Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 36

Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 36
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÖBER 1975 Valnr svaraði hverjn marki Þróttar með tveimnr NÝLIÐARNIR f 1. deild I handknattleik, Þróttur, fengu sfna eldskfrn á sunnudags- kvöldið í deildinni, er þeir mættu Valsmönnum. Þeir skoruðu fyrsta mark leiksins eftir 2 mfnútna leik, og náðu sfðan forystunni aftur er staðan var 2—1. En þar með var lfka sagan öfl. Valsmenn skoruðu tvö mörk fyrir hvert eitt sem Þróttararnir gerðu, og urðu úrslit leiksins 20—10, fyrir Val. Munurinn hefði þó sennilega getað orðið enn meiri, hefðu Valsmenn ekki greinilega slakað á undir lok leiksins, en þá tókst Þrótti að skora helming marka sinna. Mikið má vera ef róðurinn verður ekki þungur fyrir Þróttarliðið í 1. deildar keppninni f vetur. Liðið er nokkuð einhæft og mjög fátækt af frambærilegum skyttum. Raunar má segja að skytturnar í liðinu séu ekki nema tvær; þjálfarinn Bjarni Jónsson og Friðrik Friðriksson, og allur sóknarleikur iiðsins snýst f kringum þessa tvo menn. Auðveldar það mjög vörnina fyrir andstæðingunum, enda var það svo að Valsmenn áttu oftast næsta auðvelt með að svara sóknum Þróttarfiðsins. Þeir gættu einfaldlega þess að þessir tveir fyrrnefndu leikmenn fengju ekki svigrúm, án þess þó að taka þá úr umferð. Bjarni reyndi hvað hann gat til þess að dreifa spilinu hjá Iiði sfnu en allt kom fyrir ekki, og því fór sem fór. Vörn Þróttarliðsins stóð hins vegar oft vel fyrir sfnu, einkum f leikbyrjun, þegar mikil hreyfing var á henni, menn „töluðu vel saman“ og voru ákveðnir. Þegar á leikinn leið, og hann var sýnilega Þrótturum tapaður, varð vörnin slakari, og átti erfiðara með að fylgja hinum mikla hraða sem Valsmenn héldu lengst af uppi. Mikill barningur var f leiknum til að byrja með, svo sem bezt má sjá af þvf að eftir 20 mínútna leik var staðan 2—1 fyrir Þrótt. Það var þá að nýliðinn f Valsliðinu, Gunnar Björnsson, skoraði tvö mörk í röð með miklu harðfylgi og kom þar með félögum sfnum á bragðið. Síðari helming fyrri hálfleiksins lokaði vörn Valsliðsins gjörsamlega marki sínu fyrir Þrótturum. Ekki vantaði að töluvert væri reynt, sérstaklega með langskotum, en Ólafur Benediktsson markvörður var f essinu sínu og varði mjög vel. Sem fyrr greinir héldu Vaismenn uppi miklum hraða í leik sfnum, eftir að þeir voru komnir á strik, jafnvel svo miklum að þeir höfðu ekki fullkomlega vald á honum sjálfir. Það þarf mikið úthald til þess að leika þannig á fullu, heilan leik, sérstaklega þegar mikla hreyfingu þarf einnig í vörninni og þar gefst nær ekkert tækifæri til hvfldar. En Valsmenn eru greinilega f góðri æfingu um þessar mundir og liðið miklu hreyfanlegra og leikur fjölbreyttari og skemmtilegri handknattleik en það gerði í fyrra. Skylt er þó að slá varnagla þegar þetta er sagt: Valsmenn hafa hingað til mætt léttum andstæðingum, Gróttu og Þrötti, og óvfst hvort þeir fá tækifæri til þess að leika sér jafnmikið og þeir hafa gert f þessum leikjum, þegar þeir mæta sterkari liðunum. Stefán Gunnarsson var atkvæðamesti leikmaður Valsliðsins í þessum leik, og má mikið vera ef hann hefur nokkru sinni verið betri en einmitt nú. Hann var sá klettur í vörninni sem margar tilraunir Þróttara brotnuðu á og sýndi auk þess mikla fjölbreytni í sóknarleiknum, m.a. að lyfta sér upp fyrir framan vörn andstæðingsins og skora með snöggum og föstum skotum. Sýnir Stefán þarna á sér nýja hlið. Jón Karlsson var einnig mikilvægur f sóknarleik Valsmanna, svo og Jóhann Ingi, sem er mjög laginn með knöttinn og fljótur að eygja möguleika sem félögum hans bjóðast á línunni. Bjarni Jónsson var bezti leikmaður Þróttar í leiknum, en Marteinn Arnason markvörður stóð sig einnig með miklum ágætum. Það sem Þrótt virðist einkum vanta um þessar mundir eru leikmenn sem geta verið meira ógnandi svo og meiri fjölbreytni f sóknarleikinn. stjj Jóhann Ingi Gunnarsson, hinn fljóti og lagni leikmaður Valsliðsins skorar f leiknum við Þrótt. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 21 Eftir jafnan fyrri hálfleik tók FHöll völd og vann 25-18 Guðmundur Haraldsson sendir knöttinn I mark Vikinganna eftir að Haukarnir höfðu galopnað vörnina. Þeir Þorbergur. Magnús og Sigfús eru aðeins áhorfendur. Lengst til vinstri er Hörður Sigmarsson. Haukar mölnðn íslandsmeistarana Baráttugleði og góð vörn var aðall liðsins og það nœgði gegn daufiim Víkingum Menn þurftu ekki lengi að bíða eftir óvæntum úrslitum f 1. deild- ar keppni Islandsmótsins f hand- knattleik. Á laugardaginn unnu Haukar, lið sem orðað var við fallbaráttuna fyrir mótsbyrjun, stórsigur yfir Islandsmeisturum Víkings. 22—14 fyrir Hauka urðu úrslit leiksins, og voru þau ekki ósanngjörn ef miðað er við leik liðanna, það voru fremur Haukar sem Iéku sem meistarar að þessu sinni, en Vfkingsliðið . var mjög sundurlaust, og gerði sig sekt um mistök, sem alls ekki eru við hæfi hjá meistaraliði. Leiki Iiðið fleiri slfka leiki á næstu.ini, þarf það varla að vænta þess að verða með í topþbaráttunni. Slíkt verður þó að teljast harla ósennilegt. Vfk- ingsliðið er skipað það góðum handknattleiksmönnum, að það á að geta verið f fremstu röð. Senni- lega hefur þetta aðeins verið slæmur dagur hjá Víkingi og þegar allt kemur til alls er ekki víst að liðið hafi slæmt af þessum skelli. Það er þvf viðvörun — og raunar öðrum þeim liðum sem álitið var að væru bezt hérlendis um þessar mundir. I þessu ný- byrjaða móti er ekki ólíklegt að um svo jafna baráttu verði að ræða, að hvaða lið sem er geti unnið annað. Það var allt frá upphafi til enda i leiknum sem Haukarnir komu á óvart á laugardaginn, og þá fyrst og fremst fyrir það hversu góðan handknattleik þeir léku. Svo sem kunnugt er þá töldu Haukarnir sig ekki hafa efni á því að ráða þjálfara og þess í stað eru nú með liðið núverandi leikmaður með þvi, Elías Jónasson og fyrrver- andi Ieikmaður, Þórður Sigurðs- son. Og ekki var annað að sjá í leiknum á laugardaginn en að þjálfunin væri í lagi, og það meira að segja í góðu lagi. Haukarnir virtust vita nákvæmlega fyrir- fram að hverju þeir gengu, og allir leikmennirnir ræktu hlut- verk sitt vel. Baráttan og hreyf- ingin í vörninni var frábærlega góð, hættulegustu leikmenn Vík- ingsliðsins voru stöðvaðir nógu framarlega og eins tókst Haukun- um að kæfa flestar þær leikflétt- ur sem Vikingarnir voru að reyna f fæðingu. Virkuðu sóknarað- gerðir Víkinganna því oft sem til- gangslaus hlaup i leiknum, en af þeim var líka meira en nóg. Þá var það Haukunum einnig mikill styrkur að markvörður þeirra, Gunnar Einarsson, varði mjög vel í leiknum og sannaðist þarna enn einu sinni fylgnin milli góðrar varnar og góðrar markvörzlu. Sóknarleikur Haukanna í þess- um leik var einnig vel útfærður og þeir náðu vel að notfæra sér helztu veilurnar í Víkingsvörn- inni. Til að byrja með var marka- kóngur Haukaliðsins frá mótinu i fyrra, Hörður Sigmarsson, heldur óheppinn með skot sin, en þegar Víkingarnir tóku til þess bragðs að taká Elías Jónasson úr umferð losnaði nokkuð um Hörð, og varð það til þess að hann tók að skora aftur og aftur. Annars var það eftirtektarvert að allir útileik- menn Haukaliðsins, nema einn, skoruðu mark eða mörk i þessum leik og sýnir það eitt út af fyrir sig að liðið hefur yfir góðri breidd að ráða. Ungu mennirnir sem eru að koma inn í liðið eru mjög efni- legir, sérstaklega þó Jón Hauks- son og Ingimar Haraldsson, en sá siðarnefndi er nú einn bezti línu- maðurinn í Islenzkum handknatt- leik. Bæði grípur hann vel, og eins hefur hann góða hreyfingu á línunni, og opnar þannig fyrir samherjum sinum. Sennilega hafa Víkingarnir vanmetið Haukana i leikbyrjun, en slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra. Vikingarnir komust aldrei verulega i gagn í leiknum, og áttu ekki svör við þeirri varnarleikaðferð Haukanna að stöðva þá fram undir punktalínu. Vörn Víkingsliðsins var svo ákaf- lega gloppótt í leiknum, og stund- um nánast sem áhorfandi þegar Haukarnir voru að smeygja sér í gegn og skora. Hlutverk Rós- mundar Jónssonar í markinu var þvi ekki öfundsvert, enda gat hann lftið gert til varnar. Sóknarleikur Víkinganna var um of einhæfur og gekkmest upp á miðjuna. Öðru hverju brá þó fyrir góðum leikfléttum, sem miðuðu að þvi að losa um hinn hávaxna Magnús Guðmundsson á línunni, en sá var gallinn á gjöf Njarðar, að Magnús gripur ekki nógu vel, og því minni hætta af honum en ella. Bezti maður Vík- ingsliðsins í þessum leik var Viggó Sigurðsson, sem er í mikilli framför og virðist hættur að taka eins mikla áhættu i skotum sín- um, eins og honum hætti stundum til. Haukasigurinn í leiknum á laugardaginn ætti að koma til góða að þvi leyti að glæða áhuga á mótinu, en svo virðist sem ein- hver deyfð sé nú yfir handknatt- leiksáhorfendum. Það er til að STAÐAN mynda fremur sjaldgæft að ekki skuli leikið fyrir fullu húsi í Hafnarfirði, en það gerðist þó á Iaugardaginn. SAMA sagan endurtók sig hjá Gróttuliðinu f Ieik þess gegn FH I 1. deildar keppni íslandsmótsins I handknattleik, og gerðist f leik Iiðsins við Val á dögunum. Til að byrja með stendur liðið upp f hárinu á andstæðingi sfnum, en þegar fram í seinni hálfleikinn kemur, er sem úthaldið þverri og liðið má þola stórt tap. Leikur Gróttumanna á laugardaginn gegn FH var þó, þegar á heildina er Iitið, til muna slakari en var gegn Valsmönnum, og Iangtfmum saman í seinni hálfleik leiksins fengu FH-ingar nánast að gera það sem þeim sýndist. Var það happ Gróttumanna f leik þessum, að FH-ingar voru tæpast á skot- skónum og misnotuðu fjölda opinna færa, eins og t.d. eftir hraðaupphlaup. Mjög erfitt er því að meta getu FH-liðsins eftir leik þessum. Ljóst má þó vera, að enn sem komið er þá er liðið ekki eins sterkt og það var I fyrra, og I vörn þess eru greinilega hrikalegar glompur. Vörnin hefur oftast verið veikari hluti FH-Iiðsins, en margir áttu von á þvf að úr rættist þegar Reynir Ólafsson tók við þjálfun liðsins. Enn sem komið er hefur honum ekki tekizt að þétta vörn FH-inganna að neinu ráði, eða var það ef til vill slakur andstæðingur í leiknum á laugardaginn, sem varð til þess að FH-ingar voru ekki nógu vakandi I vörninni? Sóknarleikur FH-inga var hins vegar á köflum skemmtilegur, og voru þeir félagar Geir Hallsteins- son og Viðar Símonarson þar í fararbroddi, einkum þó Geir sem átti hlut að miklu fleiri mörkum en bókast að þessu sinni á hann. Er stöðug ógnun af Geir í sóknar- leiknum og ekki má líta af honum eitt andartak, til þess að það geti ekki orðið dýrkeypt fyrir and- stæðinginn. Auk þess heldur Geir spili liðsins mjög vel gangandi. Vörnin var hins vegar mjög slök hjá Geir i þessum leik, Atli Þór Héðinsson sneri hvað eftir annað á hann og skoraði framhjá Birgi Finnbogasyni i markinu, en Birgir varði mjög mismunandi í þessum leik. Tók hin erfiðustu Geir Hallsteinsson, var erfiður fyrir Gróttumennina og átti mjög góðan leik. Þarna á hann f höggi við Halldór Kristjánsson og er kominn framhjá honum. skot, en sleppti siðan öðrum fram- hjá sér, sem auðvelt hefði átt að vera að verja. Viðar var einnig mjög virkur í spili FH-liðsins, og skoraði nokkur mörk með sinum sérstæðu skotum — skotum sem virðast ekki vera föst, en eru ákaflega erfið viðureignar fyrir markverðina. Mikið má vera ef leikmenn Gróttuliðsins eru komnir í æski- lega þjálfun. A.m.k. kemur litið út úr leikmönnum sem löngum hafa verið drjúgir, eins og Björn Pétursson, og stöðugt dofnar yfir liðinu eftir því sem á leiki þess líður. Markakóngurinn úr 2. deild frá í fyrra, Hörður Már Kristjáns- son, nýtist liðinu fremur illa, þar sem lítið er gert til þess að hjálpa honum til þess að komast í skot- stöðu, en Hörður þarf töluvert rými á vellinum til þess að njóta sin. Bezti leikmaður Gróttuliðsins i þessum leik var Atli Þór Héðins- son, sem bæði var drjúgur við að skora og ákveðinn í varnar- leiknum. Árni Indriðason stóð fyrir sínu að venju, en á honum höfðu FH-ingar það góðar gætur, að hann fékk sjaldan tækifæri til þess að skora. Leikinn dæmdu þeir Kjartan Steinbeh og Kristján Örn Ingi- bergsson, og voru þeir jafn mis- tækir og leikmennirnir og alltof litils samræmis gætti i dómum þeirra. Ósparir voru þeir að vísa leikmönnum útaf til hvíldar og fengu þannig tveir leikmenn sjö minútna hvíld. Báðir höfðu þeir gert athugasemd við dóma, og er út af fyrir sig ekkert nema gott um það að segja að dómarar taki slíkt föstum tökum, þar sem fátt er hvimleiðara en leikmenn sem sífellt eru að mótmæla og kvarta. — stjl. Pálmi tekinn nr nmferð og Ármann vann npp 6 marka forskot Fram STAÐAN í 1. deildar keppni íslands mótsins í handknattleik er nú þesi: Valur 2 2 0 0 44:26 4 FH 110 0 25:18 2 Haukar 110 0 22:14 2 Vlkingur 2 10 1 39:36 2 Fram 10 10 12:12 1 Ármann 2 0 11 26:37 1 Þróttur 10 0 1 10:20 0 Markhæstu leikmennirnir eru eftirtaldir: Páll Björgvinsson, Vikingi 11 Stefán Gunnarsson, Val 9 Viðar Simonarson, FH 8 Björn Pétursson, Gróttu 7 Jón Pétur Jónsson, Val 7 Stefán Haltdórsson, Vikingi 7 Viggó Sigurðsson, Vikingi 7 Atli Þór Héðinsson, Gróttu 6 Hörður Sigmarsson, Haukum 6 Þórarinn Ragnarsson. FH 6 ÞAÐ VAR erfitt hlutverk sem Hörður Kristinsson var I að leiks- lokum I leik Fram og Armanns f 1. deildar keppni Islandsmótsins I handknaftleik á sunnudags- kvöldið. Tfminn var útrunninn og dæmt hafði verið vftakast á Fram, og staðan var 12—11, Fram í vil. En hinn gamalreyndi og öruggi leikmaður brást félögum sínum ekki og sendi knöttinn í mark- hornið, óverjandi fyrir Guðjón Erlendsson, Frammarkvörð. Þar með náði Ármann öðru stiginu úr þessum mikla baráttuleik, sem Fram hafði fengst af haft í hendi sinni. En Hörður Kristinsson gerði meira í þessum leik en að skora úr hinu mikilvæga vítakasti. Hann var kjölfesta Ármannsliðs- in í varnarleiknum, og þau voru ótalin þau skot Framara sem Hörður varði f þessum leik, með góóum staðsetningum sínum í vörninni og þekkingu á þvf sem var að gerast. Sennilega er Hörð- ur fremur æfingalítill, en kunn- átta hans vegur þar upp á móti. Ármenningum gekk ákaflega illa að skora i þessum leik, enda án tveggja af sínum atkvæða- mestu sóknarleikmönnum, Björns Jóhannessonar og Vilbergs Sig- tryggssonar, sem báðir eru meidd- ir. Vörn Framliðsins var líka lengst af mjög hreyfanleg og bar- áttuglöð, þannig að tækifærin sem Ármenningar fengu voru ekki mörg. Eftir 16 mfnútna leik var staðan jöfn 2—2, en þá tóku Framarar að sigla frammúr hægt og bítandi, og þegar 2 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var staðan orðin 8—2, þeim í vil.'og virtist svo að úr þvf væri spurning um hversu stór sigur þeirra yrði. En þá létu Ármenningar loks koma krók á móti bragði. Þegar Fram var í sókn var Pálmi Pálma- son tekinn úr umferð og kom þá helzt í ljós hversu mikilvægur hann er fyrir Framliðið. Án virkr- ar þátttöku hans í sóknarleiknum var spil Framliðsins heldur ráð- leysislegt og smátt og smátt tóku Ármenningar að saxa á forskotið. Reyndu þeir að nýta sóknir sínar sem bezt þeir máttu, og tókst það bærilega. Mótlætið fór greinilega i skapið á Frömmurum, og tóku dómararn- ir brátt að vísa leikmönnum úr liðinu útaf til kælingar. I sumum tilfellanna var ástæðan fyrir brottrekstrinum sú, að Framarar vildu taka sér dómsvaldið í leikn- um, og voru með stöðug mótmæli við dómana. Var það t.d. á mjög mikilvægum augnablikum í leikn- um sem þeir gátu ekki stillt sig, og fengu eðlilega reisupassann fyrir. Mikil spenna var f leiknum und- ir lokin, og náði hún hámarki á lokasekúnunum. Þá voru Framar- ar með knöttinn, en reyndu mark- skot, með þeim afleiðingum að Ármenningar náðu knettinum og hófu hraðaupphlaup sem varð ekki stöðvað á annan hátt en með svo grófu broti, að ekki var um annað að gera en að dæma víta- kast. Úr þvi skoraði svo Hörður Kristinsson sem fyrr segir. Þegar á heild þessa leiks er litið, verður ekki sagt að hann hafi boðið upp á áferðarfallegan handknattleik. Alltof mikið bar á hnoði hjá báðum liðunum, svö og tilraunum til markskota úr fær- um sem voru lokuð. Slík skot voru raunar eðlileg afleiðing þess, að liðin höfðu ekki yfir það mikilli fjölbreytni i sóknarleik sfnum að ráða, að þau megnuðu að opna vel varnirnar. Beztu leikmenn Ármannsliðs- ins í þessum leik voru þeir Hörð- ur Kristinsson og Ragnar Gunn- arsson markvörður, en ungu leik- mennirnir í liðinu stóðu allir vel Framhald á bls. 23 Arnar Guðlaugsson skorar eitt marka Fram f leiknum á sunnudagskvöldið, án þess að Hörður og Stefán komi við vörnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.