Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 2

Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 Grundartangi: „Verkfall vegna vanskila” — segir verkalýðsfélagið „Allir hafa fengið sitt” — segir verktakinn RtMLEGA þriðjungur starfs- manna við framkvæmdirnar á Grundartanga hefur lagt niður vinnu vegna þess, að þeir hafa fengið Iaun sfn greidd með inn- stæðulausum ávfsunum, að þvf er Skúli Þórðarson formaður Verka- lýðsfélags Akraness sagði við Mbl. f gær. Þá hafa vinnuvélaeig- endur að sögn Skúla einnig látið tæki sfn hætta vinnu hjá verktak- anum, Jóni V. Jónssyni, af þeirri ástæðu, að hann skuldar þeim tugi milljóna. Við annan tón kvað þegar Morg- unblaðið hafði samband við verk- takann, Jón V. Jónsson. Hann sagði: „Þetta eru tómar árásir á mig vegna þess, að ég hef ekki þörf fyrir þessa menn lengur og hef þvf sagt þeim upp. Það hafa allir fengið sitt.“ Skúli Þórðarson sagði, að á ýmsu hefði gengið í síðustu viku vegna vanskila verktakans. Eng- inn hefði fengið gert upp nema verkamennirnir og þeim hefði verið tjáð í Iðnaðarbankanum í gærmorgun, að reikningur sá, sem verktakinn stílaði á ávísanir á föstudaginn, væri innstæðulaus. Auk þess skuldaði verktakinn vinnuvélaeigendum og vöru- bifreiðarstjórum tugi milljóna króna. Þá kvörtuðu ýmis fyrir- tæki á Akranesi, sem verktakinn verzlaði við, yfir þvf að ekkert fengist greitt. „Þetta er hið versta mál,“ sagði Skúli, „og við munum ráða það með okkur í vikunni til Framhald á bls. 39 Bretar varaðir við þorskastríði Ljósmynd Sv. Þorm. HARÐUR árekstur varð á mótum Hafnarstrætis, Lækjargötu og Kalkofnsvegar síðdegis á laugardag. Þar rákust saman tveir fólksbflar og eins og sjá má valt annar þeirra. Meiðsli munu ekki hafa orðið á fólki. Friðrik og Björn töpuðu báðir í fyrstu umferðinni FYRSTU umferð svæða- mótsins f skák var tefld í gær að Hótel Esju. Friðrik Ólafsson tefldi við júgó- slavneska stórmeistarann Parma og sigraði Júgóslav- inn auðveldlega í 25 leikj- um. Friðrik lék ónákvæmt í byrjuninni og átti sér ekki viðreisnar von eftir það. Friðrik hafði hvítt. Björn Þorsteinsson tapaði fyrir Dananum Hamman f 28 leikjum. Björn virtist fá sæmilegt tafl út úr byrjun- inni en Daninn náði svo sterkri sókn á kóngsvæng og vann. Annars urðu úr- slitin þessi f 1. umferð: Parma vann Friðrik f 25 leikjum. Hamman vann Björn Þorsteinsson i 28. leikjum. Bretinn Hartston vann Laine frá Guernsey. Finninn Poutiainen vann Van den Broeck frá Belgíu. Norðmaðurinn Zwaig vann Tékk- ann Jansa. Hollendingurinn Timman vann Ostermeyer frá V- Þýzkalandi. Frestað var skák Liberzon og Murrey og Ribli átti frí. Upphaflega átti mótið að hefjast á sunnudaginn, en vegna þess að tveir keppenda þeir Liberzon og Murrey, voru ekki komnir til landsins, var mótinu frestað um einn dag. Dregið var um töfluröð á laugardagskvöld, en vegna þess að skákmennirnir tveir komu ekki til landsins f tæka tíð, var dregið upp á nýtt þannig að þeir tveir lentu saman. Friðrik Ólafsson er númer 5 f töfluröð og Björn Þorsteinsson númer 13. London, 20. október. AP. TALSMAÐUR fslenzka sendiráðs- ins f London varaði við þvf f dag að nýtt þorskastríð gæti brotizt út milli Breta og fslendinga ef sam- komulag tækist ekki um útfærslu fslenzku fiskveiðilögsögunnar f 200 mflur. „Ég tel að aftur geti komið til þorskastríðs ef samkomulag næst ekki. Ef til þess kemur mun íslenzka stjórnin beita sömu að- ferðum (og áður) með varðskip- um sínum.“ 200 mílna Iögsögunni var lýst yfir því að „sjálf tilvera íslenzku þjóðarinnar byggist á henni,“ sagði talsmaður sendiráðsins. „Erlendar þjóðir — einkum Bret- ar og Vestur-Þjóðverjar — veiða sem áður næstum því 50% alls þess fisks sem veiðist á miðunum við ísland,“ sagði hann. Talsmaðurinn sagði, að hætta á ofveiði hefði aukizt með tilkomu „veiðarfæra af nýjustu og full- komnustu gerð sem erlendir sjómenn notuðu.“ Hann sagði að þeir veiddu á mjög viðkvæmum hrygningarsvæðum og friðunar- svæðum. Talsmaður brezka togarasam- bandsins sagði: „Við viljum ekki annað þorskastrfð og við teljum að íslendingar vilji það ekki heldur. Við teljum að þeir hafi ekki ráð á þvf, hvorki stjórnmála- lega né efnahagslega." Viðfangsefni Vöku: „Hverjir stjóma íslandi?” Morgunblaðinu hefur borizt eftir- farandi fréttatilkynning frá Vöku. félagi lýðræðissinnaðra stúdenta f Háskóla íslands: „Miðvikudaginn 22. október munu fara fram kosningar til 1. des. nefndar stúdenta við Háskóla Islands. Vaka, félag lýðræðissinn- aðra stúdenta, leggur til að dagur- Kjartan Guðjónsson segir sig úr safnráði Listasafnsins; „Skikkaður til að drekka kaffi meðan Róm brennur” KJARTAN Guðjónsson, list- málari, hefur sagt sig úr safn- ráði Listasafns tslands, þar sem hann átti sæti samkvæmt skip- an Magnúsar Torfa Ólafssonar, fyrrverandi menntamálaráð- herra, og f bréfi til núverandi menntamálaráðherra segir Kjartan, að þann tfma sem hann sat f ráðinu hafi þar ekk- ert verið aðhafzt nema að drekka kaffi og hlýða á fréttir um að peninga vantaði til lista- verkakaupa. Segist Kjartan reyndar ekki betur sjá en tölu- vert vanti á að lögum um Listasafn íslands sé framfylgt. I samtali við Morgunblaðið í gær kvaðst Kjartan ekki hafa heyrt nein viðbrögð frá yfir- völdum menningarmála við þessu bréfi og hefði hann raun- ar ekki átt von á því. í mennta- málaráðuneytinu fékk Morgun- blaðið líka þær upplýsingar, að ekki væri búið að skipa að nýju í safnráðið en var ennfremur tjáð að Hörður Ágústsson væri varamaður Kjartans í ráðinu og myndi hann samkvæmt því mæta á fundi ráðsins þar til fundinn væri maður í stað Kjartans. „Maður verður vlst að skrifa það á reikning peningaleysis að heldur dauft er yfir safninu,“ sagði Kjartan ennfremur í sam- talinu við Morgunblaðið. I bréfi hans kemur raunar fram, að á síðustu fjárlögum hafi verið út- hlutað um 1200 þúsund krón- um. Síðan vitnar hann 1,2. grein laga um safnið þar sem segir svo að hlutverk þess sé m.a.: „að afla svo fullkomins safns íslenzkrar myndlistar sem unnt er, varðveita það og sýna. Liður b: að afla viðurkenndra lista- verka og skal verja I þvf skyni allt að 10 af hundraði af því fé, sem safninu er fengið til lista- verkakaupa. Geyma má fé í þessu skyni frá ári til árs. — „Stundum geta lög orðið eins og billegir brandarar,“ segir Kjartan I bréfi sínu. I samtali við Mbl. undirstrikaði Kjartan það hversu vanmegnugt safnið væri um að gegna hlutverki sínu fyrir framangreinda fjár- hæð I ljósi þess að meðalverð Islenzkra málverka væri líklega 70—80 þúsund krónur. Kjartan bætti því einnig við að honum fyndist af reynslu sinni I safnráði sem Listasafnið væri fyrst og fremst rekið sem varðveizlustofnun íslenzkrar myndlistar, en hins vegar væri afar lítil rækt lögð við fræðslu- hlutverk þess. Kjartan taldi að þetta atriði mætti líklega lag- færa með stjórnunarlegum að- gerðum þrátt fyrir kröpp fjár- hagsleg kjör. „Þessi þáttur Listasafnsins hefur alveg legið niðri finnst mér, og mikið vant- ar á að safnið sé lifandi stofnun þar sem eitthvað er alltaf að gerast, og fólk kemur bara til að fræðast," sagði Kjartan enn- fremur I samtali við Mbl. í bréfi sínu til ráðherra er Kjartan enn harðorðari. „Það er hart að horfa uppá listasafn- ið veslast upp,“ segir hann þar. „Það er illþolandi að vera út- nefndur opinber nefndaraðili og vera sem slíkur skikkaður til að drekka kaffi meðan Róm brennur. Ég sé mér þvl ekki annað fært en að biðja ráðherra að leysa mig undan þessari kvöð. Hvatir mínar eru eig- ingirni: Ég treysti mér ekki til, fyrir aldrus sakir, að berja bumbur og hefja krossferð til að frelsa safnið úr hönd- um Serkja. Hvatir mlnar eru öfund: Ég get ekki lengur sótt sýningar, því að þar er alls Framhald á bls. 39 inn og hátíðarhöldin verði helguð umræðum um spurninguna: Hverjir stjórna Islandi? og aðal- ræðumaðurinn verði Jón Baldvin Hannibalsson skólameistari á Isa- firði. Jón Baldvin Hannibalsson, skóla- meistari. Framboðslistinn er skipaður eft- irtöldu fólki: 1. Kristfn Vala Ragnarsdóttir jarðfræðinemi. 2. Þorvaldur Frið- riksson landafræðinemi. 3. Þor- kell Sigurlaugsson viðskipta- fræðinemi. 4. JúKa Ingvarsdóttir uppeldisfræðinemi. 5. Baldvin Hafsteinsson laganemi. 6. Alfreð Jóhannsson viðskiptafræðinemi. 7. Jón Skaptason latfnunemi. Ástæða fyrir vali á efni þessu er, að 1. desember er ekki aðeins hátíðardagur stúdenta heldur allrar þjóðarinnar. Spurningin Hverjir stjórna tslandi? varðar alla þjóðina. Umræður um þetta hafa yfirleitt verið mikið I deiglunni og þá oftast mótaðar af þvl hvar menn standa I þjóð- félagsstiganum, en hlutlaust svar við þessari spurningu hlýtur að vera undirstaða allra stjórnmála- Iegra rannsókna. Hvernig er unnið að framkvæmd lýðræðis- skipulagsins og er það eitthvað annað og meir en fölsun á stað- reyndum og blekking sem fólkið trúir á? Þetta mál vilja lýðræðis- sinnaðir stúdentar reyna að brjóta til mergjar 1. desember næstkomandi nái þeir kjöri.“ Framhald 'á bls. 39 Háskólastúdentar boða verkfall í dag NEMENDUR f þremur deildum Háskóla Islands, Heimspekideild, Verkfræði- og raunvfsindadeild og Þjóðfélagsfræðideild, munu gera verkfall f dag til þess að undirstrika kröfur stúdenta á hendur rfkissjóði vegna lánamála stúdenta. Kennurum hefur verið tilkynnt um verkfallið bréflega og verkfallsvarzla verður f Há- skólanum frá klukkan 08 og fram eftir degi. Samkvæmt upplýsingum frá verkfallsnefnd Heimspekideildar Háskólans verður haldinn um- ræðufundur um vandamál Lána- sjóðs fslenzkra námsmanna og lánamálin almennt klukkan 10, en sfðar verður baráttufundur f Árnagarði, þar sem fluttar verða ræður og skemmtiatriði. Fleiri deildir taka ekki þátt í þessu verkfalli, þar sem undirbúningur verkfalls var skemmra á veg kom- inn t.d. í lagadeild og er búizt við því að verkfall laganema verði næstkomandi miðvikydag. Ekki var f gær Ijóst um afstöðu við- skiptadeildar og talið er lfklegt að læknadeild fari sér hægar f verk- fallsmálum en aðrar deildir að þvf er talsmaður verkfallsnefndar Heimspekideildar sagði Mbl. Þá verður haldinn útifundur á Há- skólalóðinni á miðvikudag og er búizt við einhverjum aðgerðum f kjölfar hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.