Morgunblaðið - 21.10.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975
r
37
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í sima 10-100»
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
% 33 ára heimafrú
svarað
Margrét S. Pálsdóttir, sem
kveðst vera 34 ára gömul heima-
vinnandi húsmóðir í Kópavogi
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að skrifa þér
nokkur orð viðvikjandi bréfi, sem
33 ára „heimafrú" skrifar þér í
dag. Að mörgu leyti er ég sam-
mála henni og stend nokkurn
veginn í sömu sporum og hún og
er nokkurn veginn ánægð með
það, m.a. af þvl að ég hef mikla
ánægju af handavinnu og bók-
lestri.
En það eru ekki allar konur
eins gerðar og þá er nauðsynlegt
fyrir þær að komast út af heim-
ilinu. Af hverju þurfa allir að
vera eins?
Allt í lagi með það, en i guðs
bænum hættu þessari sjálfum-
gleði á báða bóga og hættum að
halda þvi fram, að okkar eigin
aðferð við að lifa lífinu sé sú eina
rétta.
Með kveðju,
Margrét S. Pálsdóttir.“
^ Fyrsta eða
annars flokks
þjóðfélagsþegnar
Jóna Jónsdóttir, Æsufelli 2,
skrifar:
„Þetta á að vera svar til konu,
sem er dauðleið á kvennaári og
segir, að ekkert kvennaár fái sig
til að líta á sig sem annars eða
þriðja flokks þjóðfélagsþegn:
Vegna bréfs þíns til Velvak-
anda 16. október Iangar mig til að
benda á nokkrar staðreyndir og
bið þig um að lita lengra en í eigin
barm.
Þú segist eiga fjögur börn,
indælt heimili og eiginmann, sem
vinnur fyrir peningum til heimil-
isins. Það er gott og blessað, en
þvi miður hafa margar konur í
þinni aðstöðu vaknað upp við
vondan draum, „fyrirvinnan"
fallin frá og þar með brostið fjár-
hagslegt öryggi fjölskyldunnar. 1
slikum tilvikum verður ekkjan,
sem e.t.v. hefur helgað eigin-
manni, börnum og heimili alla
sína starfskrafta að leita út í at-
vinnulífið. Hver er svo staða
hennar þar? Fær hún störf sin
innan veggja heimilisins metin?
Nei, jafnvel ekki við skúringar,
uppþvott eða barnagæzlu. Þar má
hún láta sér nægja byrjendalaun.
— Ber að skilja þetta svo, að
enginn — nema presturinn —
hafi stigið fæti út fyrir dyr á
heimilinum eftir klukkan fjögur
á aðfangadag?
Þegar hér var komið gaf sig
fram óvænt vitni, sem enginn
hafði sinnt fram að þessu. Lotta
horfði stóreyg á ókunna manninn
og sagði:
— En þegar ég hljóp niður í
eldhús til að biðja Hjördisi að
ydda biýantinn minn var hún
ekki inni. Klukkan var kortér yfir
fjögur og ég sá að kápan hennar
var horfin... og þá fór ég upp og
notaði pennann minn f staðinn.
En það er miklu verra.
Hjördis varð hvert við og hún
hnyklaði augabrýnnar.
— Litla vína min, ég VAR
heima ailan ttmann. Þú hefur þá
ekki leitað almennilega að mér.
Ég hef kannski verið I borðstof-
unni eða inni I mfnu herbergi
eða___
Einar kom henni til hjálpar.
— Hvernig sem þvf er nú farið
þá sat ungfrú Holm hin rólegasta
f eldhúsinu klukkan hálf fimm,
ég get borið um það. Til að segja
nú allan sannleikann þá læddist
ég niður f eldhús til að biðja um
Er þetta að vera fyrsta flokks
þjóðfélagsþegn?
Þú segir, að kona bónda í sveit
vinni mikið, en bendir réttilega á,
að hann vinni lika og I samein-
ingu sjái þau árangurinn. Þetta er
rétt, en veizt þú, að vinnuframlag
bændakvenna er metið til 175
þús. króna á ári? Er þetta að vera
fyrsta flokks þjóðfélagsþegn?
Þú segist hafa tima til að sinna
áhugamálum, lesa góðar bækur
og afla þér fróðleiks. Ekki kveðst
þú fá kaup fyrir þetta, en það
veiti þér ánægju. Þú segist vera
þakklát fyrir að geta veitt þér
þetta á þínu fallega heimili. Þetta
er gott fyrir þig, en þú ert ekki
ein i heiminum. Eða er þér
kannski nóg, að þér sjálfri liði
vel? Er það að vera fyrsta flokks
þjóðfélagsþegn?
Jóna Jónsdóttir."
0 Innfluttar tertur
Rannveig Guðmundsdóttir,
Laufásvegi 38, skrifar:
„Velvakandi góður.
Mig langar til að vita hve lengi
á að sóa gjaldeyri i þessar inn-
fluttu tertur og kökur, sem hafa
verið fluttar til landsins lengi.
Við höfum góðar brauðbúðir, ef
við getum ekki bakað heima.
Hver getur svarað?
Rannveig Guðmundsdóttir.“
Á fínu hagfræðingamáli heitir
þetta ekki gjaideyrissóun, heldur
frjáls verzlun. Hins vegar, þegar
ferðamenn fá ekki gjaldeyri til að
ferðast fyrir, nema búið sé á far-
fuglaheimilum og nærzt við
pylsuvagna, á milli þess sem skipt
er um almenningsbekki til að
auka tilbreytni i útsýni, þá er það
kallað aðhaldsaðgerðir og að
sporna við gjaldeyrissóun þjóð-
arinnar.
0 Heimskommún-
isminn
Hér kemur loks bréf frá
„húsmóður", — þó ekki um
kvennaárið:
„Það verður fróðlegt að fylgjast
með umræðum um flotastöðina
Diego Garcia á Indlandshafi.
Bandarikjamenn fengu hana í
stríðinu og þótti sjálfsagt. Það
hlálega var, að Rússar tóku Ytri-
Mongólíu af Kínverjum og létu
þar greipar sópa, þvi þar höfðu
Japanir þungavélaiðnað sinn og
hreinsuðu Rússar þetta landsvæði
svo vel, að ekki voru skilin eftir
svo mikið sem botnsstykkin
undan vélunum. Síðan harð-
neituðu þeir að skila aftur land-
inu. Það var þvi ekki út i bláinn
er Teng Hsíaó Ping aðstoðarráð-
herra i Kína sagði óbeint, að styrj-
aldarhættan í heiminum kæmi frá
Sovétríkjunum. . Sendiherra
Rússa strunsaði þá út og fylgdu
honum sex sendiherrar frá lepp-
rikjum. Sannaðist þá hið forn-
kveðna: „Veit hundur þá étið
hefur“. Forsætisráðherra Ceylon
viil engar herstöðvar í Indlands-
hafi. Gott er það, en auðvelt
verður það ekki.
Verk Viet-Cong eru nú farin að
sjást og fer litið fyrir frelsishug-
sjónunum. Þeir eru búnir að skira
höfuðborgina i höfuðið á mann-
inum, sem réðst á landið og vildi
innlima það I Norður-Víetnam.
Atti kannski Jón Sigurðsson að
biðja um að tsland yrði eitt af
dönsku ömtunum? Síðan bjóða
þeir Rússum herstöðvar Banda-
rikjamanna, svo að Asíurikin sjái
nú sína sæng uppreidda. Afríka
liggur svo að Indlandshafi og sum
ríkin þar vilja margt fyrir Rússa
gera. Það ættu svo fleiri þjóðir en
Kinverjar að sjá að heimsvalda-
stefna ógnar mest hinum frjálsa
heimi. Þegar Bandaríkjamenn
voru búnir að þurrka út nasism-
ann þá áttu þeir engin lönd og eru
búnir að skila Japönum Okinawa.
Rússar halda hins vegar enn
Kuril-eyjum. Það vita allir, að
Rússar hafa miklu meiri völd i
lepprikjunum en nýlendurikin
höfðu í gamla daga. Indverjar
máttu hafa sin trúarbrögð I friði
fyrir Englendingum, en af hverju
mátti Tékkóslóvakia ekki vera
frjáls með stjórn á sinu landi.
Ekki ætluðu Tékkar að segja sig
úr Varsjárbandalaginu. Nei, þeir
ætluðu bara að sleppa pölitískum
föngum og létta svoiítið á kúgun-
inni. Rússar létu Varsjárbanda-
lagsþjóðirnar ráðast inn i landið
og nú situr allt við það sama. Nú
sitja 188 sögukennarar undir lás
og slá í Tékkóslóvakíu. Þarf frek-
ar vitnanna við?
Húsmóóir."
HÖGNI HREKKVÍSI
.. Hún elskar mig af öllu hjarta — yfirmáta —
ofurheitt...“
30% meiraljós
á vinnuf lötinn
sami
orkukostnaöur
PHILIPS
PhilipsArgenta’
SuperLux
keiiuperan meö
tHiöjafnanlega hirtuglugganum
Ókeypis Ijósaskoðun
til 1. nóvember fyrir allar teg. Skoda-bifreiða.
Tékkneska — bifreiðaumbodið á íslandi h.f.,
Auðbrekku 44 — 46 Kópavogi.
Nudd- og snyrtistofa
Ástu Baldvinsdóttur
Hrauntungu 85, Kópavogi
Andlitsboð,
húðhreinsun,
fót- og handsnyrting
Megrunar- og
afsloppunar
nudd og nudd
við vöðvabólgum.
VIL VEKJA SÉRSTAKA
ATHYGLI Á:
10 tíma megrunar- og afslöppunarkúrum.
Nudd, sauna, vigtun, mæling og matseðill
OPIÐ TIL KL. 1 0 ÖLL KVÖLD.
Bílastæði. Sími 40609.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Símanámskeið
Stjörnunarfélagið gengst fyrir sima-
námskeiði fyrir símsvara 23.. 24. og
25. okt. að Skipholti 37. Námskeið-
ið stendur yfir kl. 14.00 —- 17.00
fid. 23. okt., föd. 24. okt. kl. 14.00
— 18.00 og laud. 25. okt. kl. 9.15
— 12.00.
Fjallað verður um starf og skyldur simsvarans, eiginleika góðrar
símraddar, simsvörun og simatækni. Ennfremur fer fram kynning á
notkun simabúnaðar, kallkerfi o.s.frv.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Helgi Hallsson og Þorsteinn
Óskarsson simvirkjaverkstjóri.
Vinnurannsóknir og launa-
kerfi.
Fyrir þá, sem vilja bæta afköst og auka hagræðingu.
Stjórnunarfélagið gengst fyrir nám-
skeiði um vinnurannsóknir og
launakerfi 27., 28. og 29. okt. n.k.
i Skipholti 37 Námskeiðið stendur
yfir kl. 15:00 — 18:45 alla
dagana.
Á námskeiðinu verður gerð grein
fyrir helstu atriðum við framkvæmd
þeirra. Ennfremur verður farið i
einkenni og uppbyggingu mismun-
andi launakerfa, kosti þeirra og
galla. Námskeiðið er ætlað þeim,
sem vilja bæta framleiðsluaðferðir
starfsemi sinnar. Jafnframt er nám-
skeiðið heppilegt fyrir trúnaðar-
menn á vinnustöðum.
Leiðbeinandi er Ágúst Eliasson
tæknifræðingur.
Þátttaka tilkynnist í síma 82930
Þekking er góð fjárfesting.