Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
19
Ármenningar aftur
yfir 100 stigin
ÁRMENNINGAR unnu auðveldan sigur yfir Val um helgina. Þetta var 2.
leikur Ármanns i mötinu, og eins og i fyrri leik sinum skoruðu þeir vel yfir
100 stig. nú 113, og er þetta i 4. skipti á keppnistlmabilinu sem Ármann
brýtur 100 stiga „múrinn" margumrædda.
Valsliðið sem hefur átt i miklum erfiðleikum með mannskap sinn i vetur
stóð þó i Bikarmeisturunum framan af, það var t.d. jafnt um miðjan fyrri
hálfleik 17:17, en Ármenningar náðu góðri forustu fyrir hálfleik 51:33 og var
það mest fyrir tilstilli þeirra Haralds Haukssonar og Jimmy Rogers en þeir
skoruðu þá grimmt.
I siðari hálfleik jókst svo munurinn
enn, og eina spurningin var um það
hvort Ármenningum tækist að ná 100
stiga markinu. Það gerðu þeir á 17.
min hólfleiksins og bættu síðan við 1 3
stigum eftir það
Eins og oft hefur verið minnzt á eru
erfiðleikar Vals um þessar mundir
miklir, Jóhannes Magnússon er á
sjúkrahúsi, Þórir bróðir hans er enn
ekki orðinn góður eftir handleggsbrot
sem hann varð fyrir ! haust, Þröstur
Guðmundsson æfir lítið og var t.d
ekki með nú, svo sjá má að blóðtaka
liðsins er mikil. „Þeir fá þvi aldeilis
tækifæri ungu mennirnir i liðinu að
spreyta sig, og koma sumir hverjir
mjög vel frá þvi Valur reyndi nú nýliða
með m.fl.. Ástráð Eysteinsson, og er
þar mikið efni á ferðinni Hann er enn
dálitið ragur i leik með m fl. en getur
hitt með óllkindum ef sá gállinn er á
honum Og ekki var það til að bæta úr
skák fyrir Val að Guðmundur Þor-
steinsson þjálfari liðsins var i leikbanni
og sat á áhorfendapöllum.
Þeir Jimmy Rogers og Jón Sigurðs-
son voru að venju drýgstir Ármenn-
inga, og virðist Jimmy auka við getu
sina allverulega nú upp á siðkastið
Skorar mikið, tekur mikið af fráköstum,
og virkar mjög hvetjandi á liðið á allan
hátt Haraldur Hauksson (sá buxna-
lausi frá Dublin) tók mikla og góða
rispu i fyrri hálfleiknum, og stóð sig að
öllu leyti vel nú.
Stighæstir hjá Ármanni: Jimmy
Rogers 37, Jón Sigurðsson 27,
Haraldur Hauksson 1 9
Hjá Val: Torfi Magnússon 28, Haf-
steinn Guðmundsson 18, Rikharður
Hrafnkelsson 14 98-—
„Neistinn er kominn ”
r _
Sögðu IS-menn eftir sigur gegn Fram
Stigahæstir hjá fS Steinn 20,
Bjarni Gunnar 1 7, Ingi C. Stefánsson
12 stig — Fram: Þorkell 22, Helgi
Valdimarsson 16, Eyþór Kristjánsson
10
Góðir dómarar voru Marinó Sveins-
son og Sigurður V. Halldórsson
—gk
Sigurður Gfslason, iR-ingur hefur náð knettinum, en fleiri eru greini-
lega um boðið.
„Við erum beztir
— sagði Trukkurinn eftir sigurinn gegn ÍR
KR-ingar hafa nú tekið forustuna i
íslandsmótinu eftir sigur sinn gegn
fslandsmeisturum ÍR um helgina.
Þetta var fyrsti ósigur ÍR-liðsins
siðan I feb. þegar þeir töpuðu fyrir
Ármanni i Bikarkeppninni. Lokatölur
leiksins á laugardag urðu 90 stig KR
gegn 76 stigum ÍR, en leikurinn var
mjög jafn allan timann það var ekki
fyrr en siðustu minúturnar sem fr-
ingarnir brotnuðu og KR tryggði sér
svo stóran sigur.
í lið ÍR vantaði að þessu sinni þá
Þorstein Hallgrímsson og Agnar
Friðriksson, og munar að sjálfsögðu
um minna. Þeir voru báðir erlendis
þegar leikurinn fór fram. Leikur ÍR bar
þess greinileg merki, enda Þorsteinn
yfirburðamaður og sá sem bindur liðið
saman.
Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn, það
var t.d jafnt á öllum tölum upp að 1 6,
en síðan komst KR yfir 6 stig og var
það mesti munurinn á liðunum I hálf-
leiknum Jón Jörundsson sem tók
stöðu Agnars á hægri kantinum var
„iðinn við kolann ', og skoraði mikið
með langskotum Hjá KR var Trukkur
að venju drýgstur við stigaskorunina I
hálfleiknum svo og þeir Gunnar Jóa-
kimsson og nafni hans Ingimundar-
son sem kom inná um miðjan hálf-
leikinn Staðan að fyrri hálfleik loknum
var 42:40 fyrir KR.
KR byrjaði fyrri hálfleikinn með
miklum látum og náði fljótlega 10
stiga forustu, en á 10 min. hálfleiksins
voru ÍR-ingar búnir að vinna þann mun
upp og jafna Þá komu 8 stig i röð frá
KR, og við þetta mótlæti brotnaði ÍR-
liðið gjörsamlega Það sem eftir var
leiksins gátu KR-ingarnir leyft sér að
spila hlæjandi og kátir, sigurinn var I
höfn og lokatölur urðu sem fyrr sagði
90 stig gegn 76.
„Ég hafSi mikla ánægju af aS spila
þennan leik," sagði Trukkur Carter
að honum loknum. „ÞaS er gaman
aS spila á móti þeim beztu og þó
sérstaklega þegar maSur vinnur þá
Þegar maður spilar við meistarana
langar mann aS sýna sitt bezta, og
ég tel aS ég hafi átt mjög góðan leik.
ÍR-liSiS er gott lið en við KR-ingar
sönnuðum það að KR er betra.
Munurinn á þessum leik okkar viS ÍR
og leiknum viS þá i Reykjavikurmót-
inu var mikill, þótt aSalmunurinn að
minu mati hafi verið sá að ég fékk
ekki 5 villur (nú hlær Trukkur ógur-
lega). En I alvöru talað. þá höfum við
vit á þvi I siðari hálfleik að halda
boltanum þegar við vorum með
forustu og skutum ekki nema I
öruggum færum. En það sem skiptir
mestu máli vinur minn, var sigurinn,
sem er sönnun þess að við erum
beztir."
Trukkur var bezti maður KR i þess-
um leik, en sá sem kom mest á óvart
var Gunnar Ingimundarson, ungur
bakvörður sem átti mjög góðan leik I
fyrri hálfleik og hélt þá KR-liðinu á
floti Gunnar Jóakimsson og Bjarni
Jóhannesson áttu sæmilega kafla en
duttu niður þess á milli Kolbeinn Páls-
son var I einhverju óstuði að þessu
sinni, hitti illa, og átti á annan tug
sendinga sem höfnuðu hjá mótherja
ÍR-liðið bar að sjálfsögðu mikinn
svip þess að Þorstein og Agnar
vantaði, og virkar liðið ekki mjög sann-
færandi án þeirra Þeir bræður Kristinn
og Jón Jörundssynir voru beztu menn
liðsins, Þorsteinn Guðnason og Sig-
urður Gíslason með góða kafla,
Kolbeinn Kristinsson óvenju slakur að
þessu sinni.
Stighæstir hjá KR: Trukkur 34,
Gunnar Jóakimsson 12, Kolbeinn 11,
Bjarni Jóhannesson 10stig
Hjá ÍR: Kristinn 20, Jón 19, Þor-
steinn 14, Kolbeinn 12
Dómarar voru Kristbjörn Albertsson
og Ingi Gunnarsson Þeir dæmdu yfir
höfuð mjög vel, þótt nokkrir dómar
þeirra orkuðu tvímælis eins og óum-
flýjanlegt er gk.—
„ÞETTA er allt að koma hjá okkur,
við höfum náð betri tökum á þeim
leikaðferðum sem við erum með. og
hraðaupphlaupin eru farin að „rúlla i
gegn." Okkur hefur I vetur skort
einhvern neista. einhverja smávið-
bót við það sem við höfum sýnt, en
nú er þetta allt saman komið. Neist-
inn er kominn, og nú fer bráðlega að
loga."
Sá sem hefur orðið er Steinn Sveins
son, fyrirliði (S, og hann var kampakát-
ur að leik ÍS og Fram loknum. ÍS vann
þar góðan sigur, lokatölur 78:66 eftir
43:30 I hálfleik og (S hafði ávallt
yfirhöndina I leiknum
ÍS náði 20 stiga forustu upp úr
miðjum fyrri hálfleik, en þá tókst þeim
vel að útfæra svæðispressuna sem þeir
spila, og hirtu boltann oft af Frömurum
á þeirra vallarhelmingi Eftir þessa
góðu byrjun ÍS má segja að öll spenna
I leiknum hafi verið úti, ÍS hélt sinum
hlut og allir leikmenn liðsins léku
mikið
Én rþá3'voru Ijósir punktar I leik
Framliðsins, t d leikur Þorkels
Sigurðssonar sem var mjög góður að
þessu sinni. Þarna var miðherji
unglingalandsliðsins I baráttunni gegn
landsliðsmiðherjunum I ÍS og kom
Þorkell sterkur út úr þeirri viðureign.
Steinn Sveinsson var mjög drjúgur
fyrir ÍS I þessum leik, honum tókst flest
sem hann reyndi, nema að skora úr
vltaskotum sínum. Hann „eyðilagði"
mikið prósentutölu slna I vitaskotum,
enda talan hans I vltahittninni fyrir
þennan leik með óllkindum
STAÐAN
KR 3 3 0 288:217 6
IR 4 3 1 341:291 6
Is 5 3 2 403:405 6
A 2 2 0 220:166 4
UMFN 4 2 2 325:303 4
Fram 3 1 2 236:230 2
Valur 3 0 3 243:313 0
Snæf. 4 0 4 257:388 0
ís
vann
UMFN
„VIÐ töpuðum þessum leik
aðallega vegna lélegrar vlt«h
hittni, og einnig var hittni okk*
ar utan af vellinum afleit. Þaé
er vissulega slæmt að vera bé-
inn að tapa 4 stigum I mótinu,
en við gefumst ekki upp,“
sagði Gunnar Þorvarðarsson
fyrirliði UMFN eftir 72:78
ósigur sinna manna gegn IS.
IS gerði það gott um þessa
helgi, þeir léku tvo leiki og
unnu báða og eru að koma
mikið til eftir slaka byrjun.
Þeir virtust þó vera að lenda í
vandræðum í Njarðvfk þegar
heimamenn tóku örugga
forustu I upphafi Ieiksins. En
þeir náðu að minnka muninn
fyrir hálfleik, og hjálpaði það
þeim mikið að innáskiptingar
þjálfara UMFN voru mjög um-
deilanlegar. Þannig tók hann
alla útaf um svipað leyti þá
Gunnar, Stefán og Brvnjar.
Staðan f hálfleik var 32:27
fyrir heimamenn, en strax f
upphafi sfðari hálfleiks tókst
IS að komast yfir og þeir
slökuðu aldrei á eftir það.
Lokatölur 78:72.
Bjarni Gunnar var stighæst-
ur hjá IS með 29 stig, Jón
Héðinsson skoraði 15 stig,
Steinn Sveinsson 14. — Jónas
Jðhannesson átti sinn lang-
bezta leik með UMFN til þessa
bæði f vörn og sókn þar sem
hann skoraði 15 stig, Gunnar
og Stefán voru báðir með 14
stig.
Dómarar voru Þráinn Skúla-
son og Helgi Hólm, og voru
margir óhressir með frammi-
stöðu þeirra.
Aðrar
deildir
HINIR kunnu knattspymumenn
úr Vestmannaeyjum þeir Har-
aldur „Gullskalli" Júlíusson,
Friðfinnur Finnbogason og Tómas
Pálsson voru aSalmáttarstólpar
Vestmannaeyjaliðsins um helgina
ásamt Jóhanni Andersen. Þeir
léku tvo leiki. unnu fyrst Selfoss
á laugardag með 63:40. og dag-
inn eftir unnu þeir einnig stóran
sigur gegn ÍBK sem hefur veriS
álitið sigurstranglegt i 3. deild-
inni. Lokatölur þar voru 67:55.
Þá vann Breiðablik Hauka i 2.
deildinni með 71 stig gegn 60.
Sá teikur var jafn framan af og
höfðu Haukar t.d. yfir i hálfleik
32:27. en I síðari hálfleik tók
Guttormur Ólafsson til sinna ráða
og tryggði Breiðablik með góðum
leik.
Lið USVH i 3. deild fór til
Akureyrar og lék 3 leiki. Þeir léku
á laugardag við KA og töpuðu
naumlega 33:35. A sunnudags-
morgun léku þeir við KA á ný og
töpuðu 34:42, og eftir hádegi
þann sama dag lék USVH gegn
Tindastól frá Sauðárkrók. Enn
urðu Húnvetningar að þola tap,
nú töpuðu þeir með þriggja stiga
mun 42:45. Þetta voru einu leik-
irnir á Akureyri þessa hetgi. leikj-
um Þórs og UMFG i 2. deild ver
frestað. svo og leik ÍS og Þórt I
m.fl. kv.
Við spiluðum „happa og glappa ”aðferðina
Rœtt við Einar Ólafsson þjálfara ÍR
EINAR Ólafsson hefur verið
nefndur „Faðir ÍR" I körfu-
knattleiknum, og hefur
örugglega margt vitlausara
verið sagt. Það má segja að
Einar sé maðurinn bak við
velgengni félagsins s.l. 10
til 15 ár, og hefur hann
unnið þar gifurlegt starf
bæði sem leikmaður og þá
ekki siður sem þjálfari og
uppalandi.
„Min fyrstu afskipti af
körfuknattleik voru þegar
ég var á f þróttakennara-
skólanum árið 1948. Þá
kenndi Sigriður Valgeirs-
dóttir okkur undirstöðu-
atriði I körf uknattleik og
ég hreifst af iþróttinni. Eft
ir námið á Íþróttakennara-
skólanum starfaði ég sem
farkennari, og var þá aðal-
lega á Snæfellsnesi. var t.d.
á stöðum eins og Grundar-
firði, Hellissandi og Ólafs-
vik. Þá gafst ekki mikill
timi til að iðka körfubolt-
ann, en fljótlega eftir að ég
kom til Reykjavikur hóf ég
að leika með ÍR."
En hvenær byrjaðir þú að
fást við þjálfun?
„Það má segja, að þjálf-
un min hjá ÍR hafi hafizt af
alvöru árið 1957, en áður
hafði ég litillega fengizt við
þetta."
Á árunum sem I hönd
fóru voru yngri flokkar iR
nær ósigrandi og var ekki
óalgengt að ÍR væri með a-
og b-lið i úrslitum I hverjum
flokknum á eftir öðrum. Og
allt þetta byggði Einar upp.
Þeir eru margir leikmenn-
irnir sem hafa stigið sin
fyrstu skref með boltann
undir handleiðslu hans,
menn sem siðar hafa skipað
sér i fremstu röð isl. körfu-
knattleiksmanna. Má I þvi
sambandi nefna nöfn eins
og Kristin Jörundsson, Kol-
bein Kristinsson, Birgi
Jakobsson, Anton Bjarna-
son o.fl.
Þá hefur Einar um langt
árabil þjálfað kvennalið ÍR,
og við spurðum hann hverja
hann teldi meginástæðuna
fyrir erfiðleikum kvenna-
körfuboltans.
„Ástæðan er fyrst og
fremst sú að það hafa alltaf
verið allt of fá lið. Hér fyrr á
árum voru það aðeins lið ÍR
og Armanns, siðan hætti
Ármann með kvennakörfu-
bolta en KR kom i staðinn.
Þannig var þetta i mörg ár,
en það er fyrst núna sem
virðist eitthvað vera að rofa
til i þessum málum og fleiri
félög eru að taka kvenna-
körf uboltann á dagskrá."
Einar hefur nær undan-
tekningarlaust þjálfað þau
kvennalið sem hafa verið
valin til keppni fyrir hönd
K.K.f. t.d. landsliðið sem
lék á Norðurlandamótinu
1970. En hann hefur einnig
þjálfað isl. karlalandsliðið.
„Já, það var árið 1964
þegar landsliðið fór i keppn-
isferð til Bandarikjanna.
Þetta var mjög erfið ferð,
leiknir 12 leikir á 16 dög-
um. Þetta var engin sigur-
ferð enda ekki við þvi að
búast, en ég man að undir-
búningur fyrir ferðina hefði
getað verið mun betri en
hann var."
Hver er að þinu mati
aðalmunur á körfuknatt-
leiknum I dag og á þeim
árum þegar þú varst að
hefja keppni?
„Munurinn liggur aðal-
lega I þvi að i dag hafa
leikmenn mun meiri undir-
stöðuþekkingu en áður var,
og leikskipulag er allt ann-
að. Nú eru yfirleitt spiluð
ákveðin „kerfi" og þetta er
allt i fastari skorðum. Hér
áður fyrr spiluðum við
meira „happa og glappa"
aðferðina svokölluðu, eins
og visu er enn gert á sum-
um stöðum i dag. gk.