Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 38

Morgunblaðið - 21.10.1975, Side 38
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTOBER 1975 SJÖ leikmenn hafa náð þeim góða árangri að skora 200 mörk í ensku deildunum fjórum. Þeir eru: Ron Davies, Manchester United, Ken Wagstaff, Hull, Kev- in Herctor, Derby, Francis Lee, Derby,Geoff Hurst, WBA, Martin Chivers, Tottenham, og Brian Clark, Millwall. Tveir kunnir kappar eiga mikla möguleika á að ná þessu takmarki f vetur. Þeir eru AllanClarke, Leeds og Ted MacDougall. Hér á eftir fer viðtal við þann síðarnefnda, þar sem hann segir m.a. frá þvf hversu einlæglega hann hafi óskað þess f æsku að verða snjall markvörður eins og faðir hans var. Gat ekki orðið einn þeirra og ákvað því að sigra þá — Ég ætlaði mér að verða markvörður eins og faðir minn, en vegna þess að félagar mínir hræddu mig endalaust og strfddu fyrir það hversu léleg- ur ég væri gafst ég upp og ákvað í staðinn að fyrst ég gæti ekki orðið einn af markvörðun- um, þá skyldi ég sigra þá. Ted MaeDougall er nú marka- hæstur leikmannanna f ensku 1. deildinni og hefur fengið við- urnefnið MacDouGoal. Enska blaðið Sunday Mirror birti ný- lega skemmtilegt viðtal við hann þar sem meðal annars er að finna orð þau sem hér að ofan eru höfð eftir Mac Doug- all. — Faðir minn var mjög góður markmaður, hann lék með lið- inu í bænum þar sem við áttum heima í skozku hálöndunum og hvar sem við komum var sagt að ég yrði aldrei eins góður á milli stanganna og pabbi, segir Ted MacDougall. — Mér líkaði ekki að þurfa að viðurkenna þessa staðreynd, en ég þorði ekki að halda áfram. Ég ákvað að finna mér aðra stöðu á knatt- spyrnuvellinum og gera mark- vörðunum lífið erfitt. Ted MacDougall hóf að leika með Liverpool,' fór til York, Bournemouth, Manchester United, West Ham og loks til Norwich, en þar leikur hann með frábærum árangri um þessar mundir. — Ég lofaði þjálfara minum, John Bond, að ég skyldi skora að minnsta kosti 20 mörk á þessú keppnistíma- bili. Nú er ég búinn að skora 15 mörk í deildinni og er því tals- vert á undan áætlun. Það skipt- ir mig ekki máli hvernig ég skora mörkin, aðeins að ég sjái knöttinn stöðvast í netmöskv- unum. Fólk, eins og Tommy Docherty, sem segir að ég geti ekki leikið knattspyrnu kemur mér ekki hið minnsta við. Ég er á toppnum núna, á morgun verð ég kannski einskis nýtur. MacDougall hefur ekki mik- inn áhuga á þvl f dag að gerast markvörður í knattspyrnu, seg- ist jafnvel vera hræddur við að standa á milli stanganna f knattspyrnumarki. Hann hefur þó leikið í marki i deildarleik. — Ég er fljótur að viðurkenna að ég hef sjáldan orðið eins hræddur á ævi minni og þá. Ég var steinrunninn af hræðslu, munnurinn þornaði upp og fæt- urnir voru sem franskbrauð. En ég hlýt að hafa verið mjög heppinn þvf við (York) unnum 2:1 og markið var skorað áður en ég fór f markið. En f mark fer ég aldrei aftur. „Markvörðurinn“ Malcolm MacDonald Vinsœldir Crguffs dvínandi t Hollandi ÞEGAR Hollendingar sigruðu Pólverja með þremur mörkum gegn engu í leik liðanna í Fvrópubikarkeppni landsliða f knattspyrnu á dögunum, tefldu þeir ckki fram sfnu bezta liði. Tveir leikmanna þeirra sem valdir höfðu ver- ið í liðið, markvörðurinn Jan van der Beveren og varnarleikmaðurinn Wiiiy van der Keulen, báðir leikmenn með meistaraliðinu PSV Eind- hoven, sendu landsliðsþjálfar- anum, George Knobel, afboð skömmu fyrir leikinn. Með því vildu þeir mótmæla vali þeirra Johan Cryuff fagnar marki, en er leikmaður númer 14 farinn að dala I áliti fjölmargra aðdáenda sinna? Cryuff og Neeskens í liðið, en sem kunnugt er leika þeir félagar með spánska liðinu FC Barcelona. Óánægja leikmanna hol- lenzka landsliðsins á rætur að rekja til fyrri landsleiks Hollands og Póllands. Þá komu þeir Cruyff og Neeskens ekki til liðs við félaga sina fyrr en tæpum sólarhring fyrir leikinn, og áttu auk þess báðir mjög slæman dag í leiknum. Voru leikmenn hollenzka liðsins á einu máli um að þeir frefðu fallið illa inn í það leikkerfi sem þjálfarinn var búinn að leggja fyrir þá, og einnig bentu þeir á það að hollenzka knatt- spyrnusambandið hefði fyrir löngu markað þá stefnu, að þeir leikmenn sem ekki teldu sig geta æft með landsliðinu, fengju ekki að spreyta sig með þvf, hversu góðir sem þeir annars væru. En Georg Knobel landsliðs- þjálfari lét sig ekki. Hann sagði að án Cruyff og Neeskens væri hollenzka liðið eins og væng- brotinn fugl, og þeir hefðu leikið það marga leiki með þeim mönnum sem valdir voru í liðið að þessu sinni, að engin hætta væri á ferðum þótt sam- æfingu skorti. I leiknum í Hollandi áttu þeir Cruyff og Neeskens báðir mjög góðan leik, og þá sérstaklega sá síðarnefndi, sem skor- aði fyrsta mark Hollend- inganna og átti góðan þátt í hinum báðum. Má búast við að leikur þeirra verði til þess að kveða niður þá gagn- rýni sem varð vegna vals þeirra, en hitt verður líka að teljast ólíklegt, að Jan van der Beveren og Willy van der Keulen fái tækifæri með lands- liðinu fyrst um sinn. Milljónir á ferð Manchester United mesti eyðsluseggurinn en Burnley hefur fengið mest í kassann MILLJÓNIRNAR rúlla stöðugt í sambandi við ensku knattspyrnuna, og stöðugt eru greiddar hærri upphæðir fyrir hvern einstakan leikmann, sem skiptir um félag. Á síðustu fimm árum hafa þau félög sem nú leika f 1. deildinni í Englandi verið viðriðin það að 30 milljónir enskra punda skiptu um eigendur. Mestu eyðsluseggirnir á þessum tíma eru þeir hjá Manchester United. Endurbygging þess liðs sem vann flest möguleg mót og þar á meðal Evrópukeppnina hefur kostað félagið næstum tvær milljónir punda. Billy Bingham framkvæmdarstjóri Everton tilkynnir fréttaþyrstum blaðamönnum um kaup á leikmanni. Everton, Manchester City og til vill væri Burnley nú enskur upphæðar var eytt í tvo Norwich eru þrjú önnur félög, sem greiddu meira en eina milljón fyrir leikmenn á tfma- bilinu frá því haustið 1970 til vors 1975. Norwich tókst líka að þvf leytinu vel til að félagið dvaldi aðeins í eitt ár í 2. deild- inni eins og Manchester United. Það ber að hafa í huga í meistari ef allir þessir leik- leikmenn — Trevor Cherry og menn hefðu verið kyrrir hjá Duncan McKenzie. I staðinn félaginu. hefur Leeds fengið 320.000 Leeds hefur farið varlega pund, sem þýðir að hinn með fengið fé og aðeins eytt frábæri árangur Leeds á þessu 440.000 pundum síðan i maí tímabili hefur aðeins kostað 1970 og meirihluta þessarar félagið 140.000 pund. FÉLAG BORGAÐ FENGIÐ sambandi við kaup og sölur Arsenal 700.000 905.000 Everton að félagið hefur þó Aston Villa 635.000 405.000 ekki aðeins eytt peningum í Birmingham City 940.000 595.000 kaup á leikmönnum, Everton Burnley 110.000 1.225.000 hefur lfka selt drjúgt. Coventry City 915.000 810.000 Arsenal, Ipswich og Wolves Derby County Everton 970.000 665.000 310.000 1.180.000 hafa gert betur en komið sléttir Ipswich 270.000 515.000 út úr viðskiptunum með leik- Leeds Utd. 440.000 320.000 menn, en samt sem áður getur Leicester City 968.000 660.000 að líta ótrúlegustu tölurnar hjá Liverpool 905.000 365.000 Burnley. Þeir eyddu 110 þús- Manchester City 1.230.000 740.000 und pundum f tvo leikmenn — Manchester Utd. 1.955.000 790.000 Peter Noble og Paul Fletcher Middlesbrough 210.000 70.000 — en fengu 1250 þúsund pund Newcastle Utd. 1.360.000 475.000 fyrir sölur á leikmönnum. Eðli- Norwich 1.005.000 545.000 lega hafa þessar miklu sölur Q.P.R. 910.000 615.000 komið niður á árangri félags- Sheffield Utd. 405.000 360.000 ins, þeir hafa selt Coates, Kind- Stoke City 960.000 70.000 on, Dave Thomas, West Dobson Tottenham 480.000 438.000 og Nulty, allt leikmenn, sem West Ham 888.000 615.000 aldir voru upp hjá félaginu. Ef Wolverhampton 360.000 380.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.