Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 30

Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 30
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 Sakharov-réttarhöldin vanfærar konur nolaðar sem tllraunadýr l David Azbel og Luba Makish. ellurefnaframlelðslu l sovélrlklunum „SOVÉTRÍKIN nota saklaust fólk, sem á sér einskis ills von sem lifandi tiiraunadýr við framleiðslu á efnum til eitur- gashernaðar,“ sagði Luba Markish I vitnisburði sínum við Sakharov-réttarhöldin. Vitnis- burður hennar vakti mikla at- hygli og ekki sfður frásögn hennar og prófessors Davids S. Azbels um þá reynslu, sem hún hefur orðið fyrir á undanförn- um mánuðum ( samskiptum sfnum við útsendara sov- ézkuleyniþjónustunnar KGB. Frú Markish, sem er af góðum og virtum ættum f Sovétríkjun- um, varð fyrir þvf vegna nafna- brengi að verða notuð sem til- raunadýr f sambandi við rann- sóknir á eiturefnum, er hún var stúdent f Moskvu. Var hún um tíma talin dauð- ans matur, en lifði af en missti um 70% starfsorku sinnar. Nú býr hún í Bandaríkjunum, í New. York, og er að skrifa bók um reynslu sína og hliðstæð dæmi. Hafa KGB-menn hótað henni lífláti ef hún gefi bókina út og einnig boðið henni allt að 500 þúsund dollurum ef hún hætti við allt saman. í vitnisburði sínum skýrði frú Markish m.a. frá því er 20 vanfærar konur voru notaðar sem tilraunadýr í efnaverk- smiðju í úthverfi f Kalinin árið 1965. Verksmiðja þessi fram- leiðir banvæn, lffræn efni fyrir sovézka herinn og af þeim ástæðum voru konurnar 20 hafðar f einangruðum sal i verksmiðjunni til að byrja með til þess að skapa þeim betri og auðveldari vinnuskilyrði, að því er verksmiðjustjórnin sagði. Eftir að hafa starfað nokkra daga í þessum sal tóku konurnar eftirlyktaf einhverri gastegund, sem þær könnuðust ekki við. Þegar þær reyndu að komast út úr salnum f skelfingu sinni voru dyrnar lokaðar og þrátt fyrir örvæntingarfull óp þeirra voru dyrnar ekki opnað- ar. Eftir nokkra stund opnuðu hermenn, sem gættu dyranna og hleyptu aðeins 3 konum út og síðan var þeim hleypt út 2—3 f einu með nokkru milli- bili en dyrunum síðan læst aft- ur. Allar voru konurnar svo fluttar rakleiðis f sjúkrahús. Frú Markish frétti af þessu máli, er hún hitti eina af kon- unum, Ninu Bakov, í sérstöku sjúkrahúsi í Perovo f úthverfi Moskvu, þar sem hún Iá sjálf eftir að hafa lent í gaseitrun. Frú Bakov hafði áhyggjur af fóstri sínu og vildi fá þvf eytt. Þeirri beiðni var neitað og henni haldið í sjúkrahúsinu f 6 mánuði þar til barnið fæddist, en þá var það tekið af henni og fékk hún aldrei að sjá það þrátt fyrir itrekaðar tilraunir. Frú Bakov hitti meðan á þessu stóð nokkrar af konunum, sem höfðu unnið með henni og allar höfðu sömu sögu að segja. börn- in höfðu verið tekin af þeim ölium við fæðingu. Margar þessara kvenna létust sfðar, lfk- legast þær, sem lengst var hald- ið inni í salnum. Mörg barn- anna fæddust einnig andvana. Á Perovosjúkrahúsinu er einkum fólk, sem orðið hefur fyrir áfalli eða slysi af völdum efnahrifa. Þar kynntist frú Markish fólki, sem hafði svip- aða sögu að segja og hún sjálf og vanfæra konan. Var það upphafið að rannsóknum henn- ar á þessum málum og sem varð til þess að hún var neydd til að yfirgefa Sovétrfkin. Frú Mark- ish, sem árið 1968 var f jórða árs stúdent f efnafræði við Moskvu- háskóla og var gift Andrei Rib- ova, syni hins kunna sovézka flotaforingja Ribova, var beðin um að aðstoða yfirkennara sinn við tilraunir með chlorethylm- ercaptan, sem er banvænt efni og stúdentum meinað að koma nálægt um allan heim. Mistökin voru þau að það voru tvær kon- ur með Ribova-eftirnafnið við háskólann og vissi yfirkennar- inn ekki um tengsl Lubu við aðmirálinn kunna og hélt að það væri hin konan. Þegar unn- ið er með þetta eiturefni er það gert í sérstökum loftræstiklef- um með grímur og fullkomna líkamsvernd. Luba var hins vegar send inn f klefann án hlífðarfatnaðar og skömmu eft- ir að hún var komin inn í klef- ann var lokað fyrir loftræsting- una. Afleiðingin var að Luba stóð sem nakin gagnvart eitr- inu. Var hún þannig inni f klef- anum í 40 mínútur áður en hin opinbera skýrlsa segir að mis- tökin hafi uppgötvazt. Hún var þegar f stað flutt í sjúkrahús, þar sem f ljós kom hverra manna hún var og hver maður hennar var. Móðurbróðir henn- ar er Andrei Plate og frændi Nikolai Plate, sem báðir eru kunnir sovézkir vfsindamenn. Varð uppi fótur og fit er mis- tökin urðu Ijós og fjölskyldan komst I málið. Yfirkennarinn var fundinn sekur um mistök f starfi, en aðeins áminntur og heldur enn starfi sfnu. Frú Markish sagðist ekki geta sagt við réttarhöldin nema brot af vitneskju sinni vegna tímatak- markana, og sagði að eftir að hún fluttist til Bandaríkjanna með nýjum eiginmanni sfnum (atburðurinn og veikindin leiddu til skilnaðar við son flotaforingjans) hefði hún og eiginmaður hennar þurft að þola stöðugar ofsóknir KGB- manna, sem reyndu að fá hana ofan af þvf að skrifa bókina. Sagðist hún hafa lokið við fyrri hluta hennar og geymdi hana í bankahólfi í New York, en er hún var langt komin með seinni hlutann hefði verið brotizt inn í fbúð hennar og handritinu og öllum skjölum stolið. Þess vegna seinkaði útgáfunni nokk- uð. Aðeins einum degi áður en hún fór til Kaupmannahafar hringdi KGB-maður í hana til að reyna að fá han til að hætta við bókina og þiggja f staðinn 500 þúsund dollara fyrir. Á eftir frú Markish talaði pórfessor David S. Azbel próf- essor og færði heim sönnur fyr- ir máli frú Markish, en hann hafði sjálfur orðið vitni að sam- skiptum hennar og KGB. Hefur mál hennar vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og um það verið fjallað f New York Times og öðum New York blöðum. „Reynl fólk að bera hönfl fyrir höfuð sér er pvl varpað l fangelsi eða geðvelkrahæll Kaupmannahöfn — frá Birni Jóhannssyni og Ingva Hrafni Jónssyni, bim. Mbl. MEÐAL vitna við Sakharov- réttarhöldin var Andrei Grigor- enko, sonur hins kunna sovézka hershöfðingja, Piotrs Grigor- enko, sem sætt hefur ofsóknum af hálfu Sovétstjórnarinnar um áratugaskeið, og hefur setið f fangelsum, fangabúðum og geð- veikrahælum þar til fyrir skömmu, en hann er nú farinn að heilsu, þótt baráttuandinn fyrir mannréttindum, einkum hvað snertir Krfmtatara, sé óbugaður. 1 vitnisburði sfnum lýsti sonur hans á mjög áhrifaríkan hátt hvernig sovézk yfirvöld sviptu heila þjóð frelsi, eignum og átthögum, og fluttu tugi og hundruð þúsunda á brott nauðungarflutningum, sem kostuðu um hundrað þúsund manns lffið. Þetta gerðist árið 1944 og var Töturunum gefið að sök að hafa unnið með Þjóð- verjum f heimsstyrjöldinni. Var fólkið flutt f gripavögnum til Asíuhluta Sovétríkjanna, þar sem það var skilið eftir á óbyggðum og óbyggilegum stöðum. Fram til þessa dags hafa allar tilraunir þessa fólks sem einungis hefur beitt laga- legum og friðsamlegum að- gerðum, reynzt árangurslausar og ofsóknir sovézkra yfirvalda á hendur þeim hafa aldrei verið jafnharðar, þótt ekki séu þeir skotnir á staðnum lengur; ef þeir sýna sig, heldur settir í fangelsi eða fluttir á einhverja enn eyðilegri staði. Morgunblaðið náði sem snöggvast tali ai Andrei Grigor- enko, en þar sem samtalið fór fram með aðstoð túlks, sem ekki var vel að sér í enskri tungu, virtist Grigorenko ákaf- lega varkár í orðum sínum, en sagði þó undir lok samtalsins, að örlög föður sins væru ákaflega óviss og enginn vissi hvað sovézk yfirvöld myndu gera við hann næst. Var á Grigorenko að skilja, að hann ætti von á þvf á næstunni að sovézk yfirvöld rækju föður hans úr landi á sama hátt og honum sjálfum var vísað brott fyrir baráttu hans fyrir Krím- töturum og annarri mannrétt- indabaráttu. Andrei Grigorenko býr nú í Vestur-Þýzkalandi ásamt konu sinni. Við spurðum hann fyrst hvort hann teldi einhverja von til þess, að sovézk yfirvöld myndu breyta afstöðu sinni til Krímtataranna og leyfa þeim að flytjast heim til sinna fornu heimahaga, miðað við það sem á undan er gengið: — Það væri tilgangslaust að Andrei Grikorenko. halda uppi baráttu ef maður teldi ekki einhverjar Ifkur á að hún gæti borið árangur. Ég er bjartsýnismaður, — ég verð að vera bjartsýnismaður. Hins vegar er það ekki uppörvandi Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.