Morgunblaðið - 17.12.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1975
23
Goðafrœði Grikkja
og Rómverja eftir
dr. Jón Gíslason
Bókaútgáfa tsafoldar hefur nú
gefið út öðru sinni bók dr. Jóns
Gíslasonar um goðafræði Grikkja
og Rómverja, en fyrri útgáfa
bókarinnar hefur lengi verið
ófáanleg. Þetta er allstór bók,
287 blaðsíður. t inngangskafla
gerir höfundur grein fyrir forn-
um grískum fræðum í stuttu máli,
en meginmál bókarinnar skiptist í
tvo höfuðþætti. Hinn fyrri fjallar
um gríska menningu og menn-
ingarsögu f árdaga, en hinn síðari
er hin eiginlega goðafræði, þar
sem sagt er frá öllum helztu goð-
um og goðheimaverum Grikkja til
forna. I upphafi fyrri kafla ræðir
höfundur um landið Grikkland,
landshætti og áhrif þeirra á
menningu og menningarsköpun
fbúanna. Þessu næst lýsir hann
nokkuð hinum miklu fornleifa-
fundum, sem áttu sér stað á
gríska menningarsvæðinu á öld-
inni, sem leið. Er þar að vonum
skýrt mest frá afrekum þeirra
Schliemanns og Sir Arthur
Evans. Þessu næst rekur höf-
undur þróun grískrar menningar.
í síðari hluta þessa kafla er gerð
grein fyrir þróun grískra trúar-
bragða og sá kafli bókarinnar
þykir undirrituðum vera bezti
hluti hennar. I síðari meginhluta
bókarinnar er fyrst skýrt frá
sköpunarsögu goðafræðinnar og
heimsmynd fornaldarmanna lýst
á skýran og skemmtilegan hátt.
Þvf næst er lýst öllum helztu goð-
um bæði Grikkja og Rómverja. Að
þessu loknu segir frá öllum
minniháttar goðum og goðum,
sem sérstaklega eða eingöngu
voru tengd ákveðnum náttúru-
fyrirbærum eða heimshlutum,
goðum undirheima, þjónustuliði
goðanna o.sv.frv. Síðasti hluti
Dr. Jðn Gfslason
bókarinnar fjallar um fornar goð-
sagnir.
Dr. Jón Gíslason er löngu kunn-
ur sem einn fremsti sérfræðingur
okkar á þessu sviði og þarf því
ekki að efast um, að hann skýrir
frá öllu svo sem vitað er sannast
og réttast um þessi fræði. Oft er
þó vart hægt að segja að neitt sé
vitað með sannleika um trúar-
brögð, þau byggja oftast meira á
tilfinningum en vísindum. Frá-
sögn höfundarins er ljómandi,
létt og lipur og afar skýr.
En nú kynni einhver að spyrja:
Hin viðurkennda glervara frá Libbey Owen
GJAFAVORUR
Leikföng, gífurlegt úrval.
Búsáhöld.
Kerti.
Snyrtivörur í gjafakössum.
Undirföt og náttkjólar.
Barnafatnaður.
Skíði og skautar.
SKEIFUNN11511SIMI 86566
KJORGARÐI
£2*
Bókmenntlr
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Til hvers í ósköpunum er verið að
gefa út bók um þessi fræði? Hvað
varðar okkur um þetta, forn goða-
fræði er hvort sem er löngu kom-
in úr tfzku. Þessu er því til að
svara, að þótt forn átrúnaður sé ef
til vill ekki beinlínis i tízku um
þessar mundir er goðafræðin,
heimsmynd hennar og sú menn-
ing er hún skóp einn af hornstein-
um menningar okkar í dag. Allt
til þessa dags hafa ýmis helztu
skáld veraldar sótt efni og fyrir-
myndir til goðafræði fornaldar og
þess vegna verða mörg helztu
bókmenntaverk heimsins ekki
skilin án nokkurrar þekkingar á
þessum fræðum. Hið sama gildir
um trúarbrögðin. Kristin trú er í
eðli sínu nátengd trúarbrögðum
Grikkja og Rómverja þótt guða-
talan sé ekki jafnhá. Þess vegna
fáum við ekki heldur skilið
kristna trú til fulls nema hafa
nokkra þekkingu á þessum fræð-
um. Enn ber þess að geta, að
norræn goðafræði er af sðmu
rótum runnin sem hin gríska og
þess vegna er hér um að ræða
einn af hyrningarsteinum okkar
eigin þjóðmenningar. Af þessum
sökum ætti að vera ljóst að útgáfa
þessarar bókar er nauðsynleg, og
raunar þyrftum við á fleirum að
halda. Væri vissulega þörf á góðri
og handhægri bók um önnur
trúarbrögð fornaldar, t.d. um
austurlenzk trúarbrögð.
Allmargar myndir prýða bók-
ina, og eru þær allar vel gerðar.
Óneitanlega saknar maður þó lit-
mynda af ýmsum helztu listaverk-
um og byggingum fornaldar.
Goðafræði Grikkja og Rómverja
er bók, sem ætti að vera til á
hvgrju heimili.
Auðvitaö
náttkjól og slopp
Kerið
> Laugavegi £*£*
sími 12650