Morgunblaðið - 16.11.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.11.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NOVEMBER 1975 17 hjá okkur fæst allt í baóhenbengió og reyndan flest sem þarf til aó byggja eóa fegna hvent heimili gjörtó svo vel - iítió inn. Viö erum sannfœröir um aö okkar fousn er betri fogsn a ÞQRLAKSSON & NÖRÐMANN HÆ c* Skélogöiu $0 — Bankastrætí 11 - Slmí 11280 90 ára: Jón Arnason fyrrum fram- kvœmdastjóri og bankastjóri Á morgun, 17. nóv. 1975, er einn okkar þjóðkunnustu manna, Jón Árnason fyrrv. framkvæmda- stjóri og bankastjóri, níræður að aldri. Hann er fæddur í Syðra- Vallholti í Seyluhreppi í Skaga- firði. Var faðir hans Árni tré- smiður og bóndi í Borgarey, en móðir Jóns, kona Árna, var Guð- rún Þorvaldsdóttir, bónda i Fram- nesi í Akrahreppi. Arni var Vopn- firðingur að ætt, bóndasonur frá Rjúpnafelli og Böðvarsdal’ þar í sveit. Hann og fjölskylda hans höfðu undirbúið för sina til Vesturheims á harðindaárunum eftir 1880, en Árni breytti áætlun sinni og gerðist bóndi í Skaga- firði, en hann varð skammlífur og lést árið 1888. Þau hjónin höfðu eignast tvö börn auk Jóns, Ingibjörgu, sem enn er á lífi, komin á tíræðis- aldur, búsett hér í höfuðborginni, og Árna, er varð bóndi á Stóra- Vatnsskarði, dáinn 1971. Guðrún, móðir Jóns, giftist aftur, og var seinni maður hennar Pétur Gunnarsson og voru þau lengi búendur á Stóra- Vatnsskarði, en eftir þau börn þeirra. Núverandi bóndi þar er sonarsonur Guðrúnar og Péturs, Benedikt Benediktsson. Jón Árnason stundaði nám í Gagnfr'æðaskólanum á Akureyri og lauk þaðan prófi vorið 1905. Um leið og hann luku þar námi, meðal annarra, fjórir skóla- bræður hans, sem á seinni árum eru oft nefndir saman og allir, ásamt Jóni, eru taldir hafa mark- að stærri spor í íslensku þjóðlífi á þessari öld en flestir aðrir sam- tímamenn þeirra. Þessir menn eru taldir eftir aldri: Snorri Sig- fússon skólastjóri og námstjóri, Jónas Jónsson skólastjóri, al- þingismaður og ráðherra, Þor- steinn Methúsalem Jónsson skóla- stjóri, kaupfélagsstjóri, alþingis- maður og bókaútgefandi, Jón Árnason kennari, framkvæmda- stjóri og bankastjóri; og þeirra yngstur, Þórarinn Kristjánsson Eldjárn bóndi, kennari og kaup- félagsformaður, faðir núverandi forseta íslands. Sá elsti þeirra var fæddur 1884, þrir 1885 og sá yngsti 1886. Tveir þeirra eru horfnir sjónum okkar en þrír eru meðal vor og heyrði þjóðin rödd eins þeirra fyrir skömmu á öldum ljósvakans. Við óskum að ævi- kvöldið megi verða þeim sem mildast og minningar um liðna daga sem ljúfastar. Eftir að skólanámi Jóns lauk á Akureyri gerðist hann farkennari næsta áratuginn og var starfssvið hans bæði heima á æskustöðvun- um í Skagafirði og síðar sunnan Ævarsskarðs i Húnaþingi. Sumar- mánuðina sinnti hann öðrum störfum svo sem venja var og er. Hann annaðist þá alls konar sveitastörf og jafnvel stundaði hann sjóróðra. Hann gat brugðið sér til margvíslegra starfa eftir því sem þörf var fyrir og hugur- inn leitaði eftir. Þessi störf voru honum ekki ókunn, þar eð hann hafði I æsku stundað þau á bernskuheimili sínu, en að sjálf- sögðu kynntist hann þá enn nánar hugsun sveitafólksins og starfs- háttum þess utan heimasveitar sinnar og varð þaulkunnugur landbúnaðinum, því heldur sem hann var þá orðinn fullþroskaður með ágæta menntun. Við lok þrítugsaldursins verður alger bréyting á störfum hans. Hann yfirgefur átthagana og kennsluna og heldur rakleiðis til Kaupmannahafnar án þess þó að hefja þar nýtt skólanám né störf hjá neinu dönsku stórfyrirtæki, sem þó hefði mátt telja líklegt. I Kaupmannahöfn dvelur hann fram á vor 1917 og kynnir sér kaupfélögin dönsku og starfsemi þeirra bæði í höfuðborginni og utan hennar, bæði í sveitum og bæjum og nær þannig ýtarlegri og víðtækri þekkingu á skipulagi dönsku samvinnufélaganna. Hallgrfmur Kristinsson kaup- félagsstjóri frá Akureyri var um þessar mundir I Höfn I störfum fyrir kaupfélögin á Norðurlandi. Hafði hann þá hafið undirbúning að víðtækari starfsemi á vegum sambands þeirra, þar á meðal að stofnun heildsölu i Reykjavík og innflutningi á aðfluttum vörum þeirra frá útlöndum. Á miðju ári 1917 flytur Jón Árnason aftur heim til Islands, gerist fastur starfsmaður kaup- félagasambandsins með aðsetri í Reykjavík og hefst þá starf þess þar vegna viðskiptaþarfa félag- anna í landinu, þar með talin stofnun heildsölu o.fl., er síðan hefur óslitið haldist, sem kunnugt er. Jón Árnason varð þannig fyrsti fastur starfsmaður Sam- bandsins og þá ekki til einnar nætur tjaldað því að starfstíminn helst óslitinn til ársloka 1945 eða í meira en 28 ár og Jón þá orðinn sextugur að aldri. Aðalstarf hans var framkvæmdastjórn útflutn- ingsdeildar Sambandsins, þ.e. sala allra framleiðsluvara kaup- félaganna sem náði einnig til sölu á innlendum markaði. Þetta var allt að sjálfsögðu eitthvert mesta vandaverk, einkum þó er verst lét í ári eins og 1920—24 og aftur 1930—34. Það voru ekki miklir sæludagar I þeim efnum þau árin, og má áreiðanlega heimfæra orð- takið gamla „sá á kvölina sem á völina" sem lýsingu oft og einatt um þau störf, jafnvel þó vel gengi. Fyrir þessi störf átti Jón miklar þakkir skildar, svo örugg voru orð hans og áætlanir að þau mátti mikils meta og bera fyllsta traust til. Hann innti af hendi mörg vandaverkin sem fylgdu starfinu beint og óbeint og marg- sinnis voru honum faldar samn- ingsgerðir erlendis fyrir ríkisins hönd, þótt hér verði ekki talið. Samningar um saltkjötstollinn I Noregi, og ákvarðanir um smíði Brúarfoss, er flutningur og sala á freðkjöti var að hefjast mega þó ekki gleymast. Eittt stórmál vil ég auk þessa nefna, þ.e. undirbúningur setn- ingar afurðasölu-laganna, er tóku gildi sumarið 1934 og í ársbyrjun 1935. Þáttur Jóns var þar mikill og meiri en flestum er kunnugt. Um þessi mál urðu hörð átök og meiri en flest annað enda var hér um stórfellda hagsmuni að ræða sem fjörutíu ára reynsla sýnir. Um það leyti sem Sambandið byrjaði starfsemi sina hér i Reykjavik voru stofnuð mörg samvinnufélög í landinu og leituðu flest atbeina um stuðning þess og fengu hann þótt allerfitt væri um vik. Viðskiptaárferðið var erfitt fyrstu árin eftir heims- styrjöldina, sem endaði 11. nóv. 1918, þó að undanskildu árinu 1919. Snjóavetur 1920, sá mesti á þessari öld hér sunnanlands, varð bændum og um leið kaupfélögun- um, sem mjög voru fjárvana, mjög þungur i skauti og veitti þá Sambandið mikla aðstoð, og skipti þá miklu að hafa við stýrið góð- viljaða menn og ötula eins og for- stöðumenn Sambandsins reynd- ust og i minnum má hafa. Á erfiðleikatimum eins og voru nokkur ár eftir 1919 er gott að geta minnst þess að hafa átt i fararbroddi menn eins og Hall- grím Kristinsson og Jón Arnason, ,sem áttu í sér þann þrótt, sem almenningur naut og virti í orði og verki. Að loknu hinu mikla og mikil- væga starfi hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga við árslok 1945 gerðist Jón bankastjóri Lands- banka Islands og hafði það starf á hendi næstu tíu árin eða fram á árið 1954, en frá þvi 1928 hafði hann verið formaður bankaráðs- ins og allan þann tima og fylgst með öllum meiriháttar störfum þar. I lok heimsstyrjaldarinnar síðari var gjaldeyrisstaða þjóðar- innar sterk og miklar erlendar innstæður fyrir hendi, en þær höfðu óðfluga minr.kað næstu árin og hagur bankanna gagnvart útlöndum versnað i verulegum mæli. Mun þá varkárni og að- gæsla Jóns hafa komið sér vel, er hann gegndi bankastjórastörfum. Seinni ár Jóns í Landsbankanum var stofnaður Seðlabanki Islands og var Landsbankastjórnin þá einnig stjórn Seðlabankans. Störfin í stjórn Landsbankans hafa því verið umfangsmikil og krafist mikillar vinnu. Þegar kemur fram á árið 1954 varð það að ráði að störfum Jóns lyki i Landsbankanum en hann tæki að sér bankastjórastörf í Al- þjóðabankanum í Washington næstu tvö árin eða til loka ársins 1956. Var hann þar bæði fyrir hönd íslands og Norðurlandanna. Hann dvaldi þvi vestan hafs í höfuðborg Bandaríkjanna þau árin en flutti éftir það heim til íslands. Síðan hefur hann ekki haft opinber störf á hendi, en notið heimilis sins upp frá þvi. Auk þeirra starfa sem hér hafa verið talin hefur hann haft á hendi margskonar önnur störf, oft sinnis verið í samninganefnd- um fyrir rikisstjórnina. Hann átti frá 1923 sæti í stjórn Eimskipa- félags Islands, lengst af skipaður af ríkisstjórnum, en eftir það kos- inn af hluthöfum, þangað til hann baðst undan endurkosningu. Jón Árnason er mikill áhuga- maður um almenn mál og tók mikinn þátt i þjóðmálastarfsemi, lengi og vel, allt frá yngri árum og fram yfir miðjan aldur. Veittu menn því jafnan mikla athygli, hvað hann lagði til mála, bæði þeir er sammála honum voru og hinir, og var þess saknað af mörgum er hann lagði árar í bát og hætti þátttöku sinni á því sviði. Reynslan og hæfileikarnir gátu svo mörgu gagnlegu miðlað öðrum, þeim er á vildu hlýða. Jón Árnason kvæntist 8. jan. 1925 ágætri konu, Sigríði frá Kornsá i Vatnsdal, dóttur Björn Sigfússonar alþingismanns og bónda þar og konu hans Ingunnar Jónsdóttur frá Melum í Hrúta- firði, systur séra Jóns prófasts hins fróða á Stafafelli I Lóni. Heimili Sigríðar og Jóns á Laufás- vegi 71 hefur verið og er með hinum mesta myndarbrag bæði Utan húss og inrian, þar sem gestir njóta hlýju og nærgætni beggja húsráðenda og állrar fjöl- skyldunnar. Synir þeirra hjóna eru tveir, Björn og Arni, og gegna báðir störfum hjá Sambandi fsl. sam- vinnufélaga. Dóttur áttu þau eina, en hún lést af slysförum á fermingaraldri. Var hún bæði dáð og syrgð af öllum er til hennar og heimilisins þekktu. Eftir að Jón lét af opinberum störfum og raunar allt frá því fyrsta, hefur hann verið maður heimilisins, þ.e. látið sér mjög annt um heill þess og heiður og viljað njóta nærveru fjölskyld- unnar og sinnt sem best óskum hennar og þörfum. Hann hefur lengst af notið góðrar heilsu, and- legrar og lfkamlegrar, þrátt fyrir mikil störf og margþætt, en svo hefur farið um hann sem aðra, er ellin heimsækir, að fæstir geta varnarvopnum við komið til lengdar. Jóni hefur daprast sjón Framhald á bls. 30 takiö eftir!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.