Morgunblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÖBER 1975 Ur leik Leicester og Manchester United á dögunum. Keith Welier, umkringdur varnarmönnum United, reynir markskot. Efstu liöin unnu og staðan því óbreutt Staða efstu liðanna i ensku 1. deildar keppninni í knattspyrnu breyttist ekki á laugardaginn, þar sem Queens Park Rangers. Manchester United og West Ham United unnu öll sigur á andstæðing- um sínum, en þessi lið eru nú saman á toppnum i deildinni, öll með 17 stig. West Ham stendur þó einna bezt að vigi, þar sem liðið á inni einn leik á hin liðin, hefur leikið 11 leiki en hin 12. Eftir leikina á laugardag- inn er svo Liverpool komið i fjórða sætið með 15 stig, en sama stiga- fjölda hafa einnig meistarar fyrra árs, Derby County. Sá leikur sem vakti mesta athygli á laugardaginn var viðureign Queens Park Rangers og Everton, en þar var fyrirfram búizt við harðri og jafnri við- ureign En annað kom svo upp á teninginn. Eftir aðeins minútu leik lá knötturinn i fyrsta skipti I markinu hjá Everton, eftir að þeir Stan Bowles og Don Givens höfðu leikið fallega sin á milli gegnum vörn Liverpool-liðsins Givens skoraðí markið Þar með var tónninn gefinn i þessum leik og á köflum voru leikmenn Evertons sem byrjendur i samanburði við leikmenn Lundúnaliðsins Staðan breytist í 2---- 0 á 31 minútu með marki Don Mass- ons og var staðan þannig i hálfleik. Á 65 mínútu var vörn Everton splundrað af þeim Stan Bowles og Gerry Francis, og rak sá síðarnefndi smiðshöggið á verkið með þvi að leika á markvörð Everton og renna knettinum i tómt Dai Davies, markvörður Everton, hefur þarna betur i viðureign við Billy Bonds, leikmann West Ham, en á laugardaginn varð Davies að sækja knöttinn fimm sinnum i netið. markið Dave Thomas skoraði svo fjórða markið og að lokum á 82. min- útu baetti Q.P.R. fimmta markinu við og var þar Gerry Francis að verki. Áhorfendur á leiknum voru um 25 000 talsins Manchester United fór i heimsókn til Leeds, og eins og svo oft áður fylgdi mikill fjöldi aðdáenda liðinu Að leik loknum urðu svo meiri háttar læti i Leeds, og stóð lögreglan þar i ströngu við að hafa hemil á United- aðdáendunum, sem eru að verða meiri háttar vandamál Segja lögreglumenn sem vinna avið knattspyrnukappleiki i Englandi, að það séu verstu dagar í lifi þeirra þegar United-liðið kemur i heim- sókn til borga þeirra Áhangendur liðs- ins séu oftast dauðadrukknir og virðist sem þeir komi til þess eins að valda spjöllum og ólátum I leiknum í Leeds skoraði irski lands- liðsmaðurinn Sammy Mcllroy á 29 minútu eftir mjög slæm mistök i vörn Leeds-liðsins og stóð þannig 1 —0 fyrir Manchester United i hálfleik. Á 50 mínútu bætti Sammy svo öðru marki við með fallegu skoti af 25 metra færi Eftir að staðan var orðin þannig 2—0 fyrir United sótti Leeds án afláts og fékk mörg gullin tækifæri til þess að skora En það var sem einhver hulinn verndarkraftur væri yfir marki United og var það ekki fyrr en á 80 mínútu að Allan Carke tókst loks að skora fyrir heimamenn Áhorfendur voru 40 264 West Ham náði forystu þegar, á þriðju minútu i ieik sínum við New- castle og var það 1 9 ára nýliði í liðinu, Alan Curbishley, sem skoraði Þetta var þriðji leikurinn sem hann leikur með aðalliði West Ham og jafnframt fyrsta markið sem hann skorar i 1 deildar keppninni Pat Howard tókst siðan að jafna fyrir Newcastle skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins, en i seinni hálfleiknum tókst hinum marksækna leikmanni West Ham, Alan Taylor, að skora sigurmarkið og krækja í bæði stigin fyrir West Ham Stórsigur Arsenal yfir Coventry, 5—0, vekur einnig athygli Alex Crop- ley opnaði markareikning Arsenals I þesSum leik é 13. minútu Alan Ball breytti stöðunni i 2-—0 með skoti áf lóngu færi á 26 mínútu og skömmu seinna bætti Cropley þriðja markinu við, oq Brian Kidd skoraði svo fjórða og fimmta mark Arsenals f leiknum Coventry átti nokkur allgóð tækifæri í leiknum, einkum framan af, en leik- menn liðsins voru klaufskir uppi við mark andstæðingsins og létu mótlætið fara i taugarnar á sér. Var Tom Hutch- inson bókaður fyrir grófan leik Áhorf- endur að leiknum voru 19.234, og þykir það ekki há tala á velli Arsenals Leikur Aston Villa og Tottenham bauð upp á marga góða spretti af beggja hálfu, og einkum voru það hinir i ungu leikmenn í liðunum sem sýndu góð tilþrif Ray Graydon náði foryst- unni fyrir Aston Villa með skallamarki á 51 minútu en 8 mínútum fyrir leikslok tókst John Patt að jafna fyrir Tottenham Einum leikmanna Totten- ham, Terry Naylor, var visað af velli á 63 minútu fyrir grófan leik, en | snemma í leiknum hafði hann fengið bókun Leicester og Middlesbrough gerðu markalaust jafntefli á laugardaginn, og er Leicester eina liðið i 1 deildinni sem enn hefur ekki unnið leik. Þeir hefðu verðskuldað að ná forystu i þessum leik á 10. mínútu, eftir að Keith Weller komst í mjög gott marktækifæri, en hann hafði hins vegar ekki heppnina með sér og skaut framhjá Leikmenn Liverpool voru hins vegar í ham i leik sínum gegn Birmingham City, og aldrei vafi á því hvort liðið var betra. Þetta var sannarlega dagurinn hans John Töshack sem skoraði öll mörk Liverpool í leiknum, og var þetta 1 annað skiptið á 12 dögum sem hann skorar þrennu. Mark Birmingham skor- aði Bob Hatton á 80 mínútu Mörk sin skoraði Toshack hins vegar á 18. min- útu, á 58. minútu og á 86 minútu Áhorfendur á leiknum voru 36.532. Úlfarnir unnu stórsigur yfir botnlið- inu Sheffield United, og er greinilegt að Sheffield-liðið hefur ekki leyst vandamál sin með þvi einu að reka framkvæmdastjórann Staðan Sheff- ield-liðsins er mjög slæm, og má mikið vera ef það nær að rétta úr kútnum I leiknum á laugardaginn skoruðu John Richards og Ken Hibbitt sin tvö mörkin hvor Leikur Stoke City og Ipswich Town var nokkuð jafn, en Ipswich hafði heppnina með sér að þessu sinni og gekk með bæði stigin af hólmi Eina mark leiksins skoraði Bryan Hamilton á 30 minútu Eftir markið þétti Ipswich vörn sina, og þrátt fyrir góða tilburði Stoke-liðsins tókst því aldrei að brjóta vörn gestanna á bak aftur, Áhorfendur að þessum leik voru 21975 Bæði leik Manchester City og Burn- ley og Norwich og Derby lauk með markalausu jafntefli, en báðir þessir leikir þó nokkuð skemmtilegir og buðu upp á spennandi augnablik, og tölu- verða hörku Þannig meiddust t d tveir leikmanna Manchester City- liðsins þegar á fyrstu mínútum leiksins gegn Burnley Áhorfendur að leik Manchester City og Burnley voru 33 000, en um 22 000 manns sáu viðureign Norwich og Derby 2. DEILD Sunderland hefur enn forystu í 2 deildar keppninni og vann öruggan sigur yfir Orient á laugardaginn, 3 — 1, en i leik þessum bar það til tiðinda að dómarinn var borinn af velli eftir að hafa dottið illa i seinni hálf- leiknum Annars er staðan i 2 deildar keppn- inni nokkuð óljós, þar sem Sunderland hefur leikið 7 af 1 2 leikjum sínum á heimavelli, og hingað til hefur Sunder- land ekki gengið alltof vel i leikjum sinum á útivelli Bristol City er komið i annað sæti í deildinni, og Bolton Wanders i þriðja sæti, en liðin tvö sem hafa frá upphafi keppnistimabilsins verið í forystusveitinni i deildinni, Ful- ham og Notts County, virðast heldur að missa flugið Baráttan á botninum i 2 deild er gifurlega hörð, þar sem aðeins 2 stig skilja liðið sem er i 1 1 sæti bg það sem er i neðsta sæti 1. DEILD L Heima (Jti Stig. Queens Park Rangers 12 S i 2 ! 0 12:2 ] l 3 1 9:6 17 Manchester United 12 3 2 0 10:4 4 1 2 10:6 17 West Ham United 11 5 0 1 9:4 2 3 0 9:7 17 Liverpool 11 5 1 0 14:5 1 2 2 4:5 15 Derby County 12 5 0 1 11:8 1 3 2 5:7 15 Leeds United 11 3 1 2 8:7 3 1 1 8:5 14 Middlesbrough 12 3 2 0 6:0 2 2 3 6:10 14 Manchester City 12 4 3 0 15:3 1 0 4 3:7 13 Everton 11 3 1 1 9:4 2 2 2 7:12 13 Norwich City 12 3 2 1 12:7 1 2 3 8:13 12 Stoke City 12 2 1 3 7:8 3 1 2 6:5 12 Aston Villa 12 4 1 1 8:4 0 3 3 4:12 12 Arsenal 11 2 2 2 12:8 1 3 1 3:3 11 Coventry City 12 1 2 3 4:7 3 1 2 9:8 11 Ipswich Town 12 3 1 2 8:8 1 2 3 2:4 11 Newcastle United 12 3 2 0 14:4 1 0 6 8:16 10 Burnley 12 1 3 1 9:7 1 2 4 5:13 9 Tottenham Hotspur 11 1 3 1 6:6 0 3 3 8:11 8 Birmingham City 12 3 1 2 10:6 0 1 3 7:16 8 Wolverhampton Wanderes 12 2 3 2 9:6 0 1 4 3:13 8 Leicester City 12 0 5 1 8:11 0 3 3 2:8 8 Sheffield United 12 1 1 4 4:9 0 0 6 2:18 3 2. DEILD L Heima. (Jti Stig. Sunderland 12 7 0 0 18:4 1 2 2 2:5 18 Bristol City 12 6 1 0 19:4 1 2 2 6:9 17 Bolton Wanderes 11 2 2 0 11:3 4 1 2 11:9 15 Fuiham 11 3 1 1 9:2 3 1 1 8:6 15 Notts County 11 2 2 1 3:2 4 1 1 8:7 15 Southampton 10 6 0 0 17:3 0 2 2 3:7 14 Oldham Athletic 10 5 0 0 10:3 0 3 2 6:11 13 Blackpool 11 3 2 0 9:6 1 2 3 3:6 12 Bristol Rovers 10 2 2 1 8:6 1 3 1 3:3 11 Hull City 11 3 2 2 6:5 1 0 3 2:5 10 Luton Town 10 2 2 1 7:4 1 1 3 5:6 9 Chelsea 12 2 3 0 7:3 0 2 5 4:14 9 Charlton Athletic 10 2 1 1 5:4 1 2 3 3:12 9 Plymouth Argyle 10 3 1 1 7:5 0 1 4 3:8 8 Orient 11 2 3 1 4:3 0 1 4 3:8 8 Oxford Utd. 11 2 1 2 6:6 1 1 4 5:12 8 West B. Albion 10 1 4 0 5:4 0 2 3 1:10 8 Blackburn Rovers 10 1 1 4 5:7 1 2 1 4:4 7 York City 10 2 0 2 6:5 0 3 3 4:8 7 Notthingham Forest 10 1 0 4 5:7 1 3 1 4:5 7 Carlisle United 11 1 3 1 5:5 1 0 5 5:12 7 Portsmouth 10 0 4 1 3:5 1 1 3 3:8 7 Knattspyrnuúrslit o ENGLAND 1. DEILD: Arsenal—Coventry 5—0 Aston Villa — Tottenham 1—1 Leeds .— Manehester Utd. 1—2 Leicester — Middlesbrough 0—0 Liverpool — Birmingham 3—1 Manehester City — Burnley 0—0 Norwich — Derby 0—0 Q.P.R.—Everton 5—0 Stoke — Ipswich 0—1 West Hain — Newcastle 2—1 Wolves — Sheffield Utd. 5—I ENGLAND 2. DEILD: Blackburn — W.B.A. 0—0 Blackpool—Portsmouth 0—0 Bristol City — Charlton 4—0 Carlisle — Luton 1—1 Fulham — Notthingham 0—0 IIuII — Bristol Rovers 0—0 Notts County — Oxford 0—1 Oldham — York 2—0 Plymouth — Bolton 2—3 Southampton—Chelsea 4—1 Sunderland—Orient 3—1 ENGLAND 3. DEILD: Brigton—Preston 1—0 Bury — Southend 1—0 Chester — A ldershot 1 —0 Chesterfield — Shrewsbury 2—1 Colchester — Walsall 2—0 Crystal Palace — Grimsby 3—0 Gillingham—Port Vale 2—1 Hereford — Wrexham 2—0 Mansfield—Peterborough 1 — 1 Rotherham—Cardiff 1—0 Sheffield Wed. — Millwall 4—1 Swindon—Halifax 3—1 ENGLAND 4. DEILD: Cambridge — Crewe 1—1 Darlington—Exeter 0—0 Hartlepool—Torquay 0—1 Lincoln—Brentford 3—1 Newport — Barnsley 1—0 Reading — Bradford 2—1 Scunthorpe — Rochdale 1—3 Swansea — Huddersfield 1—1 Watford — Workington 2—0 SKOTLAND — (JRVALSDEILD: Aberdeen—Celtic 1—2 Ayr Utd. — Rangers 3—0 Dundee — St. Johnstone 4—3 Hearts — Dundee Utd. 1—0 Motherwell — Hibernian 2—1 SKOTLAND 1. DEILD: Arboath—Hamilton 2—1 Clyde—Airdrieonians 2—2 Dumbarton — Morton 4—0 Dunfermline — Queen of the South 2—2 Montrose—Kilmarnock 2—0 Partick — Falkirk 3—2 St. Mirren — East Fife 2—0 SKOTLAND 2. DEILD: Albion Rovers —Clydebank 0—4 East Stirling — Forfar 1—1 Meadowbank — Brechin 0—4 Quenns Park — Berwich 1—0 Raith—Alloa 1—0 Stenhousemuir—Cowdenbeath 0—2 Stirling Aibion — Stranraer 3—0 SOVÉTRÍKIN l. DEILD: Chernomoretes Odessa — Army Rostov 1—1 Ararat Yerevan — Karpatly Lvov 1—0 Pakhtakor Tashkent — Dynamo Tbilisi 1—0 Zarya Voroshilovgrad — Shakhtyor Donetsk 1—1 Lokomotiv Moskvu — Tropedo Moskvu 0—1 TÉKKÓSLÓVAKlA 1. DEILD: Dukla Prag — Slavia Prag 2—3 VSS Kosice — Zbrojovka Brno 4—0 Liaz Jablonec — Spartak Trnava 2—0 Slovan Bratislava — Baník Ostrava 1—3 TZ Trinec — Inter Bratislava 1—0 ZVLZilina — Jednota Trencin 5—0 Skoda Pilzen — Bohemians Prag 3—2 Lokomotiva Kosice — Union Teplice 1—2 BÚLGARlA I. DEILD: CSKA — Minior 3—1 Levski Spartak — Slavia 0—0 Lokomotiv Plovdiv — Dounav Rousse 1—0 Cherno — Akademik 0—1 Sliven—Beroe 2—0 Botev — ZHSK Spartak 1—0 Spartak Pleven—Trakia 2—3 Pirin — Lokomotiv Sofia 3—3 UNGVERJALAND 1. DEILD: Honved — Ujpest Dozsa 1—1 Ferencvaros — Vasas 2—1 „Videoton — MTK VM 1 —0 Zalaegerszeg — Kaposvar Rakoczi 5—2 Diosgyor — Haladas 1—1 Szeged Eol —Csepel 1—0 Salgotarjan — Bekescsaba 1—0 Tatabanya — Raba Eto 1 —0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.