Morgunblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÖBER 1975 29 t Konan mín, STEINVOR ÁGÚSTA EGILSDÓTTIR MARBERG Þórufelli 1 2, Reykjavík andaðist sunnudaginn 12,október. Gunnsteinn Jóhannsson. t Móðir okkar MAGNEA JÓNSDÓTTIR, Smáraflöt 47 andaðist I Landspltalanum 11. þ.m. Jón Eggertsson Einar Eggertsson Ester Eggertsdóttir Eggert Eggertsson Gunnlaug Eggertsdóttir Halldór Eggertsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VIGDÍS LYDÍA SIGURGEIRSDÓTTIR frð Ólafsvík andaðist á Heilsuverndarstöðinni 11 okt Hrefna Bjarnadóttir Ólafur Kristjánsson Sigurgeir Bjarnason Sigurdis Egilsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Hörður Guðmundsson Herdis Ólafsdóttir og barnabörn. t Ástkær sonur okkar og bróðir BALDUR MÁR KARLSSON vélstjóri Sörlaskjóli 94 lézt af slysförum 7. þ.m Fyrir hönd ^ystkina og vandamanna Kristjana Baldvinsdóttir Karl Jónsson t Faðir okkar, CHRISTIAN LILLIE, andaðist að Fridericia 23 sept Útförin hefur farið fram. Magnús Friðriksson Jörundur Níeisson t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, JÓN HALLDÓRSSON bifreiðastjóri, Kleppsveg 120, lézt i Borgarsjúkrahúsinu sunnudaginn 1 2. október. Ásta Stefánsdóttir, börn og tengdabörn. t GUÐMUNDUR J. BREIÐFJÖRÐ, blikksmiðameistari andaðist þann 1 2. þ.m. Dóróthea og Þorsteinn Ö. Stephensen Ólafla og Agnar G. Breiðfjörð Faðir okkar JÓN BJARNASON. vélstjóri andaðist á Hrafnistu sunnudaginn 12/10 Börn hins látna. t HALLDÓR HALLDÓRSSON, Efstalandi 14, Rvk. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 16 okt kl. 13.30 Fyrir hönd vandamanna, Sigríður Friðriksdóttir, Jón Berg Halldórsson, Helga Sigurgeirsdóttir. Minninq: Ólafur Sigurjónsson hreppstjóri Njarðvík I dag er til moldar borinn frá Keflavíkurkirkju Ölafur Sigur- jönsson, hreppstjóri Njarðvíkur- hreppi. Okkur setti hljóða er sú fregn barst um byggðina laugardags- kvöldið 27. sept., að Ólafur hefði orðið fyrir slysi á Reykjanes- braut, er hann var á leið til að sinna störfum sínum í Félags- heimilinu Stapa. Það kom þegar í ljós að meiðsl- in voru það alvarleg að honum var vart hugað líf og tíu dögum seinna, þriðjudaginn 7. okt., bár- ust tíðindin, Ólafur Sigurjónsson hafði kvatt þennan heim. Ólafur var fæddur á Selbúðum í Reykjavík 30. sept. 1921 og var því rétt 54 ára er hann lést. For- eldrar hans voru hjónin Diljá Guðmundsdóttir og Sigurjón Jónsson, sem nú dvelur á Sjúkra- húsi Keflavíkur á 85. aldursári. Fljótlega eftir fæðingu Ólafs, fluttist hann með foreldrum sín- um til Keflavíkur, og þar lést móðir hans í nóvember 1928. Sig- urjón faðir hans stóð þá einn uppi með fjóra unga syni. Varð það að ráði að hann kom drengjunum fyrir i fóstur hjá góðu fólki i Keflavík og Njarðvík. Guðmundur fór i fóstur til ömmu sinnar að Grund í Njarð- vík, hann drukknaði i róðri ásamt Þorvaldi fóstra Ólafs í marz 1943. Sigurgeir fór í fóstur til Sigurðar í Þórukoti, Njarðvík, hann lést í maí 1937. Ólafur fór i fóstur til móðursystur sinnar Stefaníu Guð- mundsdóttur og manns hennar Þorvalds Jóhannessonar að Grund I Njarðvík, og Gunnar nú bakari i Keflavík fór i fóstur til Ásbergshjónanna í Keflavik. Sig- urjón kvæntist öðru sinni í des- ember 1935 Ingunni Ingvarsdótt- ur og tóku þau Guðmund til sín og var hann hjá þeim þar til hann lést, sem áður er greint frá. Ólafur ólst upp i góðu yfirlæti hjá þeim heiðurshjónunum Þor- valdi og Stefaniu ásamt börnum þeirra og var alla tið kært með þeim og uppeldissystkinum hans, sérstaklega Reyni sem var á líku reki og Ólafur. Reynir lést fyrir réttum 13 árum af völdum bif- reiðarslyss á svipuðum slóðum og Ólafur nú. Við lát Reynis stóð ekkja hans Sigurlilja Þórólfsdóttir ein uppi með fjögur ung börn, tók Ólafur að sér umsjá heimilisins og reynd- ist hann þeim sem besti faðir og er söknuður þeirra því mikill. Ólafur hóf ungur afskipti af fé- lagsmálum, er hann var rétt tvi- tugur eða nánar tiltekið 1942, verða miklar félagslegar breyt- ingar í Njarðvíkum. Fyrir for- göngu hins mikla athafnamanns Karvels ögmundssonar verður Njarðvikurhreppur sérstakt sveit- arfélag, en hafði áður verið með Keflavík. Karvel varð oddviti hins nýja sveitarfélags og beitti sér fyrir stofnun ýmissa félaga i hreppnum svo sem Kvenfélags og Ungmennafélags sem hann stjórnaði til að byrja með. Ólafur gekk strax í Ungmenna- félagið og gerðist snemma for- ustumaður þess og formaður í yf- ir 20 ár. A formannsárum Ólafs kom hann upp stórkostlegri íþróttaaðstöðu fyrir félagið og byggði m.a. grasvöll, sem á þeim tíma þótti einn besti völlur lands- ins og nutu hinir fræknu knatt- spyrnumenn í Keflavík þar góðs af og var þetta þeirra aðalkeppn- isvöllur um allmörg ár, eða allt þar til að þeir eignuðust sinn eig- in völl. Fljótlega eftir að Kvenfélagið og Ungmennafélagið eignuðust Samkomuhús Njarðvikur „Kross- inn“ tók Ólafur að sér að sjá um rekstur þess og í framhaldi af þvi hófst bygging félagsheimilisins Stapa, það hús er með glæsilegri félagsheimilum landsins og það hús ber veglegt vitni dugnaði og áræði Ólafs, því að segja má að það sé að langmestum hlula hans verk. Afskipti Ólafs af hreppsiiiálur' hófust að marki er hann tekur sæti í hreppsnefnd 1. júlí 1953 og þar átti hann sæti til dauðadags, eða í 22 ár. Hann varð eddviti hreppsins 15. júní 1962 og gegndi því starfi til 4. júní 1974 eða i 12 ár. Breytingar í Njarðvikurhreppi hafa verið nær ótrúlegar siðan sveitarfélagið var stofnað 1942,úr því að vera þægindalítið sjávar- pláss þar sem flest vantaði og í bæ með góðri menningarlegri að- stöðu og þjónustu fyrir íbúana, fyrst undir styrkri stjórn Karvels í 20 ár og síðan í traustum hönd- um Ólafs í 12 ár. Öll störf Ólafs í sveitarstjórn og utan hennar einkenndust af sann- girni, þekkingu, heiðarleika, dugnaði og viljanum til að láta gott af sér leiða fyrir samborgar- ana, hugsa meira um annarra hag en sinn eigin. Ólafur var fulltrúi Alþýðu- t STEINGRÍMUR ÞORLEIFSSON heildsali Grenimel 1 2, andaðist á Landakotsspítala 1 2. október. Anna Barbara Þorleifsson og börn og systkini hins látna. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall mannsins mins, föður og tengda- ,öður GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR. Hamrahlið 23, sem andaðist hmn 30 sept Utförin hefur farið fram í kyrrþey samkvaemt ósk hins látna. Elin Gisladóttir. Þóra E. Guðjónsdóttir Jón R. Backman Guðmundur Guðjónsson Jóhanna Sigurðardóttir. t Hjartkær faðir okkar og tengdafaðir. MATTHÍAS SVEINBJÖRNSSON fyrrverandi aðalvarðstjóri lézt í Landspitalanum að morgni 1 3 1 *o .2 o Bjarni Matthíasson Svala Pálsdóttir Margrét Matthíasdóttir Hjálmtýr Hjálmtýrsson Sveinbjörn Matthíasson Jónína Guðmundsdóttir Þórunn Matthíasdóttir Vilhjálmur Tómasson Matthildur Matthiasdóttir Davið Hemstock flokksins i sveitarstjórn og var trúr hugsjón jafnaðarstefnunnar, frelsi, jafnrétti, bræðralag, en jafnframt trúði hann á mátt ein- staklingsins til sjálfsbjargar, en þó alltaf fyrstur til að rétta hinum minnimáttar hjálparhönd og margur er sá maðurinn í Njarð- víkurhreppi sem nú sér á bak hinum trausta vini, sem alltaf var svo gott að leita til. Ólafur tók við starfi hrepp- stjóra af sæmdarmanninum Magnúsi Ólafssyni í Höskuldar- koti og i þvi starfi sem öðru reyndist hann hinn traustasti maður og rakti það af mikilli sam- viskusemi. Fjöldi annarra trúnaðarstarfa hlóðust á Ólaf utan þeirra sem hér hafa verið nefnd og segja má að öllum málum væri vel borgið ef Ólafur átti hlut að. Hann var einn af stofnertdum Lionsklúbbs Njarðvikur og hjá Lionsfélögum sem annarsstaðar en hans sárt saknað. Ég kynntist Ólafi er ég flutti til Njarðvíkur fyrir fjórtán árum. Ég kóna mín og tvær dætur mínar höfum starfað fyrir Olaf töluvert á undanförnum árum og reyndist hann mér og fjölskyldu minni sannur vinur. Stjórnmálaskoðanir okkar Ólafs fóru ekki saman, en það setti aldrei mark á vináttu okkar, þvi að sameiginlegu áhugamálin voru svo miklu fleiri. Njarðvíkingar allir sjá nú á bak einum sinna bestu sona, sporin sem Ólafur skildi eftir fennir seint í. Það er okkar sem eftir lifum að halda merkinu á loft, á þann veg minnumst við best hins látna heiðursmanns. Samúðarkveðjur sendi ég, fjöl- skylda min og starfsfólk Njarð- víkurhrepps til aldraðs föður, bróður, ættingjanna á Grund og annarsstaðar, söknuðurinn er sár, en það er huggun harmi gegn að minningin um góðan mann lifir þótt hann deyi. Guð blessi minn- ingu Ólafs Sigurjónssonar. Albert K. Sanders. Kveðja frá Hreppsnefnd Njarðvfkurhrepps. Njarðvíkurhreppur sér nú á bak einum af traustustu mönnum byggðarlagsins Ólafi Sigurjóns- syni hreppsnefndarmanni og fyrrverandi oddvita. Stórt skarð hefur verið höggvið í alltof fá- menna sveit hugsjónamanna, sem með fágætum mannkostum sínum reyna að fegra og bæta mannlífið. Honum eru í dag færðar þakkir samborgara sinna fyrir áratuga þjónustu og forustu um framfara- mál sveitarfélgsins. Hreppsnefndarmenn sakna nú vinar í stað og senda ættingjum og vinum Ólafs samúðarkveðjur á sárri kveðjustund. I dag er til hinztu hvildar bor- inn Ólafur Sigurjónsson, hrepp- stjóri Njarðvikurhrepps. Hann var fæddur hinn 30. sept. 1921 í Selbúðum, Reykjavík. Foreldrar hans voru merkishjónin Sigurjón Jónsson verkstjóri Lundi, Njarð- Framhald á bls. 30 úlfarasKreyllngar Groðurhúsið v/Sigtun simi 36779

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.