Morgunblaðið - 21.10.1975, Qupperneq 18
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÖBER 1975
Minninq:
Magdalena Kampmann
20. ágúst síðastliðinn talaði við
mig frændi Lenu Kampmann og
sagði mér frá því, að hún hefði
látist kvöldið áður í Kaúpmanna-
höfn. Það kom mér ekki á óvart,
því hún var búinn að vera veik
lengi. Lena eins og við kölluðum
hana hét Magdalena, var fædd 1.
apríl 1898 í Reykjavík, dóttir
hjónanna Franzisku, fædd Bern-
höft, og Guðmundar Olsens Kaup-
manns. Nú er mikið talað
um æskustöðvar hennar,
Grjótaþorpið og Bernhöftstorf-
una, svo að undrum sætir. Þar
ólst hún upp í miðri Reykjavík og
gekk i Landakotsskóla, sem þótti
góður skóli. Þar var handavinna í
heiðri höfð og bar öll hennar
vinna þess merki. Lena giftist
Sören Kampmann lyfsala 6. júlí
1918, og sá ég þau fyrst, þegar
ungu brúðhjónin komu akandi
suður í Hafnarfjörð niður Reykja-
víkurveginn, falleg, glöð og glæsi-
leg. Kampmann var fyrsti lyfsali í
Hafnarfirði árið 1917 og urðu þau
hjónin bæði vinsælir borgarar i
Firðinum. Fyrst leigðu þau á Möl-
inni og lyfjabúðin var í kjallara
húss Þórðar Edilonssonar læknis.
En brátt reistu . þau hús við
Strandgotu, þar var lyfjabúðin á
fyrstu hæð, en íbúð þeirra á efri
hæð. Heimilið var framúr-
skarandi fallegt og áttum við vin-
ir þeirra þar margar glaðar stund-
ir. Enkurn minnist ég afmælis-
dags Lenu, þegar þar voru saman
komnar móðir hennar, móðursyst-
ir, og systir, leiksystur hennar,
Zoégasystur og móðir þeirra, frú
Helga Zoega og ótal fleiri úr
Reykjavik og Firðinum. Þá var
glaumur og gleði, sem Lena ein
gat skapað á sínu glæsilega
heimili. Lena var ágæt félags-
kona kvenfélagsins Hringsins og
studdi félagið á allan hátt,
starfaði þar að leikstarfsemi,
tombóluhaldi og öllu þvf, sem
verða mætti félaginu til fram-
dráttar. Börn þeirra hjóna eru: 1.
Nína, gift dönskum verkfræðingi,
N. Nielsen, og þau eiga fimm
mannvænleg börn. 2. Þórarinn
Kampmann verkfræðingur, giftur
danskri konu og á tvær dætur.
Börnin hafa verið henni elskuleg
i erfiðum veikindum, þau minn-
ast áreiðanlega æskuáranna i
Firðinum með gleði.
Ingibjörg Ögmundsdóttir.
+
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR
GUÐJÓNSSON.
Kleppsveg 42,
andaðist I Borgarspítalanum 20.
október
Guðjón Guðjónsson,
Dagbjartur Guðjónsson.
t
Faðir okkar,
KARL JÚLÍUSSON,
fyrrverandi bryti,
lést að Reykjalundi 19. október.
Jarðarförin auglýst siðar.
Fyrir hönd vandamanna
Þröstur Karlsson,
Sigrún Stella Karlsdóttir,
Harpa Karlsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og
amma
ÁGÚSTA KRISTÍN
INGIMUNDARDÓTTIR
ANDERSEN,
Hólmgarði 26
lést á Landakotsspítala laugar-
daginn 1 8 október.
Börn, tengdabörn og barna-
börn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
vináttu og samúð við andlát og
útför,
UNNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Stigahlið 4.
Magnús Kolbeinsson,
Sigrfður Magnúsdóttir.
+
Þökkum innilega samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
soriar mins, föður og bróður
SIGURJÓNS JÓNSSONAR,
Skarðshlíð 29 A,
Akureyri.
Marta Hólmkelsdóttir,
Sigurður Einar,
Sigrfður, Gunnar,
Sólrún, Benedikt,
Helga og Marteinn.
+
Móðir okkar,
HERDÍS SÍMONARDÓTTIR.
lézt! Landspitalanum 1 7 þ.m.
Valborg Jónasdóttir.
Brjánn Jónasson.
Snæbjörn Jónasson.
+
Móðir mín, tengdamóðir og systir okkar
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Austurbrún 6,
lést í lungnadeild Landspítalans aðfaranótt 19 þ.m.
Gyða Svavarsdóttir Hreiðar Ásmundsson.
Geirlaug Guðmundsdóttir,
Jón E. Guðmundsson.
+
Eiginmaður minn
ÞORSTEINN ÞORKELSSON,
skrifstofustjóri,
Bólstaðarhlfð 39.
andaðist í Landspitalanum 1 7 október
Fyrir hönd vandamanna
Friðgerður Friðfinnsdóttir.
+
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVEINBJÖRG EINARSDÓTTIR,
Bræðratungu við Holtaveg. Reykjavík
andaðist i Landspítalanum að morgni 20 október Jarðarförin auglýst
síðar
Eyjólfur Elfasson, börn,
tengdabörn
og barnabörn.
Systir okkar,
SVAVA THORDERSEN,
Olduslóð 4,
Hafnarfirði,
sem andaðist 14. október, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni I Hafnar-
firði miðvikudaginn 22 október kl 1 3:30
Sigriður Thordersen,
Helga Thordersen,
Stefán Ó. Thordersen.
+
Móðir mín,
MARÍA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Brávallagötu 16. A.
andaðist i Landakotsspítala laugardaginn 18 október
Astrid Sigfrid Jensdóttir.
+
Hjartkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HULDA ANDRÉSDÓTTIR,
Sogavegi 210,
verður (arðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 22 október kl.
13:30 Blóm afþökkuð. en þeir sem vilja minnast hennar, láti
Krabbameinsfélagið njóta þess
Stefán Þ. Gunntaugsson,
Björg L. Stefánsdóttir, Halldór Runólfsson,
Sigurður A. Stefánsson, Auður Konráðsdóttir,
Snæbjörn Stefánsson, Anna S. Helgadóttir,
Sigrfður Stefánsdóttir,
Gunnlaugur K. Stefánsson
og barnabörn
Ingibjörg Pálsdótt-
ir—Minningarorð
Fædd 7. nóv. 1900
Dáin 26. sept. 1975.
Kveðja frá Kvennadeild SVFÍ
I Reykjavfk
Föstudaginn 3. okt. s.l. var gerð
frá Frfkirkjunni útför frú Ingi-
bjargar Pálsdóttur. Það var okkur
mikil harmafregn, þegar við frétt-
um andlát þessarar mætu félags-
konu okkar. Ingibjörg var búin að
vera'virkur félagi í déildinni f
nær 40 ár þegar hún lézt, og frá
byrjun ein af okkar allra dug-
legustu konum. Hún tók slíku
ástfósktri við þennan félagsskap,
að hún hlffði sér hvergi, ef að hún
vissi að þörf væri fyrir hana þar.
Hún átti við erfiðan sjúkdóm að
strfða mörg undanfarin ár, en
hún lét það ekki aftra sér.
Það, sem Ingibjörg tók að
sér að vinna fyrir deildina, var
gert af fádæma trúmennsku
og heiðarleika. Nú sfðast, þeg-
ar við vorum að vinna að
undirbúningi fyrir hlutaveltu,
sem við héldum fyrst f október, þá
lá Ingibjörg á spítala, og hennar
heitasta ósk var að komast sem
fyrst þaðan til þess að geta hjálp-
að okkur. Nóttina áður en hún
átti að fara af sjúkrahúsinu kom
kallið mikla, öllum að óvörum.
Henni auðnaðist ekki að fá að
vera með okkur í lifanda lífi á
hlutaveltudaginn, en við trúum
þvf að frá æðri stöðum hafi
Ingibjörg fylgzt með gerðum
okkar og stutt okkur.
Það eru konur eins og hún, sem
byggt hafa upp þetta félag og gert
það að því, sem það er nú. Hún
var sjómannskona, sem eins og
svo margar aðrar, fannst hún
verða að leggja fram krafta sina
útfaraskreytingar
blómouol
Gróðurhusið v/Sigtun sími 36770
til þess að stuðla að öryggi
sjómanna. Islenzkir sjómenn
standa í mikilli þakkarskuld við
þessar konur. Þær hafa með óbil-
andi dugnaði unnið að fjáröflun
fyrir SVFl til þess að hægt væri
að kaupa björgunarrtæki þeim til
öryggis. Það er þeim hollt að vita,
að einmitt þessar konur með sitt
góða móðurhjarta hafa borið hag
þeirra fyrir brjósti. Þótt ekki hafi
þær haft hátt um það, þá hafa þær
unnið markvisst að því, að þeir
geti öruggir gengið að vinnu sinni
vitandi það, að til eru í landinu
björgunartæki og vel útbúnar
björgunarsveitir, sem eru til
hjálpar, ef eitthvað bjátar á.
Ingibjörg var gædd mikilli
fórnarlund, sem við urðum glöggt
varar við. Hún var að eðlisfari
hlédræg og gerði, og ávann sér
virðingu þeirra er hana þekktu.
Við slysavarnakonur höfum nú
misst góðan og tryggan vin, sem
við söknum innilega. Við kveðjum
hana með þakklæti f huga, og
munum geyma minningu hennar
um ókomin ár. Ástvinum hennar
öllum sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
F.h. Kvennadeildar SVFl
f Reykjavfk
Hulda Victorsdóttir.
SVAR M/TT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég er vfst áhyggjusamur að eðli til, og líklega hafna ég að
Iokum á vitlausraspftala. Ég gekk meira að segja f félag
manna, scm hafa áhyggjur, og nú er ég svo kvíðinn út af því,
að ég muni kvfða, að kvíðinn er að gera út af við mig. Hvað á
ég að gera?
Ég sá tölur um daginn. Þær voru um það, sem
fólk hefur áhyggjur af. Það var athyglisverður
lestur. Atburðir, sem aldrei gerast: 40 af hundr-
aði. Hlutir, sem fólk getur ekki breytt: 30 af
hundraði. Ástæðulausar áhyggjur um heilsuna:
12 af hundraði. Eftirlætisáhyggjur: 10 af hundr-
aði. Raunveruleg vandamál: 8 af hundraði. 92
prósent af áhyggjum fólks eru því út í hött.
Jesús sagði við lærisveina sína: „Hjarta yðar
skelfist ekki.“ Þessi orð benda til þess, að unnt sé
að hemja áhyggjurnar. Við látum eftir okkur að
vera kvíðin, og kvíði getur orðið ávani. Umhyggja
er eitt, en áhyggjur annað. Við eigum að sýna
árvekni, og árveknin leiðir af sér jákvæða athöfn.
En áhyggjur eru gagnslausar, þarflausar og spilla
sál og anda.
Biblían segir, að kristnir menn eigi ekki að hafa
áhyggjur. í söfnuðinum í Filippíborg hafa aug-
ljóslega verið áhyggjusamir menn. Páll skrifar
þeim: „Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur
gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með
bæn og beiðni ásamt þakkargjörð, og friður Guðs,
sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita
hjörtu yðar og hugsanir yðar í samfélaginu við
Krist Jesúm“. (Filippfbréfið 4,6—7)
Trú og von eru ráðin við áhyggjum. Við getum
ekki átt trú, þegar við höfum áhyggjur, og þegar
við trúum, getum við ekki haft áhyggjur. Látið
því trúna leysa áhyggjurnar af hólmi, og yður
mun heilsast betur í huga og hjarta.