Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 26

Morgunblaðið - 21.10.1975, Síða 26
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÖBER 1975 Rússar fá kornið og selja olíu Washington, 20. október. AP. BANDARÍKIN hafa fallizt á að selja Sovétrfkjunum sex til átta milljónir lesta af hveiti og mafs á ári næstu fimm árin frá og með október á næsta ári að þvf er skýrt var frá f dag. Banni, sem var sett á kornsöl- una fyrir tveimur mánuðum hefur verið aflétt. Samkomulag varð um korn- söluna f þriðju lotu viðræðna Charles W. Robinsons aðstoð- arutanríkisráðherra við sov- ézka embættismenn f Moskvu. 1 staðinn lofuðu Rússar að selja Bandarfkjamönnum olfu, ef samkomulag tekst um verð. Magnið er 200.000 tunnur á dag sem er Iftið brot af þvf sem Bandarfkin flytja inn. Embættismenn segja að Rússar muni kaupa hveitið og mafsinn á núverandi mark- aðsverði f Bandarfkjunum og af einkaaðilum. Reynt verður að dreifa sölunni jafnt á hvert ár. Búizt er við að Rússar kaupi nú sjö milljónir lesta af metuppskeru Bandarfkjanna. Spánn skorar á SÞ New York, 20. október. Reuter. SPÁNN skoraði á Öryggisráðið f dag að beina þeim tilmælum til Hassans Marokkókonungs að hann aflýsti fyrirhugaðri mótmælagöngu 350.000 Mar- okkómanna inn f Spænsku- Sahara. Ráðið frestaði fundin- um svo fulltrúar gætu borið saman bækur sfnar. I Marokkó var haft eftir heimildum f stjórninni, að all- ar áskoranir frá SÞ um að af- lýsa göngunni yrðu að engu hafðar ef Spánverjar sam- þykktu ekki að afhenda Mar- okkómönnum yfirráð yfir ný- lendunni. f Madrid kom spænska stjórnin saman til aukafundar vegna göngunnar sem hefst á morgun og Carlos Arias Navarro forsætisráðherra ráð- færði sig við yfirmenn hersins. Franco hershöfðingi aflýsti fundi með herforingjum vegna inflúenzu. 50 fórust Mexíkóborg, 20. október. AP. ALLT AÐ fimmtfu biðu bana og minnst 175 slösuðust f árekstri tveggja lesta á neðan- jarðarjárnbrautinni f Mexfkó- borg í dag. Tveir öftustu vagn- ar lestarinnar, sem ekið var á, lögðust saman. Brotizt inn hjá Ford Washington, 20. okt. AP. BROTIZT var inn f skrifstofu kosninganefndar Ford forseta f gær og reynt að opna skáp sem í voru peningar og bók- haldsskýrslur nefndarinnar að sögn The Washington Star. Málið minnir á innbrotið f aðalstöðvar demókrata f Wat- ergate-byggingunni 1972 en starfsmaður nefndarinnar ef- ast um að innbrotstilraunin hafi verið af pólitfskum toga. Átök í Golan Damaskus, 20. október. Reuter. ÁTÖK urðu milli sýrlenzkra og fsraelskra hermanna f Gol- an-hæðum f dag og Sýrlending- ar segjast hafa hæft f jóra fsra- elsmenn. Forsætisráðherra: Sem víðtækust og raunhæf- ust friðun fískveiðilandhelginn ar er markmið viðræðnanna UMRÆÐUR urðu f Sameinuðu Alþingi f gær um landhelgismál, samningaviðræður og nýtingu hinnar nýju fiskveiðilandhelgi. Þær umræður leiddu m.a. f ljós, að væntanlegar viðræður við aðrar þjóðir um landhelgismál byggjast á alþjóðlegum skuld- bindingum, sem við höfum undir- gengizt, um að reyna til þrautar samningaleið f deilumálum þjóða f milli, sem og að fá úr þvf skorið, hvort við náum meiri árangri um fiskvernd og samdrátt f sókn út- lendinga á fslandsmið með samningum eða án. Þá kom og f Ijós f máli forsætisráðherra, að höfð ve,'ður hliðsjón af skýrslu Hafrannsóknastofnunar um minnkandi stofnstærð nytjafiska á fslandsmiðum f viðræðum við aðrar þjóðir og allri framkvæmd útfærslunnar. Lúðvfk Jósepsson (K) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár i samein- uðu þingi í gær, í tilefni af væntanlegri för viðræðunefndar um landhelgismál til London. Sagði hann þjóðarsamstöðu um það meginatriði, að ekki yrði sam- ið um nýjar veiðiheimildir innan hinnar nýju landhelgi, sér í lagi ekki innan 50 milna markanna. í þvi sambandi vakti hann athygli á samþykktum mikils fjölda sam- taka i landinu, s.s.: ASÍ, FFSl, LÍU, Sjómannasambandsins, Félags áhugamanna um sjávarút- vegsmál, fjölda sveitar- og bæjar- stjórna, landshlutasamtaka og fleiri aðila. Átaldi Lúðvík sérstaklega, að landhelgisnefnd hefði ekki verið kölluð saman til fundar frá þvi fyrir útgáfu reglugerðar um hina nýju landhelgi, eða i meir en 3 mánuði, og hvorki höfð samráð né samvinna við stjórnarandstöðuna um framkvæmd málsins allan þennan tima. Hinsvegar væri við- ræðunefnd á förum til London og viðræður ákveðnar við V- Þjóðverja en hvorki þing né þjóð hafi verið skýrt frá stefnu eða markmiðum rikisstjórnarinnar með þessum viðræðum. Hann minnti á nýja skýrslu fiskifræðinga á vegum Hafrann- sóknastofnunar, þar sem skýrt og skorinort væri sagt, að ekki mætti taka meira aflamagn úr helztu nytjafiskum okkar á næstu árum, þ.e. þorski, ýsu og karfa, en við hefðum sjálfir gert á undanförn- um árum, ef ekki ætti illa að fara. M.ö.o., ekki mætti grisja fisk- stofnana meir en við værum ein- færir um og vel það með fiskveiði- flota okkar, svo í raun væri ekki um neitt að semja. Hann sagði að ríkisstjórnin yrði að leggja þessa skýrslu fram sem sönnunargagn I viðræðum við aðrar þjóðir, hefja þegar samstarf við stjórnarand- stöðu á ný og lýsa þvi ótvírætt yfir, að engir samningar verði gerðir um veiðiheimildir innan 50 milna markanna. Geir Hallgrímsson, forsætisráð- herra, sagði það meginmarkmið rikisstjórnarinnar, að 200 sjó- Gefr Lórtvfk Hallgrfmsson Jósepsson mílna fiskveiðilandhelgin yrði friðuð i heild fyrir erlendri fisk- veiðiásókn. Samningar um hugsanlegar fiskveiðiheimildir yrðu að byggjast á eftirfarandi, ef þá til þeirra kæmi: umtalsverður samdráttur i sókn útlendinga á íslandsmið, bæði að því er varðaði skipafjölda og aflamagn, tak- mörkuð veiðisvæði færð fjær landi en núgildandi samningar við Breta gerðu ráð fyrir, með það fyrst og fremst i huga að ná sem viðtækastri og raunhæfastri friðun að 50 mílna mörkum; óg engar undanþágur veittar nema til mjög skamms tima. Spruningin væri einfaldlega sú, hvort okkur tækist betur að fjar- lægja erlend skip af Islandsmið- um með eða án samninga. Forsætisráðherra gat þess, að sjávarútvegsráðherra hefði skýrt frá niðurstöðum Hafrannsókna- stofnunar um ástand fiskistofna á íslandsmiðum, er hann kunngerði erlendum og innlendum frétta- mönnum útgáfu hinnar nýju reglugerðar um 200 sjómílna fisk- veiðilandhelgi. Jafnframt hefði rikisstjórnin óskað eftir ítarlegri greinargerð stofnunarinnar, sem nú iægi fyrir, og nýtt yrði hvort tveggja í væntanlegum viðræðum við aðrar þjóðir og við kynningu sjónarmiða okkar, bæði hérlendis og erlendis. Hin nýja skýrsla yrði að sjálfsögðu rædd í landhelgis- nefnd og fiskveiðilaganefnd, sem nú ynni að samningu frumvarps um skynsamlega nýtingu hinnar nýju fiskveiðilandhelgi. Þá væri og I athugun hjá sjávarútvegsráð- herra að halda tvær ráðstefnur um skýrslu Hafrannsóknastofn- unar: annarsvegar ráðstefnu inn- lendra aðila, sem hér ættu hlut að máli, fiskifræðinga, útvegs- manna, sjómanna, fiskvinnslu- aðila og hagfræðinga, hinsvegar ráðstefnu fiskifræðinga frá þeim þióðum, sem fiskveiðihagsmuni Benedikt Karvel Gröndal PSImason ættu á hafsvæðunum umhverfis okkur. Einn helzti þáttur slikra ráðstefna væri kynningarstarf- semi. Er landhelgisnefnd hefði þing- að siðast um hugsanlegar við- ræður við aðrar þjóðir, hefði komið fram verulegur ágrein- ingur um það atriði, og stjórnar- andstaðan tekið aðra stefnu en stjórnin hefði talið rétta vera. Við værum skuldbundnir til, skv. ýmsum alþjóðasáttmálum, sem við hefðum undirgengizt, m.a. sáttmála S.Þ., að reyna samninga- viðræður um slík deilumál. Annað mál væri, hvort slíkar við- ræður leiddu til samninga, sem reynslan yrði úr að skera. Benedikt Gröndal (A) sagði m.a., að stjórnarandstaðan hefði siður en svo slitið neinu samstarfi við ríkisstjórnina um landhelgis- mál, eins og álykta mætti af orð- um forsætisráðherra, Rétt er, sagði Benedikt, að við værum með ýmsum alþjóðasáttmálum bundn- ir samningatilraunum, sem rétt væri að iáta reyna á. Alþýðu- flokkurinn hefði alltaf verið fylgjandi viðræðum af þessu tagi. Að sínu mati „mætti líta á“ hugsanlega samninga utan 50 mílna marka. Þá gagnrýndi Benedikt harð- lega ónóga kynningu á málstað og röksemdum Islendinga I land- helgismálinu á eriendum vett- vangi, og taldi að þar hefði betur mátt gera. Það væri margt, sem ræða þyrfti við aðrar þjóðir, og byggt gæti upp gagnsókn af okkar hálfu, s.s. refsiaðgerðir EBE- rikja, löndunarbönn á Islenzkum fiski, ýmiskonar viðskiptahags- munir o.fl. Hvatti Benedikt til einarðari viðleitni um samstarf og samstöðu, sem ekki myndi af veita, þó staða okkar væri sterk- ari nú en nokkru sinni áður vegna þróunar hafréttarmála á alþjóða- vettvangi. Karvel Pálmason (SFV) mót- mælti því, eins og Benedikt, að stjórnarandstaðan hefði með ein- um eða öðrum hætti skorið á sam- vinnu við rikisstjórnina í land- helgismálinu. Hins vegar væri það samdóma álit hennar, að ekki ætti að semja um neinar veiði- heimildir innan 50 mílna marka. Skýrsla Hafrannsóknastofnunar, sem nýkomin væri I hendur þing- manna, renndi enn frekari stoðum undir þetta sjónarmið. I raun væri ekkert til að semja um við aðrar þjóðir. Skoraði hann á forsætisráðherra og dómsmála- ráðherra að lýsa þvi yfir hér og nú, án málalenginga, að flokkar þeirra væru andvígir hverskonar veiðihemildum innan 50 milna markanna. Lúðvlk Jósepsson (K) sagði það alrangt, að Alþýðubandalagið hefði nokkru sinni verið á móti viðræðum við aðrar þjóðir. Þvert á móti. Hann hefði I landhelgis- nefndinni boðið upp á það, til samkomulags, að sætzt yrði á það meginatriði að sinum dómi, að ekki yrði samið um veiðiheimildir innan 50 milna markanna. Hins- vegar kæmi til mála að semja á „ytra beltinu, milli 50 og 200 sjó- mllna“. Hann minnti á breytt sjónarmið Breta, sem sjálfir stefndu að 200 sjómílna fiskveiðilandhelgi, þró- un líkra viðhorfa á þingi Banda- ríkjanna, yfirlýsingu Mexikó- stjórnar o.fl., sem sýndi, að að- staða okkar út á við styrktist dag frá degi. Þessi staðreynd, ásamt niðurstöðum skýrslu Hafrann- sóknastofnunar um siminnkandi stofnstærð nytjafiska okkar, ætti að taka af allan vafa í hugum ráðherranna, og stuðla að sam- stöðu landsmanna bæði heima fyrir og út á við. Sparnaður í bifreiðaeftirliti: Nýtt númerakerfi bifreiða FRAM er komið stjórnarfrum- varp um breytingu á umferðar- Iögum, sem að meginefni gerir ráð fyrir að hætt verði að umskrá ökutæki vegna flutninga milli lögsagnarumdæma. Frumvarpið hefur ennfremur að geyma ákvæði um skráningu og notkun beltabifhjóla (vélsleða) og um hámarkslengd ökutækja. Þá er iagt til að lögboðin ábyrgðar- trygging ökutækja verði hækkuð og ennfremur gert ráð fyrir nokkrum öðrum breytingum á umferðarlögum. I athugasemdum með frumvarpinu segir m.a.: „Samkvæmt gildandi ákvæðum umferðarlaga skal skrá öll skráningarskyld ökutæki hjá lög- reglustjóra, þar sem eigandi öku- tækisins er búsettur. Þá er eig- endaskipti verða að skráðu öku- tæki og hinn nýi eigandi er búsettur í öðru lögsagnarum- dæmi, skal tilkynna Iögrpglustjór- um beggja umdæma eigenda- skiptin. Skal ökutækið þá skráð að nýju, en afskráð í umdæminu, sem það fluttist frá. Þegar eig- andi ökutækis flyst búferlum með ökutæki sitt í annað lögsagnarum- dæmi, skal eigandi senda til- kynningu um flutninginn til lög- reglustjóra beggja umdæmanna. Skal ökutækið þá afskráð I þvi umdæmi, sem það fluttist frá, en skráð að nýju í umdæminu, sem flutt er I. Gildir þetta þó eigi, þegar um skemmri dvöl er að ræða. Auk þess sem þannig hefur verið lögskylt að umskrá ökutæki vegna flutnings ökutækja milli umdæma, hefur tiðkast að um- skrá ökutæki að ósk eiganda, þótt eigi hafi það verið skylt að lögum. Með auknum bifreiðafjölda hefur umskráningum farið mjög fjölgandi, og umsvif tengd þeim hafa aukist ár frá ári hjá hinum ýmsu lögreglustjóraembættum, svo og við Bifreiðaeftirlit rikisins. Undanfarið hefur bifreiðafjöldi (i árslok), nýskráningar og um- skráningar verið sem hér segir: Þessu auknu umsvif hafa kallað á fjölgun starfsliðs og aukinn rekstrarkostnað. Hefur þvi á und- anförnum árum verið til athug- unar á hvern hátt draga megi úr kostnaði á þessu sviði og gera skráningarkerfið einfaldara, bæði fyrir þegnana og hið opinbera. Er með frumvarpi þessu lagður grundvöllur að því að skráningu ökutækja verði breytt á þann veg, að tekið verði upp fast númera- kerfi fyrir allt landið, þar sem meginreglan er sú, að ökutæki haldi óbreyttum skráningar- merkjum frá því það er fyrst skráð og þar til það er tekið af skrá sem ónýtt. Kostir við þessa breytingu eru fyrst og fremst sparnaður í vinnu og aðstöðu, þar sem hætt yrði að umskrá ökutæki vegna flutnings milli umdæma Framhald á bls. 39 Fjöldi Nýskrán Umskrán Ár bifreiða ingar ingar 1971 ............................. 52489 7193 13321 1972 ............................. 57155 6123 16900 1973 ............................. 63189 7666 19800 1974 ............................. 71364 9435 27340

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.