Morgunblaðið - 17.12.1975, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1975
31
LANDHELGISGÆZLUFLUGVÉLIN SVR fór f fskönnunarflug f
gær. Kom f Ijós, að fsinn er nú óvenjulega nálægt landi miðað við
árstfma. Er jakahrafl aðeins 7—8 sjómflur frá Straumnesi. Annars
var fsinn eins og hér segir:
Frá Kóparnesgrunni liggur mjó ísspöng uppundir Gölt og þaðan
norður með landi, skammt inn fyrir Deildarhorn. Isspangir eru í
mynni önundarfjarðar og Súgandafjarðar. íshrafl er á fjörum frá
Gelti og inn fyrir Deildarhorn. tsspöngin er víðast 3 til 5 sjómílur á
breidd og víða greiðfært í gegnum hana. Jakahrafl er í 7 til 8
sjómílna fjarlægð frá Straumnesi.
ísjaðar 1—3/10 að þéttleika er 40 sml. NV frá Bjargtöngum, 30
sml. 300 gráður frá Blakk, 27 sml. NV frá Barða, 15 sml. NV frá
Kögri og 29 sml. N af Horni. Stakir jakar voru vfða innan við
ísbrúnina.
Tveir af starfsmönnum Islenskra matvæla H/F, Sigurður
Gunnarsson og Birgir Erlendsson með laxinn á milli sfn.
42punda lax
veiddist cið
Eldey
42 PUNDA LAX, hængur
veiddist f þorskanet út af Eld-
eyjarboða 16. maf sl. og er hér
um að ræða næst stærsta lax,
sem veiðst hefur á Islandi, eða
við landið. Það voru skipverjar
á bátnum Goða Ke. 132, sem
fengu laxinn og sagði Haf-
steinn Ingólfsson stýrimaður á
bátnum, að mikill kraftur hefði
verið f laxinum, er upp að báts-
hliðinni kom, hefði hann rifið
sig úr netinu og skipverjar rétt
náð honum með goggi áður en
hann hvarf aftur f djúpið. Lax-
inn var 42 pund, veginn á bað-
vigt, 116 cm á lengd og 63 cm f
þvermál. Þess skal getið að lax-
inn var veginn 20 klst, eftir að
hann kom úr sjó og baðvigt er
ekki mjög nákvæmur mæli-
kvarði, hins vegar benda lengd
og ummál laxins til þess að hér
sé rétt farið með þyngd.
Stærsti lax, sem veiðst hefur
hér við land, er Grímseyjarlax-
inn, sem veiddist 1957 og vó
49H pund blóðgaður, var 132
cm á lengd og 72 cm í þvermál.
Þá veiddi Kristinn Sveinsson
38V4 punda lax í Iðu 1946, sem
var 115 cm og 70 I cm I þvermál.
Víglundur Guðmundsson fékk
3VA punda lax í Brúará 1952 f
september, sem var 125 cm á
lengd og 65 cm í þvermál og var
því búinn að vera um 3 mánuði
ívor
i ánni, en laxar leggja mikið af
er þeir ganga f árnar, þvf að þá
hætta þeir að nærast. Vitað er
um tvo 36 punda laxa úr Hvftá í
Borgarfirði og tvo rúmlega 36
punda, sem veiðst hafa í Laxá í
Aðaldal. Fékk Fortescu annan
1912 og Jakob Hafstein hinn 10.
júlí 1942 í Höfðahyl. Hvítár-
laxarnir veiddust í net og á
stöng, netalaxinn vitjaði
Sigurður bóndi Fjelsted í
Ferjukoti um 1920, en hinn lax-
inn veiddi Jón Blöndal á stöng
við Svarthöfða.
Skv. upplýsingum Þórs
Guðjónssonar veiðimálastjóra,
sem gaf okkur þessar upp-
lýsingar um stórlaxana, hefur
Eldeyjarlaxinn verið búinn að
vera 3 ár í sjó er hann veiddist
og að öllum lfkindum á leið upp
í einhverja á, hugsanlega Hvftá.
Hreisturssýnishorn sýna, að
hann hafði aldrei í ferskvatn
komið eftir að hann fyrst gekk
til sjávar eftir 3 ár frá klaki í
fæðingará sinni. Hafði hann
tekið út mestan vöxtinn á 2. ári
f sjó. Er við skoðuðum laxinn í
gær voru eigendur hans að
koma með hann til reykingar I
reykhúsið hjá Islenzkum mat-
vælum H/F í Hafnarfirði og
hann búinn að vera í frysti í 7
mánuði og hafði rýrnað mjög
við það.
5 aðilar fengu heiðursmerki
Rauða
krossins
FIMM aSilar fengu f gær afhent
heiöursmerki Rauða kross islands og
fór athöfnin fram I húsakynnum
samtakanna við Nóatún.
Heiðursmerkin hlutu eftirtaldir:
Hjálmar Vilhjálmsson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri, fyrir áralangt starf að
málefnum vangefinna. Árni Björnsson
endurskoðandi, sem verið hefur endur-
skoðandi Rauða kross íslands I yfir 20
ár og hefur um árabil setið i stjórn
samtakanna; Guðrún Brandsdóttir
hjúkrunarkona, sem starfað hefur á
læknavarðstofu og slðar slysadeild I
Reykjavlk frá 1943, Jóhannes Óli
Sæmundsson, sem um árabil hefur
verið forystumaður í málefnum vangef-
inna á Akureyri; loks er það Árni Gunn-
arsson fyrrverandi formaður Blaða-
mannafélags íslands, en merkið fær
hann og stétt hans fyrir forgöngu og
vinnu við söfnun fyrir hjartabílum
Á myndinni eru frá vinstri, Bragi Guð-
mundsson, formaður B(, sem tók við
merki Árna Gunnarssonar, Guðrún
Brandsdóttir, Árni Björnsson, og
Hjálmar Vilhjálmsson. Jóhannes Óli
gat ekki verið viðstaddur. (Ljósm. Sv
Þorm.
JAKKAPEYSUR
í glæsilegu úrvali
Bergstaðastræti 4
^ sími 14350