Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 35

Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 19 Stórleiknr Ármanns NÚ ER ljóst, að leikur Ármanns og tR um næstu helgi verður hreinn úrslitaleikur í Reykja- vfkurmótinu. Ármann sigraði Val með geysilegum yfirburðum um helgina, skoraði 117 stig gegn 68. Ármenningar léku allt frá fyrstu m(n. til loka af mikilli ákveðni, og sigur þeirra hefði örugglega getað orðið enn stærri hefði vörnin verið leikin af meiri festu. Jimmy Rogers (31 stig) Jón Sigurðsson (29 stig) ogGuðsteinn Ingimarsson (27 stig) voru allir I miklum ham í leiknum, og raunar má segja að liðið sé allt mjög gott um þessar mundir. — Valur skor- aði fyrstu stigin, en Ármann svaraði með 15 stigum 1 röð, og var þá ljóst hvert stefndi. Staðan f hálfleik 59:32. Það eina sem finna má að Ármannsliðinu er varnar- leikurinn sem er á stundum ekki nógu góður. Jimmy Rogers fellur vel inn f liðið, og koma hans hefur mjög góð áhrif á aðra leik- menn. Mesta athygli vakti þó leikur Guðsteins, hann hefur verið vaxandi f allt haust, og blómstraði nú. Torfi Magnússon skoraði mest fyrir Val, 20 stig, en er allt of eigingjarn. gk. IS marði Fram ÞAÐ fór eins og spáð hafði verið, leikur IS og Fram var mjög jafn, og gat sigurinn lent hvorum megin sem var. Það sem segja má að hafi ráðið úrslitum f leiknum var fádæma léleg hittni Framara sem gátu oft á tfðum ekki skorað úr auðveldustu færum. IS hafði yfir í hálfleik 27:18!!. — í seinni hálfleik lagaðist hittnin aðeins hjá Fram og það nægði til að setja spennu í leikinn rétt fyrir leiks- lok. Þá misnotaði aðalskytta Framara Helgi Valdimarsson 3 vftaskot f röð, og lS hafði það af að merja sigur 57:54. Ingi Stefánsson skoraði mest fyrir IS, 12 stig, en IS virðist f miklum öldudal um þessar mund- ir. Þorvaldur Geirsson skoraði 15 stig fyrir Fram, Þorkell Sigurðs- son 14. Framliðið er að koma til, það er greinilegt, þótt enn komi það um sinn ekki til með að blanda sér f baráttu bestu lið- anna. Playboys bikar- meistarar FINNSKA körfuknatt- leiksliðið Playboys, sem mætir Ármenningum í Evrópubikarkeppni bik- arhafa í körfuknatt- leik, varði bikarmeistara- titil sinn í Finnlandi um síðustu helgi, er liðið sigraði TuNMKY í úr- slitaleik með 87 stigum gegn 81. I Playboysliðinu vakti sérstaka athygli bandaríski blökkumaður- inn Ronnie Canon, sem skoraði 36 stig í leiknum, en hann er sagður lang- bezti maður liðsins. V i ■ Jón Héðinsson lék nú á n< með ÍS, hér sést hann hirða frákast við körfu Fram. Héðinn Valdimarsson og Bjarni Gunnar eru einnig með f baráttunni. r UthaMið þrant hjá KR-ingum og ÍR vaiui með sex stiga mnn „ÞÓ ÉG sé að mörgu leyti ánægð- ur með þennan leik, er ekki hægt annað en vera óánægður með vill- ur þær sem Curtiss Carter fékk f leiknum," sagði Kristinn Stefáns- son liðsstjóri KR eftlr Ieikinn gegn IR sem KR tapaði 61:67. „Carter fékk tvær villur fyrir að öskra að tR-ingi með boltann, án þess áminning væri gefinn fyrst eins og venjan hefur verið, og 5. villan sem dæmd var á hann var algjör vitleysa hjá dómurunuin," sagði Kristinn ennfremur. En það merkilega skeði, að KR- liðið lék betur í langan kafla eftir að Carter hafði fengið reisupass- ann á 6. mín. í seinni hálfleik. Þá fóru þeir að hitta úr hverju skoti Gísli Gislason, Eirikur Jónsson og Gunnar Jóakimsson, og á 12. mín. hálfleiksins var staðan 75:63 fyrir KR, og sigurinn blasti við. En það sem eftir var leiksins voru ÍR- ingar einráðir á vellinum og sigruðu með 6 stiga mun. IR hafði yfirleitt forustu í fyrri hálfleik, mest 12 stig um hann miðjan, og 7 stig i hálfleik 47:40. Kolbeinn Kristinsson skoraði 30 stig fyrir IR í leiknum, og er án efa mesta skytta í körfuboltanum I dag. Kristinn Jörundsson var með 29 stig, en átti slæman kafla i sfðari hálfleik, brenndi þá t.d. af 4 sinnum í röð og var tekinn útaf. Hann kom tviefldur inn stuttu síðar, og var maðurinn bak við sigurinn ásamt Kolbeini og Agnari Friðrikssyni sem nú lék með á ný, og átti góðan kafla i lok leiksins. Þorsteinn Hallgrimsson var óvenju daufur, og sömu sögu er að segja um Þorstein Guðnason. tR-liðið sem heild verður að gera betur til að sigra Ármann um næstu helgi í úrslitaleiknum. Hjá KR var Carter bestur meðan hans naut við, hann átti öll varnarfráköst timum saman og skoraði 19 stig og er ekki gott að Framhald á bls. 23 íslandsmótið í körfuknattléik hefst 8. nóvember: Flestir veðja á Ármenninga sem líklega Islandsmeistara 1. deildar keppnin í körfu- knattleik hefst 8. nóv. n.k. og um þá helgi verður leikin heil umferð i deildinni. Eins og venjulega bollaleggja menn ýmislegt um það hvernig mótið komi til með að fara, og eru ýmsir spádómar þar á lofti. Sumir hallast að yfirburðum ÍR, Islandsmeistaranna frá I fyrra, aðrir segja að KR og Ár- mann muni koma til með að berjast um sigurinn vegna Bandarikjamannanna I þessum liðum, og enn aðrir veðja hik- laust á lið Njarðvíkur sem þeir segja að verði sterkara en nokkru sinni fyrr. Þá eru sumir á þvi að IS muni setja strik I reikninginn eins og undanfarin ár, og vissulega hafa þeir mann- skapinn til þess. Þau þrjú lið sem eftir eru, Valur, Frám og Snæfell, koma því til með samkvæmt þessu að berjast á botninum, og því verður varla á móti mælt að þau eru ekki eins sterk og hin liðin fimm. Ég er á þvi að liðin komi til með að skipta sér í þrjá flokka í mótinu. I flokki þeirra liða sem berjast um sigur i deildinni verða Ármann, KR, IR og UMFN, siðan komi ÍS og Valur, og á botninum verði Fram og Snæfell. En við fengum for- svarsmenn liðanna til þess að spá um röðina, en þeir urðu að sleppa sinum liðum I þeirri spá sinni, enda visast hvar þeir myndu setja þau. Steinn Sveinsson IS: Ármann ÍR KR UMFN Fram Valur . Snæfell Jónas Ketilsson Fram: A IR UMFN KR IS Valur Snæfell Guðmundur Þorsteinsson Val: ÍR A KR UMFN IS Fram Snæfell Hilmar Ilafsteinsson UMFN: IR Á KR IS Valur Snæfell Fram Birgir örn Birgirs Ármanni: IR KR UMFN IS Valur Fram Snæfell Kristinn Siefánsson KR: A IR UMFN IS Valur Fram Snæfell Sigurður Hjörleifsson Snæfeili: Ármann KR IR UMFN IS Valur Fram Hólmsteinn Sigurðsson IR: A KR UMFN IS Fram Valur Snæfell Leikirnir i 1. deildinni verða nú leiknir á fimm keppnis- stöðum, UMFN leikur heima- leiki sina að sjálfsögðu í Njarð- vik, KR I Hagaskóla, IS I Kenn- araskólahúsinu, Snæfell á Akranesi, og IR, Valur, Fram og Ármann á Seltjarnarnesi. — Allt útlit er fyrir að mótið nú verði mjög skemmtilegt, lið.in virðast vera mjög vel undirbúin flest hver, og áhorfendur eru nú farnir að sækja leikina i mjög auknum mæli, og það gerir leikina strax mun liflegri og betri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.