Morgunblaðið - 14.10.1975, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÖBER 1975
Eldur á barnasýn-
ingu Þjóðleikhússins
A blaðamannafundi með framkvæmdastjóra Amnesty International Martin Ennals. Frð vinstri ritari
tslandsdeildar Jenna Lfsa Þorsteinsdóttir, Martin Ennals, Einar Karl Haraldsson varaformaður AI
hér og Ingi Karl Jóhannsson gjaldkeri.
ÞEGAR frumsýning barnaleik-
ritsins „Milli himins og jarðar'*
hafði hafizt f Þjóðleikhússkjallar-
anum klukkan 11 á sunnudags-
morgun, brauzt skyndilega út
eldur f eldhúsi leikhússins og
varð þar allt alelda á svipstundu.
Fjöldi barna var f kjallaranum en
leiksýningin fór fram á sviðinu
þar. Er eldsins varð vart greip
Sveinn R. Einarsson þjóðleik-
Markaðsaðstæður og verndunar-
sjónarmið þáttur í fiskverðsákvörðun
Fiskverðsákvörðun sú, sem
nýlega var tekin, felur í
sér nokkrar breytingar á
verðhlutfaili milli fiskteg-
unda. Miðað við ársaflann
1974 er meðaltalshækkun
fiskverðs um 4,5%, en fisk-
tegundir hækka þó mjög
misjafnlega og einnig teg-
undir eftir stærðum og
sumar jafnvel lækka í
verði. Ráða þar bæði
markaðsaðstæður svo og
verndunarsjónarmið.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér fól fiskverðs-
ákvörðunin í sér nokkuð miklar
verðbreytingar milli tegunda og
er þar sérstaklega tekið tillit til
markaðsins og aðstæðna á honum,
svo og að nokkru verndunar-
sjónarmiða. Ákvörðunin fól t.d. í
sér að verð á stórum þorski var
hækkað, en verð á millistærðar og
smáþorski var lækkað. Þá er
verðið á ufsanum lækkað, þar sem
hann er ekki jafnverðmætur og
aðrar fisktegundir og hið sama er
að segja um lönguna.
Miðað við ársmeðaltal er
hækkunin á fiskverðinu um 4,5%.
Verðbreytingarnar fara þó' eftir
því, hvernig aflabrögð eru eftir
tegundum, því að þorskur hækkar
um 6 til 7%, ýsan um 4 til 5%,
steinbýtur um 3 til 4%, karfi um 2
til 3% og ufsinn lækkar um 6%
og langan um 13 til 14%. Annar
fiskur hækkar um 4%. Miðað við
ársaflann 1974 er þetta talin vera
að meðaltali um 4,5% hækkun en
miðað við haustaflann í fyrra á
því tímabili, sem verðlagningin
gildir fyrir, október til desember,
þá felur þessi breyting í sér 2.5 til
3% hækkun — vegna þess að ufs-
inn er haustfiskur og auk þess er
stórþorskur ekki jafn mikilvægur
í aflanum á haustin.
Það er talið að sú verðhækkun,
sem þessi ákvörðun veldur fyrir
frystihúsin sé á bilinu 40 til 50
milljónir króna fyrir þessa þrjá
mánuði. Hins vegar ætti hráefnis-
kostnaður saltfiskverkunar varla
að hækka mikið fyrir þessa
mánuði og gæti hann jafnvel
lækkað, vegna þess hve ufsinn
vegur mikið í þeirri framleiðslu.
Samkomulagið um fiskverðið
hyggðist á því, að ríkisstjórnin
lýsti því yfir að hún myndi beita
sér fyrir ráðstöfunum, sem nauð-
synlegar kynnu að reynast til þess
að verðjöfnunarsjóður fisk-
iðnaðarins gæti staðið við þær
skuldbindingar, sem felast í við-
miðunarverði og greiðslureglum,
sem stjórn verðjöfnunarsjóðsins
samþykkti fyrir þetta tímabil. Sú
samþykkt sem gerð var í stjórn
verðjöfnunarsjóðsins fól í sér að
ábyrgjast áfram sama verð fyrir
einstakar freðfisktegundir, sem
áður höfðu gilt, að viðbættum
þessum kostnaðarauka 40 til 50
milljónum króna. I raun og veru
snýst ábyrgðin, sem þarna var
gefin fyrst og fremst um það, sem
fyrir var, þvf að á það skorti að
sjóðurinn gæti undir því risið án
slíkrar ábyrgðar. Nemur það vafa-
laust 250 til 300 milljónum króna
og er það aðalatriðið í málinu.
Þessar tölur, 250 til 300 milljón-
ir, eru miðaðar við núverandi
markaðsverð og gengi. Hækki
hins vegar verðið á dollaranum
eða markaðsverðið á fiskinum, þá
minnkar greiðslukvöðin á sjóðn-
um. Því er ekki unnt að tala um
ríkisstyrki i þessu sambandi,
heldur lýsir rfkisstjórnin því
eingöngu yfir að hún ábyrgist
greiðslugetu sjóðsins með einum
hætti eða öðrum.
hússstjóri inn f og tókst honum að
tæma húsið á skömmum tfma án
þess að nokkur hræðsla gripi um
sig. Að sögn Svans Agústssonar,
eftirlitsmanns Þjóðleikhússins,
var mikil guðsmildi, að svo vel
gekk að rýma húsið.
Eldurinn kviknaði í fitupotti í
eldhúsi mötuneytis leikhússins.
Svanur hafði skömmu áður kveikt
undir pottinum til þess að hann
væri tilbúinn til notkunar fyrir
kokka hússins. Á pottinum er sér-
stakur hitastillir, sem koma á i
veg fyrir að fitan í honum fari
upp fyrir 50 gráðu hita. Þessi
hitastillir bilaði og sprakk pott-
urinn.
Mikinn reyk lagði þegar um
húsið og barst með loftrásum upp
um húsið. Strax og eldsins varð
vart greip Svanur Ágústsson
slökkvitæki og tæmdi úr þremur
og tókst honum að mestu að kæfa
eldinn í eldhúsinu, en hann var
þá kominn inn f loftræstikerfið.
Tókst honum einnig að ná pott-
inum, sem eldsvoðanum olli, úr
sambandi áður en hann varð að
flýja eldhúsið.
Skemmdir af reyk urðu talsvert
miklar og er mötuneyti hússins
óstarfhæft og verður í viku til 10
daga að því er áætlað er. Þá er
loftræstikerfið, sem eingöhgu er
til að hreinsa loft úr eldhúsinu,
mikið skemmt, en talsverðan tíma
mun taka að gera við það og
kvaðst Svanur búast við því að
skipta þyrfti um stokka, sem
ganga upp um allt húsið. Stefnt er
að því að koma Þjóðleikhússkjall-
aranum í það lag, að um næstu
helgi verði unnt að halda þar
dansleik.
Barizt fyrir afnámi pynd-
inga á allsherjarþingi S.Þ.
Framkvæmdastjóri AI leitar liðsinnis á Islandi
FRAMKVÆMDASTJÓRI Amn-
esty International, Martin Enn-
als, hefur dvalið á tslandi á leið
sinni á allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna, þar sem hann verður
nú í þriðja sinn til að vinna að
verkefnum AI samtakanna, sem
beita sér fyrir verndun mann-
réttinda. Hér hefur hann hitt full-
trúa úr sendinefnd tslands, full-
trúa utanrfkisráðuneytisins og
mun hafa tal af formanni fsl.
sendinefndarinnar, er hann kem-
ur vestur, til að vekja athygli
þeirra á ýmsum málum, þar sem
tsland kemur við sögu eða ætti að
koma við sögu. Eitt er það, að
tsland hefur ekki ennþá löggilt
tvær samþykktir um túlkun og
framkvæmd á greinum mannrétt-
indayfirlýsingarinnar, sem þó
voru samþykktar fyrir mörgum
árum, en þær fjalla um pólitfsk
réttingi og um félagsleg og efna-
hagsleg mannréttindi. — Þetta
skiptir máli, sagði hann við
fréttamenn, þvf þegar 35 rfki
hafa löggilt þessar samþykktir,
þá verður hægt að hef jast handa,
kalla saman 18 manna ráð og
vinna að þvf að þessi ákveðna
túlkun nái fram að ganga, en að-
eins 33 rfki hafa enn gert það.
Með því að löggilda samþykktina
gætu tslendingar orðið til þess að
þær kæmust f framkvæmd og
einnig átt sinn þátt í framhald-
inu. Lagði framkvæmdastjórinn
áherzlu á að smáþjóðirnar hefðu
þarna miklu hlutverki að gegna,
einkum ef það eru þjóðir sem
raunverulega geta og ætla að
framfylgja viðkomandi mannrétt-
indum.
Ennals hefur verið fram-
kvæmdastjóri Amnesty Inter-
national frá 1968. Hann
er sérfræðingur í al-
þjóðalögum og starfaði áður
bæði hjá Unesco og Mann-
réttindanefndinni.
Aðalerindi
hans til Sameinuðu 'þjóðanna nú
er að fylgja eftir samþykkt um
afnám pyndinga sem lengi hefur
verið unnið að og sem nú loks er á
dagkrá allsherjarþingsins. Var
texti samþykktarinnar samin á al-
þjóðlegu þingi í Genf 1974.
I því máli, sem rætt verður á
Allsherjarþinginu, eru m.a. siða-
reglur fyrir lækna, þvf fyrr eða
síðar koma læknar við sögu, þar
sem fangar hafa verið pyndaðir.
Og svipaðar alþjóðlegar siða-
reglur fyrir lögreglumenn eru í
undirbúningi. Hafa lækna-
reglurnar verið staðfestar af Al-
þjóða heilbrigðisstofnuninni og
alþjóðasamtökum lækna. Kvaðst
Ennals gera sér vonir um að þessi
samþykkt færi í gegn á þessu alls-
herjarþingi og fer fram á stuðn-
ing Islands. En þó yrði enn Iangt í
land, því þjóðirnar þurfa að stað-
festa samþykktina. Hann kvað
mikilvægt að gera þessu fólki
skiljanlegt og fá það til að viður-
kenna að það sé rangt að pynda
fanga og að eigi að ákæra fyrir
það.
Annað baráttumál Amnesty
International hjá Sameinuðu
þjóðunum er að reyna að fá sér-
stakar reglur viðurkenndar um
tilkynningaskyldu ef ákvæði
mannréttindayfirlýsingarinnar
eru brotin.
Þriðja málið, sem samtökin eru
að berjast fyrir, en sem ekki er
tekið fyrir á þessu allsherjar-
þingi, er afnám dauðarefsingar,
sem enn er við lýði f ýmsum
myndum í fjölmörgum löndum.
— Aftökurnar á Spáni vöktu al-
menn mótmæli, sagði Ennals.
Ástæðan var ekki aftökurnar
sjálfar, heldur að þær voru af
stjórnmálaástæðum. I fyrra voru
62 menn leiddir úr fangelsum í
Eþíópíu og skotnir. Þvi var mót-
mælt en ekki lengi. 1 Sovétríkj-
unum er dauðarefsing fram-
kvæmd, án þess að það veki mót-
mæli. Þar er það venjulega sagt
gert af efnahagslegum ástæðum,
menn er.u sagðir teknir af lifi
vegna smygls eða brota á gjald-
eyrismeðferð. 1 Uganda og Iran
eru aftökur stjórnunartæki og í
Suður-Ameriku, eins og í Chile,
hverfa jnenn bara sporlaust,
vegna þess að dauðarefsing er
ekki sögð við lýði. Idi Amin
Ugandaforseti réðst harkalega að
Amnesty International í ræðu
sinni á Allsherjarþinginu, kallaði
þá ræningja og innrásarmenn, en
bauð samtökunum á eftir að koma
til Uganda. Engin formleg boð
hafa þó borist um slikt, sagði
framkvæmdastjórinn.
Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Islenzku þátttakendurnir Friðrik Ölafsson og Björn Þorsteinsson sitja
við skákborðið. Fyrir aftan standa frá vinstri: Guðbjartur Guðmunds-
son aðstoðarskákstjóri, Einar S. Einarsson gjaldkeri Sl, Þráinn Guð-
mundsson, varaformaður St, Ólafur Orrason, úr fjáröflunarnefnd,
Guðfinnur Kjartansson, formaður TR, Guðmundur Sigurjónsson, stór-
meistari, sem teflir á svæðamóti f Búlgarfu, Gunnar Gunnarsson,
formaður St, og Jón K. Pálsson aðstoðarskákstjóri.
Ýmsar fjáröflunarleiðir í
gangi vegna svæðamótsins
„FJARHAGUR Skáksambandins
er þvf miður ekki svo blómlegur
að hann nægi til að standa straum
af kostnaði við alþjóða svæðamót-
ið og þvf verðum við að hafa úti
allar klær til fjáröflunar á næst-
unni,“ sagði Einar S. Einarsson
gjaldkeri Skáksambands tslands
á blaðamannafundi f gær, þar
sem kynnt var svæðamótið sem
hefst f Reykjavfk um næstu helgi.
Einar gerði grein fyrir helstu
tekjuöflunarleiðum. I fyrsta lagi
hefur verið í gangið fjársöfnun
sem gengið hefur ágætlega. I
öoru lagi koma til auglýs-
ingatekjur af veglegri leikskrá
sem jafnframt er 50 ára afmælis-
rit Skáksambandsins. I þriðja
lagi er reiknað með töluverðum
tekjum af aðgangseyri af mótinu.
Aðgangur kostar 500 krónur á
hverja umferð en þær eru 15 að
tölu. Einnig geta menn keypt
miða á allt mótið og borga þá
aðeins 5000 krónur. Forsala að-
göngumiða hefst í skákheimili TR
við Grensásveg á fimmtudags-
kvöld. 1 fjórða lagi verður gefinn
út minnispeningur með upp-
hleyptri mynd af Friðriki Ölafs-
syni stórmeistara. Standa Skák-
sambandið og Taflfélag Reykja-
víkur að útgáfunni, en bæði félög-
in eiga merkisafmæli á árinu, TR
er 75 ára og St 50 ára. Upplag er
takmarkað við 100 gull —, 500
silfur- og 1000 koparpeninga.
Byrjað er að taka við pöntun-
um hjá scludeild svæðamóts-
ins á Hótel Esju, Samvinnubank-
anum, Klausturhólum og taflfé-
lögum. Þetta er upphaf útgáfu
með myndum af stórmeisturum
og verður Guðmundur Sigurjóns-
son næstur í röðinni. I fimmta
lagi er skáksambandið að fara af
stað með happdrætti í tilefni 50
ára afmælisins og er aðalvinn-
ingurinn eitt af einvígisborð-
unum frægu frá heimsmeistara-
einvíginu 1972, áritað af Fischer
og Spasskí.
Fleira er í bígerð til fjáröflunar
svo sem sala fyrsta dags umslaga,
minjagripasala og einnig er lík-
Framhald á bls. 39