Morgunblaðið - 17.12.1975, Síða 13
MOHGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1975
13
Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri
Indriði G. Þorsteinsson:
ÁFRAM VEGINN
Sagan um Stefán Islandi
Hér er sagan um hinn unga, skagfirzka
sveitapilt, sem ruddi sér leið til frægðar og
frama úti í hinum stóra heimi. Hún er „auð-
ug að skemmtilegum sögum og svipmynd-
um . . . fróðleg sem ævisaga, fjölbreytt og
skemmtileg minningabók og skilur eftir
minnisstæða mynd af glöðum dreng og góð-
um listamanni.“ — Helgi Skúli Kjartansson.
Bókin er myndskreytt. Verð kr. 3.600
Þorsteinn Stefánsson:
FRAMTÍÐIN GULLNA
Þessi hugljúfa, íslenzka skáldsaga á sér
nokkuð óvenjulegan feril. Höfundurinn,
Þorsteinn Stefánsson, hefur verið búsettur
j Danmörku um iangt árabil og þar kom
bókin fyrst út. Hlaut hún hinar beztu við-
tökur og höfundurinn var heiðraður með
H. C. Andersen bókmenntaverðlaununum.
Nú gefst íslenzkum lesendum tækifæri til
að kynnast þessari ágætu skáldsögu á
móðurmáli höfundarins. — Verð kr. 2.460.
Guðjón Sveinsson:
HÚMAR AÐ KVÖLDI
Hér kemur Guðjón Sveinsson með sfcáld-
sögu fyrir fullorðna á tæpitungulausu máli
og fjallar um vandamál ungu kynslóðarinnar
í dag. ( frásögninni er mikil spenna sem
helzt til óvæntra söguloka. Verð kr. 1920.
Kristján frá Djúpalæk:
SÓLIN OG ÉG
Það vekur alltaf fögnuð hins stóra aðdá-
endahóps Kristjáns frá Djúpalæk, þegar
hann sendir frá sér Ijóðabók. Verð kr. 1800.
Ingebrigt Davik:
ÆVINTÝRI í MARARÞARABORG
Fjörug og skemmtileg barnabók í þýðingu
Kristjáns frá Djúpalæk. Verð kr. 720.
Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi:
JÖKULSÁRGLJÚFUR —
íslenzkur undraheimur
Með litríkum myndum og leiðarlýsingu er
hér vísað á ótal undurfagra staði, sem hinn
almenni ferðamaður hefur aldrei augum
litið hingað til. En nú kemur tækifærið upp
í hendurnar. — Verð kr. 4920.
Jenna Jensdóttir:
ENGISPRETTURNAR HAFA ENGAN
KONUNG
Þetta er fyrsta Ijóðabók höfundar, gefin út
í 300 tölusettum og árituðum eint. Myndir
eftir Sigfús Halldórsson. Verð kr. 1800.
Finnur Sigmundsson:
SKÁLDIÐ SEM SKRIFAÐI MANNAMUN
Sendibréf frá Jóni Mýrdal
í þessum sendibréfum Jóns Mýrdals kynn-
umst við sérstæðum manni í óblíðri lífs-
baráttu. Verð kr. 1920.
Dougal Robertson:
HRAKNINGAR Á SÖLTUM SJÓ
Þetta er einhver frægasta skipbrotssaga
seinni ára. Hin óbilandi úrræðasemi og
þrautseigja Robertson-fjölskyldunnar hef-
ur vakið aðdáun og hrifningu milljóna les-
enda um allan heim. Verð kr. 2460.
Frank G. Slaughter:
HVÍTKUEDDAR KONUR
Ný og spennandi læknaskáldsaga eftir hinn
vinsæla metsölubókahöfund. Verð kr. 2460.
Guðný Sigurðardóttir:
ÞAÐ ER BARA SVONA
Þetta er bráðskemmtileg og fyndin nútíma-
saga, full af þeirri kýmni og gáska, sem höf-
undinum er svo eiginlegur Verð kr. 1800.
Ármann Kr. Einarsson:
LEITARFLUGIÐ
Þessi skemmtilega bók um Árna og Rúnu í
Hraunkoti hefur verið ófáanleg um árabil
en kemur nú í nýrri útgáfu sem 8. bókin í
Ritsafni Ármanns. Verð kr. 1800.
Hreiðar Stefánsson:
BLÓMIN BLÍÐ
Þessi nýja og fallega bók er prentuð með
stóru og skýru letri og skreytt af Þóru Sig-
urðardóttur. Verð kr. 1440.
Ármann Kr. Einarsson:
AFASTRÁKUR
Þessi nýja og skemmtilega bók hins vin-
sæla barnabókahöfundar er tilvalin til lestr-
ar og endursagnar fyrir yngstu börnin.
Myndir eftir Þóru Sigurðardóttur Kr. 1440.
Arthur Hailey:
BÍLABORGIN
Höfundur metsölubókanna HÓTEL og
GULLNA FARIÐ (Airport) opinberar leynd-
ardóma bifreiðaiðnaðarins, flettir ofan af
baktjaldamakki forstjóra, verkalýðsforingja
og óprúttinna bílasala, kynnir okkur einka-
líf og ástalíf fólksins, sem kemur hér við
sögu. Verð kr. 2460.