Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 13

Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 13 Garðahreppur Byggung, Garðahreppi Aðalfundur Byggung í Garðahreppi verður haldinn í félagsheimilinu við Lyngás, miðvikudaginn 22. okt. kl. 8.30 stundvíslega. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, mun Páll Friðriksson, framkv.stj. segja frá nýjungum í byggingariðnaði og rætt verður um stofnun nýrra byggingarhópa. Fjölmenið og mætið stundvíslega. Stjórnin Haustfagnaður templara og 90 ára afmæli Góðtemplarareglan á nú að baki 90 ára starfsferil í höfuðstaðnum. Fyrsta stúkan, Verðandi, var stofnuð 3. júlí 1885. Það urðu þáttaskil í þjóðarsögunni þegar góðtemplarareglan hóf starf sitt. Þá var farið að byggja hús til að hafa almenna mannfundi í. Þá fóru menn af ollum stéttum að hittast vikulega á fundum þar sem unnið var að félagsmálum og fylgt ströngum fundarsköpum. Þá fóru karlar og konur í fyrsta sinn að starfa saman I frjálsum félagsskap sem félagsmenn með jafnan rétt. Þetta allt hafði sín áhrif. Þjóðlífið varð annað en áður. Olaf Palme lét svo ummælt i ræðu í sumar að grundvöllur lýðræðisins í Svíþjóð hefði verið lagður I stúku- húsunum. Það á lika við að verulegu leyti hér á landi. Hinn frjálsi félags skapur gerði menn hæfa til að nota sér lýðræðið — gerði lýðræðið að veruleika. Slík voru söguleg áhrif góð- templarareglunnar Mörg félög önnur og félagshreyfingar fylgdu í slóð hennar til að fullkomna grund- völl lýðræðisins. Þetta allt er að vissu leyti óháð takmarki og lífshugsjón góð- templarareglunnar. Allir vita að hún er alþjóðlegur félagsskapur sem hef- ur það að markmiði að útrýma áfengisnautn. Hitt vita menn síður að bindindið er ekki I sjálfu sér takmark reglunnar, heldur nauðsyn- legt skilyrði þess að lífshugsjón hennar, — bræðralag og farsæld allra manna — geti orðið veruleiki. Enn er það svo um allan heim þar sem áfengis er neytt að um það bil fimmti hver maður sem byrjar neyslu þess hefur meiri eða minni vandræði af því áður en lýkur. Það er sú staðreynd sem raunsæir menn og góðgjarnir verða að horfast í augu við. Þar stoðar ekki að líta undan. Templarar í Reykjavík efna nú til haustfagnaðar I tmplarahöllinni næsta föstudagskvöld. Þar drekka menn kaffi, syngja mikið saman, hlusta á nokkur stutt ávörp og gamanmál » þjóðlegum Ijóðastíl. Og svo munu þeir dansa. Þar verður þess að sjálfsögðu minnst að reglan i höfuðstaðnum á merkisafmæli á þessu ári en einkum koma menn þó saman til að minna á að hér er lifandi félagsskapur sem á sér mikil verkefni fyrir höndum, þar sem er að vernda og vikka út áfengislaust um- hverfi svo að færri verði ógæfumenn og aumingjar vegna drykkjuskapar. Templarar munu sækja þetta mót með gestum sínum svo að það verði nokkur kynning út fyrir þann hóp, sem nú er undir merkjum reglunnar Aðgöngumiða að fagnaðinum geta menn fengið í bókabúð Æskunnar og skrifstofu stórstúkunnar i Templara- höllinni. Halidór Kristjánsson. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK l tP ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR í MORGUNBLAÐINU KÓPAVOGSBÚAR KÓPAVOGSBÚAR Sjálfstæðisfélogin í Kópavogi gangast fyrir Almennum borgarafundi í félagsheimilinu uppi i kvöld kl. 20:30. Fundarefni: íþróttir og félagsmál Sigurður Helgason, flytur ávarp. Frummælendur: Stefnir Helgason, bæjarfulltrúi Þorvarður Áki Eiríksson, formaður H.K. Guðni Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar U.B.K. Rætt verður um hugsanlega stofnun Iþróttabandalags i Kópavogi Að loknum framsöguerindum, verða almennar umræður og fyrir- spurnir. Fundarstjóri: Grétar Norðfjörð Fundarritari: Kristinn Skæringsson Skorað er á allt áhugafólk um iþrótta og félagsmálefni í Kópavogi, að fjölmenna á fundinn. Launþegaráð Reykjaneskjördæmis Framhaldsstofnfundur Launþegaráðs Reykjaneskjördæmis, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarfirði, þriðjudaginn 21. október 1975 kl. 20.30. Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráðherra og Gunnar Helgason, for- maður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins mæta á fundinn. Allt Sjálfstæðisfólk í kjördæminu í launþegastétt, velkomið á fundinn meðan húsrúm leyfir. Heimdallur S.U.S. Undirbúningsnefndin. Heimdallur S.U.S. Starfshópur um félagsstarfið Annar fundur starfshóps um félagsstarfið verður haldinn þriðjudaginn 21. október n.k. kl. 5.30 i Galtafelli Laufásvegi 46. Allt áhuqamál hvatt til að mæta. Stjórnm. BYG GIN GAVORUVERZLU N BYKO KÓPAVOGS SF IMÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:41000 Þar sem fagmennirnir verzla, er yður óhætt Vel búið baðherbergi fráBYKOM Það fæst bókstaflega allt í BYKO, a. m. k. allar bygg- ingavörur sem nöfnum tjáir að nefna. Við gætum t. d. nefnt hreinlætistæki, blöndunartæki, veggflís- ar. Það fæst líka í BYKO. Hreinlætistækin eru af ýmsum gerðum í mörgum litum og úr- valið af blöndunartækjum og keramikflísum er satt að segja ótrúlega mikið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.