Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 34

Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 34
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 IIEFA reiðir vöndinn UEFA — Evrópusamband knattspyrnumanna hefur nýlega kveðið upp dðma I málum nokkurra knattspyrnufélaga og knatt- spyrnumanna, fyrir brot sem áttu sér stað í leikjum I fyrstu umferð Evrðpubikarkeppninnar f knattspyrnu. Eins og frá var skýrt f blaðinu I gær, fékk einn Islenzkur knattspyrnumaður þá dóm, Haraldur Sturlaugsson, sem dæmdur var f eins leiks keppnisbann. Búlgarski landsliðsmaðurinn Andrej Gelaskov hlaut strang- asta dóminn hjá UEFA, en hann var dæmdur f þriggja ára keppnisbann bæði f Evrópubikarkeppni fétagsliða og eins f landsleikjum, auk þess sem félag hans, Slavia Sofia, var dæmt í um 400 þúsund króna sekt. Slavia Sofia var slegið út úr Evrópubikarkeppninni af austur- ríska liðinu Sturm Graz. Urðu mikil læti f leiknum á heimavelli Sofia, og réðust nokkrir leikmenn liðsins með Gelaskov í farar- broddi á dómara leiksins og böróu hann. Meðal þeirra liða sem dæmd voru í sektir voru sænsku liðin Malmö FF og Gais frá Gautaborg. Fékk einn leikmanna Malmö þriggja leikja bann fyrir að mótmæla dómi, og þjálfari Gais má ekki vera með liðinu f Evrópubikarkcppni framar fyrir að kalla dðmara leiks Gais og pólska liðsins Slask Wroclaw ýmsum ónefnum. Yfirfeitt fengu þau lið scm ákærð voru sektir, frá 10 þúsund krónum ti) 150 þúsund króna, og leikmenn voru dæmdir f eins til tveggja leikja bann. Lazio settir kostir ALLAR ifkur benda nú til þess að ftalska liðið Lazio hætti við þá ákvörðun sfna að draga sig út úr UEFA-bikarkeppninni f knatt- spyrnu, en fiðið á að mæta spænska liðinu FC Barcelona f 2. umferð keppninnar. Höfðu forráðamenn félagsins ákveðið að draga sig út úr keppninni, þar sem þeír óttuðust að ekki yrði hægt að tryggja Iff og limi leikmanna á leiknum f Róm. Að sögn talsmanns félagsins hefur það hins vegar fengið orðsendingu frá stjórn UEFA, þar sem fram kemur að dragi félagið sig út úr keppninni þarf það að greiða svo miklar fébætur, að lfklegt má teljast að það yrði gjaldþrota. Vinnur stjórn félagsíns nú að þvf að scmja við Barcelona um að báðir leikirnir fari fram á Spáni, eða leikurinn sem fara átti fram á ftalíu verði háður f einhverju öðru landi. Gott hjá fyrsta flokks KR-ingum Þó svo að meistaraflokkur KR hafi ekki náð sérlega góðum árangri í Islandsmótinu í knattspyrnu í sumar þá stóð 1. flokkur KR sig þeim mun betur. KR-ingarnir unnu öll þrjú mótin, sem þeir tóku þátt í, Reykjavíkur, miðsumars og haustmót. Erfiðlegast gekk KR- liðinu I sfðasta mótinu, en þá þurfti f jóra úrslitaleiki til að fá meistara. KR-ingarnir töpuðu aðeins einum leik í sumar — fyrir Víkingi — en gerðu sex jafn- tefli, 4 við Val. Vfking og Fylki, aðrir leikir unnust. Guð- mundur Jóhannesson skoraði flest mörk leikmanna liðsins, 10 talsins, en Sigþór Sigurjóns- son skoraði 7 sinnum. Þjálfari 1. flokks KR er Guðmundur Pétursson. Meðfylgjandi mynd er af 1. flokki KR, frá vinstri Gunnar Gunnarsson, örn Guðmunds- son, Gísli Glslason, Sighvatur Kristjánsson, Halldór Pálsson, Sigþór Sigurjónsson, Árni Guð- mundsson, Magnús Ingi- mundarson fyrirliði, Birgir Guðjónsson, Björn Pétursson, Sævar Sigurðsson, Einar Árna- son og Þorvaldur Ragnarsson. Þjálfararnir völdn AMo di Stefano ÁTTA heimsfrægir knattspyrnuþjálfarar voru nýlega beðnir að tíinefna bezta knattspyrnumann heimsins fyrr og sfðar og voru þeir á einu máli um að Alfredo di Stefano skyldi hljóta þá tilnefningu. Þjálfararnir átta voru þeir Helmut Schön, Sepp Herberger, Hennes Weisweiler, Rinus Michels, Alf Ramsey, Heliono Herera, Gustav Sebes og Mario Zagallo. Tilnefndu þeir einnig heimslið i knattspyrnu og vildu þeir að það yrði þannig skipað: Zamora (Spáni), Andrade (Uruguay), Monti (Argentínu), Beckenbauer (Þýzkalandi), Schneilinger (V-Þýzkalandi), Bozcik (Ungverjalandí) Bobby Charlton (Englandi), Pele (Brasilfu), di Stefano (Spáni) Puskas (Ungverjalandi) og Cruyff (Hollandi). Ikslitaleikur Davis bikarkeppninnar í hættu SVO KANN að fara að ekki verði leikið til úrslita um Davis- bikarinn f tennis, en þau tvö lið sem unnið hafa sér rétt til að keppa um hann eru Svfþjóð og Tékkóslóvakía. Davis-bikar- keppnin er óopinber heims- meistarakeppni landsliða f tennis, og taka velflestar þjóðir heims, sem á annað borð iðka þessa fþrótt, þátt f henni. Ástæðan til þess að úrslita- keppnin er nú í hættu er sú, að alþjóða tennissambandið hefur ákveðið að mótmæla framkomu sænskra íþróttayfirvalda vegna afskipta þeirra af pólitískum átökum á Spáni, en Svíar hafa Dómaramátin í ólestri í körfuknattleiknum? DÓMARAMÁLIN í körfuknatt- leiknum hafa ávallt verið mikill höfuðverkur þeirra sem sjá um mótin. Til skamms tfma fékkst varla nokkur maður til að dæma leikina, en nú sfðustu árin hefur það nokkuð batnað. Þvf er þó ekki að leyna, að það er eingöngu frumkvæði nokkurra manna að þakka að dómaramálin hafa batnað hvað þetta snertir, og má nefna þar einn mann öðrum fremur, Jón Otta Ólafsson. Þá höfum við á þessum tfma eignazt tvo millirfkjadómara, dómara, sem hafa talsvert dæmt á alþjóða- vettvangi og staðið sig mjög vel. En þvf miður verður það þó að segjast eins og er, að fjöldi fram- bærilegra dómara til að dæma f 1. deild er mjög Iftill, og þeir sem þar koma til með að dæma f vetur sýna sumir hverjir mjög lítinn áhuga á verkefni sfnu. Fyrir skömmu boðaði Dómara- nefnd K.K.I. til fundar með starÞ andi dómurum, þar sem síðustu breytingar á reglunum skyldu yfirfarnar, og ýmis túlkunaratriði samræmd. verið fremstir í flokki að mót- mæla aftökum fimm manna þar, og auk þess var efnt til mótmæla- aðgerða í Svíþjóð, er Chile-búar kepptu þar við Svía f undanúr- sfitakeppni Davis-bikarkeppn- innar. Talsmaður alþjóða tennissam- bandsins, Richard Ewans, hefur m.a. látið hafa eftirfarandi eftir sér um mál þetta: — íþróttahreyfingin í heild hefur sett sér það takmark að vera óháð stjórnmáladeilum og yfir þær hafin. I Svíþjóð hefur hreyfingin hins vegar tekið mið af valdasjúkum stjórnmálamönn- um, sem gjarnan vilja nota hana til þess að láta á sér bera. Það liggur á borðinu á Sviar áttu önnur og sterkari vopn til þess að mótmæla stjórnmálaástandinu á Spáni og i Chile, fylgdi hugur máb hjá þeim. Þannig hefðu t.d. viðskiptahömlur eða viðskipta- bann haft meira að segja, en auð- vitað kostar það meira fyrir þá háu herra en það að notfæra sér Iþróttahreyfinguna. Mál er að linni, og stjórn alþjóðasambands- ins hefur ákveðið að fjalla frekar um mál þetta, og eina ástæðan fyrir þvi að við útilokum ekki Svia frá meiri háttar mótum er sú, að við viljum ekki hegna sak- Iausum íþróttamönnum fyrir mis- gjörðir forystumanna. Sænskir tennisleikarar láta sig stjórnmáladeilurnar í Iéttu rúmi liggja og tveir helztu tennisleik- menn landsins, Björn Borg og Birger Andersson, taka þessa dag- ana þátt i tenniskeppni í Barce- lona á Spáni. Það gerir einnig rúmenski tennisleikarinn Ilye Nastase, þrátt fyrir að hann fengi skipun frá stjórnvöldum í Rúmeniu um að fara ekki til keppni á Spáni. Sendi Nastase einungis skeyti á móti, þar sem hann sagði að það kæmi sér og fþróttunum ekkert við þótt Rúmenar vildu hafa afskipti af „einhverju“ sem gerzt hefði á Spáni. Þvi miður, og það er næstum skammarlegt fyrir dómarana, mættu aðeins þrír þeirra. Það voru þeir Jón Otti Ólafsson sem boðaði til fundarins, Hörður Túli- níus og Þráinn Skúlason. Aðrir dómarar kusu fremur að „kúra“ heima, enda fundurinn haldinn á sunnudagsmorgni. Þetta lýsir ekki áhuga dómaranna á því að standa sig vel í störfum sínum i vetur. Eða eru okkar dómarar svo góðir að þeir þurfi e.t.v. ekki að hittast og tala saman? Nei, því miður. Dómgæzlan í yfirstandandi Reykjavikurmóti hefur oft á tiðum verið hörmu- lega léleg, og mismunur á túlkun dómara á ýmsum atriðum yfir- þyrmandi. Leikmenn sem leggja á sig erfiðar æfingar til að ná árangri kunna þessu að vonum illa, og ganga um vellina grenj- andi og froðufellandi af illsku. Á síðasta ársþingi Körfuknatt- leikssambands Islands var ákveðið að þeir dómarar sem dæma leiki í deildarkeppninni i vetur skuli verða launaðir, og það eru félögin sem keppa hverju sinni sem koma til með að greiða þeim kaup. Um leið á að vera hægt að gera meiri kröfur til þessara manna, a.m.k. þær lág- markskröfur að þeir sinni fundar- boðun Dómaranefndar þegar ræða á mikilvæg mál. Um leið og merkja má framfarir í körfu- boltanum eins og hér hefur verið undanfarin ár, þá mega dómararnir ekki verða til þess að virka þar neikvætt á móti — með ósamræmdum og oft á tíðum furðulegum vitleysum. Áhugaleysi félaganna til að koma þessum málum í lag í fram- tíðinni er einnig sláandi. Fyrir stuttu gekkst Dómaranefnd K.K.I. fyrir dómaranámskeiði hér í Reykjavik, og fékk annan al- þjóðadómarann okkar frá Akur- eyri til að annast það. Árangurinn varð sá að aðeins mættu 4—6 menn, allir frá Fram. Þau félög sem hunza að taka þátt i uppbygg- ingarstarfinu á þessum vettvangi, geta lítið sagt til varnar sínum málstað, eða hvað? gk. Sænska tennlsstjarnan Björn Borg — svo kann að fara að pðiitfk Palme verði til þess að hann fái ekki að taka þátt f úrslitum Davis-bikarkeppninnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.