Morgunblaðið - 17.12.1975, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17, DESEMBER 1975
FRUMVARP til fjárlaga fyrir árið 1 976
hefur fjárveitinganefnd haft til athug-
unnar allt frá byrjun þessa þings og
rætt málið á samtals 38 fundum sín-
um.
Þó er þess að geta, að nokkru fyrir
þingtímann átti undirnefnd fjár-
veitingarnefndar með sér nokkra fundi,
þar sem hún meðal annars, ræddi
sérstaklega við forstóðumenn ríkis-
stofnanna, um fjármagnsþörf þeirra og
annað er rekstur umræddra rlkisstofn-
anna varðar
Við athugun sina á fjárlagafrumvarp-
inu, hefur nefndin að öðru leyti haft á
sömu vinnubrögð sem áður, það er,
skipt með sér verkum ril athugunar á
vissum málaflokkum frumvarpsins, og
þá sérstaklega þeim málaflokkum sem
falla undir verklegar framkvæmdir svo
sem nýbyggingar skóla, sjúkrahús og
heilsugæzlustöðvar og hafnarfram-
kvæmdir
Þá hefur nefndin notið góðrar sam-
á íslenskum afurðum, og á vissum
þáttum sjávarútvegsframleiðslunnar
hefur verið um sölutregða að ræða eða
þá að útflytjendur hafa orðið að sætta
sig v.ð óhagstætt markaðsverð
Þessi áföll þjóðarbúsms hafa átt
drýgstan þátt I því að verulegur við-
skiptahalii I utanríkisversluninni hefur
átt sér stað á undanförnum misserum,
og gjaldeyrisvarasjóðurinn er ekki
lengur fyrir hendi
EFNAHAGSÁFÖLLIN
HAFA BITNAÐ HART
Á AFKOMU RÍKISSJÓÐS.
Vegna ástandsins í afkomku atvinnu-
veganna, varð ekki hjá því komist bæði
árin, 1974 og 1975 að grípa til
gengisbreytinga, til þess að koma i veg
fyrir stöðvun fiskiskipaflotans. og forða
frá atvinnuleysi, og draga um leið úr
sett hefur svip sinn á gerð þess fjár-
lagafrumvarps sem hér er til umræðu
Sama máli gegnir einnig um störf
fjárveitinganefndar
DREGIÐ ÚR REKSTRAR-
ÚTGJÖLDUM RÍKIS-
STOFNANA
í fjárlagafrumvarpinu er fylgt þeirri
stefnu, að draga stórlega úr áformum
ráðuneyta og ríkisstofnanna um
rekstrarútgjöld og minnka magn fjár-
festinga á vegum hins opinbera, þegar
frá eru skilin orkumál, en þau eiga svo
sem kunnugt er, i stjórnarsamningum.
að hafa forgang
Meiribluti fjárveitinganefndar hefur
haldið fast við þessa stefnu i afstöðu
sinni við afgreiðslu málsins i nefnd-
inni
Fyrri hluti
Jón Arnason.
Ræða Jóns
Árnasonar
formanns fjár-
veitinganefndar
við 2. umræðu
fjárlaga í gær
Draga verður úr ríkisútgjöldum og fjárfest-
ingum, sem ekki stuðla að aukinni framleiðslu
vinnu og aðstoðar hagsýslustjóra og
starfsmanna Fjárlaga- og Hagsýslu-
stofnunarmnar, og hefur það komið
nefndinni að ómetanlegu gagni við
afgreiðslu málsins
Þá vil ég síðast, en ekki sizt, þakka
meðnefndarmönnum minum öllum
fyrir ánægjulegt samstarf i nefndinni,
og gildir þar einu máli um stjórnarand
stæðinga, sem samherja því allir hafa
jafnan verið reiðubúnir til að leggja sig
fram til að auðvelda nefndarstörfin. við
hin erfiðu skilyrði sem nú eru vissulega
fyrir hendi Fyrir þá góðu samvmnu vil
ég sérstaklega þakka
Enda þótt fjárveitingarnefnd hafi
ekki orðið sammála um afgreiðslu
málsins og skili þvi tveim nefndarálit-
um, þá er það svo að breytingatil-
lögurnar á þingskjali nr 169 flytur
nefndin sameiginlega, en minnihlutinn
tekur fram, eins og fram kemur i
nefndaráliti, að hann hefur óbundnar
hendur um afstöðu til einstakra til-
iagna, sem fram kunna að verða
bornar, og áskila sér einnig rétt til að
fiytja frekari breytingatillögur
FJÁRLAGAGERÐ VIÐ
ÓVENJULEGAR AÐSTÆÐUR
Ems og fram kemur i nefndaráliti
meirihluta fjárveitinganefndar, er
óhætt að fullyrða að fjárlagagerðin fyrir
árið 19 76 fer nú fram við óvenjulegar
aðstæður í þjóðarbúskapnum. Meiri og
sneggri efnahagsáföll hafa dunið yfir
þjóðina, en dæmi eru til um áður, allt
frá þeim tíma er lýðveldið var stofnað
Benda má á, að á erfiðleikaárunum
1967 og 68 þegar saman fór afla-
brestur og stórfellt verðfall sjávar-
afurða, minnkuðu þjóðartekjur á mann
á milli ára um 8%, en nú er gert ráð
fyrir 9% lækkun þjóðartekna á mann á
yfirstandandi ári, og á árinu 1974 var
ekki um neina aukningu þjóðartekna á
mann að ræða, frá fyrra ári
Sú spá sem nú liggur fyrir, gerir ekki
ráð fyrir neinum teljandi bata á næsta
ári, og verður þvi um þriðja árið í röð
að ræða, sem raunveruleg minnkun
þjóðartekna á sér stað
Afleiðing þessa er svo að sjálfsögðu
stórfelld skerðing viðskiptakjara, eða
yfir 30% á skömmum tima, þe.a.s
gífurleg hækkun á verðlagi innfluttra
nauðsynja i erlendri mynt, samtímis
verulegri lækkun á útfluttningsverðlagi
þeirri óhóflegu eftirspurn eftir erlend-
um gjaldeyri, sem jafnan er fyrir hendi,
þegar röng gengisskráning á sér stað
Þessi efnahagsáföll og ráðstafanir
gegn þeim, hafa óhjákvæmilega bitnað
hart á afkomu rikissjóðs
Dregið hefur verulega úr inn-
flutningi; sérstaklega hátollavöru, m a
bifreiðum, sem haft hefur i för með
sér, hlutfallslega lækkun tekna ríkis-
sjóðs af aðflutningsgjöldum Afleiðing
þessa er síðan sú að mikill greiðsluhalli
hefur hefur orðið á ríkissjóði bæði árin
1974 og 1975 og það þrátt fyrir
margvfslegar ráðstafanir sem gerðar
hafa verið til þess að draga úr eða að
koma i veg fyrir umræddan halla
Má i þessu sambandi benda á aukna
tekjuöflun sem átti sér stað á yfir-
standandi ári með álagningu á sér-
stöku 12% vörugjaldi og ennfremur
með þeim niðurskurði á fjárlögum sem
framkvæmd var. í samráði við fjárveit-
inganefnd var tekin ákvörðun um allt
að 2 þús millj króna niðurskurð
Fjármálaráðuneytið hefur nú látið i
té yfirlit um þessa framkvæmd
JÖFNUÐUR VERÐUR
AÐ NÁST SEM FYRST.
Ég hygg að flestir háttvirtir þing-
menn geti verið sammála um að eins
og nú er komið i islenzkum efnahags-
málum þá beri brýna nauðsyn til þess.
að ná sem allra fyrst jöfnuði í rikis-
búskapnum
En til þess að svo megi verða, verður
að leggja rika áhersfu á að draga svo
sem verða má úr ríkisútgjöldum sem
varða opinberan rekstur og fjárfesting-
um, sem ekki eru i beinu sambandi eða
stuðla að aukinni framleiðslu Slik
stefna er nú þjóðarnauðsyn
í dag rikir meiri óvissa um efnahag
þjóðarinnar en oftast áður Til þess
liggja margar ástæður, og ef til vill ekki
síst sú óvissa sem við blasir um ver-
tíðaraflann og þá sérstaklega með tilliti
til hinnar nýútgefnu skýrslu fiski
fræðinganna, hvað viðkemur verð-
mætasta fiskistofninum, þorskinum
Ef til þess kemur að draga verður
verulega úr sókn íslenzka fiskiskipa-
flotans, er einsýnt að enn skapast
vandamál, sem íslenzka þjóðin á eftir
að takast á við
Það er þetta alvarlega ástand sem ég
hefi nú rakið í stórum dráttum, sem
Hlutdeild sveitarfélaga
í söluskatti aukin
I.AGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um brevlingu á
verkefnum sveilarfélaga og kostnaði við þau. Er gert ráð fvrir þvf að
hlutdeild Jöfnunarjóðs sveitarfélaga f söluskatti aukist úr 8% af 13%
söluskatti í 8% af 18%, söluskatti. Stækkar skerfur sveitarfélaganna af
söluskattinum um u.þ.b. 600 milljónir króna. Er jafnframt gert ráð
f.vrir að eftirtaldir útgjaldaliðir rfkissjóðs færist yfir á sveitarfélög:
Viðhald skólamannvirkja ........................ 220 milljónir kr.
Rekstur dagvistunarheimila..................... 120 milljónir kr.
Elliheimili ..................................... 60 milljónir kr.
Almenningsbókasöfn .............................. 20 milljónir kr.
Heimilishjálp ................................... 27 milljónir kr.
Vinnumiðlun ...................................... 5 milljónir kr.
Orlof húsmæðra........................................ 8 milljónír kr.
Akstur skólabarna .............................. 30 milljónir kr.
Kemur þetta m a fram í því að
fjárveitingar til stærstu liða fjárfestinga
í landinu. eru ekki hækkaðir í breyt-
ingatillögum nefndarinnar, en slíkt
ætla ég að sé eindæmi, þótt leitað sé
langt til baka
MÖRG ATRIÐI
TIL NÁNARI
ATHUGUNAR
Þessi aðhaldsstefna fjárveitingar-
nefndar kemur einnig fram f því, að
nefndin hefur ekki séð sér fært að taka
upp nema fáar breytingatillögur til
hækkunar, nú við 2. umræðu, en það
skal þó tekið fram, að nú bíða óvenju
mörg atriði enn hjá nefndinni, til
nánari athugunar, en koma til
afgreiðslu við 3 umræðu
Meðal þeirra málafiokka sem enn
bíða endanlegrar afgreiðslu hjá nefnd-
inni eru framlög til leiklistarskóla, til
jöfnunar námsaðstöðu. ferjubryggja og
sjóvarnargarða, framleiðslueftirlit
sjávarafurða, kaupa og reksturs skips
til landhelgisgæzlu, Byggingasjóðs
verkamanna og til Almannatrygginga,
starfsliðs rfkisspitala, löggæzlu, Orku
stofnunar og Rafmagnsveitna rfkisins
Bfður afgrciðsia þcssa málaflokka til
3 umræðu Þá hefur nefndinni, nú
sem jafnan áður, undir afgreiðslu fjár-
lagafrumvarpsins, borist fjölmörg er-
indi frá stofnunum, einstaklingum og
samtökum sem flest hafi falið í sér
beiðni um fjárhagslegan stuðning eða
fyrirgreiðslu svo og leiðréttingum sem
valda hækkunuiYi á útgjöldum fjárlaga-
frumvarpsins
Nefndin hefur reynt eftir föngum að
kynna sér þessi erindi, en hefur að
þessu sinni einungis getað sinnt örfá-
um þeirra, eins og ég hefi áður að
vikið Nefndinni er að sjálfsögðu Ijóst
að í fjölmörgum tilfellum hefur orðið
að synja fjárbeiðnum til málefna sem
vissulega verðskulda fjárhagslegan
stuðning hins opinbera, en verða því
miður að bíða betri tima.
SAMSKIPTI VIÐ
SVEITARFÉLÖGIN
Þá vil ég geta þess, að nú hin síðari
ár, hefur það farið mikið i vöxt, að
sendinefndir utan af landsbyggðinni
og forsvarsmenn sveitarfélaga, óska
eftir að fá sérstaka fundi með nefnd-
inni, til að f.ylgja eftir beiðnum sínum
um fjárveitingar til hinna ýmsu fram-
kvæmda, sem ríkissjóður stendur
undir, að meira eða minna leyti
Fjárveitinganefnd hefur undan-
tekningarlaust, orðið við þessum til-
mælum sveitarstjórarmanna, og agk
þess margra einstaklinga, sem erindi
hafa átt við nefndina, en allt þetta er
mjög tímafrekt Svo sem kunnugt er,
og fram kom í ræðu hæstv fjármála-
ráðherra við fyrstu umræðu um fjár-
lagafrumvarpið, var gert ráð fyrir því
að sveitarfélög fengju nú stærri skerf af
söluskatti en áður, eða sem næmi um
600 milljónum króna.
Þar á móti skildu koma ákveðin
verkefni, sem millifærðust frá ríkissjóði
yfir til sveitarfélaganna, og þá fjár-
mögnuð af þeim
Um þennan þátt fjárlagafrumvarps-
ins hefur því myndast biðstaða, og
hafa samningar staðið yfir á milli aðila
um það hvaða málaflokkar það væru,
sem mæta skildu umræddri fjármagna-
millifærslu Mér skilst, að samningar
um þessi mál hafi nú, a m k að mestu
leyti tekist, og mun nefndin hafa það
samkomulag, til viðmiðunar. þegar
hún gengur endanlega frá frum-
varpinu.
Það sem mér er tjáð að samist hafi
um í þessum efnum, er að sveitarfélög-
in tæki að sér: —
1 Viðhald skóla
2 Rekstur dagvistunarheimila
3 Elliheimili
4 Almenningsbókasöfn
5 Heimilishjálp
6. Vinnumiðlun
7. Orlof húsmæðra
8 Akstur skólabarna
fjárlagafrumvarpinu áætlaðir, nokkru
lægri, en talið er að í samkomulaginu
felist
STARFSMF.NN,
SEM EKKI
HEFUR VERIÐ HEIMILUÐ
RÁÐNING Á
Eins og áður hefur komið fram, fór
fram á yfirstandandi ári, endurskoðun
á starfsmannahaldi rikisins og rikis-
stofnananna, með það fyrir augum, að
kannað sé, hvort um starfsmenn sé að
ræða, sem ekki hefur verið heimiluð
ráðning á af hendi réttra aðila
Eins og háttvirtum þmgmönnum er
kunnugt um, þá hefur nú verið gefin út
starfsmannaskrá yfir alla starfsmenn i
opinberri þ/ónustu, kemur þar í Ijós að
i kerfinu eru um 100 manns, sem
engin heimild var fyrir hendi, að ráðnir
yrðu, til hinna umræddu starfa
Allir þessir 100 starfsmenn eru
stjörnumerktir i skránni, og til að
standa undir kostnaði af launum þeirra
er ekki ein króna i fjárlagafrumvarpinu
Flestir munu vera þeirrar skoðunar,
að hér sé um meira vandamál að ræða.
en svo, að allt þetta starfslið verði
strikað út meðeinu pennastriki
Það hefur þvi verið um það rætt i
fjárveitinganefnd, að ekki verði komist
hjá þvi, við 3. umræðu, að setja inn,
fjárupphæð til að mæta a m k hluta af
þeim launakostnaði sem hér er um að
ræða
sem metið er á 220 millj
sem metið er á 1 20 millj
sem metið er á 60 millj
semmetiðerá 20 millj
semmetiðerá 27 millj
semmetiðerá 5 millj
semmetiðerá 8 millj
semmetiðerá 30 millj
Þá er eftir mismunur sem svarar:
1 10 millj króna
Sé hins vegar miðað við fjárlagatölur
fjárlagafrumvarpsins þá er hér um
meiri mismun að ræða, þar sem fjár-
veitingar til sömu málaflokka eru 1
eða samtals Kr 490 millj.
Nefndin yrði siðar, eftir áramót, með
aðstoð Hagsýslustofnunar, að meta
það, hvaða viðbótarstarfsmapnafjöldi
Franihald á bls. 18
fllWftCl Dæmigerðar
aðgerðir hægriflokka
f GÆR urðu umræður I sameinuðu
þingi um átit meiri og minnihluta
fjárveitinganefndar. Jón Árnason,
formaður fjárveitinganefndar gerSí
grein fyrir áliti meirihluta nefndar-
innar og er ræSa hans birt hér á
slSunni, en einnig var skýrt frá áliti
meirihlutans á þingslSu Morgun-
blaSsins I gær.
Geir Gunnarsson (k) hafði fram-
sögu fyrir áliti minnihlutans og gagn-
rýndi hann vinnutilhögun nefndarinn-
ar Sagði hann að ef vel ætti að vera
þyrfti nefndin að hefja störf þegar
mánuði áður en þing kemur saman.
Hún hefði hins vegar ekki byrjað að
— segja talsmenn
minnihlutans um
F járlagafrum varpið
starfa fyrr en viku fyrir þing og eftir að
þingstörf hófust hafi timinn verið ill-
notaður Þvi væri nú svo komið að sum
mál þyrfti að afgreiða á handahlaup-
um Hann gagnrýndi einnig hvað 2
umræða hefði verið dregin á langinn
en benti á að aðeins væru tveir dagar á
milli annarrar og þriðju umræðu en
hefðu þurft að vera 5 til 6. Þá talaði
hann um ýmis atriði i störfum fjár-
veitinganefndar, sem hann taldi van-
kanta á
Hann sagði að samtímis þvi að
skorið væri sem mest niður af verkleg-
um framkvæmdum væri hvergi hugað
að úrræðum til sparnaðar i rekstri
rikisins Algert stjórnleysi í innflutn-
ingings- og gjaldeyrismálum veldur á
þessu ári 20 þúsund milljóna króna
halla á viðskiptajöfnuði og stórfelldri
skuldaaukningu erlendis, sagði Geir,
— og greiösluhalli rikisins verður á
þessu ári 5 sinnum meiri en spáð hafði
verið í fjárlagafrumvarpinu. sem lagt
var fram i október Kemst hann að
Framhald á bls. 18