Morgunblaðið - 21.10.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTOBER 1975
Afmœliskveðja:
Bárður Isleifsson
ufirarkitekt 70ára
Þegar ég nú sendi vini mínum
góðum og starfsbróður, Bárði Is-
leifssyni arkitekt, stutta afmælis-
kveðju í tilefni þessa dags, þá fer
ekki hjá því, að borinn sé saman
árafjöldinn og afmælisbarnið
sjálft. Engar ýkjur munu það telj-
ast að 50 ár ættu hér betur við en
70, jafnt er varðar útlit sem at-
gervi, og veit ég að þeir allir, sem
afmælisbarnið þekkja og með
honum hafa starfað eru þar á
einu máli. Ætt Bárðar og uppruni
verður eigi rakinn hér, eða ævi-
ferilsskýrsla gefin, — en að loknu
stúdentsprófi árið 1927 hóf hann
nám við arkitektaskólann danska
(Akademi for de skönne Kunster
i Kaupmannahöfn), og lauk
þaðan fullnaðarprófi árið 1935.
Sama ár réðst hann arkitekt hjá
húsameistara ríkisins, og hefir
verið starfsmaður embættisins
síðan. F.vrir nokkrum árum var
Bárður skipaður yfirarkitekt em-
Fyrsta lendingin
á Suðureyri
FLUGVÉL lenti í fyrsta skipti á
Suðureyri sl. föstudag. Hörður
Guðmundsson flugmaður hjá
Flugfélaginu Örnum á Isafirði
lenti þar á hinni nýju flugbraut,
sem verið er að ljúka við að gera.
Ernir hafa haldið uppi póst- og
sjúkraflugi á sjöunda ár um Vest-
firði og hefur stöðug aukning
verið öll árin hvað snertir fjölda
flugferða um hin dreifóu þorp á
Vestfjörðum.
í myndinni eru, t.f.v., þeir Guð-
jón Jónsson, verkstjóri við flug-
brautargerðina, Hörður Guð-
mundsson flugmaður og Sigurjón
Valdimarsson sveitarstjóri.
bættisins, þ.e. staðgengill húsa-
meistara og að verulegu leyti
stjórnandi teiknistofu, sem hann
raunverulega hefir gegnt flest ár-
in í tíð þriggja forstöðumanna.
Sem að lfkum lætur er Bárður
ísleifsson arkitekt tengdari þróun
og sögu opinberra bygginga á ís-
landi um 40 ára skeið fremur
öðrum starfsbræðrum sinum.
Þetta tímabil hefir verió tími
mikilla framkvæmda og bygg-
ingarlegrar þróunar með
þjóðinni. Vegna sérstöðu i starfi
hefir hann og haft tækifæri til
þess að setja svipmót sitt á marg-
ar byggingar rfkisins þennan
tíma, án þess þó að hafa á nokk-
urn hátt státað af þeirri hlutdeild
sinni, enda væri slíkt i mikilli
andstæðu við hugarfar hans og
hollustu i þeim efnum sem
öðrum.
Auk aðalstarfs hjá húsa-
meistara rikisins hefir Bárður
gert uppdrætti að ýmsum bygg-
ingum, stærri og smærri. Meðal
þeirra eru sjúkrahús, skólar og
byggingar að Reykjalundi
(S.Í.B.S) ásamt bókasafninu á
Ak.ureyri. Tvennt hið siðarnefnda
vann hann i félagi við Gunnlaug
Halldórsson arkitekt. Af fbúðar-
húsum má nefna hús háskóla-
kennara á lóð Háskóla tslands, er
sigursæl urðu i samkeppni arki-
tekta þegar byggð voru. Fyrir
langt og farsælt starf að bygg-
ingarmálum var Bárður Isleifsson
sæmdur heiðursmerki hinnar ís-
lensku Fálkaorðu.
Embætti húsameistara rikisins
hefir um langt árabil haft þá
stefnu að veita námsmönnum í
byggingarlist og ýmsum hliðar-
greinum hennar, tækifæri til
sumarstarfa á teiknistofu, þegar
því hefir verið við komið. Sama
hefir verið með unga arkitekta
beint frá prófborði. I röðum
þeirra má finna all marga af
færustu arkitektum okkar, sem
nú eru á miðjum starfsaldri og
reka sjálfstæðar teiknistofur.
Á teiknistofu húsameistara hef-
11
ir það einkum hvílt á Bárði Is-
leifssyni að leiðbeina og fylgjast
með mótandi störfum þeirra ungu
manna og kvenna, er þannig hafa
um lengri eða skemmri tíma
starfað á vegum emb'ættisins.
Hygg ég að þeim öllum sé éinkar
hlýtt til afmælisbarnsins, og telji
sig í nokkurri þakkarskuld.
Sjálfur stend ég í mikilli
þakkarskuld við vin minn Báró.
Samstarf okkar nær aftur til árs-
ins 1937, meira og minna, og
aldrei borið á skugga. I stjórnun
embættis húsameistara rikisins
hefir hann verið mín hægri hönd
og staðgengill allt frá því ég tók
við þeim starfa. Ljúfmannlegri og
traustari samstarfsmann hefði
varð verið hægt að kjósa, slikir
eru mannkostir hans og starfs-
hæfni. Bárði, Unni og mannvæn-
legum sonum þeirra sendum við
hjónin hjartanlegar heilla- og
hamingjuóskir og þökkum órofa
vináttu.
Hörður Bjarnason.
Nýr áfangi á Kanarí
blómaeyjan
Tenerife
Reynsla okkar af óskum islendinga undanfarin 5 ár
og sá frábæri árangur sem náöst hefur í Kanarí-
eyjaferöum okkar, er þaö sem nú hvetur okkur til
aö færa enn út kvíarnar.
Viö höfum nú skipulagt feröir til blómaeyjunnar
Tenerife, sem af mörgum er talin fegurst Kanarí-
eyja, en hún er granneyja Gran Canaría, þar sem
þúsundir íslendinga hafa notið hvíldar og hressing-
ar á undanförnum árum.
í vetur veröa farnar 7 feröir til Tenerife. Hin fyrsta
14. desember en hin síðasta 4. apríl og er hún
jafnframt páskaferð.
Dvalið veröur í íbúöum og á þriggja og fjögurra
stjörnu hótelum og veröiö i tvær vikur er frá
47.900 krónum, sem er þaö hagstæðasta sem
býöst.
Sért þú aö hugsa um sólarferð í skammdeginu,
þá snúöu þér til okkar.
LOmCIBIR
ISLANDS
Fyrstir með skipulagðar sólarferðir i skammdeginu