Morgunblaðið - 21.10.1975, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.10.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 7 1 ( Ríkisfjármál — almanna- tryggingar Það sjá allir, sem sjá vilja. að aðhaldi I rlkisfjár- málum, sem á verða annað og meira en orðin tóm, eða umtalsverðri niðurfærslu rlkisútgjalda, varð með engu móti við komið. án þess að sá út- gjaldaliður fjárlaga, sem stærstur er, trygginga- kerfið. kæmi þar við sögu. Aimannatrygginga- kerfið er orðið svo umfangsmikið, að það krefst vökuls aðhalds og stöðugrar endurhæfingar, bæði að þörfum þegnanna L og fjárhagslegri getu þjóðarbúsins. Hvort tveggja er, að úrbóta er þörf I kerfinu sjálfu og að þaðan renna fjármunir til aðila, sem ekki þurfa á þeim að halda. Á vegum rikisstjórnarinnar er nú unnið að tillögugerð um 2000 m. kr. sparnað i tryggingakerfinu, sem er liður i niðurfærslu rikisút- gjalda, sem ná til allra þátta rikisbúskaparins. Hins vegar hljóta væntanlegar tillögur um þetta efni að miðast við það fyrst og fremst, að fyrirhugaður sparnaður komi ekki niður á þeim, sem minnst mega sin. Þvert á móti ætti endur- skoðun tryggingakerfisins að kunna að leiða til þess, að niðurskurður meira eða minna óþarfa kostnaðar og útgjalda, leiddi til þess, þegar fram er horft. að betur væri hægt að búa að þeim, er raunverulega þurfa á fyrir- greiðslu tryggingakerf is- ins að halda. Hins vegar er það létt verk, og þó umfram allt löðurmannlegt, að nýta sér slikar aðhalds- og sparnaðaraðgerðir, sem aðstæður rikisfjármála gera óhjákvæmilegar, til að sá fræjum tortryggni i huga þjóðarinnar, einkum aldraðra og öryrkja. Á þetta lagið hefur Alþýðu- blaðið gengið undanfarna daga. Vegur þessa blaðs er að vísu ekki mikill fyrir, en ekki vex hann með slikum baráttuaðferðum. Hyggilegra hefði verið að biða endanlegra tillagna rikisstjórnarinnar, en byggja ekki dóma sina á getsökunum einum saman. Hlutur stjórn- arandstöðu Stjórnarandstaða gegn- ir, eða á að gegna, þýð- ingarmiklu hlutverki í lýð- ræðisþjóðfélagi. Hennar hlutverk er m.a. að halda uppi málefnalegri gagn- rýni á stefnu og gerðir stjórnvalda. Sú gagnrýni missir þó marks, ef hún býður ekki jafnframt upp á einhvern þann annan valkost, til úrbóta i aðsteðjandi vanda eða viðfangsefni, sem al- menningur getur haft til hliðsjónar og samburðar, er hann gerir upp hug sinn. Þessu hlutverki hef- ur núverandi stjórnarand staða gjörsamlega brugð- izt, a.m.k. að þvi er varðar aðsteðjandi vanda þjóðar- innar i atvinnu- og efna- hagsmálum, ekki sizt rikisfjármálum. Gagnrýni stjórnarand- stöðunnar er naumast marktæk, meðan þann veg er að málum staðið. Allir eru sammála um, að meginviðfangsefni á þess- um vettfangi séu nú að gripa til raunhæfra ráð- stafana gegn þeirri óða- verðbólgu, sem geisað hefur litt heft í nær tvö ár, eytt kaupmætti launa og grafið undan atvinnu- öryggi almennings; að rétta af greiðslustöðu þjóðarbúsins við erlendar þjóðir; og auka verðmæta- sköpun í þjóðarbúinu, þannig að meira verði til skiptanna, sem er eini raunhæfi grundvöllurinn undir varanlegar kjara- bætur. Áframhaldandi óðaverðbólga eða ný Sturlungaöld i sambúð þjóðfélagsstétta, eins og Tíminn komst að orði í fyrradag, leiðir hins vegar til glundroða, stöðvunar atvinnurekstrar, atvinnu- leysis og síminnkandi kaupgetu gjaldmiðils okkar, sem er allra tap en engra hagur. Aðhalds stefna sú, sem fjárlaga frumvarpið mótar, er fyrsta alvarlega tilraunin til að hefta verðbólguna, en jafnvægi í þjóð- arbúskap og rikisfjármál- um er algjör forsenda þess, að slík viðleitni beri árangur. Á slikum tímum og við rikjandi aðstæður, er það skylda stjórnarand- stöðu, ekki síður en stjórnvalda, að skapa samstöðu um viðfangs- efnið. Annað er að bregð- ast þjóðarhagsmunum, samborgurum sínum, efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar og framtíðar giftu. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919. & DUNLOP Lyftaradekk 23x5 650x10 25x6 750x10 27x6 825x10 1 8x7 27x10-1 2 29x7 700x12 *~W’ 500x18 600x15 21x8-9 700x15 600x9 750x1 5 700x9 825x1 5 AUSTURBAKKI ■ , fSIML 38944 Endurminningar endumýjaðar Hinn margumtalaði og vinsæli úlsölumarkaöur vekur Við önnumst eftir- tökur og lagfæringar gamalla mynda. Stækkum í allar stærðir frá 13X18 cm til 2ja fermetra. AUGLÝSINGA OG IÐNAÐARLJÓSMYNDUN HVERFISGÖTU 18, BAKHÚS SÍMI 22811 athygli á Það koma ávallt nýjar vörur í hverrl vlku á markaðlnn Ótrúlegt vöruúrval á frábærlega lágu é verði Látið ekki happ úr hendi sleppa ATHUGIÐ! Markaðurinn stendur aðeins stuttan tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.