn- unar byggingariðnaðarins er þannig áætlað 34,2 millj. kr. en ekki 78 millj. kr. eins og Árni lætur að liggja. Nú sinnir Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins ýmiss konar öðrum störfum en beinum rann- sóknarstörfum, svo sem eftirliti, vinnu við að leiða f ljós hönnunar- forsendur og við beinan undir- búning mannvirkja, ekki síst f vegagerð. Þess vegna eru raun- verulegar rannsóknir, skv. skil- greiningum OECD innan við 30% stárfrækslunnar. Byggingarrannsóknir við Rann- sóknastofnun byggingariðnaðar- ins eru þannig af stærðargráð- unni tlu millj. króna. Ég legg gjarnan áherslu á fram- anskráða skýringu, því mjög al- gengt er, að ruglað sé saman und- irbúnings- og eftirlitskostnaði og rannsóknakostnaði. Það getur líka verið hagstætt fyrir stíl- glaðan oddamann í verktakahópi, að vita hvað f hugtakinu rannsóknir felst. Því verður víst ekki haggað að byggingarefni hefir hækkað um 200% á stuttum tíma meðan launatekjur hækkuðu um 100%, og að þetta hafi áhrif á lífsafkomu manna. Hitt er lfka staðreynd, að við byggjum aðeins átta íbúðir á 1000 fbúa og þurfum að auka framleiðsluna verulega. Ekki fer heldur á milli mála, að vinnu- framlag okkar til þess að koma upp meðalaíbúð er tiltölulega hátt — jafnvel þótt eigið vinnu- framlag íbúðareigenda, sem er langt mest hér á landi, sé ekki talið með. Ásakanir um óheiðarlegan og flausturskenndan málflutning eru hvimleiðar, sérstaklega þegar höfundi verður á að breyta tölum, sem gera málflutning hans senni- legri. Upplýsingar mínar voru, svo sem tilvitnað var, byggður á skýrslu frá Nordforsk og frá Rannsóknaráði, en báðar þessar stofnanir hafa aflað upplýs- inganna eftir stöðluðum reglum Efnahags- og samvinnustofnunar- innar OECD. Skv. þessum reglum er það orðin venja, að skrá heildarframlög til rannsókna sem hundraðshluta af þjóðartekjum, en framlög til rannsókna í ein- stökum atvinnugreinum sem hundraðshluta af virðisviðauka f greininni. Skv. skýrslu Rann- sóknaráðs var þessi hundraðs- hluti árið 1971 f byggingariðnaði 0,07% (ekki 0,7 + eins og fram kemur hjá Árna), en var þá 16-18 sinnum hærri í landbúnaði og sjávarútvegi. Ég hefi um áratugaskeið predik- að þá kenningu, að stóraukin framlög til rannsókna myndu verða þjóðinni til hagsældar, og hrekk þvf ekki við þótt skoðanir mínar rekist nú á við annarra álit. Ég undrast aðeins hversu lengi við getum lifað í þeirri sjálfs- blekkingu að halda að atvinnu- vegir okkar hlíti öðrum lögmálum en atvinnuvegir annarra. Tilgangur minn með þessum skrifum er vissulega ekki sá að komast í hnútukast eða karp við framámenn í byggingariðnað- inum. Þvert á móti sækist ég eftir náinni samstöðu við þá og tel aug- ljóst að við eigum margvislega sameiginlegra hagsmuna að gæta. Ástæða mín er einfaldlega hin sama og tilgangurinn með þróun- arskýrslu Rannsóknaráðs, að hvetja aðila byggingariðnaðarins til yfirvegunar og umræðna um stöðu starfseminnar. Tel ég mig hafa reynt að birta sjónarmið mín á rökstuddan hátt. Því er gjarnan haldið fram, að Sviar geti lagt mikið í rannsóknir vegna þess að þeir séu svo rikir. Að hinu má líka færa rök, að Svíar eru ríkir af því þeir leggja mikið f rannsóknir (1973 1,7% af GNF, ísland 0,5%. Á myndinni, sem ég læt fylgja hér með, sést hvaða tímasparn- aður hefir orðið hjá Svíum undan- farin 20 ár við byggingu fjölbýlis- húsa. Við gætum ekki náð svona miklum árangri í ísl. byggingar- iðnaði, því viðfangsefnin eru hér of smá. Hálfur þessi árangur væri þó fyrir okkur mikill ávinningur, því í nýja vísitöluhúsinu (3ja 100 —, 90 _ 80 70 _ 60 _ 50 - 40 30 — 20 - 10 Mynd TOYOTA MODEL — 5000 2 Overlock saumar . 2 Teygjusaumar Beinn SAUMUR Zig-Zag Hraðstopp (3ja þrepa zig zag) Blindfaldur Sjálfvirkur hnappagatasaumur Faldsaumur Tolufótur Utsaumur Skeljasaumur Fjólfareytt úrval fóta og stýringar fylgja vélinni. VERÐ KR. 37.200 TOYOTA — VARAHLUTAUMBOÐIÐ H/F. ÁRMÚLA 23, REYKJAVÍK. SIMI: 81733 — 31226.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.