Morgunblaðið - 20.12.1975, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 20.12.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1975. 15 Þriðji hver maður er atvinnulaus á Bíldudal Bíldudal, 18. des. ATVINNULEYSI er mjög mikið hér f plássinu um þessar mundir. t lok oktðber voru 52 skráðir at- vinnulausir og talið er að nú sé talan orðin 60, og er það þriðj- ungur vinnufærra manna og kvenna á staðnum. Sáralitlar Ifkur eru á þvf að úr rætist f vetur og horfir þvf mjög þunglega hér. Man ég ekki eftir svona dökku útliti f atvinnumálum sfðan ég kom hingað árið 1939. Frystihúsið er ekkert starfrækt sem stendur. Það var selt í haust og er sagt að verið sé að byggja það upp. Okkur þykir sú upp- bygging ganga heldur seint fyrir sig og eru litlar líkur á því að húsið taki við nokkrum fiski til vinnslu í vetur. Matvælaiðjan hefur ekki verið starfrækt síðan í vor. Þar er einnig slæmt útlit því gera þarf á fyrirtækinu miklar endurbætur ef það á að fá vinnsluleyfi. Þarf t.d. að skipta um alla raflögn í húsinu. Eina atvinnufyrirtækið á staðn- um, sem vinnur að framleiðslu, er Rækjuver hf. sem tekur við afla rækjubátanna sem gera út héðan. Þeir hafa verið 7 i haust og hafa aflabrögð verið heldur .treg. Eftir áramót verða 10 bátar gerðir út á rækju héðan. — Páll. FONIX SlMI 2 44 20 |HANDA HENNI EÐA HONUM!| • RONSON OG ROWENTA KVEIKJARAR • HÁRÞURRKUR ÞURRKGREIÐUR Ikrullujárn rúllurI RAFM.RAKVÉLAR LUXO-VINNULAMPAR | ÓDÝR ÚTVARPSTÆKI I |M.A. MEÐ VEKJARAKLUKKUl HÁTÚNI NÆG BILASTÆÐI NORSKII SILKISKERMARNIR KOMNIR PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÖS & ORKA Suöurlandsbraut 12 sími 84488 __

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.