Morgunblaðið - 16.11.1975, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975
45
VELVAKANDI
jVelvakandi svarar i síma 1 0-1 00
-kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
£ Vanheil börn
— og önnur börn
Guðmunda Helgadóttlr
hafði samband við okkur vegna
fréttar um að nú væri ætlunin að
taka þroskaheft börn í venjuleg
barnaheimili í Reykjavík, en
borgarstjórn hefur nú til athug-
unar að taka þetta upp i veruleg-
um mæli, jafnvel nú um áramót-
in.
Guðmunda sagði: „Mér finnst
ánægjulegt, að þetta mál skuli vera
komið svona vel á veg, en ég hef
reynslu af því, að þetta er bæði
ákjósanlegt og vel framkvæman-
legt, án þess að það þurfi að hafa í
för með sér verulegan kostnað.
Fyrir gos var starfandi í Vest-
mannaeyjum Styrktarklúbbur
vangefinna. Upphaflega voru í
honum 22 eða 23 áhugasamar kon-
ur, en þeim fjölgaði fljött, þvi að
áhugi varð strax mikill á þessu
málefni. Meðal annars sem klúbb-
urinn gerði var að kosta og skipu-
leggja gæzlu tveggja lítilla, van-
gefinna barna — mongólita.
Þetta var skipulagt þannig, að
ráðin var sérmenntuð stúlka. Hún
sótti börnin heim til þeirra og fór
með þau á barnaheimilið og var
með þeim þar frá kl. 1—5. Þetta
gafst ákaflega vel, og mátti ekki á
milli sjá hvort þessi tvö litlu eða
heilbrigðu börnin á barnaheimil
inu höfðu betra af vist þeirra þar,
að ekki sé minnst á foreldrana.
Allir voru mjög ánægðir með
þetta og ég held, að eftir þá
reynslu, sem þarna fékkst sé al-
veg óhætt að mæla með þvi að
þetta verði tekið upp I rikari
mæli.
Eftir gos hefur klúbburinn
haldið áfram að starfa, en þessi
þáttur starfsins hefur ekki verið
tekinn upp ennþá, aðallega vegna
þess að a.m.k. annað barnið kom
ekki til baka eftir gos.
Mér datt í hug, að þetta gæti
komið til greina víðar, þvi að
áreiðanlega hafa allir gott af
þessu — kannski er þetta enn
mikilvægara fyrir heilbrigð börn,
því að umgengni við vanheil börn
vekur þau til umhugsunar og
kennir þeim að taka tillit til ann-
arra. Það er líka ótrúlegt, hvað
hægt er að létta undir með for-
eldrunum. Mér fannst þetta
kannski sérstaklega eiga erindi til
fólks úti á landi, þvi að þar kemur
ekki til greina, vegna fámennis,
að setja á stofn sérstök heimili
fyrir vangefin börn. Það hlýtur
líka að vera örþrifaráð að senda
frá sér vanheil börn til kennslu
eða vistar á öðru landhorni og
allir vita að það er mikið álag,
sem fylgir því að ala upp börn,
Susann að syngja og spila, sagði
hann sem tilraun til að dreifa
athvglinni frá sjálfum sér.
Susann virtist vansælli og
vandræðalegri en nokkru sinni
fyrr, en móðir hennar kinkaði
skipandi til hennar kolli og hún
settlst á píanóstólinn eins og illa
gerður hlutur og myndaði sig til
að slá nótur.
En í sömu andrá voru dyrnar
opnaðar og blómleg vinnukona
stakk höfðinu inn.
— Síminn til fröken Susann,
sagði hún feimnislaust. — Mér
heyrðist það vera hann rauð-
skeggjaði þarna — þið vitið hann
Gustafsson.
— Hrukkurnar við munnvik
Teklu Motander snardýpkuðu.
— Ætlar hann nú að fara að
hringja HINGAÐ líka? En það
skal ekki verða liðið hér á heim-
ilínu... Susann ég harðbanna
þér...
En Susann sem að öðru jöfnu
var móður sinni bæði þæg og
undirgefin var farin fram í
simann. Ennið á Teklu var
þrumuský llkast og ég dáðist að
þeirri sjálfsstjórn sem hún beitti
sig næstu mfnúturnar. Faðir
minn sem alltaf hefur verið
sem ekki eru heilbrigð. Þess
vegna er svo nauðsynlegt að létta
undir með þeim, sem hér eiga
beinan hlut að máli, og það þarf
ekki alltaf að vera svo dýrt eða
erfitt í framkvæmd eins og dæmið
frá Vestmannaeyjum sýnir.“
£ Erfitt að ná
í endurskinsmerki
Soffía E. Jónasdóttir í Kópavogi
hringdi og sagði:
„Ýmsir spyrja: „Hvar fást end-
urskinsmerki?" Svarið er: „I
mjólkurbúðum og viðar“.
En mjólkurbúðir eru ekki á
hverju strái og í Kópavogi eru
þær fáar. Ég legg til að skólarnir
gangist fyrir einum allsherjar
söludegi á endurskinsmerkjum.
Það yrði þó ekki nóg, þvi að fleiri
þurfa að hafa merkin en börn.
Þess vegna finnst mér, að líka
ætti að ganga með endurskins-
merki fyrir hvers manns dyr, eins
og gert er með öll önnur merki.“
Þá hafði „Reið móðir“ samband
við okkur og sagði: „Ég held, að
það sé ekki ofverk foreldra að
kaupa endurskinsmerki handa
börnum sínum. Ef allir foreldrar
gerðu þetta, þá yrði kannski frið-
ur með merkin á yfirhöfnum
barna i skólunum, en þar hafa
þau undarlegt lag á að hverfa,
hversu kyrfilega sem þau eru fest
á flíkurnar. Eina skýringin, sem
mér dettur í hug, að geti verið á
þessu er, að merkjunum sé stol-
ið,“ sagði hin „reiða móðir".
Ja, ljótt er það. Annars er
skrýtið hvaða vandkvæði virðast
vera á dreifingu merkjanna. Nú
vita allir, að þau eru til sölu i
mjólkurbúðum vissan hluta árs,
þ.e.a.s. á vetrum. Samt heldur
fólk áfram að kv.arta yfir þvi, að
erfitt sé að fá merkin. Hvers
vegna nauðsynlegt sé að selja
þennan þarfa varning aðeins i
mjólkurbúðum i stað þess að hafa
hann til sölu sem víðast. Að hvaða
leyti þessi vörutegund er svo frá-
brugðin öðrum er ekki ljóst —
það væri til dæmis þokkalegt, ef
allt i einu væri ekki hægt
að kaupa blýanta annars staðar en
í fiskbúðum.
Nú er innheimt sérstakt gjald
af skólabörnum fyrir efni og bæk-
ur á hverju ári. Mætti ekki bæta
endurskinsmerkjunum við — inn-
heimta gjaldið með skólabóka-
gjaldinu og dreifa síðan merkjun-
um i skólanum? Ekki komum við
auga á aðra hagkvæma leið til að
sjá til þess að hvert barn fái sitt
endurskinsmerki. Ef þetta er ekki
hægt, hvers vegna er það þá?
Komi einhver auga á betri lausn á
þessu vandamáli, sem virðist
koma upp á hverju einasta hausti,
þá munumviðfúslegakoma henni
á framfæri.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Við eigum bara einn kött núna! — en það er hreinn
dekur-köttur.“
03? S\G€A V/öGA É lllVEgAW
MVA9 XO'bM
MILI& \$Ó9
MlÁ YKKcJft NÓNftf
5?
wm Ko^TA
ö'mO'bTU
Skápaskilrúm
Til sölu fristandandi falleg skápa — og hillu-
skilrúm úr eik. Einnig veggskápur (3 m) með
innbyggðum Ijósum og hátölurum.
Upplýsingar í síma 13411 kl. 1.30—4 í dag.
PHIUPS
rakvélar
ein af 6 gerðum
Fullkomin varahlutaþjónusta
HP 1304
Rakvél með hleðslutæki og rakhaus með 3
stillanlegum rakhnífum. Þetta er rakvélin fyrir
þá, sem vilja aðeins það besta. Þessi rakvél
sameinar alla kosti i einni vél fullkomna
tæknilega hönnun, stillamega rakhnifa og
hleðslutæki.
PHILIPS
kann tökin
á tækninni
heimilistœki sf
Hafnarstræti 3—Sætúni 8
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU