Morgunblaðið - 14.12.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 45 Um getnaðar varnir Eftirfarandi upplýsingar fjalla í stuttu máli um þær getnaðarvarnir sem völ er á í dag. Upplýsingarnar eru teknar úr bæklingi sem gefinn er út og dreift af Kynfræðsludeild Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur. HETTAN: (Pessar) með sæðisdrepandi kremi. Kostir: Engar aukaverkanir. Læknir tekur mál og ákveður stærð (nr.) hettunnar — og leiðbeinir konunni hvernig á að koma henni fyrir. Engin þörf á eftirliti, aðeins ný „máltaka" 6—8 vikum eftir hverja fæðingu. Ókostir: Hettunni verður að koma fyrir í leggöngunum fyrir samfarir, mörgum finnst þetta hafa truflandi áhrif á eðlilegt kynlíf. Öryggi: 90%. SMOKKUR: (Condom) Kostir: Engar aukaverkanir. Eina getnaðarvörnin sem til er fyrir karlmenn. Auðveld í notkun og fæst a.m.k. i öllum lyfjabúðum án lyfseðils. Mjög góð vörn gegn kynsjúkdómum. Ókostir: Sömu og við notkun hettunnar. öryggi: 95% LYKKJAN: (leglæg getnaðarvörn) Kostir: Ef ekki er af ein- hverjum ástæðum hægt að taka pilluna, má í flestum tilfellum nota lykkjuna. Ókostir: Læknir verður að setja lykkjuna upp í leg. Það verður að fylgjast reglulega með konunni (1 sinni á ári). Sumar tegundir endast aðeins í u.þ.b. V/í—2 ár og verður þá að skipta um og fá nýja. öryggi: 97—99%. SÆÐISDREPANDI LYF: (Froða, krem, stautar) Kostir: Sömu og við hettu. Ókostir: Sömu og við hettu. öryggi: Minna en við notkun hettu eða smokks. U.þ.b. 80% Fæst án lyfseðils í öllum apótekum. GETNAÐARVARNAR- TÖFLUR: (Pillan) Kostir: Mikið öryggi, hafa ekki truflandi áhrif á eðlilegt kynlíf. Ókostir: Töflurnar þarf að taka að staðaldri. öryggi: 100% Aukaverkanir: Vægar, eins og ógleði, spenna í brjóstum, vægar skaptruflanir, auka- blæðingar. Alvarlegri, eins og slæm áhrif á lifur, blóðtappi, tiða- teppa og ýmis áhrif á efnaskipti líkamans (bruna sykurs og fitu í líkamanum). Allar þessar aukaverkanir geta líka komið fram hjá þung- uðum konum jafnvel í ríkari mæli. Fást einungis gegn lyfseðli. GETNAÐAR- LYF 1 SPRAUTU- FORMI: (T.d. „þriggja mánaða- sprautan") Kostir: Sömu og við getnaðar- varnártöflurnar. Ókostir: Sömu. Öryggi: A.m.k. eins mikið og við getnaðarvarnartöflur. Aukaverkanir: Svipaðar og við getnaðarvarnartöflur. Auk þess ber oft á langvarandi tíða- teppu við og eftir notkun sprautunnar. Stundum síblæði jafnvel vikum saman. VERT AÐ MINNAST: Þrennt skal hafa f huga við val á getnaðarvörn: 1) Það er að sjálfsögðu meira öryggi í að nota einhverja getnaðarvörn heldur en enga. 2) Rétt er að halda sig við eina tegund í einu og aldrei að hætta á neitt. 3) Öryggi hinna ýmsu getnaðarvarna byggist á þvi, að fólki falli þær í geð og þar af leiðandi noti þær ávallt. ATH: Miðað við þær getnaðarvarnir sem hér hafa verið nefndar eru rofnar sam- farir og hinir svo nefndu „öruggu dagar“ mjög ótryggar getnaðarvarnir. Heyrt eftir þekktum borgara í Reykjavík, er kyn- fræðslu bar á góma: ,,Geta þeir ekki bara keypt smokkana á Bankastræti 0, eins og maður gerði hér í gamla daga. Það gekk prýðilega." Silla eignast „Ég heyri nú ekkert, en finn stundum sparkið f litlu-systur.“ „Nú er litla-systir að fæðast, Katrfn Ijósa er að toga f hana.“ Heilsuverndarstöð Revkjavfkur. Guðjón Guðnason lœknir. „Eiga fóstureyðingar að koma í stað kynfrœðslu og upplýsinga?” stöðvarinnar í fylgd mæðra sinna. Það sýnir vaxandi skilning foreldra og er mjög jákvætt. Starfsfólkið vann að þessu í sjálfboðavinnu til.l. september, en eftir þann tíma hefur tfma-' kaup verið greitt. Er það eina fjárveitingin sem fengist hefur. Fé vantar m.a. til auglýsinga og kaupa á fræðsluefni. Þess má geta að nemendur i Myndlista- og handíðaskóla Islands gerðu tillögur að auglýsingarspjöld- um fyrir deildina, mörg mjög skemmtileg, en ekki hefur fengist fjárveiting til prent- unar á þeim. 1 samræmi við lög frá Alþingi (lög um fóstureyðingar, ófrjó- semisaðgerðir m.m.) er bein- línis skylda heilsustöðva að veita þessu fræðslu, en ekki verður unnt að halda starf- seminni lengi áfram, án þess að fjárveiting fáist. Upphaflega var deildin opin tvo daga í viku, en nú er ein- ungis opið á mánudögum 17—18,00. Lokun deildarinnar væri spor aftur á bak og hafa ber í huga, að kynfræðsla og fræðsla um getnaðarvarnir er undirstaða þess að hald.a fóstureyðingum í lágmarki." Að lokum sagði Guðjón: „Það er ábyrgðarleysi að framfylgja ekki settum Iögum.“ fá ráð í sambandi við getnaðar- varnir. Mikið er gert af þungunarprófum hjá konum og loks koma margir bæði konur og karlmenn vegna ýmissa kyn- lífsvandamála. KYNFRÆÐSLUDEILD var opnuð við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur s.l. febrúar. Að henni standa ásamt stjórn Heilsuverndarstöðvarinnar starfsfólk Mæðradeildarinnar, þ.á m. 2 læknar, félagsráðgjafi, ljósmóðir og 2 hjúkrunar- fræðingar sérmenntaðir í heilsuvernd. Við hittum að máli annan lækni deildarinnar, Guðjón Guðnason, ásamt Kolbrúnu Agústsdóttur hjúkrunar- fræðingi og fengum upp- lýsingar um aðdragandann að stofnun deildarinnar og hvernig starfið hefur gengið. „Við höfðum i upphafi óljósa hugmynd um, að þörf væri hér á landi fyrir einhvers konar ráðgefandi stofnun varðandi kynfræðslu og fjölskyldu- áætlun," sagði Guðjón. „Við héldum nokkra fundi og frekar en að láta málið liggja í nefnd- um f áraraðir, ákváðum við að opna deildina 1. febrúar. Við sem staðið höfum að þessari starfsemi, lítum á þetta sem tilraun og auk þess vildum við komast að því hver raun- veruleg þörf væri fyrir slika kynfræðslu og hvort fólk kysi að notfæra sér að koma á stað sem þennan, þar sem slík þjónusta væri á boðstólum al- menningi að kostnaðarlausu. Leitað er til deildarinnar vegna ýmissa vandamála, oftast til að A þessum 8 mánuðum, sem deildin hefur verið opin, hefur greinilega komið í Ijós eftir- farandi. Þörf fyrir kynfræðslu er mikil og fólk, — aðallega ungar stúlkur, — vill notfæra sér þessa aðstöðu í æ rikara mæli. A 6. hundrað manns hafa leitað til deildarinnar frá stofnun hennar og allt bendir til þess að aðsóknin eigi eftir að aukast. Sérstaklega hefur farið f vöxt að 15—16 ára stúlkur leiti til Bækur um kvnfræðslu sem dreift er til bókasafna skól- anna: Æska og kvnlff, 1971 þýð. Magnús Ásmundsson. 16 ára eða um það bil, 1972, þýð. Silja Aðalsteinsdóttir. Hvernig verða börnin til, 1974, þýð. Önrólfur Thor- lacius. Þannig komstu f heiminn, 1974 þýð. Örnólfur Thorlac- ius. litlu - systur Myndir úr bókinni: „Sille fár en lille nöster“ eftir Bo Jarner. „Pabbi er að setja nýja bleiju á litlu-svstur. Ég verð að láta á hana púður svo bossinn verði ekki rauður.“ „Nú eru mamma og litia-svstir komnar heim aftur. Litla-systir fær mjóik sem mamma hefur f brjóstunum sfnum en ég fær mfna mjólk úr pelanum.“ „Mér finnst hún svo sæt, að ég ætla að kyssa hana.“ p li 11'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.