Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 19

Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÖBER 1975 31 Minning: Matthías Sveinbjörnsson fyrrv. aðalvarðstjóri Fæddur: 16. október 1904. Dáinn: 13. október 1975. Matthías lést í Landspitalanum að morgni 13. október. Hann hafði ekki gengið heill til skógar að undanförnu, en ekki grunaði mig að svo snögglega yrði klippt á lífsþráð hans, sem raun varð á. Kynni okkar Matthiasar hófust er ég byrjaði störf hjá lögreglunni i Reykjavik árið 1953 og var svo lánsamur að fara á „Matthiasar- vakt“ eins og vaktin var nefnd sem hann stjórnaði, og lifir nafn- ið enn hjá mörgum lögreglumönn- um. Matthías hóf störf í lögreglunni i Reykjavík 1. janúar 1930 og starfaði þar í samfellt 44 ár eða til l. janúar 1974 er hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Árið 1940 var Matthías skipaður varðstjóri á einni af þremur aðalvöktum lög- reglunnar og gegndi hann þvi starfi til 1. desember 1961, en þá var hann skipaður aðalvarðstjóri við fangageymsluna og lögreglu- stöðina við Síðumúla sem þá tók til starfa. Þegar fangageymsla var flutt í nýju lögreglustöðina við Hverfisgötú tók hann við stjórn hennar. Öll sin störf vann hann af sam- viskusemi og nákvæmni og rækti starf sitt með slikri trúmennsku að betur varð ekki gert. Hann var prúðmenni hið mesta, grandvar I orðum, og lagði ætíð gott til hvers máls. Hann var mjög farsæll í sínu starfi og var virtur vel af samstarfsmönnum og samborgur- um. Matthías tók mikinn þátt í fé- iagsmáium lögreglunnar, og var m. a. einn af stofnendum Lög- reglufélags Reykjavikur og fyrsti ritari þess. Ennfremur var hann einn af stofnendum lögreglukórs- ins og í fyrstu stjórn hans, og virkur félagi til hinstu stundar. Matthías var mikill tónlistar- unnandi og söngmaður góður og var alla tíð ein styrkasta stoð Lög- reglukórsins, bæði sem söngmað- ur, raddþjálfari og stjórnandi. Hann iék vel á orgel og samdi mörg lög og var tónlistin honum einkar kær og veitti honum marg- ar unaðsstundir. Við félagar hans i Lögreglukórnum söknum Matt- hiasar sárt, og nú er skarð komið í raðir kórsins sem seint verður fyllt. Á sjötugsafmæli Matthiasar var hann kjörinn heiðursfélagi Lögreglukórsins, og væntum við þess þá að fá að njóta félagsskap- ar hans um mörg ókomin ár. Hann tók þátt i öllum söngferðum Lögreglukórsins á lögreglukóra- mótum I höfuðborgum Norður- landa, allt frá fyrsta mótinu sem haldið var í Stokkhólmi 1950, og nú siðast á söngmótinu i Kaup- mannahöfn á s.l. vori. Við félagar hans í Lögreglu- kórnum þökkum honum ánægju- leg kynni, sendum honum hinstu kveðju með þvi að syngja við út- för hans I dag. Börnum hans, tengdabörnum og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar hluttekningarkveðjur. Bjarki Elfasson. Aðfararnótt 13. þ.m. dreymdi mig Matthías svo að hann vék eigi frá mér langa stund nætur, vildi segja mér margt sem ekki verður hér getið. Um morguninn þegar ég kom á fætur sagði ég konunni frá þessu næturævintýri og talaðist okkur svo til að við skyldum hringja til hans um hádegið og vita hvort hann vildi mér eitthvað. En þá klingir það í eyrum að Matthias sé allur. Svona tilviljunarkennt geta örlögin spunnið þráðinn I gegnum ljós og skugga mannlífsins. Ég vissi að Matthías var og hafði verið lasinn undanfarin ár, en að hann væri á sjúkrahúsi svo þungt haldinn datt mér ekki í hug. Við Matthias höfðum starfað saman í 24 ár og vorum því vel kunnugir. Annars var það nú svo að þau 16 ár sem við unnum á gömlu lögreglust. var kynningin ekki mikil vegna þess að við vorum ekki saman á vakt og hitt að annar fór þegar hinn kom. Síðar varð þessi kunn- ingsskapur að vináttu eftir að komið var i Siðumúla 18, þar voru fáir til að glepja, aðeins tveir á vakt. Margt sem við tileinkum okkur af mannlegum kostum mátti finna í fari Matthísar. Hann var myndarlegur maður, glæsileg- ur að vallarsýn og sópaði 'að honum á yngri árum. Ágætlega greindur, prúður i fasi og allri framgöngu, hugsunin djúpstæð en þó glaðvær og jafnvel kátur í góðra vina hópi. Hann var siðvand ur, orðvar og fáskiptinn um ann- arra manna hagi. Reyndi aldrei að þröngva sér inn í persónuleg vé manna en gat verið fundvis á bestu eðliskosti hvers og eins. Greiddi oft úr andlegum flækjum til hjálpar þeim sem hann vissi að þurfti þess með. Honum var eigin- Iegt að orka til hugarbóta á alla sem í kringum hann voru og sáði ætíð frækorni náungans garð. Kastaði sér aldrei út i flaumæði mannlífsins og lét ekki tilfinn- ingar sinar á þrykk út ganga. Vissi meira en hann sagði og það fór honum vei eins og margt annað. Eiginmaður og faðir var hann frábær. Það heyrðist utanaf götunni, að Matthias Sveinbjörns- son aðalvarðstjóri væri stundum barnalega sinnaður og þó harður í dómum þegar þvi væri að skipta. Nokkuð var til í þessu, með skýr- ingu: Þvi hvað er betra en barns- ins bros og mildi. Matthias vildi aldrei hafa svik eða ósannindi i fari sinu og ætlaði öðrum það ekki, kaus heldur að ganga sann- leikans veg o£ reyndi ævinlega að hafa það sem sannara var. Við vissum líka að hann var mjög formfastur og meira fyrir bókstaf en brjóstvit. Þess ber að gæta að maðurinn bar óskoraða virðingu fyrir landslögum og hafði í nær 50 ár kennt borgaranum að halda þau. Mér þótti vænt um Matthias og taldi hann einhvern allra vandaðasta mann sem ég hef kynnst bæði til orðs og æðis. I Fristundum sínum hafði hann gaman af að ganga úti i náttúruna og vera á eintali við jarðlífið eins og meistari Þórbergur komst að orði. Eitt sinn fengum við okkur keyrða út á Suðurnes á Sel- tjarnarnesi. Kvöldið var töfrandi fagurt, vorið var vissulega í full- um skrúða. Hafaldan tónaði værðarlega við nesið. Esjan var böðuð í sól og að okkur sýndist, dansandi í tibránni. Æðurinn úaði við sundin og krían ómaði frekjunni út í kvöldkyrrðina. Við vissum ekki hvað tímanum leið. Á þessari kvöldstund kynntist ég Matthíasi meira og betur en á mörgum undangengnum árum. Siðar sagði hann mér að lagstúfur hefði orðið til hjá sér þetta kvöld og að fuglarnir og hafaldan hefðu lagt til efniviðinn. Matthias var söngelskur, hafði yndi af allri klassiskri músik, hafði snotra söngrödd og lék bæði á orgel og pianó og kompóneraði mörg lög. En þessum meðfæddu éiginleik- im vildi Matthias lítt flika utan vinahópsins. Börnum hans og öðrum ættingj- um vottum við samúð. Við Unnur kveðjum Matthias með virðingu og kærri þökk fyrir samstarf og trygga vináttu. Bjarni M. Jónsson. I dag verður Matthias Svein- björnsson fyrrverandi aðalvarð- stjóri til moldar borinn. Lögreglumenn á B-vakt vilja senda honum nokkur þakklætis og kveðjuorð, þar sem margir okkar voru starfsmenn hans um fjölda ára. Fráfall Matthiasar kom okkur óvænt og áttum ekki von á því að veikindi hans væru jafn alvarieg og raun bar vitni um. Fyrir tæpum tveimur árum hætti Matthias störfum hjá lög- reglustjóraembættinu, gerði hann sér vonir um að fá að njóta ævi- kvöldsins, að hann fengi nú gott næði til að hlú að þeim hugðar- efnum sem honum voru hjartkær. Matthias vann við löggæzlustörf i rúma 4 áratugi og þá lengst af sem varðstjóri. Hann hafði til að bera skapfestu og lét gjarnan ekki sinn hlut, ef honum fannst hallað réttu máli. Formfastur og nákvæmur stjórnandi var hann og stundum svo að sumum fannst nóg um. En hann lét það ekki á sig fá, því Matthíasi var umhugað um að skila starfa sinum meó trúmennsku. Þótt hann yrði að taka óvinsæl- ar ákvarðanir, sem ekki var und- an komist, var aldrei hægt að merkja að hann bæri kala til nokkurs manns, þó til hvassra orðaskipta kæmi. Matthías sætti sig við lífið, kosti þess og galla. í hugum okkar verður hann ávallt hinn heiðarlegi og grand- vari maður sem ekkþmátti vamm sitt vita i einu eða néinu. Nú er hann farínn yfir móðuna miklu, yfir þau^andamæri er okk- ar allra bíða og enginn fær umflú- ið. Matthias trúði í einlægni á lífið eftir dauðahn og nú þegar hann hefur lokiöí jarðvist sinni, óskum við honunti blessunar á nýjum ævibrautiim. Við þökkum honum samstarfið og einlægt viðmót á lifsleiðinni. Afkomendum hans óskum við gæfu og velfarnaðar. Þ.A. t Maðurinn minn OLE OMUNDSEN, lést að heimili sínu, Fífuhvamms- vegi 25., Kópavogi, sunnudaginn 19. október. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Jóhannesdóttir. t Eiginkona mín, ÁGÚSTA HILDIBRANDSDÓTTIR, Stóragerðí 13, andaðist i Borgarspítalanum sunnudaginn 1 9 september Sigurður Árnason. t Útför MATTHÍASAR SVEINBJÖRNSSONAR, fyrrverandi aðalvarðstjóra, Bergþórugötu 31. Fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21 október kl 1 3 30 Bjarni Matthíasson Margrét Matthiasdóttir Sveinbjörn Matthiasson Þórunn Matthlasdóttir Matthildur Matthiasdóttir Svala Pálsdóttir Hjálmtýr Hjálmtýsson Jónlna Guðmundsdóttir Vilhjálmur Tómasson Davið Hemstock Starfsemi Scmentsvcrksmiðju rikisins 1. Sölumagn alls 1974. Sölumagn alls 1974 158.597tonn Selt laust sement 81.849tonn 51.6% Selt sekkjað sement 76.748 - 48.4% 158 597tonn 100.0% Selt frá Reykjavik 101.667tonn 64 1% Selt frá Akranesi 56.930tonn 35.9% 158.597tonn 100.0% Selt portlandsement 128 528tonn 81.0% Selt hraósement 23 519 - 14.8% Selt nýtt faxasement 6425 - 4.1% Selt lágalkalisement 125 - 0.1% 158.597tonn 100.0% 2. Rekstur 1974 Heildarsala 1.038 m. kr. Frá dregst: Söluskattur. Landsútsvar, Framleióslugjald. Flutningsjöfnunargjald, Sölulaun og afslættir. Samtals 271.4------ Aörar tekjur 766.7 m. kr. 4.6------ 771.3 m. kr: Framleióslukostn. 427.2 m. kr: Aðkeypt sement og gjaH Frá dregst: Birgðaaukning 217.3---- Flutnings- og sölukostnaöur Stjórnun og almennur kostn. Vaxtagjöld - vaxtatekjur Tap á rekstri m/s Freyfaxa Hreinar tekjur 33.1 - - 611.4m.kr: 159.9 m. kr: 100.0 m. kr: 25.3----: 125.3 m. kr: 34.6 m. kr: 30.1----: 4.5 m. kr: 1.6- 2.9 m. kr- 3. Efnahagur 31. 12. 1974. Veltufjármunir Fastafjármunir Lán til skamms tima Lán til langs tima 363.2 m. kr: 1.373.4 m.-: 527.2- - 204.2 ---- Upphafl. framl. rikissjóós 12.2 m. kr: Höfuóstóll 5.2 - - Endurmat fasta- fjármuna 1974 987.8- -________________ Eigióféalls 1.005.2- 4. Eignahreyfingar. Birgðamat i meginatriöum FI.FO. Uppruni fjármagns Frá rekstri: a. Hreinar tekjur b. Fyrningar . Lækkun skulda brófaeignar Ný lán Alls Ráóstöfun fjármagns: Fjárfestingar Afborganir lána Rýrnun eigin veltuflár 2.9 m. kr: 86.4----- 89.3 - - 1.7- - 22.8- - 113.8 m. kr: 135.0 m. kr 83.8 m. kr Alls 218.8m. kr 105.0m. kr: 5. Ymsir þættir: Innflutt sementsgjall Innflutt sement Framleitt sementsgjall Aókeyptur skeljasandur Unnió lipa.it Innflutt gips Brennsluoiia Raforka 34.805 tonn 4.818 - 99.000 - 121.000 m3 32.000 tonn 9.714 - 13.082 - 14.592.100 kwst. 6. Rekstur m/s Freyfaxa: Flutt samtals Flutt voru 34.818 tonn af sementi á 40 hafnir Annar flutningur 49.477 tonn 34.818 tonn 14.659 - 49.477 tonn Innflutningur meó Freyfaxa 9.672 tonn Gips og gjall 9.440 tonn Annað 232 9.672 tonn Flutningsgjöld á sement út á land aó meóaltali 1.138 kr/tonn Úthaldsdagar 346 dagar 7. Heildar launagreióslur fyrirtækisins: Laun greidd alls 1974 Laun þessi fengu greidd alls 333 menn, þar af 145 á launum allt árió. 180.0 m. kr: 8. Nokkrar upplýsingar um eiginleika sements: Styrkleiki portlandsements hjáS.R. . Styrkleiki skv. Frumvarpi að isl sementsstaóli Þrýstiþol: tágmarkskröfur 3 dagar 250kg/cm* 175kg/cm2 7 dagar 330 kg/cm* 250 kg/cm 28 - 410 kg/cm 350kg/cm2 Aó jafnaöi eigi minna en ofangreint Mölunarfinl. 3200cm2/g Eigi minna en 2500 cm2 Beygjutogþol portlandsements Beygjutogþol: 3 dagar 50 kg/cm2 7 - 60 kg/cm2 28 - 75 kg/cm2 5R SEMENTSVERKSMIDJA RfKISINS Efnasamsetning islenzks sementsgjalls. Kisilsýra (SiO ) Kalk (CaO) 7 Járnoxið (Fe O ) Áloxið (Al O2) 3 Óleysanleg leif Alkalisölt, Natriumjafngildi Glæóitap 40 kg/cm2 50 kg/cm2 60 kg/cm2 Hámark skv. isl isl. staóli fyrir sement 20.6% 64.2% 3.7% 5.1% 2.8% 5.0% 1.0% 3.5% 0.7% 2.0% 1.5% 0.3% 99.9%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.